Fréttablaðið - 01.10.2003, Blaðsíða 1
ALÞINGI „Veturinn leggst mjög vel
í mig,“ segir Halldór Blöndal,
forseti Alþingis. „Það eru nokkr-
ar breytingar á þingliði, margt
nýtt fólk sem verður fróðlegt og
skemmtilegt að kynnast.“
Þingið verður sett í dag og
fjárlög lögð fram. Á morgun flyt-
ur forsætisráðherra stefnuræðu
og umræður verða um hana.
Halldór býst við að þinghaldið
verði bæði gott og skemmtilegt.
Fjárlögin verða stærsta málið
fyrir áramót, að hans sögn, en
eins má búast við að tekin verði
fyrir mál sem hafa verið boðuð af
hálfu ríkisstjórnarinnar, svo sem
um lækkun skatta. „Svo má búast
við að sjávarútvegsmálin setji
svip á þingið og að stjórnarand-
staðan beri upp mál utan dag-
skrár með hefðbundnu sniði.“
Miklar endurbætur hafa verið
gerðar á fyrstu hæð Alþingis-
hússins. Halldór er mjög ánægð-
ur með hvernig til hefur tekist
við endurbætur þar sem haft var
að leiðarljósi að færa útlit til upp-
runalegs horfs í samræmi við
teikningar.
Hann segir nauðsynlegt að
fylgja eftir þeim endurbótum
sem gerðar hafa verið og vonast
til þess að í fjárlagafrumvarpinu
verði fé veitt til endurbóta á
þingsölunum sjálfum. ■
200 manna partí
Þorsteinn Erlingsson:
▲
SÍÐA 30
Svitnaði í
hellum
hannes heldur sínu striki
Halldór Kiljan Laxness:
▲
SÍÐA 12-13
Átök um
lífshlaup
tónleikar í kvöld
Jójó:
▲
SÍÐA 26
Risarokk fyrir
Götusmiðjuna
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 23
Sjónvarp 28
MIÐVIKUDAGUR
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í sept. ‘03
Meðallestur fólks 25-49 ára
á höfuðborgarsvæðinu
á miðvikudögum
82%
52%
20%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
D
V
VETNISVAGNAR
Á GÖTURNAR
Tveir vetnisvagnar af
þremur sem verða
teknir í notkun á
leiðakerfi Strætó bs.
komu til landsins í
gær. Hver vagn kost-
ar 100 milljónir
króna. Síða 4.
NEMI KORTLEGGUR NÓBELS-
SKÁLD Forsætisráðuneytið réð starfs-
mann án sérþekkingar til bókasafnsvinnu
á Gljúfrasteini. Starfsmaðurinn fær leið-
sögn bókasafnsfræðinga úr forsætisráðu-
neytinu. Sjá síðu 2.
ÁKÆRÐIR FYRIR AÐ FALSA
SKJÖL EFTA-dómstóllinn í Brussel hefur
nú til meðferðar mál sem varðar meint fjár-
svik þriggja Íslendinga sem fluttu út fisk til
landa Evrópusambandsins. Sjá síðu 2.
STJÓRNARANDSTAÐAN KYNNIR
FRUMVÖRP Vinstri grænir leggja fram
20 mál í upphafi þings. Þeir vilja gjaldfrjálsa
leikskóla og lög um banka. Samfylkingin
kynnir frumvörp um breytingar á stjórnar-
skrá og samkeppnislögum. Síður 4-6.
verðlaun ● skólavefurinn
▲
SÍÐA 18-19
nám o.fl.
Gagnrýnir
niðurskurð
Elna Katrín Jónsdóttir:
KEPPT Í SS-BIKARNUM Fjórir leik-
ir verða í SS-bikarkeppni karla í hand-
bolta í kvöld. Stjarnan tekur á móti Vík-
ingi, Grótta/KR á móti FH. Selfoss mætir
KA og Fylkir Strumpunum. Leikirnir hefj-
ast kl. 19.15.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
BÆTIR Í ÚRKOMUNA SÍÐDEGIS
Það bætir í úrkomuna síðdegis, annars
verður hæglætisveður um allt land. Bjart á
Suðausturlandi. Í dag er óvitlaust að hafa
regnhlíf eða regnslá til taks, a.m.k. vestan-
lands. Síða 6.
1. október 2003 – 238. tölublað – 3. árgangur
Halldór Blöndal um þingið fram undan:
Skemmtilegt og gott þing
STJÓRNMÁL „Ég mun veita sjávarút-
vegsráðherranum fullt aðhald og
hann þarf að svara fjölda fyrir-
spurna frá mér,“ segir Magnús
Þór Hafsteinsson, alþingismaður
Frjálslynda flokks-
ins, sem tekur sæti
á Alþingi í fyrsta
sinn í dag.
Magnús, sem er
menntaður fiski-
fræðingur, segist
þegar hafa samið fjölda fyrir-
spurna sem hann ætlar Árna
Mathiesen að svara.
Magnús Þór og Árni hafa lengi
eldað grátt silfur saman. Á sínum
tíma stefndi Magnús Þór ráðherr-
anum vegna þeirra ummæla ráð-
herrans að frægar brottkasts-
myndir sem teknar voru um borð í
Bjarma BA hefðu verið sviðsettar.
Magnús Þór, sem var fréttamaður
hjá Sjónvarpinu, stefndi ráðherr-
anum fyrir meiðyrði og vann sig-
ur fyrir undirrétti en tapaði mál-
inu fyrir Hæstarétti.
Í framhaldi af Bjarmamálinu
var lögum breytt í þá veru að fiski-
skip mega koma með aukaafla að
landi, allt að fimm prósentum, án
þess að sæta sektum. Sá fiskur
rennur til Hafrannsóknastofnunar
og er gjarnan kallaður Hafrófisk-
ur. Þessi ráðstöfun var hugsuð til
þess að minnka brottkast.
„Ég mun spyrja ráðherrann ít-
arlegra spurninga um Hafrófisk-
inn. Nú hefur komið að landi fisk-
ur fyrir allt að 300 milljónir króna
og ég vil fá að vita hvaða skip hafa
landað þessum afla, af hvaða
stærð fiskurinn er og á hvaða
verði hann hefur selst. Þá spyr ég
hvar fiskinum hafi verið landað.
Kjarninn er sá að ég vil vita
hvernig menn hafa nýtt sér þessa
reglu,“ segir Magnús Þór.
Magnús Þór segist einnig vilja
fá svör við því hvort rannsóknir
hafi farið fram á því hve mikill
meðafli er á kolmunnaveiðum. Þá
vill hann fá svör við því hve stór
hluti af starfi Hafrannsóknastofn-
unar hafi farið til veiðarfæra-
sannsókna.
„Það er pottur brotinn hvað
varðar veiðarfærarannsóknir. Ef
ráðherrann svarar samviskusam-
lega er víst að hann hefur nóg að
gera,“ segir Magnús Þór.
rt@frettabladid.is
■
„Ég mun veita
sjávarútvegs-
ráðherranum
fullt aðhald.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Árangurslaus fundur
með Impregilo:
Hafðir að
fíflum
ATVINNUMÁL „Við erum allir mjög
vonsviknir,“ sagði Þorbjörn Guð-
mundsson, talsmaður Samráðs-
nefndar, eftir fund með forsvars-
mönnum ítalska verktakafyrir-
tækisins Impregilo í gærkvöldi.
Snöggur endir varð á fundinum
þegar í ljós kom að Impregilo er
ekki reiðubúið að ganga að kröf-
um verkalýðshreyfingarinnar.
„Eftir yfirlýsingar um að vilji
væri fyrir hendi hjá Impregilo á
að koma til móts við kröfur okkar
kom ekkert fram á þessum fundi
og eingöngu verið að hafa okkur
og stjórnvöld að fíflum. Það eina
sem kom fram var að þeir vilja
kalla til lögfræðinga Impregilo
frá Ítalíu og fyrr gera þeir ekki
neitt.“ ■
NÝR FORSALUR ALÞINGISHÚSSINS
Alþingi er sett í dag. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á fyrstu hæð Alþingishússins. Fjármálaráðherra leggur fjárlagafrumvarpið fram
klukkan 16 í dag. Á morgun flytur forsætisráðherra stefnuræðu sína.
Eurovision:
Engin
forkeppni
SÖNGVAKEPPNI Á fundi útvarpsráðs
var ákveðið að við val á lagi og
flytjanda fyrir söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva í Evrópu
fyrir næsta ár verði eitt lag og
flytjandi valin sem framlag til
keppninnar. Ekki verður efnt til
forkeppni eins og verið hefur
vegna mikils kostnaðar. Þetta fyr-
irkomulag hefur áður verið reynt
með góðum árangri þegar Selma
Björnsdóttir var fengin til verks-
ins árið 1999.
Eftir á að útfæra endanlega
hvernig staðið verður að því að
velja lag og flytjanda. Það verður
gert í samráði við Félag íslenskra
hljómlistarmanna og Félag tón-
skálda og textahöfunda. ■
MAGNÚS ÞÓR HAFSTEINSSON
Mun tryggja sjávarútvegsráðherra næg
verkefni við að svara spurningum.
Ráðherra mun fá
skæðadrífu fyrirspurna
Magnús Þór Hafsteinsson, alþingismaður Frjálslynda flokksins, segist ekki vera kominn á þing til
að slaka á. Hann heitir því að veita Hafrannsóknastofnun og sjávarútvegsráðherra fullt aðhald.