Fréttablaðið - 01.11.2002, Síða 10
10 1. nóvember 2002 FÖSTUDAGUR
ÍÞRÓTTIR Í DAG
18.30 Sýn
Íþróttir um allan heim
19.15 Borgarnes
Intersport-deildin
(Skallagrímur - UMFG)
19.15 Seljaskóli
Intersport-deildin (ÍR - UMFN)
19.30 Sýn
Alltaf í boltanum
FÓTBOLTI Vaxtahormónið nandra-
lone hefur fundist í sýni sem tek-
ið var úr leikmanni í ensku knatt-
spyrnunni. Þetta er í fyrsta sinn
sem ólögleg efni finnast í knatt-
spyrnumanni þar í landi. Enska
knattspyrnusambandið, FA, hefur
neitað að gefa upp nafn leik-
mannsins, þjóðerni og í hvaða
deild hann leikur. Gordon Taylor,
yfirmaður FA, segist ekki vilja
gera leikmanninum það að opin-
bera nafn hans þar sem málinu er
ekki lokið. Samkvæmt breskum
fjölmiðlum er leikmaðurinn ensk-
ur og spilar utan úrvalsdeildar.
Þó nokkrir knattspyrnumenn
hafa verið dæmdir í keppnisbann
fyrir ólöglega lyfjanotkun. Þar á
meðal Jaap Stam hjá Lazio, Edgar
Davids hjá Juventus og Josep Gu-
ardiola hjá Brescia.
Michaele Verroken, yfirmaður
lyfjaeftirlits breska íþróttasam-
bandsins, segir að knattspyrnu-
menn gætu hafa tekið inn ólögleg
lyf óafvitandi. „Það má ekki ályk-
ta of fljótt í svona málum,“ sagði
Verroken.
Enska knattspyrnan:
Fyrsta lyfjamálið
komið upp
JAAP STAM
Fyrrum leikmaður Manchester United og
núverandi leikmaður Lazio féll á lyfjaprófi
og var dæmdur í keppnisbann.
FÓTBOLTI George Burley, fyrrver-
andi knattspyrnustjóri Ipswich,
hætti við á síðustu stundu að taka
við stjórastöðunni hjá Íslendinga-
liðinu Stoke City.
„Eftir langar samningaviðræð-
ur sem okkur fannst hafa gengið
ákaflega vel skipti Burley skyndi-
lega um skoðun,“ sagði Gunnar
Þór Gíslason, stjórnarformaður
Stoke í yfirlýsingu sinni í gær.
„Við biðum aðeins eftir því að
hann undirritaði samninginn. Það
var enginn ágreiningur á milli
okkar og hafði mikinn áhuga á að
sjá heimaleik okkar gegn
Watford á miðvikudagskvöld.
Morguninn eftir tilkynnti hann
okkur að hann ætlaði ekki að taka
starfinu.“
Talið er að Burley, sem rekinn
var frá Ipswich fyrir skömmu
síðan, sé nú í viðræðum við 1.
deildarliðið Sheffield Wednesday,
en Terry Yorath, stjóri liðsins,
sagði upp störfum í gær.
Stoke hefur verið án knatt-
spyrnustjóra síðan Steve Cotterill
ákvað að gerast aðstoðarstjóri hjá
úrvalsdeildarliðinu Sunderland.
Bryan Robson, fyrrverandi stjóri
Middlesbrough, er á meðal þeirra
sem koma til greina sem næsti
stjóri liðsins. Auk hans hafa þeir
Tony Pulis, fyrrum knattspyrnu-
stjóri Gillingham, og Adrian
Hetah, sem hóf knattspyrnuferil
sinn hjá Stoke, verið nefndir til
sögunnar.
George Burley tekur ekki við Stoke:
Hætti við á síðustu stundu
FÓTBOLTI Í fyrsta skipti hafa vakn-
að spurningar um hvort Ottmar
Hitzfeld, knattspyrnustjóra
Bayern München, verði sagt upp
störfum hjá liðinu eftir að það tap-
aði 2-1 fyrir Deportivo La Coruna
frá Spáni í Meistaradeild Evrópu
á þriðjudag. Bayern hefur spilað
langt undir getu í Meistaradeild-
inni, hefur aðeins náðu einu stigi
úr fimm leikjum og er lang neðst í
G-riðli. Liðinu mistókst að tryggja
sér sæti í milliriðlum keppninnar
og náði heldur ekki að tryggja
þátttöku sína í Evrópukeppni fé-
lagsliða.
Hitzfeld, sem hefur verið við
stjórnvölinn hjá Bayern í fimm
tímabil, segist ekki vera að hætta.
„Ég tek alla ábyrgð á mig. Ég vil
ekki að mér verði hlíft við gagn-
rýni,“ sagði knattspyrnustjórinn.
„Ég er ekki bara þjálfari þegar
vel gengur. Ég er baráttujaxl sem
gefst ekki upp. Það þarf að hor-
fast í augu við erfiðleikana.“ Und-
ir stjórn Hitzfeld hefur liðið unnið
þýska meistaratitilinn í þrígang
og Meistaradeildina einu sinni.
Hann framlengdi samning sinn
við liðið í fyrra til ársins 2004.
Þótt Bayern hafi bætt nokkrum
af skærustu stjörnum þýsku
deildarinnar í leikmannahópinn
virðist það ekki duga til. Karl-
Heinz Rummenigge, stjórnarfor-
maður Bayern, sagði fyrir þetta
tímabil að leikmannahópurinn í ár
væri sá besti í sögu liðsins.
„Liðið hefur ekki þann andlega
styrk sem það þarf. Sumir leik-
menn þola ekki álagið hjá
Bayern,“ sagði Hitzfeld eftir leik-
inn á þriðjudag. Hann býst við
harðri gagnrýni. „Þetta er lognið á
undan storminum.“
„Skömm,“ sagði í fyrirsögn
þýska dagblaðsins Bild eftir leik-
inn gegn Deportivo La Coruna.
„Liðið hefur ekki það sem þarf til
að sigra og vantar metnaðinn til
að ná árangri.“ Rummenigge lýsti
kvöldinu sem martröð.
Útslátturinn í Meistaradeild-
inni gæti haft alvarlegt fjárhags-
legt tjón í för með sér fyrir
Bayern. Talið er að liðið verði af
30 milljónum evra sem munar um
þegar kemur að því að greiða hin-
um leikmönnunum laun.
Búið spil
hjá Bayern
Bayern München er úr leik í Meistaradeild Evrópu. Leikmannahópur-
inn sá besti í sögu liðsins. Knattspyrnustjórinn harðlega gagnrýndur og
margir vilja að hann segi af sér.
STJÖRNUHRAP
Michael Ballack, leikstjórnandi Bayern
München, var keyptur til liðsins fyrir þetta
tímabil. Margir vilja meina að hann hafi
ekki náð að fylla skarð Stefan Effenbergs
sem hætti hjá liðinu á síðasta tímabili.
OTTMAR HITZFELD
Lýsti því yfir fyrir tímabilið að stefnan væri
sett á sigur í Meistaradeildinni. Þrátt fyrir
það hefur liðið aldrei dottið jafn snemma
úr keppni. Liðið var síðast slegið út úr
fyrstu umferð árið 1969, þegar gamla
Meistarakeppnin var við lýði.
VAR FJARRI
GÓÐU GAMNI
Oliver Kahn gat ekki
leikið með Bayern
gegn Deportvio þar
sem hann var meidd-
ur. Þó sást til hans í
golfi og á skemmti-
stað sömu helgi.
Hann fékk sekt frá
liðinu í kjölfarið.