Fréttablaðið - 26.10.2002, Síða 9
LAUGARDAGUR 26. október 2002
AFMÆLISVERKEFNI ÍS Í
Ísland á iði 2002 er 90 ára afmælisverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Meginmarkmið þess er að hvetja almenning
á öllum aldri til aukinnar hreyfingar. Nánari upplýsingar, fræðsluefni o.m.fl. má nálgast á www.isisport.is
A
B
X
/
S
ÍA
9
0
2
1
5
5
3
Laugardagur 26. október
Sundlaug Seltjarnarness
Opið 8–17.30
Kl. 11 Fjölskyldutrimm
Kynning á starfi Gróttu
Sundlaug Bessastaðahrepps
Opið 10–16
Dagskrá á vegum UMFB
Borðtennis, skokk, sund o.fl.
Sunnudagur 27. október
Sundlaug Garðabæjar
Opið 8–17
Kl. 11 Létt ganga um Garðabæ
Kl. 12 Skokk, 5 og 7 km.
Kl. 13 Hjólaferð
Sundlaug Kópavogs
Opið 8–18
Kynning á Sunddeild Breiðabliks
Kl. 10 Skriðsundsnámskeið o.fl.
Kl. 14 Létt skokk
Kl. 15 Skriðsundsnámskeið o.fl.
Laugardaginn 26. október er frítt í Sundlaug Seltjarnarness og Sundlaug Bessastaðahrepps.
Sunnudaginn 27. október er frítt í Sundlaug Garðabæjar, Sundlaug Kópavogs og Varmárlaug.
Fjölbreytt dagskrá verður í og við laugarnar þessa daga.
Varmárlaug
Opið 9–18
Leiðbeiningar fyrir almenning
kl. 13–15
Kl. 11 Létt skokk
Í tilefni 80 ára afmælis UMSK er ykkur boðið í sund
GRUNAÐUR UM ÞRJÚ INNBROT
Maður var handtekinn eftir að
hafa brotist inn í fyrirtæki í
Skeifunni um fimmleytið í gær-
morgun. Hann er grunaður um að
hafa brotist inn í tvö önnur fyrir-
tæki í sama hverfi. Maðurinn var
yfirheyrður í gær.
REYNDIST EKKI SPRENGJA Þrír
sprengjusérfræðingar Landhelg-
isgæslunnar voru kallaðir út
klukkan átta í gærmorgun vegna
gruns um að taska með sprengju
í hefði verið skilin eftir í kirkju á
varnarsvæðinu við Keflavíkur-
flugvöll. Við athugun kom í ljós
að taskan hafði verið skilin eftir
fyrir mistök og þar með var mál-
inu lokið. Á varnarsvæðinu er
farið eftir ströngum öryggisregl-
um og ávallt gætt ítrustu var-
kárni þegar minnsti grunur vakn-
ar um að hætta sé á ferðum.
Bæjaryfirvöld á Ísafirði:
Vilja viðræð-
ur um
atvinnumál
BÆJARMÁL Bæjarstjórn Ísafjarðar-
bæjar vill ganga til viðræðna við
stjórnvöld um að koma á nýjum
og stórum verkefnum í atvinnu-
málum á Vestfjörðum. Nauðsyn-
legt sé að auka fjölbreytni í at-
vinnulífinu á staðnum og styrkja
undirstöður þess.
Benda bæjaryfirvöld á að upp-
byggingin í tengslum við Norð-
urál á Grundartanga hafi haft
mjög jákvæð áhrif á byggð vítt og
breitt um Vesturland og vilja þau
að stjórnvöld beiti sér fyrir svip-
uðum aðgerðum á Vestfjörðum.
Benda bæjaryfirvöld uppbygg-
ingin á Grundartanga hafi leitt til
fólksfjölgunar og hækkunar fast-
eignaverðs á áhrifasvæði stóriðj-
unnar.
Maður undir áhrifum:
Rétti lögreglu
hassmola
LÖGREGLUMÁL Leigubílstjóri kom
með mann til lögreglunnar í
fyrrinótt þar sem farþeginn sagð-
ist ekki geta greitt fyrir fjargjald-
ið auk þess að vera greinilega
undir áhrifum. Þegar á lögreglu-
stöðina kom hóf farþeginn að leita
í fórum sínum að peningum og
bað hann lögreglumann að geyma
fyrir sig það sem hann hafði tekið
úr vasanum og setti það í lófa lög-
reglunnar. Þegar að var gætt
leyndist dágóður hassmoli innan-
um annað minna spennandi.
Maðurinn, sem greinilega var
ekki með sjálfum sér, var vistaður
hjá lögreglu yfir nóttina.
LÖGREGLUFRÉTTIR