Fréttablaðið - 01.11.2002, Qupperneq 24
Nú eru 54 dagar til jóla og nóvem-bermánuður genginn í garð. Til
forna hétu mánuðir nöfnum sem
minntu á þær aðstæður eða þau
verkefni sem biðu fólks á hverjum
árstíma: Heyannir, mörsugur, ýlir.
Samkvæmt þessu ætti nóvember nú
að heita „nagladekkjamánuður“ og
desember gæti heitið „eyðslukló,“
janúar „skuldadagar“ og febrúar
„prósakkgleypir.“
ÞAÐ setur alltaf að mér soldinn
kvíða þegar minnst er á jólagjafir.
Ekki svo að skilja að mér finnist
kvíðvænlegt að velja þær gjafir sem
ég ætla mér að gefa, heldur hef ég
áhyggjur af því að þeir sem ætla að
gleðja mig lendi í einhverju fári og
vitleysu í jólastressinu og kaupi eitt-
hvað sem mig langar alls ekki í fyrir
peninga sem þeir hafa alls ekki efni
á að eyða.
Í FYRRA fékk ég til dæmis rándýrt
rafmagnstæki sem lítur út eins og
gasgríma. Maður spennir þetta á sig
og stingur í samband og þá fara ótal
gúmmítitrarar á hreyfingu og taka
til við að nudda á manni augnalokin
utanverð. Í leiðarvísinum segir að
þetta sé óbrigðult ráð við stressi en
mín reynsla er sú að þegar ég set á
mig tækið spennist ég allur upp og
óttast að kettirnir mínir haldi að ég
sé geimvera og ráðist á mig þar sem
ég ligg varnarlaus með höfuðið inni í
þessari stressmulningsvél sem með
hávaða og hristingi framkallar
dúndrandi höfuðverk á augabragði.
ANNARS hef ég ekki svo miklar
áhyggjur af því að ættingjar og vinir
steypi sér út í einhverja vitleysu
mín vegna þessi jólin. Ég hef meiri
áhyggjur af ríkisstjórninni, því ég
hef sterkan grun um að núna á kosn-
ingavetri ætli hún að gefa mér ein-
hverja risagjöf til að sýna hvað
henni þykir í raun og veru vænt um
mig. Og svo veit ég að hún verður í
jólaösinni með tólf og hálfan millj-
arð af rússneskum bjórpeningum í
vasanum sem hún fékk fyrir Lands-
bankann. Einhver sagði mér að hún
væri að pæla í að láta steypa upp
handa mér „menningarhús“ vítt og
breitt um landsbyggðina! Fyrir tólf
og hálfan milljarð króna er hægt að
fá skuggalega marga rúmmetra af
steinsteypu. En hvern langar í stein-
steypu í jólagjöf? Það þætti mér
vera alger steypa, jafnvel þótt
stjórnin sé múruð í augnablikinu.
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Farðu beina leið í Frjálsa!
A
B
X
/ S
ÍA
www.fr jals i . is
Frjálsi fjárfestingarbankinn hefur á annað ár boðið hagstæðustu bílalánin.
Í tilefni af 20 ára afmæli bankans gerum við nú enn betur og bjóðum bílalán
án lántökugjalds, fram að næstu áramótum.1)
Algengasta lántökugjaldið er 3% af lánsupphæð. Miðað við milljón króna
lán eru það því 30.000 kr. sem þú losnar við að greiða í aukakostnað.
Þú getur reiknað dæmið og sótt um bílalán á www.frjalsi.is eða hjá bílaumboðunum. Þú
getur einnig komið í Sóltún 26, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is
og fengið allar nánari upplýsingar hjá ráðgjöfum okkar.
1) Bílalán með veði í bifreið getur numið allt að 75% af kaupverði til allt að 84 mánaða. Lánað er 100% af bílverði til allt að 96 mánaða ef
bílalánið er með veði í bifreið og bakveði í fasteign. Heildarveðhlutfall fasteignar með bílaláni má mest vera 90% af verðmæti fasteignar.
Sjá nánari skilyrði fyrir lántöku á www.frjalsi.is.
Lánsupphæð 60 mánuðir 72 mánuðir 84 mánuðir 96 mánuðir
1.000.000 kr. 20.401 kr. 17.612 kr. 15.620 kr. 14.126 kr.
Dæmi um mánaðarlega meðalafborgun af 1.000.000 kr.
miðað við jafnar afborganir án verðbóta:
FR
JÁ
LS
IF
JÁ
R
FE
ST
IN
GA
RBANKINN
1982–2002
ára
Hagstæðasta
bílalánið
og ekkert lántökugjald til áramóta
Steypa
Bakþankar
Þráins Bertelssonar
Drif á öllumGullmolar Lækkað verðNýkomnir
Gott á bilathing.is
Númer eitt í notu›um bílum!Laugavegi 170–174 • Sími 590 5000 • www.bilathing.is • bilathing@hekla.is
Rekstrarleiga