Fréttablaðið - 04.11.2002, Blaðsíða 2
2 4. nóvember 2002 MÁNUDAGUR
LÖGREGLUFRÉTTIR
SAN GIULIANO DI PUGLIA, ÍTALÍU, AP
„Ég vildi gjarnan fá að vita hver
byggði skólann og hver arkitekt-
inn er,“ hrópaði Ciro Riggio, móð-
ir tvíburanna Gianmaria og Luca,
sem bornir voru til grafar í gær í
smábænum San Giuliano di Pugl-
ia, á Ítalíu. Tvíburarnir voru með-
al 26 barna sem létust þegar
grunnskóli bæjarins hrundi til
grunna eftir að jarðskjálfti reið
yfir bæinn á fimmtudag. Auk
barnanna lést kennari og tvær
eldri konur.
Íbúar bæjarins eru æfir yfir
því að skólinn hafi hrunið en
margir sérfræðingar segja að nú-
tíma byggingar eigi að standast
skjálfta líkt og í síðustu viku.
Skólinn var upphaflega byggður
árið 1953 og var viðbygging við
hann tekin í gagnið fyrir skömmu.
Carlo Azeglio Ciampi, forseti
Ítalíu, var viðstaddur útförina
ásamt öðrum háttsettum mönnum
innan ríkisstjórnarinnar. Reiðir
íbúar San Giuliano di Puglia létu í
sér heyra að jarðarförinni lokinni
og kröfðust þess að farið yrði yfir
allar skólabyggingar landsins.
„Gamalt fólk og feður deyja í
jarðskjálftum. Hér dóu börn sem
voru innilokuð í dauðagildru,“
hrópaði áður nefnd Riggio að for-
setanum.
Lögreglu- og slökkviliðsmenn,
sjúkraliðar og hermenn sem tóku
þátt í björgunaraðgerðum báru
kisturnar 26 á öxlum sér til grafar
í gær. Við jarðaförina bað
Tommasso Valentinetti, biskup,
yfirvöld um að koma í veg fyrir að
fleiri slík slys gætu endurtekið
sig. Í lok athafnarinnar voru lesin
upp bréf frá eftirlifandi nemend-
um skólans.
LÖGREGLUMÁL Ölvaður piltur stal bíl
lögreglunnar í Hafnarfirði um hálf
sex leytið í gærmorgun
og ók honum á brunahana
og girðingu. Pilturinn
slapp við meiðsli en fjar-
lægja þurfti bílinn með
kranabíl.
Lögreglan í Hafnar-
firði var kölluð út að Eini-
bergi, í Setbergshverf-
inu, um fimm leytið í
gærmorgun vegna slags-
mála. Ofurölvi, 19 ára
gömlum pilti, hafði orðið
sundurorða við vinafólk
sitt, tvo pilta og tvær
stúlkur, sem sátu inni í bíl
eins þeirra. Pilturinn fór
út í fússi og sótti hafnar-
boltakylfu og Schäffer-
hund heim til sín. Hann kom aftur
til félaga sinna skömmu síðar og
barði hafnaboltakylf-
unni ítrekað í bílinn með
þeim afleiðingum að all-
ar rúður í bílnum brotn-
uðu og rigndi glerbrot-
um yfir þá sem inni
voru. Þau sluppu án telj-
andi meiðsla.
Þegar lögreglan kom
á vettvang handtók hún
piltinn og færði hann inn
í lögreglubílinn.
Á meðan lögreglan
ræddi við félaga piltsins
klifraði hann yfir í öku-
mannssætið, ræsti bílinn
og ók á brott. Hann bakk-
aði bílnum út á næstu að-
algötu, Hamraberg, en
endaði á brunahana sem lagðist á
hliðina. Því næst keyrði hann á
grindverk og stöðvaðist þar. Annar
lögreglumannanna hljóp á eftir
piltinum og náði honum. Að sögn
lögreglunnar í Hafnarfirði er bíll-
inn mikið skemmdur og þurfti að
fjarlægja hann með kranabíl.
Lögreglan í Reykjavík mun
rannsaka málið þar sem það
kollegar hennar í Hafnarfirði geta
ekki rannsakað mál sem snýr að
þeim sjálfum.
Pilturinn fékk að gista fanga-
geymslur en var yfirheyrður um
hádegisbil í gær. Hann á yfir höfði
sér kæru vegna þjófnaðar, ölvun-
araksturs og skemmdaverka.
Vinafólk hans hyggst einnig leggja
fram kærur.
kristjan@frettabladid.is
Holt seld:
Klára afsöl og
samninga
GJALDÞROT Fasteignamiðstöðin
mun klára þá kaupsamninga sem
viðskiptavinir Fasteignasölunnar
Holts höfðu gert og ábyrgjast út-
gáfu afsala fyrir þá sem eru með
frágengna kaupsamninga.
Þetta er hluti af samkomulagi
sem skiptastjóri gerði við eiganda
Fasteignamiðstöðvarinnar um
sölu á búnaði og aðstöðu Holts.
Fasteignamiðstöðin mun opna úti-
bú þar sem Fasteignasalan Holt
var áður.
Salan hefur væntanlega lítil
áhrif á stöðu þeirra sem urðu fyr-
ir barðinu á svikum fyrri eiganda
Holts. Litlar líkur eru á því að
mikið fáist upp í kröfur.
ÍSRAEL, AP Binyamin Netanyahu,
fyrrum forsætisráðherra Ísraels,
hefur tekið boði Ariel Sharons, nú-
verandi forsætisráðherra, um að
gerast utanríkisráðherra í nýrri
ríkisstjórn með þeim skilyrðum að
kosningar verði haldnar í landinu
sem fyrst. Líklegt þykir að kosn-
ingar verði haldnar í október á
næsta ári. Sharon bauð Netanyahu
stöðuna á föstudag en sá síðar-
nefndi hafði áður lýst því yfir að
hann ætli sér að berjast um for-
ystusæti í Likud-bandalaginu.
Sharon hefur átt í viðræðum
við herskáa þjóðernissinna og
strangtrúarmenn um myndun
nýrrar ríkisstjórnar síðan að for-
maður Verkamannaflokksins,
Binyamin Ben Eliezer fyrrverandi
varnarmálaráðherra, sagði sig úr
stjórninni í síðustu viku. Þjóðern-
issinnar og strangtrúarmenn hafa
sjö menn á þingi sem nægir til að
tryggja meirihluta á þingi, þótt
naumur sér. Búist er við að van-
trauststillaga verði lögð fram á
ríkisstjórnina á morgun en ef af
bandalaginu verður mun stjórnin
halda velli.
Shaul Mofaz, harðlínumaður
sem áður gegndi yfirmannsstöðu
hjá hernum, samþykkti á laugar-
dag að taka við stöðu varnarmála-
ráðherra. Þingið þarf þó að sam-
þykkja stöðuveitinguna.
ERILSAMT Í REYKJAVÍK Erilsamt
var hjá lögreglunni í Reykjavík
um helgina. Sjö ökumenn voru
teknir aðfaranótt sunnudags
grunaðir um ölvunarakstur. Einn
ökumannanna ók á ljósastaur í
Grafarvogi.
INNBROT OG ELDUR Brotist var
inn í fyrirtæki við Suðurlands-
braut í gær og talsverðum verð-
mætum stolið, tölvum og skjá-
vörpum. Þjófarnir eru ófundnir.
Minniháttar bruni varð á Grettis-
götu eftir að kviknað hafði í út
frá potti. Reykræsta þurfti íbúð-
ina en skemmdir eru ekki taldar
miklar.
FULLAR FANGAGEYMSLUR Mikið
var um pústra í miðbæ Reykja-
víkur um helgina og voru fanga-
geymslur fullar. Að sögn lögregl-
unnar er oft meira um pústra
fyrstu helgina í hverjum mánuði.
BORIN TIL GRAFAR
Slökkviliðsmenn sem tóku þátt í björgunaraðgerðum báru börnin til grafar í gær.
Foreldrar barna sem létust í jarðskjálftanum á Ítalíu æfir:
„Börnin voru inni-
lokuð í dauðagildru“
AP
M
YN
D
Í ÞUNGUM ÞÖNKUM
Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hef-
ur átt undir högg að sækja.
Netanyahu gengst við
boði Sharon:
Í stjórnina á
nýjan leik
Stal lögreglubíl og
ók á brunahana
Ölvaður piltur stal lögreglubíl í Hafnarfirði í gærmorgun. Keyrði á
brunahana og grindverk. Piltinum hafði orðið sundurorða við félaga
sína, og réðist þá á bíl eins þeirra með hafnarboltakylfu.
BRAUT ALLAR RÚÐUR
Pilturinn barði með hafnarboltakylfu í bíl félaga síns með þeim afleiðingum að allar rúður brotnuðu. Glerbrotum rigndi yfir félaga hans
sem inni voru. Þeir sluppu þó án teljandi meiðsla. Þeir hyggjast leggja fram kærur.
BAKKAÐI Á
BRUNAHANA
Pilturinn bakkaði út
Einiberg og út á aðal-
götuna Hamraberg þar
sem hann endaði á
brunahana, sem lagðist
á hliðina.
Stóraukin prentgæði Fréttablaðsins:
Ný og fullkomin prentvél
tekin í gagnið í næstu viku
BLAÐAÚTGÁFA „Þessi vél er glæný
og býður upp á tækni dagsins í
dag,“ segir Gunnar Smári Egils-
son, ritstjóri Fréttablaðsins, um
nýja prentvél sem dótturfyrir-
tæki Fréttar, útgáfufyrirtækis
Fréttablaðsins, og Ísafoldarprent-
smiðju hefur flutt til landsins.
„Með nýrri prentvél mun Frétta-
blaðið taka forystu á dagblaða-
markaði hvað varðar prentgæði.
Næst yngsta blaðaprentvél lands-
ins, vélin sem prentar bæði Morg-
unblaðið og DV, er um tveggja
áratuga gömul og er ekki lengur
það tækniundur sem hún einu
sinni var. Það er hins vegar nýja
vélin okkar,“ segir Gunnar Smári.
Nýja prentvélin kemur frá
MAN Roland-verksmiðjunum,
öðrum af tveimur stærstu fram-
leiðendum prentvéla í heiminum.
Með prentvélinni fylgir blaða-
stunguvél sem gerir það að verk-
um að hægt er að prenta blöð frá
32 síðum og upp í 96 síður á eink-
ar hagkvæman hátt.
„Við kusum að fara þessa leið
til að hámarka hagkvæmni vélar-
innar. Enskir segja að ekki sé
skynsamlegt að byggja kirkjur
með tilliti til aðsóknar á páskum.
Þessi vél hentar fullkomlega
venjubundinni útgáfu Frétta-
blaðsins en getur jafnframt prent-
að blöð sem eru mjög stór; til
dæmis fyrir jól og páska,“ segir
Gunnar Smári.
Suðurkjördæmi:
Kosið á kjör-
dæmisþingi
STJÓRNMÁL Framsóknarmenn í
Suðurkjördæmi munu kjósa
frambjóðendur á lista sinn á tvö-
földu kjördæmisþingi.
Miklar umræður urðu um
framboðsmál á kjördæmisþingi
flokksins í gær. Tillögur komu
fram um að efna til prófkjörs og
stilla upp. Það varð hins vegar
ofan á að efnt verður til sérstaks
kjördæmisþing til að kjósa fram-
bjóðendurna.
Óskar Þórmundsson, formað-
ur kjördæmisráðsins, segir að
miðað við núverandi félagaskrá
megi gera ráð fyrir að 300 til 400
manns verði á kjörskrá. Sú tala
geti hækkað ef frambjóðendur
leggja í að fjölga fólki í flokkn-
um.
NÝ PRENTVÉL
Unnið er að lokafrágangi og
tilraunaprentanir hefjast í
þessari viku.
Eigi veit ég það svo gjörla, en hitt er víst að
góð er bókin.
Mörður Árnason er ritstjóri Íslensku orðabókarinn-
ar. Íslenskufræðingar sem Morgunblaðið ræddi við
greindi á um hvort orð á borð við sjitt og digg ættu
heima í orðabókinni.
SPURNING DAGSINS
Böggar ‘etta diss ði ekki?
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T