Fréttablaðið - 31.01.2003, Side 30
30 31. janúar 2003 FÖSTUDAGUR
KONAN MÍN
Ljóðið bjargar mannslífum
Ingibjörg Haraldsdóttir fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir
ljóðabók sína Hvar sem ég verð. Hún segist neita að taka undir það
svartagallsraus að ljóðið sé dautt.
LJÓÐSKÁLD Þegar Ingibjörg tók við
verðlaununum úr hendi forseta
Íslands á Bessastöðum þakkaði
hún fyrir þann heiður sem sér og
bók hennar væri sýndur með því
að flytja stuttan pistil sem hún
nefndi Um nytsemi ljóða. Þar
benti hún meðal annars á að allt
frá því að Egill Skallagrímsson
orti Höfuðlausn sína hefur það
verið ljóst að ljóð geta bjargað
mannslífum og að Egill hefði
einnig sýnt það með Sonatorreki
að þau gætu læknað þunglyndi,
þó kvenlegir klækir hafi að vísu
einnig komið þar við sögu.
Ingibjörg segir það mjög
gleðilegt að ljóðabók skuli fá
þessa viðurkenningu enda sé það
frekar sjaldgæft. Ingibjörg er
fjórði rithöfundurinn sem fær Ís-
lensku bókmenntaverðlaunin
fyrir ljóðabók en Stefán Hörður
Grímsson fékk þau þegar þau
voru afhent fyrst árið 1989, fyrir
Yfir heiðan morgun, Þorsteinn
frá Hamri hlaut verðlaunin 1992
fyrir Sæfarann sofandi og Hann-
es Pétursson árið eftir fyrir Eld-
hyl.
Ingibjörg hafnar því alfarið
að ljóðið sé við dauðans dyr. „Ég
vona svo sannarlega að þessi
viðurkenning verði ljóðskáldum
hvatning og hún verði til þess að
útgáfu dánarvottorðs ljóðsins
verði frestað enn um sinn.“ Í er-
indi sínu gat Ingibjörg þess jafn-
framt að ljóðið virtist oft án
framtíðar og tilgangslaust í nú-
tímanum, sem gerir fyrst og
fremst miklar arðsemiskröfur,
sem gerði það að verkum að
vinna skálda væri oftast metin til
fárra fiska. Hún áréttaði þó að
ljóðið hefði verið og væri enn til
margra hluta nytsamlegt, ekki
síst hvað varðaði fræðslu, upp-
eldi og afþreyingu barna. „Það
eru lánsöm börn sem alast upp
við skáldskap og ljóðalestur,“
sagði hún meðal annars og taldi
óhætt að fullyrða að heimurinn
væri friðsamlegri ef móðir nú-
verandi Bandaríkjaforseta hefði
gert meira af því að lesa fyrir
hann ljóð en að troða í hann
spergilkáli.
Ingibjörg er afkastamikill
þýðandi og hefur þýtt verk
Dostojevskís af mikilli list. Hún
hefur ákveðið að gefa þýðingun-
um smá frí. „Ég er komin á það
virðulegan aldur að það er við
hæfi að byrja að rifja upp og ég
er að reyna að skrifa endurminn-
ingabók.“ Hún segist þó hvergi
nærri vera hætt þýðingum enda
bjóði rússnesku meistararnir
upp á endalaus viðfangsefni.
thorarinn@frettabladid.is
VERÐLAUN
SAMNINGAMAÐUR Björn Árnason
stendur nú í ströngu sem formað-
ur og framkvæmdastjóri Félags
íslenskra hljómlistarmanna við
að semja við Útfararstofu kirkju-
garðanna um gjald fyrir söng í
jarðarförum. Þetta er ekki fyrsta
rimman sem Björn tekur í samn-
ingamálum fyrir hljómlistar-
menn enda verið formaður þeirra
síðan 1987.
„Starf mitt felst í því að gæta
þess að allt sé í lagi,“ segir Björn,
sem sjálfur er fagottleikari og
sem slíkur lausamaður í Sinfóní-
unni. Þá leikur hann hjá Íslensku
óperunni og hefur gert lengi: „En
ég spila aldrei á dansleikjum
enda er fagottið ekki hljóðfæri til
þess þó Stuðmenn hafi notað það
endrum og sinnum,“ segir hann.
Til hliðar við starfið á Björn
sér ástríðu sem gefur honum
mikið í bland við músíkina: „Ég á
hlut í 32 feta skútu ásamt fimm
öðrum. Við höfum verið með
skútuna í Skandinavíu og siglt
þar á milli Danmerkur og Sví-
þjóðar. Þá hef ég siglt henni
tvisvar hér yfir hafið,“ segir
Björn, en skútan er nú í geymslu
í Stykkishólmi og bíður þess að
flytja eigendur sína á vit nýrra
ævintýra með hækkandi sól.
Þótt skútusiglingar séu mikil
íþrótt hefur Björn þó náð lengst á
því sviði þegar hann varð Ís-
landsmeistari með meistara-
flokki KR í knattspyrnu árið
1968. Þar lék Björn stöðu vinstri
bakvarðar og átti sinn þátt í Ís-
landsmeistaratitlinum, sem lét
ekki sjá sig í herbúðum KR í 30
ár eftir þetta. Björn er kvæntur
Sigurlínu Scheving flugfreyju og
eiga þau tvö börn, strák og
stelpu, 26 og 16 ára. ■
Björn Árnason er formaður Félags
íslenskra hljómlistarmana og á nú í
samningaviðræðum við Útfararstofu
kirkjugarðanna um verðlagningu á
söng í jarðarförum.
Persónan
Músíkmaður í skútu
INGIBJÖRG HARALDSDÓTTIR
„Ljóð eru mannbætandi og okkur veitir ekki af góðu fólki í þessum voðalega heimi
sem við búum í.“
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
FORMAÐURINN
Björn Árnason varð Íslandsmeist-
ari með KR fyrir 35 árum en siglir
nú um heimsins höf á skútu sem
hann á hlut í með öðrum.
LÓÐRÉTT: 1 mett, 2 annars, 3 sindri, 4 sprækur, 5 hagur, 6 múli, 7 formin,
8 eljusamri, 11 grjótið, 14 barefli, 16 snáðana, 18 píni, 20 fríð, 21 stórir,
23 skekkja, 26 heilsutæpi, 28 hey, 30 flöktir, 31 sál, 33 drottinn.
LÁRÉTT
1 lasleiki,
4 brýni,
9 leðjan,
10 innhverfi,
12 aukist,
13 rusls,
15 svelgurinn,
17 áflog,
19 utan,
20 liðugir,
22 kinn,
24 álpist,
25 farandkvilli,
27 lélegt,
29 æviskeiðið,
32 bæti,
34 skelin,
35 einatt,
26 ýfði,
37 útlimi.
Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 stál, 4 lestur, 9 ráðafár, 10 grun, 12 liðu,
13 gamall, 15 unnt, 17 seig, 19 tár, 20 hnýti, 22 rauna, 24 vaf, 25 krás, 27 arðs,
29 aukast, 32 unað, 34 arta, 35 sólinni, 36 sáttir, 37 angi. Lóðrétt: 1 segg,
2 árum, 3 lánast, 4 lalli, 5 efi, 6 sáðu, 7 truntu, 8 réttra, 11 raunar, 14 leik,
16 nánast, 18 gráu, 20 hvamms, 21 ýfðust, 23 askana, 26 ráðir, 28 snót, 30 arin,
31 tapi, 33 ali.
KROSSGÁTA
TÍMAMÓT
„Hún er traust. Hún er skynsöm.
Hún er skemmtileg. Og hún er
góð manneskja,“ segir Ögmundur
Jónasson alþingismaður um eig-
inkonu sína Valgerði Andrésdótt-
ur. Valgerður er erfðafræðingur
að mennt og hefur starfað um
langt skeið við rannsóknastörf á
tilraunastöð Háskólans að Keld-
um.
Að gefnu tilefni skal tekið fram að forsæt-
isráðherra er ekki lesblindur þó hann lesi
alltaf E-S-B sem N-E-I.
Leiðrétting
Lítill froskur fór til spákonu ogspurði hana hvort á vegi hans
ætti eftir að verða ung og falleg
stúlka.
Spákonan svaraði honum ját-
andi.
„Hvar hitti ég hana?“ spurði
froskurinn spenntur. „Á bar eða í
heimahúsi?“
Spákonan hristi höfuðið og
svaraði: „Nei, í líffræðitíma.“
JARÐARFARIR
10.30 Sigríður Rósa Meyvantsdóttir,
Grensásvegi 60, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju.
13.30 Arndís Þorvaldsdóttir, fyrrver-
andi kaupmaður, Hæðargarði 29,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju.
13.30 Ágúst Sverrisson, Melhaga 17,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni.
13.30 Hildur Kristín Jakobsdóttir,
Borgarsíðu 12, Akureyri, verður
jarðsungin frá Akureyrarkirkju.
13.30 Hjördís Leifsdóttir, Arnarheiði
22, Hveragerði, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju.
13.30 Jófríður Margrét Guðmunds-
dóttir, Hrauntungu 40, Kópavogi,
verður jarðsungin frá Kópavogs-
kirkju.
14.00 Ingvar Jónsson, Sæborg, Skaga-
strönd, verður jarðsunginn í Hóla-
neskirkju.
15.00 Guðmundur Einar Júlíusson,
matreiðslumeistari, Goðheimum
22, Reykjavík, verður jarðsunginn
frá Langholtskirkju.
15.00 Þórhildur Gunnþórsdóttir verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju.
MINNINGARATHÖFN
15.00 Minningarathöfn um séra Björn
Sigurbjörnsson, Dambakken 47,
3460 Birkerød. verður í Hall-
grímskirkju. Hann verður jarð-
sunginn í Kaupmannahöfn á
morgun.
ANDLÁT
Páll M. Guðmundsson, Engjahlíð 1,
Hafnarfirði, lést 17. janúar. Útförin hefur
farið fram.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T