Fréttablaðið - 01.11.2002, Page 22
22 1. nóvember 2002 FÖSTUDAGUR
DÝRT
Yamaha - trommusett í Hljóð-færahúsinu á Laugavegi 176.
Kostar 380 þúsund krónur. Klætt
harðplasti með perluskeljaáferð.
Risastór bassatromma, þrjár
pákur og amerískir cymbalar
framleiddir eftir 400 ára upp-
skrift frá Tyrklandi. Heita zildji-
an á frummálinu. Stóll fylgir
með. Þessi útgáfa af trommu-
setti er vinsæl meðal helstu
hljómsveita landsins og notuð af
Landi og sonum, Ensími, Sálinni
hans Jóns míns og SSSól. Kjör-
gripur og jafnvel stofuprýði ef
fólk vill skreyta heimili sín með
fallegum hlut.
Börn eiga rétt á sín-
um spennusögum
Gunnhildur Hrólfsdóttir erfædd þann 1. nóvember 1947
í Vestmannaeyjum og fagnar því
55 ára afmæli sínu í dag. Hún ólst
upp í Eyjum en flutti þaðan eftir
gosið 1973 og er býr nú í Reykja-
vík þar sem hún hefur unnið
ýmis störf. Árið 2001 hlaut hún
Íslensku barnabókaverðlaunin
fyrir bókina Sjáumst aftur..., sem
greindi frá ævintýrum Kötlu sem
flutti í gamalt hús í Vestmanna-
eyjum og lenti í spennandi ævin-
týrum bæði í fortíð og nútíð.
Gunnhildur hefur nú fylgt
verðlaunabókinni eftir með nýrri
bók sem heitir Allt annað líf.
Þetta er sjálfstætt framhald af
Sjáumst aftur... og nú ræður
Katla sig sem barnfóstru vestur í
Stykkishólm. „Sögulegi arfurinn
heillar mig og það er ekki auðvelt
að koma honum til skila til æsk-
unnar án þess að hafa hann svo-
lítið æsilegan og ótrúlegan.
Börnin vilja eitthvað meira en
bara fræðslu og rétt eins og hinir
fullorðnu eiga þau rétt á sínum
spennusögum.“
Katla kynnist undarlegri jafn-
öldru sinni og ömmu hennar sem
er ekki öll þar sem hún er séð.
Amman er grasakerling og gefur
Kötlu seyði sem gerir það
aðverkum að hún sogast inn í dul-
arfulla atburðarás þar sem
klaustrið á Helgafelli kemur við
sögu. „Ég fékk ómetanlega hjálp
frá manni sem þekkir sögusviðið
vel. Þetta auðveldaði mér mjög
vinnuna við að flétta raunveru-
lega atburði inn í frásögnina.“
Gunnhildur vinnur skrif-
stofustörf hjá lögfræðistofu í
Reykjavík eftir hádegi en sinnir
ritstörfum fyrri hluta dags.
„Það er einmanalegt starf að
sitja við skriftir og útivinnan er
því kærkomin tilbreyting. Ég
tek daginn snemma og er með
prýðilega vinnuaðstöðu heima
hjá mér. Ég tek mér ekki mikla
hvíld á milli bóka og er strax
farin að huga að næsta verkefni
enda fylgir því mikil vinna og
lestur þegar maður byggir
skáldskapinn á sannsögulegum
atburðum. Ég er svo alltaf að
safna í sarpinn og er með hug-
ann opinn fyrir öllu mögulegu.“
Gunnhildur hefur hug á að segja
frá fleiri ævintýrum Kötlu
þannig að aðdáendur þessarar
ráðagóðu stúlku mega eiga von
á góðu í framtíðinni.
thorarinn@frettabladid.is
TÍMAMÓT
AFMÆLI
Ávegum reiðskólans í Víðidalstanda nú yfir reiðnámskeið
fyrir fatlaða, fimmta árið í röð.
Námskeiðin eru vel sótt og þykja
hafa reynst fötluðum sérstaklega
vel. „Fyrir fólk sem er mjög
kreppt og á erfitt með að rétta úr
sér er þetta mjög góð hreyfing.
Það er talað um að líkaminn sé með
200 hreyfingar á mínútu á hestbaki
meðan börn í boltaleik eru með 60
hreyfingar á mínútu,“ segir Bjarni
Eiríksson, reiðkennari. „Einn sem
var hjá mér á námskeiði var mjög
krepptur og átti erfitt með að rétta
úr sér. Meðan á námskeiðinu stóð
þurftum við að lengja um sjö göt í
ístöðunum hans, sem segir sína
sögu.“ Þátttakendur á námskeiðun-
um hjá Bjarna eru á aldrinum 7 til
30 ára, krakkar úr Safamýrarskóla
og fullorðinir úr sambýlum.
En það eru ekki bara fatlaðir
sem geta þjálfað sig í hesta-
mennskunni hjá Bjarna. „Þetta er
heilsársstofnun, hér er kennsla
fyrir börn og fullorðna allan vetur-
inn og yfir sumarmánuðina koma
hér á námskeið um það bil 900
börn. Við erum líka með með Dag í
sveit fyrir krakkana, en þá förum
við að Torfastöðum í Fljótshlíðinni.
Við borðum saman, ég segi þeim
sögur úr Njálu og við ríðum til
dæmis upp að Klitnafossi og lítum
inn á Fræðasetrið á Hvolsvelli.
Bjarni er sjálfur alinn upp á
hestbaki, var settur á bak hesti
fimm ára gamall hjá ömmu sinni
og afa austur á Hornafirði. „Þar
var öll vinna unnin á hestum, afi
átti engan traktor og þetta var allt
upp á gamla mátann.“
Þegar Bjarni er ekki á hestbaki
spilar hann djass á píanó. „Ég er
búinn að vera í tímum í nokkur ár
hjá Árna Elvari, vini mínum. Spila-
mennskan er mitt hobbý og eins og
hestamennskan alveg óskaplega
skemmtileg.“
Bjarni Eiríksson leiðbeinir bæði fötluðum
og heilbrigðum einstaklingum á öllum aldri,
á reiðnámskeiðum í Víðidal.
Persónan
200 hreyfingar á mínútu
Frambjóðendur í prófkjörumeru á fullu við að kynna sig
fyrir kjósendum. Þótt baráttan sé
háalvarleg, bregða menn á leik
þegar svo ber undir. Þannig er
Helgi Hjörvar með getraun á síðu
sinni helgi.is. Þar geta gestir tekið
þátt í að spá fyrir um úrslit próf-
kjörsins. Til mikils er að vinna því
verðlaunin eru ekki af verri end-
anum. Þau eru:
1. Slaufa af Össuri Skarphéðins-
syni
2. Eiginhandaráritun Jakobs Frí-
manns
3. Frumvörp Jóhönnu Sig. 1978-
2002 (23. bindi)
4. 25.000 kr.
5. Orðabók Marðar
6. 50 eintök af blaði Einars Karls
Haraldssonar: „Einar Karl Har-
aldsson“
7. Stuðningsyfirlýsing frá Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur
8. Nýr vettlingur Birgis Dýrfjörð
9. Emil í Kattholti í flutningi
Helga Hjörvar
Hinn goðsagnakenndi vinstri-maður, Óli kommi sem sumir
kannast einnig við sem Ólaf Þ.
Jónsson, er að hætta á skrifstofu
Vinstri-grænna á Akureyri. Hann
vinnur nú að gerð jólablaðs en
mun að því loknu láta af störfum.
Það þykir þó ekki þar með sagt að
Óli sé að leggjast í helgan pólitísk-
an stein.
FÓLK Í FRÉTTUM
GUNNHILDUR HRÓLFSDÓTTIR
Gunnhildi finnst skorta nokkuð á að barnabækur njóti tilhlýðilegrar virðingar. „Mér
finnst vanta meira af kraftmiklu efni fyrir börn. Við megum ekki gleyma því að börnin
eru lesendur framtíðarinnar og það fylgja því miklar skyldur að skrifa fyrir þau. Ég lít á
það sem ábyrgðarhlut að skrifa og tek það starf mjög alvarlega.“
JARÐARFARIR
10.30 Tryggvi Samúelsson, járnsmiður,
Hátúni 10, Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskapellu.
13.30 Salbjörg Halldórsdóttir, hjúkrun-
arheimilinu Eir, verður jarðsungin
frá Grafarvogskirkju.
13.30 Örlygur Sigurðsson, listmálari,
verður jarðsunginn frá Langholts-
kirkju.
14.00 Arnbjörg Aradóttir frá Grýtu-
bakka, Þingvallastræti 16, Akur-
eyri, verður jarðsungin frá Greni-
víkurkirkju.
14.00 Oddný Dóra Halldórsdóttir,
Heiðarbóli 9, Keflavík, verður jarð-
sungin frá Keflavíkurkirkju.
15.00 Hjalti Pálsson, Ægisíðu 74, verð-
ur jarðsunginn frá Hallgrímskirkju.
15.00 Kolbrún Ósk Ólafsdóttir,
Leirutanga 35B, verður jarðsungin
frá Fíladelfíukirkjunni, Hátúni 2.
AFMÆLI
Jón Sigurbjörnsson leikari er áttræður.
Gunnhildur Hrólfsdóttir rithöfundur er
55 ára.
Hrafn Jökulsson er 37 ára.
ANDLÁT
Helga Sigurjónsdóttir frá Norðfirði,
Lindargötu 59, Reykjavík, lést 19. októ-
ber. Jarðarförin hefur farið fram.
Guðfinna Gísladóttir, Ölduslóð 36,
Hafnarfirði, lést 29. október.
Guðmundur Þ. Sigurðsson, fyrrverandi
hafnarvörður, Hjöllum 15, Patreksfirði,
lést 29. október
Gunnar Jónasson, forstjóri, hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni, lést 29. október.
Svava Bernharðsdóttir, Hrauntungu 50,
Kópavogi, lést 29. nóvember.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Að gefnu tilefni skal tekið fram að ungir
framsóknarmenn eldast ekki.
Leiðrétting
BJARNI EIRÍKSSON
Segir fátt ef nokkuð jafnast á við útreiðar-
túr í íslenskri náttúru.
Gunnhildur Hrólfsdóttir er 55 ára í dag. Hún hlaut Íslensku barna-
bókaverðlaunin í fyrra og hefur nú fylgt verðlaunabókinni eftir með
nýju ævintýri um ráðagóðu stúlkuna Kötlu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Hafnfirðingur sótti um starf ílögreglunni. Hann þurfti,
eins og aðrir umsækjendur, að
gangast undir hæfnispróf. Þar
var hann meðal annars spurður
hvernig Jesú hefði dáið. Hafn-
firðingurinn hugsaði sig vel og
lengi um en ákvað að svara ekki
spurningunni. Spyrjandinn bað
hann að fara heim og íhuga
spurninguna. Þegar þangað var
komið spurði konan hans hvort
hann væri kominn með vinnu og
hann svaraði að bragði. „Já! Og
það sem meira er, ég er búinn að
fá mál til að rannsaka.“
Röddin.
34 milljarðar króna.
Gylfi Arnbjörnsson.
1.
2.
3.
Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6