Fréttablaðið - 30.08.2003, Blaðsíða 4
4 30. ágúst 2003 LAUGARDAGUR
Hefurðu farið í berjamó í sumar?
Spurning dagsins í dag:
Ætlarðu að stunda líkamsrækt í vetur?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
59%
25%
Nei
16%Á eftir að fara
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
UMFERÐ Í dag verða umferðarljós
tekin úr sambandi á gatnamótum
Miklubrautar og Kringlumýrar-
brautar. Lögreglan mun stjórna
umferð um gatnamótin á mesta
annatímanum.
Þrjá næstu laugardaga, frá
klukkan fimm um morguninn og
fram til klukkan eitt eftir hádegi,
verður gatnamótum Stekkjarbakka
og Reykjanesbrautar lokað. Þar er
unnið að gerð mislægra gatnamóta
og verður lokunartíminn notaður til
að steypa gólf í brúnni. Ökumenn
sem eru á norðurleið eftir Reykja-
nesbraut þurfa að fara í gegnum
Mjóddina út á Stekkjarbakka. Þeir
sem fara suðurleið í átt að Kópa-
vogi þurfa að fara að aka Smiðju-
veginn.
Lögreglan hvetur fólk til að
velja aðra leiðir til ferða sinna.
Bilun var í umferðarljósunum á
gatnamótum Miklubrautar og
Snorrabrautar frá klukkan fimm
eftir hádegi á fimmtudag þar til
klukkan ellefu í gærmorgun. „Það
tók tæknimenn Reykjavíkurborgar
þennan tíma að finna út hvað olli
biluninni og að gera við hana. Nán-
ast á sömu sekúndu og bilunin varð
þá varð var komin umferðarteppa.
Allt gekk þó vel að lokum og án
óhappa,“ segir Ragnar Árnason, hjá
umferðardeild lögreglunnar í
Reykjavík. ■
Bankaræninginn
beið eftir strætó
BANKARÁN 25 ára maður rændi eitt
hundrað þúsund krónum í Íslands-
banka á Eiðistorgi klukkan hálf
tvö í gær. Hann gekk inn fyrir
gjaldkerastúku, framhjá starfs-
manni og tók peningabúnt og hélt
út. Starfsmenn gerðu lögreglu
viðvart um ránið með því að
þrýsta á öryggishnapp og fjöldi
lögreglumanna mætti á staðinn.
Einn starfsmanna bankans
veitti ræningjanum eftirför og
gat sagt til um hvar hann væri að
finna. Níu mínútum
eftir að ránið var
tilkynnt var ræn-
inginn handtekinn í
strætóskýli á Eiðis-
granda, þar sem
hann hélt á ráns-
fengnum í rauðum
bakpoka og beið
eftir stætó. Maðurinn, sem er góð-
kunningi lögreglunnar, var hvorki
vopnaður né huldi hann andlit sitt.
Hann veitti lögreglunni enga mót-
spyrnu.
Eins og mörgum er kunnugt er
lögreglustöð á næstu hæð fyrir
ofan útibúið, en lögreglumenn
stöðvarinnar voru fjarstaddir þeg-
ar ránið var framið. Því kom það í
hlut lögreglumanna frá aðalstöð-
inni við Hverfisgötu að hafa uppi á
ræningjanum.
„Við hefðum verið snöggir á
staðinn, en vorum úti við eftirlit
eins og oft gerist,“ segir Sigurður
Benjamínsson, annar tveggja lög-
reglufulltrúa á Eiðistorgi.
Gjaldkerar Íslandsbanka hljóta
þjálfun í viðbrögðum við ránum og
telur Jón Þórisson, framkvæmda-
stjóri útibúsins, að viðbragðsáætl-
un hafi virkað fullkomlega.
„Eftir því sem ég best veit voru
þetta einungis seðlar. Við teljum að
allir peningarnir hafi náðst en
rannsóknin er þó alveg á frum-
stigi. Starfsfólki var veitt áfalla-
hjálp strax eftir atvikið. Einn af
föstu þáttunum í okkar starfi er að
gera ráð fyrir að svona hlutir geti
gerst. Við höfum mjög nákvæma
viðbragðsáætlun sem virkaði full-
komlega í þessu tilfelli.“
Maðurinn játaði brot sitt og var
sleppt að loknum yfirheyrslum.
hrs@frettabladid.is
ELDUR AÐ KAPLAHRAUNI
Slökkvilið var kallað að atvinnu-
húsnæði í Kaplahrauni í Hafnar-
firði en þar logaði eldur í stiga-
gangi. Hætta var á ferðum þar
sem í næsta húsi var sprautu-
verkstæði. Greiðlega gekk þó að
slökkva eldinn og skemmdir urðu
litlar.
EFTIRLIT VIÐ SKÓLA Lögreglan í
Reykjavík segir að ekki hafi bor-
ið á hraðakstri nálægt skólum en
vel er fylgst með slíku hjá lög-
reglu þessa dagana þar sem skól-
arnir eru nýhafnir.
VARÐHALD Maður er í varðhaldi
lögreglunnar á Egilsstöðum en
honum var neitað um landvistar-
leyfi eftir komuna hingað með
Norrænu.
EKIÐ Á HEST Ekið var á hest í
kjördæmi lögreglunnar á Höfn í
Hornafirði. Hljóp hesturinn í veg
fyrir bifreiðina með þeim afleið-
ingum að hesturinn lést sam-
stundis og bifreiðin skemmdist
talsvert. Engin slys urðu á fólki.
ÁBENDING Lögreglan í Kópavogi
vill benda fólki á að bíða ætíð eft-
ir lögreglu þegar hennar er ósk-
að. Lítil stúlka hljóp út á veginn í
gjánni í Kópavogi þvert í veg fyr-
ir umferðina sem er þung þar.
Margir hringdu á lögreglu en
enginn tók til sinna ráða fyrr en
um síðir þegar ökumaður stöðv-
aði og keyrði af stað með stúlk-
una og lögregla greip í tómt þeg-
ar að var komið.
UMFERÐARÓHAPP Lögreglan á
Akureyri fékk tilkynningu um
„umferðaróhapp“ þegar tveir
strákar á hjólum keyrðu hvor á
annan. Kalla þurfti til sjúkrabíl
en meiðsli voru ekki alvarleg.
Einnig var tilkynnt um íkveikju
við Kaupvang en ekki reyndist
hætta á ferðum.
Hundrað þúsund krónum í seðlum var rænt í Íslandsbanka á Eiðistorgi
rétt eftir hádegi í gær. Starfsmaður bankans veitti ræningjanum eftirför
sem skömmu síðar var handtekinn á strætóbiðstöð.
ÍSLANDSBANKI Á EIÐISTORGI
Hálfþrítugur maður gekk inn í útibú Ís-
landsbanka við Eiðistorg og hrifsaði
hundrað þúsund krónur frá gjaldkerum.
■
Ræninginn sem
er góðkunningi
lögreglunnar
var hvorki
vopnaður né
huldi andlit sitt.
LÖGREGLUSTÖÐ
Lögreglustöð er á hæðinni fyrir ofan
Íslandsbanka sem rændur var.
Lögreglan í Reykjavík:
Fólki bent á að
aka aðrar götur
UMFERÐARSTJÓRNUN
Lögregluþjónar stjórnuðu umferð á gatnamótum Miklubrautar og Snorrabrautar í gær.
Endurrit af símtölum frá World Trade Center:
Hinsta kveðja fórnarlambanna
NEW YORK „Annað hvort rakst flug-
vél eða eldflaug á World Trade
Center. Það er látið fólk alls stað-
ar“ sagði starfsmaður hafnaryfir-
valda í New York sem staddur var
í öðrum Tvíburaturnanna að
morgni 11. september 2001. End-
urrit af símtölum 36 fórnarlamba
hryðjuverkaárásanna á World
Trade Center hafa verið gerð
opinber þrátt fyrir hörð mótmæli
fjölda aðstandenda og hafnaryfir-
valda í New York sem voru eig-
endur bygginganna.
Um er að ræða símtöl í neyðar-
línur, aðallega frá starfsmönnum
hafnaryfirvalda sem voru með
höfuðstöðvar í byggingunni. Tals-
maður stofnunarinnar segir að
endurritin sýni að starfsmenn
hennar hafi sinnt skyldum sínum
af mikilli fagmennsku og sýnt ein-
stakt hugrekki.
Símtölin varpa þó einnig ljósi á
þá ringulreið sem ríkti í björgun-
arstarfinu. Þegar flugvél hafði
flogið á annan turninn hringdi
fjöldi fólks úr hinum turninum í
neyðarlínur. Var sumum þá ráð-
lagt að koma sér út hið snarasta á
meðan aðrir fengu þær upplýsing-
ar að best væri að halda kyrru
fyrir. ■
TVÍBURARTURNARNIR FALLA
Hafnaryfirvöld í New York og New Jersey hafa gefið út endurrit af neyðarsímtölum
úr World Trade Center að morgni 11. september 2001.
■ Lögreglufréttir
■ Innlent
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Sat inni fyrir kærustuna:
Blóð er
þykkra en ást
MALASÍA, AP Áfrýjunardómstóll í
Malasíu hnekkti dauðadómi yfir
ungum manni þegar í ljós kom að
hann hafði logið á sig sök til að
vernda kærustuna sína.
Tan Ewe Huat hafði setið inni í
þrettán ár fyrir heróínsölu og beð-
ið þess að verða hengdur. Hann var
handtekinn árið 1990 þegar lög-
reglan fann 86 grömm af heróíni á
heimili hans og kærustunnar. Tan
laug því að hann ætti fíkniefnin og
slapp konan því við ákæru.
Faðir Tan var viðstaddur þegar
dauðadómnum var hnekkt en
kærastan lét ekki sjá sig. „Blóð er
þykkra en ást“ sagði faðirinn þeg-
ar hann tók á móti syninum. ■
Fimm milljarðar í mínus:
Vöruskiptin
óhagstæð
EFNAHAGSMÁL Vöruskipti Íslands
við umheiminn voru óhagstæð
um fimm milljarða króna í júlí-
mánuði síðastliðnum. Fluttar
voru vörur inn í landið fyrir 20
milljarða króna, en útflutningur
nam 14,9 milljörðum. Fyrstu sjö
mánuði ársins var flutt inn fyrir
sex milljarða króna meira en út-
flutningur nam.
Hvað óhagstæðan júlímánuð
varðar munar mestu um að út-
fluttar sjávarafurðir voru átta
prósentum verðminni en á sama
tíma í fyrra. Þá var flutt inn
meira af fólksbílum og neyslu-
vörum. ■
■ Lögreglufréttir
AUKIN GREIÐSLUKORTAVELTA Það
sem af er þessu ári hefur innlend
greiðslukortavelta aukist um
3,8% miðað við sama tímabil í
fyrra. Þetta kemur fram í Hag-
vísum Hagstofu Íslands.