Fréttablaðið - 01.11.2002, Blaðsíða 8
8 1. nóvember 2002 FÖSTUDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúi: Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni.
Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Vanvirðing
forsætisráð-
herra
Elín Birna Árnadóttir skrifar:
Forsætisráðherra þykir mér núheldur betur hafa skotið undir
beltisstað, með þeim orðum sín-
um að „fólk sé alltaf til í að hlau-
pa eftir ókeypis mat, fatnaði
o.fl.“ samanber þeim fjölda sem
leiti til mæðrastyrksnefndar eft-
ir aðstoð.
Finnst mér að með ummælum
þessum sé Davíð einungis að
benda fólki á hversu illa að sér
hann er hvað varðar hag þeirra
sem þurfa á hjálp eða aðstoð að
halda. Hann hefur örugglega
ekki þurft að lifa á lágmarksbót-
um eða við sult og seyru sá sem
viðhefur slík orð. Nei, sjaldan
launar kálfurinn ofeldið.
Mörgum eru það þung skref
að þurfa að leita á náðir hjálpar-
aðila eins og mæðrastyrksnefnd-
ar og gera það ekki fyrr en öll
önnur von er úti. Ætti „hæstvirt-
ur ráðherra“ að gera sér grein
fyrir því og sýna frekar í orði og
á borði virðingu fyrir meðborg-
urum sínum og því fólki sem að
hjálparstörfum starfa. Hann ætti
kannski að taka til í eigin ranni ef
hann hefur ekki þegar gert það
og færa þeim sem á þurfa að
halda, eins og við mörg höfum
gert.
Það er ekkert sældarlíf að lifa
t.d. á örorkubótum einum saman,
þurfa að borga húsaleigu, síma,
rafmagn, „RÚV,“ þurfa að nota
dýr lyf og eiga fyrir öðrum út-
gjöldum, sem til falla. Ég þekki
til þessara aðstæðna hjá fólki, þó
ég sé svo lánsöm að vera betur
sett.
Samfélag manna er endalaus bar-átta um völd; völd yfir sögunni;
völd yfir tungumálinu, skilgreining-
unum og hugtökun-
um; völd yfir um-
ræðunni. Þetta eru
gömul sannindi og
almælt. Samt er fá-
títt að okkur séu
kynnt mál út frá
þessum forsendum.
Það var því frísk-
andi að lesa hjá
Guðmundi Sesari
Magnússyni, föður stúlku sem hafði
leiðst út í notkun fíkniefna, að hann
taldi ógnina af eiturlyfjasölum fyrst
og fremst huglæga. Að við gæfum
fautunum vald með ótta okkar.
Auðvitað er þetta rétt hjá Guð-
mundi Sesari. Yfirgangur eitur-
lyfjasala er staðreynd. Það er hins
vegar í okkar valdi hvort við látum
hann yfir okkur ganga. Þetta er ekki
aðeins skoðun Guðmundar Sesars
heldur margsönnuð sannindi; bæði
studd reynslu kynslóðanna og alls-
kyns könnunum úr ýmsum fræði-
greinum. Fólk mótar samfélag –
ekki síður en samfélag mótar fólk.
Nú er ekki ljóst hvort Guðmundi
Sesari tekst að hrekja aftur þá
sterku stöðu sem ofbeldismennirnir
hafa náð – meðal annars með dyggri
aðstoð fjölmiðla. Það er barátta um
völd yfir skilgreiningum og afstöðu.
Önnur slík glíma er á milli heil-
brigðis- og félaglega kerfisins ann-
ars vegar og svokallaðra sértrúar-
safnaða hins vegar. Þar er glímt um
smæstu bræður Jesú; fólk sem er
veikt á geði, umkomulaust eða ein-
manna. Söfnuðirnir eru sakaðir um
að hafa þetta fólk að féþúfu; hirða
tíund af takmarkaðri innkomu þess.
Fyrir nokkrum árum flutti ég
messugagnrýni í Ríkisútvarpinu.
Ég fór þá á milli kirkna og hlýddi á
messur. Mér er minnisstæð lífleg
messa í Fíladelfíu. Þar voru fleiri
smáir bræður Jesú en í öðrum
kirkjum. Og sá að söfnuðurinn gaf
þessu fólki samfélag sem það fann
ekki annars staðar; samkennd, hlýju
og tilfinninguna að tilheyra. Og ekki
nóg með það; þarna fengu smæstu
bræður Jesú að heyra að sjálfur
drottinn allsherjar elskaði þá af öllu
hjarta sínu.
Ég vann á Kleppsspítala fyrir
tuttugu árum og þekkti marga sjúk-
linga þaðan á kirkjubekkjunum. Ég
get vitnað um að Kleppur gat ekki
veitt þessu fólki neytt viðlíka og
Fíladelfía. Á Kleppi fékk fólkið
vissulega lyf og hjúkrun en lítið þar
umfram. Það er svo ótal margt sem
skjólstæðingar heilbrigðis- og fé-
lagslega kerfisins þarfnast sem
þessi kerfi geta ekki veitt þeim. Og
þó þessi kerfi séu skjólstæðingum
sínum mikilvæg mega þau ekki láta
sem þau hafi algjört vald og um-
ráðarétt yfir þeim.
„Sértrúarsöfn-
uðirnir eru sak-
aðir um að
hafa þetta fólk
að féþúfu;
hirða tíund af
takmarkaðri
innkomu þess.“
Glímt um yfirráð yfir smæstu bræðrum Jesú
skrifar um glímu sértrúarsafnaða
og heilbrigðiskerfisins um smæstu
bræður Jesú.
Mín skoðun
GUNNAR SMÁRI EGILSSON
ÁRSFUNDUR „Samtök atvinnulífsins
hafa ekki verið tilbúin að standa
við eitt prósent í viðbótarlífeyris-
sparnað gagnvart sjómönnum.
Það mál er nú fyrir Félagsdómi.
Síðan hefur hvorki gengið eða
rekið í viðræðum við fjármálaráð-
herra um jöfnun réttinda okkar
fólks sem starfar hjá ríkinu við
réttindi annarra ríkisstarfs-
manna. Það verður að koma í ljós
á næstu mánuðum hvort ráðherr-
ann sér að sér eða hvort við verð-
um að beita samtakamættinum
við endurnýjun kjarasamninga að
ári,“ sagði Grétar Þorsteinsson,
forseti ASÍ á ársfundi sambands-
ins í gær.
Hann vísaði til samkomulags
sem gert var við stjórnvöld í des-
ember síðastliðnum og gaf í skyn
að gripið yrði til verkfalls á
næsta ári, standi fjármálaráð-
herra ekki við sitt.
Velferðarmálin, framtíð vel-
ferðarkerfisins og Evrópusam-
vinnan eru helstu umfjöllunarefni
ársfundar ASÍ. Forseti ASÍ sagði
Evrópumál gjarnan sett í mjög
þröngt samhengi í opinberri um-
ræðu, oftast væri um þau fjallað
út frá viðskiptahagsmunum.
„Evrópusamvinnan felur í sér
miklu meira og hefur skilað ís-
lensku launafólki margvíslegum
ávinningi. Við viljum tryggja að á
Íslandi verði upplýst umræða í
báðum þessum málaflokkum.
DÓMSMÁL Embætti Ríkissaksókn-
ara íhugar nú hvort Guðmundi
Helga Svavarssyni verður leyft að
áfrýja sex ára fangelsisdómi sem
hann hlaut 18. sept-
ember fyrir auðg-
unarbrot, skjala-
fals og þjófnaði.
Saksóknari segir
að tilkynning Guð-
mundar um áfrýj-
un hafi borist degi
eftir að áfrýjunar-
frestur rann út.
Saksóknari ætlar
ekki að áfrýja til
Hæstaréttar og því stendur dóm-
urinn óhaggaður.
Guðmundur Helgi Svavarsson
hlaut reynslulausn í fyrrasumar en
hann átti þá óafplánaða 2.040 daga
af 17 ára dómi sem hann hlaut árið
1991 fyrir morð. Guðmundur fór
fljótlega eftir að hann losnaði að
neyta fíkniefna og brjóta af sér,
var handtekinn í apríl og úrskurð-
aður í gæsluvarðhald vegna brota
sinna. Frá því Guðmundur var
handtekinn og þar til dómur var
kveðinn upp 18. september, var
sex sinnum óskað eftir framleng-
ingu gæsluvarðhaldsvistar. Hér-
aðsdómur dæmdi Guðmund Helga
í sex ára fangelsi og tók hann sér
lögboðinn fjögurra vikna frest til
að áfrýja. Dómari úrskurðaði þá
jafnframt að Guðmundur skyldi
sitja áfram í gæsluvarðhaldi þar til
hann tæki ákvörðun um áfrýjun,
þó ekki lengur en til 16. október.
Þann dag rann áfrýjunarfrestur
Guðmundar Helga út og var hann
enn færður fyrir dómara, þar sem
lögregla hafði farið fram á áfram-
haldandi gæsluvarðhald.
Lögmaður Guðmundar Helga
segir óumdeilt að Guðmundur hafi
þennan dag lýst því fyrir Héraðs-
dómi að hann hygðist áfrýja dómn-
um, enda hafi það verið skilyrði
fyrir enn einum gæsluvarðhalds-
úrskurði. Fulltrúi Ríkissaksóknara
hafi verið í dómssalnum. Skrifleg
tilkynning um áfrýjun barst sak-
sóknara ekki fyrr en 17. október,
daginn eftir að áfrýjunarfrestur
rann út. Bréf Guðmundar Helga er
þó dagsett daginn áður en frestur-
inn rann út en saksóknari tók það
ekki gilt. Saksóknari sendi dóminn
til Fangelsismálastofnunar og lítur
svo á að Guðmundur Helgi hafi
byrjað afplánun dómsins.
Lögmaður Guðmundar Helga
hefur farið fram á að Ríkissak-
sóknari endurskoði afstöðu sína,
þar sem fyrir liggi yfirlýsing fyr-
ir dómi um áfrýjun. Formlegt
svar hefur ekki borist frá sak-
sóknara. the@frettabladid.is
Minjasafn Austurlands:
Vill 144%
hækkun
FJÁRHAGSÁÆTLUN Fræðslu - og
menningarráð Austur - Héraðs hef-
ur sent fjárhagsáætlun Minjasafns
Austurlands aftur til föðurhúsanna
en í áætluninni var gert ráð fyrir að
framlög sveitarfélaga til safnsins
myndu aukast um 144 prósent:
„Við gátum ekki orðið við þessu
og sendum fjárhagsáætlunina því
til baka með þeim orðum að for-
stöðumaður reyndi frekar að halda
sig innan þeirra marka sem verð-
lagsþróun og annað segir til um,“
segir Helga Guðmundsdóttir, for-
stöðumaður fræðslu - og menning-
arsviðs á Egilsstöðum. „Þetta sýnir
okkur bara að það er mikill metnað-
ur í stafi Minjasafnsins,“ segir hún
Ástæðan fyrir óskum safnsins
um svo mikla hækkun á framlögum
tengist áhuga á að hefja skráningu
muna í sérstakt tölvuforrit sem
nefnt er Sarpur og er sameiginlegt
skráningarkerfi safna á öllu land-
inu. Einhver bið verður þá á því að
Minjasafn Austurlands geti skráð
muni sína þar.
Alþýðusambandið segir fjármálaráðherra draga lappirnar í að jafna réttindi:
ASÍ mundar verkfallsvopnið
ÁRSFUNDUR ALÞÝÐUSAMBANDSINS
Yfirskrift fundarins er Afl í þína þágu. Forseti ASÍ ýjaði að því að verkalýðshreyfingin kynni
að nýta afl sitt á næsta ári í samningum við ríkið.
Áfrýjaði sex ára
dómi degi of seint
Guðmundur Helgi Svavarsson áfrýjaði dómi sínum munnlega fyrir hér-
aðsdómara. Sendi saksóknara síðar skriflega tilkynningu um áfrýjun.
Degi of seint segir Ríkissaksóknari sem sendi dóminn Fangelsismála-
stofnun til fullnustu. Saksóknari hyggst þó endurskoða ákvörðun sína.
HÆSTIRÉTTUR ÍSLANDS
Saksóknari ætlar ekki að áfrýja til Hæstaréttar og því stendur dómurinn óhaggaður
þar sem Guðmundur Helgi Svavarsson áfrýjaði degi of seint.
Héraðsdómur
dæmdi Guð-
mund Helga í
sex ára fang-
elsi og tók
hann sér lög-
boðinn fjög-
urra vikna frest
til að áfrýja.
ALÞINGI
FYRSTA LAGASETNINGIN Alþingi
hefur samþykkt fyrstu lög vetr-
arins. Samþykkt var að flýta gild-
istöku laga sem samþykkt voru
síðasta vor. Þau veita samgöngu-
ráðherra heimild til að skipa
flugráð sem hefur verið án um-
boðs í nær fimm mánuði.
FIMMTUNGUR MEÐ LEYFI Fimmti
hver þingmaður var með fjarvist-
arleyfi fyrstu daga eftir kjör-
dæmaviku. 13 þingmenn voru
með fjarvistarleyfi á þingfundi á
miðvikudag, einum fleiri en
daginn áður þegar fyrst var fund-
að eftir kjördæmaviku.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/B
ILLI
RÁÐHÚS REYKJAVÍKUR
Ríkið greiðir þrjá milljarða króna í opinber
gjöld. Næst kemur Reykjavíkurborg með
900 milljónir.
Skattur á lögaðila:
Bankar með
hæsta tekju-
skattinn
SKATTAR Ríkisbókhald greiðir lang-
hæstu opinberu gjöld opinberra
aðila og fyrirtækja samkvæmt
álagningaskrá lögaðila sem Skatt-
stjórinn í Reykjavík hefur birt.
Ríkið greiðir þrjá milljarða í opin-
ber gjöld. Næst kemur Reykjavík-
urborg með 900 milljónir, Lands-
bankinn með um 800 milljónir og
Íslandsbanki með um 700 milljón-
ir í opinber gjöld.
Þegar litið er til tekjuskatts og
fjármagnstekjuskatt bera Lands-
banki og Íslandsbanki höfuð og
herðar yfir aðra með um 600
milljónir í tekjuskatt. Hæsta eign-
arskattinn greiðir Landssíminn
eða um 70 milljónir króna.
VIÐSKIPTI
VIÐSNÚNINGUR NÝHERJA Ný-
herji hagnaðist um 24 milljónir á
þriðja ársfjórðungi samanborið
við 57 milljóna tap árið áður.
Hagnaður fyrstu níu mánuðina er
78 milljónir króna. Niðurstaða
sama tímabils í fyrra var tæplega
94 milljóna tap. Þjónustutekjur
Nýherja voru svipaðar og áætlan-
ir gerðu ráð fyrir, en vörusala
var yfir áætlunum.
HAGNAÐUR HJÁ SKELJUNGI
Hagnaður Skeljungs jókst um 570
milljónir milli níu mánaða upp-
gjöra ársins í ár og í fyrra. Hagn-
aður tímabilsins var 974 milljónir
króna. Arðsemi eigin fjár félags-
ins var 30% fyrir fyrstu níu mán-
uðina sem er tvöfalt meira en í
fyrra. Styrking krónu gagnvart
dollar skilaði félaginu gengis-
hagnaði og skýrir afkomuna. Við-
snúningur á fjármagnstekjum
var rúmur 1,1 milljarður.