Tíminn - 08.06.1971, Side 12

Tíminn - 08.06.1971, Side 12
Þriðjudagur 8. júni 1971. FriSsteinn Jónsson FÉLL FKAM AF HAMRI OG LÉZT OÓ—Reykjavík, mánudag. Friðsteinn Jónsson, veitinga- maður í Reykjavík, beið bana af völdum áverka er hann hlaut þeg- ar hann féll fram af hamri niður í urð á eyjunni Vigur í ísafjarðar- djúpi s.l. laugnrdag. Hann lézt á r-júkrahúsinu á ísafirði aðfarar- nntt sunnudags. Friðsteinn var G7 ára gamall. Hann rak veitinga- -tofuna að Laugavégi 28 Og sum- arhótelið að Búðum ásamt konu sinni Lóu Kristjánsdóttur. Þau hjónin áttu fimm börn. Friðsteinn sat ferðamalaráð- stefnu, sem haldin var á ísafirði fyrir og um helgina. Á laugardag- inn var þingfulltrúum boðið út í Vigur og var farið þangað með Fagranesinu. Var hópurinn tiltölulega ný- kotmnn þangað þegar slysið varð. Varð Friðsteinn einn á gangi á vestanverðri eynni miðri. Þar hag ár svo til, að ofan við 8 og 10 metra háan hamar er aflíðandi. grasi gróin brekka. Á brekku- brúninni skrikaði Friðsteini fót- ur og féll. Rann hann niður brekkuna án þess að geta stöðv- aðj sig og féll fram af hamrinum, sem er snarbrattur, og niður í urðina í fjörunni. Ung stúlka var <=kki langt undan og sá þegar mað urinn féll. Kallaði hún á hjálp Komu menn strax á vettvang. Framhald á bls. 22. Hver segir að við höfnum ríkis- forsjá hjá Álafossi og SanaT MENNTAMAL . v Framsóknarflokkurinn telur, að markmið menntunar eigi einkum að felast í eftirfarandi grundvallaratriðum: andi • Að þjálfa hæfileika til sköpunar, gagnrýninnar af- stöðu til viðfangsefna og þrosk andi félagsstarfs. • Að fullnægja þörfum ein- staklinganna á að velja sér námsleiðir eftir hæfileikum og áhugasviði. m Að fullnægja þörfum þjóð félagsins á menntun og sérþjálf uðu starfsliði í hinum ýmsu greinum atvinnulifs og þjón- ustu. 0 Að varðveita og ávaxta þjóðlegan menningararf, fyrst og fremst tungu og þjóðerni, og efla andlegan. siðgæðisleg- an og líkamlegan þroska ein- staklinganna. Framsóknarflokkurinn telur nauðsynlegt, að gcrð verði heildaráætlun um þörf þjóðar- innar á komandi árum fyrir hvers kyns fræðsiustofnanir, námsleiðir og tengsl milli þeirra og skapa þannig sam- ræmt og heilsteypt mcnnta- kerfi. Höfuðáhcrzla /verði lögð á, að aðstaða tii náms verði sem jöfnust. Sú stefna verði mörkuð þegar í upphafi varð- andi staðsetningu menntastofn- ana, að þeim sé dreift um land ið og ber sérstaklega að taka tillit til þessarar stefnu við gerð landshluta- og byggða- áætlana. Framsóknarflokkurinn telur, að við framtíðaruppbyggingu mcnntakerfisins þurfi einkum að huga að eftirtöldum atrið- um: 0 Hin öra framþróun vísinda og tækni byggist framar öðru á þeirri megináherzlu, sem í nútímaþjóðfélögum er lögð á undirstöðurannsóknir hvers konar. Jafnframt hlýtur mennt unin að beinast æ méira inn á þá braut að leggja minna upp úr þekkingarmiðlun, en þeim mun meira upp úr þjálfun í að ferðum við að afla þekkingar og beita henni. • Stöðugrar endurnýjunar er þörf. Námi er aldrei að fullu lokið. Aðferðir úreltast og þekk ingarforði nemenda hrekkur skammt. Æskilegt er, að há- skólanám hefjist sem fyrst, sé sem stytzt. en virkast og að námsleiðir séu sem fjölbreytt- astar. • Gefa þarf fólki kost á því í sem ríkustum mæli að afla sér endurmenntunar og viðbót armenntunar á öllum aldurs- skeiðum. Opna þarf skólana að nokkru marki í þessu skyni. Háskóli fslands þarf að stefna að fræðilegu framhaldsnámi í sem flestum fræðigreinum, sem þar eru stundaðar, svo og endurmenntun til að veita aukna hæfni í starfi og til und- irbúnings undir nýtt sérsvið í fræðigrein. • Fjölga verður námsleiðum, samræma þær hvcr annarri og auka tengsl þeirri á milli. Jafnframt verði kappkostað að gæði og notagildi náms aukist og hæfni nemenda sé ekki minni en gerist með grann- þjóðunum. • Stórefla þarf menntunarað- stöðu þeirra, sem stunda undir stöðuatvinnuvegi þjóðarinnar og úrvinnslugreinar í tengsl- um við þá, svo sem fiskiðnað, matvælafræði og byggingar- iðnað. • Allri einokun einstakra hagsmunahópa innan skólakerf isins verði útrýmt. • Taka þarf próf til endur- mats, einkum með tilliti til þess, að þau séu sem hagkvæm ust tæki til að prófa hæfni nemenda og örva þá í námi. Kynna þarf nemendum tilgang náms betur en nú er gert. Framsóknarflokkurinn legg- ur auk þess m.a. áherzlu á: • Að Háskóli íslands stór- efli rannsóknaþátt starfsemi sinnar. Tengsl hans við þær rannsóknastofnanir, sem til eru í landinu, verði aukin. Sérstök rækt verði lögð við þær fræðigreinar, sem nauð- synlegar eru atvinnuvegum þjóðarinnar, og þær greinar, þar sem íslendingar geta ver- ið í fararbroddi og lagt nokk- uð sjálfstætt af mörkum til heimsmenningarinnar. • Að Kennaraháskólinn verði efldur og bætt úr brýnum hús næðisþörfum hans. Lögin um Kennaraháskólann verði end- urskoðuð á næstu tveimur ár- um, og m.a. könnuð tengsl Há- skólans við Kennaraskólann. • Að verzlunar- og viðskipta- menntun verði tekin til ræki- legrar endurskoðunar. Stefnt verði að því, að koina upp rík- isreknum verzlunarskólum sam hliða einkaskólum þeim, sem fyrir eru. • Að komið verði upp sem fullkomnastri fræðslustarfsemi á vegum útvarps og sjónvarps, og stuðlað að stórauknu nám- skeiðahaldi í ýmsum greinum og leitað nýrra leiða til hag- nýtingar skólahúsnæðis og fé- lagsheimila £ þessu skyni. 0 Verkmennt þjóðarinnar verði bætt m.a. með nýjum leiðum í sambandi við verk- legt nám unglinga. Kannað verði, hvernig verkmenntaskól- um verði haganlegast markað rúm innan fræðslukerfisins. • Bókmenntir og listir verði efldar með opinberum fjár- stuðningi og annarri fyrir- greiðslu við einstaklinga og samtök. Stuðla verði að þýð- ingum íslenzkra bókmennta á erlend tungumál og útgáfu er- lendra öngvegisrita í vönduð- um, íslenzkum þýðingum. Auk- inn verði stuðningur af opin- berri hálfu við bókaútgáfu og miðlun bókmennta til almenn- ings verði bætt. • Unnið verði að því, að list- ir og bókmenntir séu í raun almennings- og þjóðareign. • Lögð verði rík áherzla á menningarlega notkun félags- heimila. Athugun fari fram á rekstri þeirra með skipulegri nýtingu þeirra fjTÍr augum í þágu íþróttastarfsemi, tóm- stundaiðju og annars félagslífs. Félagsheimilasjóður og íþrótta sjóður verði efldur. • Æskufólki og öðrum verði kennt að nota tómstundir sín- ar á menningarlegan hátt til einstaklings- og félagsþroska, og verði skólahúsnæði sem bezt nýtt í þessu skyni. Mennta þarf sérstaklega félags- og tóm- stundaráðgjafa, sem starfi í skólum og frjálsum félagasam- tökum. Svarra plolurrf ffUtaf en/m yii snjatíir- j* BIFREIÐIR Á KJÖRDAG Allir þeir, sem vilja aka fyrir R-listann á kjördag, eru vinsam- lega beðnir að hringja í síma 10948. Jíragið ekki að tilkynna bílana. KOSNINGASJÓÐURINN Stuðningsfólk B-Iistans. Enn vantar fé í kosningasjóðinn. Fram- laginu er veitt móttaka á kosningaskrifstofunum og afgreiðslu Tímans í Rankastræti.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.