Fréttablaðið - 30.08.2003, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 34
Leikhús 34
Myndlist 34
Íþróttir 29
Sjónvarp 36
LAUGARDAGUR
30. ágúst 2003 – 206. tölublað – 3. árgangur
BÍRÆFINN BANKARÆNINGI Mað-
ur á þrítugsaldri rændi hundrað þúsund
krónum frá gjaldkerum í
útibúi Íslandsbanka við
Eiðistorg. Lögreglustöð er
á hæðinni fyrir ofan úti-
búið, en það aftraði ekki
ræningjanum. Hann var
handtekinn á strætó-
stoppistöð við Eiðis-
granda skömmu eftir að ránið hafði verið
tilkynnt. Sjá síðu 4.
VAFASÖM VIÐSKIPTATILBOÐ
Embætti ríkislögreglustjóra er vikulega til-
kynnt um nokkur vafasöm tilboð um fjár-
festingar erlendis frá. Dæmi er um að jap-
anskir aðilar hringi ítrekað í fólk, sem telur
áganginn jafngilda áreitni. Jafnvel er hringt
að næturlagi og gylliboð reifuð. Sjá síðu 2.
TUGÞÚSUNDIR FÉLLU Átök stjórn-
valda og uppreisnarmanna í Perú sem
stóðu í tvo áratugi kostuðu tæplega 70
þúsund manns lífið. Það eru tvöfalt fleiri en
mannréttindasamtök höfðu áætlað. Skýrsla
rannsóknarnefndar um borgarastyrjöldina
liggur nú fyrir og eru her og lögregla sökuð
um glæpi gegn mannkyninu. Sjá síðu 6.
ÞRÓTTARAR TIL EYJA Nýliðar Þróttar
mæta ÍBV í Eyjum klukkan 14 í dag og
kemur þá í ljós hvort Eyjamenn muni síga í
fallsæti. Mikið verður um að vera í kvenna-
boltanum á sama tíma. Botnslagur verður
á Akureyrarvelli þar sem Þór/KA/KS mætir
Þrótti/Haukum. Í Kópavogi mætast Breiða-
blik og Valur og á KR-vellinum sækir
Stjarnan toppliðið heim. Þá fá FH-ingar
Eyjastúlkur heimsókn á Kaplakrika.
DAGURINN Í DAG
Hægviðri um allt land
+14+14
+14+11
VEÐRIÐ Í DAG
HAUSTBLÍÐA
Þungbúið verður í höfuðborginni í dag, en
bjartara víða annars staðar. Víðast hvar
verður hægviðri. Sjá nánar á síðu 6.
tók við fjölmiðlafræðinni
Þorfinnur Ómarsson:
Kominn upp
í Háskóla
▲
SÍÐA 12
Einar Örn Bjarnason
Maður vikunnar:
Bjargaði
5 ára stúlku
▲
SÍÐA 12
Madonna stal senunni
Madonna og Britney:
Kysstust á
MTv hátíð
▲
SÍÐA 32
BÓKMENNTIR „Hann hringdi hingað
hann Hólmsteinn áður en hann
fór til Clervaux. Mér fannst þetta
voða skrýtið og sagði að verið
væri að skrifa bók um Halldór og
það þyrfti ekki
fleiri,“ segir Auður
Laxness, ekkja
nóbelsská lds ins
Halldórs Kiljan
Laxness, vegna skrifa dr. Hann-
esar Hólmsteins Gissurarsonar á
ævisögu Halldórs. Auk þess að
Hannes Hólmsteinn er að rita
sögu skáldsins á Gljúfrasteini þá
er Halldór Guðmundsson, fyrrum
útgáfustjóri Máls og menningar,
einnig að rita um lífshlaup
skáldsins. Það er því mikið kapp-
hlaup hafið á milli þessara
tveggja rithöfunda.
Eins og Fréttablaðið greindi
frá í gær, vinnur Hannes Hólm-
steinn Gissurarson að ævisögu
Halldórs Kiljans, sem hann
áformar að verði í þremur bind-
um. Reiknað er með að fyrsta
bindið komi út í haust. Hannes
Hólmsteinn hefur af þessu tilefni
dvalið í tvær vikur í munka-
klaustrinu í Clervaux í Lux-
emburg þar sem Halldór dvaldist
fyrir áttatíu árum. Auður segir,
að eftir að hún lét í ljós að ein bók
væri nóg, hafi Hannes Hólm-
steinn fullyrt að hann vissi hvað
hann væri að gera. Hún er
áhyggjufull vegna þessa.
„Þá sagði hann að það mætti
miklu við bæta og hann vissi al-
veg hvað hann væri að gera. Svo
ég lét hann bara eiga sig. Þetta
leggst ekkert vel í mig því mér
finnst hann vera dálítill flumbr-
ari stundum. Maður veit ekkert
hvað kemur frá honum og hann
er strax farinn að tala um að hann
sé ekki eins góður og allir halda,
hvað sem það þýðir,“ segir Auður
og telur að yfirlýsingar Hannesar
Hólmsteins, um að bók hans um
eiginmann hennar innihaldi ein-
hverjar sprengjur, boði ekki gott.
Þarna sé Hannes Hólmsteinn að
búa til söluvöru úr lífshlaupi
Halldórs.
Hún segist aftur á móti vera
mjög sátt við það að Halldór Guð-
mundsson sé að skrá sögu manns
síns.
„Hann er svo afskaplega góð-
ur hann Halldór og veit svo mikið
um Halldór hinn. Ég lánaði hon-
um stóran bunka af bréfum og
fleiru. Hann sagðist hafa haft
mikið upp úr því,“ segir Auður.
Auður segist ekki fallast á að í
lífi eiginmanns síns sé eitthvað
það að finna sem Hannes Hólm-
steinn hafi ýjað að.
„Ég hef ekkert nema gott að
segja um Halldór. Hann var svo
vandaður maður en það er einmitt
svo sérkennilegt við hann eins og
allt hans fólk,“ segir Auður.
rt@frettabladid.is
■
Mér finnst hann
vera dálítill
flumbrari
Bók um Laxness
í óþökk ekkjunnar
Auður Laxness hefur áhyggjur af væntanlegri bók Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um
ævi Halldórs Laxness. Hún er ánægð með ritun Halldórs Guðmundssonar á sögu skáldsins.
Paul Watson kemur:
Vill stöðva
hrefnuveiðar
VIÐTAL „Ég er búinn að ákveða að
koma hingað sumarið 2004 ef Ís-
lendingar hyggjast halda hval-
veiðum áfram“, segir Paul
Watson, forseti náttúruverndar-
samtakanna Sea Shepherd, sem
varð alræmdur á Íslandi árið 1986
þegar félagar úr samtökum hans
sökktu tveimur hvalveiðibátum í
Reykjavíkurhöfn.
Nánar á síðum 16 og 17.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Póstkort með mynd af
Gljúfrabúanum við Kárahnjúka nýtur
mestra vinsælda meðal ferðamanna.
Lundinn og Hallgrímskirkja skora líka hátt
samkvæmt sölutölum úr Máli og menningu.
Vinsælustu póstkortin:
▲
SÍÐA 18
Gljúfrabúinn slær í gegn
Einn virtasti kvikmyndagerðarmaður Evrópu talar
um kvikmyndaheiminn og nýjustu mynd sína,
Sweet Sixteen. Hann á enn eftir að sjá mynd eftir
Friðrik Þór, en segir það standa til bóta.
Ken Loach:
▲
SÍÐUR 20
Ekki séð mynd eftir Friðrik Þór
STRÍÐ Breska leynisþjónustan MI6
hefur sent Íslendingnum Ib Arna-
son Riis bréf, þar sem áréttað er að
hann hafi á engan hátt unnið gegn
Bretum á meðan á seinni heims-
styrjöldinni stóð.
Breska blaðið Sunday Times
greindi frá því í lok maí að í opin-
berum skjölum breska hersins,
væri Riis, sem nú er 88 ára gamall
og býr í Kaliforníu, kennt um einn
mesta skipsskaða breska sjóhers-
ins í stríðinu. Sumarið 1942 sökktu
Þjóðverjar 24 af 36 skipum Banda-
manna við Norður Noreg, en á
þessum tíma starfaði Riis sem
gagnnjósnari Breta á Íslandi. Alls
létu 153 menn lífið í þessari árás
Þjóðverja og í frétt Sunday Times
segir að breska leyniþjónustan
hafi talið að Riis hafi sent Þjóð-
verjum upplýsingar um skipalest-
ina, sem leitt hafi til árásarinnar.
Í bréfi bresku leyniþjónustunn-
ar, sem Riis barst fyrir skömmu,
segir að breska blaðið hafi ekki
greint rétt frá því sem stóð í skjöl-
unum. Það hafi tekið hluti úr sam-
hengi og birt frétt sem ekki hafi
verið á rökum reist. Bréfið er und-
irritað af D.W. Clayton, sem segir í
bréfinu að hann harmi túlkun
Sunday Times á skjölunum. ■
Íslenskur gagnnjósnari Breta í seinni heimsstyrjöldinni:
Hreinsaður af ásökunum
ÁHORFENDUR AÐ VERKI Hversdagslegur gjörningar laða oft að sér áhorfendur, þó takmark þeirra kunni að vera allt annað en sýning.
Út um alla borgina má horfa á menn dytta að hlutum, og jafnvel leggja mat á verkið, líkt og sá gamalreyndi gerði í slippnum.
Aukablað um
menningarveislu
Í dag og á morgun fylgir, með Frétta-
blaðinu, aukablað um dagskrá menn-
ingarstofnana í Reykjavík í vetur. Um er
að ræða kynningarrit sem kallast
Skelltu þér í menningarveislu með okk-
ur í vetur. Aukablaðinu er dreift í
93.000 ein-
tökum, en
hvert eintak
er í raun
númeraður
happadrætt-
ismiði og
einu sinni í
mánuði, frá
september
og fram í júní, verða dregnir út veglegir
vinningar. Upplýsingar um vinnings-
númer verður að finna á heimasíðum
viðkomandi stofnana.