Fréttablaðið - 01.11.2002, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 01.11.2002, Blaðsíða 1
Me› ástinni flinni -það er kaffið!í Effelturninum? Taktu þátt í Gevalialeiknum. Klipptu út þrjú strikamerki og sendu með póstkorti sem þú færð í næstu verslun. bls. 15 FLÓTTAMAÐUR Ég er að deyja bls. 4 FÖSTUDAGUR 216. tölublað – 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Föstudagurinn 1. nóvember 2002 Tónlist 16 Leikhús 16 Myndlist 16 Bíó 14 Íþróttir 10 Sjónvarp 20 KVÖLDIÐ Í KVÖLD Bókmennta- verðlaun Tómasar VERÐLAUN Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir borgarstjóri Reykjavíkur af- hendir Bókmenntaverðlaun Tómas- ar Guðmundssonar fyrir árið 2002 klukkan 17 í Höfða. Soffía Auður Birgisdóttir, formaður dómnefndar, gerir grein fyrir niðurstöðu nefnd- arinnar. Verðlaunin, sem eru veitt annað hvort ár eru nú afhent í fimmta sinn. Alls bárust 51 handrit í samkeppnina; skáldsögur, smásög- ur, leikrit og ljóð. Hvað kostar ruslið? RÁÐSTEFNA Haustráðstefna Fagráðs um endurnýtingu og úrgang, FENÚR, hefst klukkan 12.30 í Sess- eljuhúsi, Sólheimum í Grímsnesi. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Hvað kostar ruslið?“ Flutt verða fjöl- mörg áhugaverð erindi m.a. um mismunandi kostnað og gjöld milli sveitarfélaga og aukna nýtingu á sjávarfangi. ÍR mætir Njarðvík KÖRFUBOLTI Tveir leikir fara fram í Intersport-deildinni í kvöld. ÍR mætir Njarðvík í Seljaskóla og Grindavík sækir Skallagrím heim. MENNING Hafið með flestar tilnefningar Málningar dagar 20-40% afsláttur RÓM, AP Um það bil fimmtíu börn lokuðust inni í leikskóla þegar þak hans hrundi í jarðskjálfta á Ítalíu um hádegisbilið í gær. Þegar Fréttablaðið fór í prentun seint í gærkvöld voru fjögur barnanna og tveir fullorðnir látin. Átta af tuttugu börnum, sem búið var að bjarga út síðdegis, voru lífshættu- lega slösuð. Jarðskjálftinn mældist 5,4 stig á Richterkvarða. Upptök hans voru í borginni Campobasso, sem er um það bil 80 km norður af Napolí. Leikskólinn er í þorpinu San Giuliano di Puglia, sem er skammt utan við Campobasso. „Þetta var gífurleg sprenging,“ sagði Giuseppe Moffa, embættis- maður í Campobasso. Fréttir bárust seint frá jarð- skjálftasvæðinu í gær vegna þess að símalínur urðu óvirkar. Að minnsta kosti tveir eftirskjálftar urðu í gær. Annar mældist 2,9 stig, hinn 3,7. Á Sikiley varð einnig jarð- skjálfti sem mældist 3,7 stig á Richterkvarða. Nokkrir jarð- skjálftar hafa orðið á eyjunni eft- ir að eldgos hófst í eldfjallinu Etnu á sunnudaginn. Árið 1980 fórust 2.570 manns í Napolí og nágrenni þegar öflugur jarðskjálfti varð þar. Þá misstu 30 þúsund manns heimili sitt.  Jarðskjálfti á Ítalíu: Þak hrundi ofan á leikskólabörn BARNI BJARGAÐ ÚR RÚSTUNUM Ítalskur lögreglumaður bjargar ungri stúlku úr leikskólanum, þar sem fimmtíu börn urðu innlyksa eftir að þakið hrundi í jarðskjálfta. ÁRNI M. MATHIESEN Lætur hart mæta hörðu. Loðnusamningurinn við Noreg og Grænland: Uppsögn óumflýjanleg SJÁVARÚTVEGUR „Þetta var algjör- lega óumflýjanlegt. Norðmenn sögðu upp samkomulagi um veiðar úr Norsk-Íslenska síldarstofnin- um, þetta eru hvoru tveggja flökkustofnar og svipaðir hlutir lagðir til grundvallar í samningum um skiptingu aflaheimilda,“ sagði Árni M. Mathiesen, sjávarútvegs- ráðherra. Íslensk stjórnvöld hafa sagt upp samningi milli Íslands, Grænlands og Noregs um loðnustofninn á haf- svæðinu milli Grænlands, Íslands og Jan Mayen sem gerður var 1998. Uppsögnin kemur til fram- kvæmda 1. maí 2003 en hún tengist kröfu Norðmanna um að fá aukinn hlut aflaheimilda úr norsk-íslenska síldarstofninum. Norsk stjórnvöld hafa ekki verið reiðubúin að semja um Norsk-Íslensku síldina á sömu forsendum og á undanförnum árum, heldur krafist þess að fá 70% aflaheimilda í sinn hlut. „Það er algjörlega óviðunandi að Norðmenn fái að veiða hér loðnu á sama tíma og þeir hafa frítt spil þegar kemur að Norsk-Íslensku síldinni.“ Náist ekki samningar um stjórn veiða úr norsk-íslenska síldar- stofninum fyrir árið 2003 telja ís- lensk stjórnvöld óhjákvæmilegt að taka aðra fiskveiðisamninga milli landanna til endurskoðunar.  - REYKJAVÍK Austlæg átt, 3-8 m/s og rigning með köflum. Hiti 3-7 stig. VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 5-13 Skýjað 0 Akureyri 10-15 Skýjað 6 Egilsstaðir 10-15 Skýjað 6 Vestmannaeyjar 15-20 Léttskýjað 6 + - + VEÐRIÐ Í DAG ➜ ➜ ➜➜ HEILSUGÆSLA Jón Kristjánsson heil- brigðisráðherra ætlar ekki að láta undan þrýstingi heilsugæslu- lækna í rétttindabaráttu þeirra. Hann sagði á Alþingi í gær að ver- ið væri að skipuleggja neyðarþjónustu á Suður- nesjum til að mæta þeim vanda þegar læknarnir hverfa úr störfum sínum. „Við munum efla hjúkrun- arvaktir og gera okkar ítrasta til að fá lækna til starfa í stað þeirra sem hætta, En það er einlæg von mín að heilsugæslu- læknar taki aftur uppsagn- ir sínar.“ sagði ráðherra Guðmundur Árni Stef- ánsson þingmaður Samfylkingar- innar sagði í framsöguræðu sinni í umræðum utan dagskrár á Al- þingi í gær að heilsugæslan í land- inu væri í kreppu. Engan tíma mætti missa til að snúa blaðinu við og ná sátt við hlutaðeigandi að- ila og leysa þann vanda sem steðj- aði að heilsugæslunni í landinu. Síðar í umræðunum sagði Guð- mundur að ef ekkert væri að gert þá muni einkarekstur stóraukast. „Það mun ekki kalla á útgjöld ráðuneytisins heldur er það fólkið í land- inu sem þarf að borga brús- ann.,“ Margrét Frímannsdóttir samflokksmaður Guðmund- ar Árna tók undir og benti á að heilsugæslan væri tví- skipt. Það gengi ekki að slá hausnum við steininn og halda því fram að svo væri ekki. „Það þýðir ekki annað en horfast í augu við þann veruleika sem við búum við. Það er löngu orðið tímabært að við horfumst í augu við það. Ef við gerum það ekki verður þessi deila aldrei leyst og það bitnar fyrst og fremst á sjúklingunum sem eiga rétt á grunnþjónustu án tillits til efna- hags.“ Heilbrigðisráðherra sagðist vera búinn að gera allt sem í hans valdi stæði til að leysa vandann. „Á fjölmörgum fundum sem ég hef setið með heilsugæslulæknum hafa þeir sett þá einu kröfu fram að fá að opna einkastofur og senda reikninginn til Tryggingastofnun- ar. Ég hef hafnað því en boðið uppá marga möguleika undir hatti heilsugæslunnar til að varðveita heilsugæsluhugsunina. Ráðherra nefnir einnig að til tals hafi komið að einhverjar breytingar gætu orðið með nýjum heilbrigðislög- um sem eru í undirbúningi. Lækn- ar geti komið sínum viðhorfum að við undirbúning laganna. bergljot@frettabladid.is Ráðherra ætlar ekki að gefa eftir Heilbrigðisráherra ætlar ekki að gefa eftir kröfu heilsugæslulækna um að fá að opna stofur. Skipulögð hefur verið neyðarþjónusta á Suðurnesjum til að mæta brýnasta vandanum þegar læknarnir hætta. „Það mun ekki kalla á útgjöld ráðu- neytisins held- ur skjólstæð- inganna sem er fólkið í landinu. Það þarf að borga brúsann. AP M YN D NOKKRAR STAÐREYNDIR UM MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 71,1% SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í SEPTEMBER 2002. Fr é tt a b la ð ið M o rg u n b la ð ið Meðallestur 25 til 49 ára samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá september 2002 24% D V 80.000 eintök 70% fólks les blaðið Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára íbúar á höfuðborgar- svæðinu á föstudögum? 62% 69%

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.