Fréttablaðið - 01.10.2003, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 01.10.2003, Blaðsíða 2
2 1. október 2003 MIÐVIKUDAGUR „Ég er með stóran hnút í maganum.“ Samfylkingin ætlar að láta Ágúst Ólaf Ágústsson taka þátt í umræðum um stefnuræðu forsætisráð- herra þegar Alþingi kemur saman í dag. Ágúst Ólafur er nýliði á þingi. Spurningdagsins Ágúst Ólafur, ertu farinn að kvíða fyrir? ■ Evrópa Nemi kortleggur safn Nóbelsskálds BÓKMENNTIR „Hún er bara að skrá bækur og ég hef ekkert meira um málið að segja,“ segir Halldór Árnason, skrifstofustjóri forsæt- isráðuneytisins, um starfsmann sem ráðuneytið réði í sumar til starfa á Gljúfrasteini. Halldór fór í fyrstu fram á að Fréttablaðið sendi skriflega fyr- irspurn vegna starfsmannsins , Völu Káradóttur í s l e n s k u f r æ ð i - nema, en staðfesti síðan að hún hefði verið ráðin til starfa án auglýs- ingar við að skrá bækur og eign- ir á Gljúfrasteini. Hann segir að ekki hafi þurft að auglýsa starfið þar sem það sé „tímabundið“ og aðeins hlutastarf. Aðspurður um það hvort Vala hafi þá menntun á sviði bóka- safnsfræða sem æskileg sé við flokkun og skráningu bókasafns Nóbelsskáldsins segir hann menntun óþarfa. „Hún hefur leiðsögn héðan, frá bókasafnsfræðingum í ráðu- neytinu,“ segir Halldór. Fjölskyldu Nóbelsskáldsins mun þykja það „skondin tilvilj- un“ að Vala og Hannes Hólm- steinn Gissurarson, sem vinnur að skráningu ævisögu Halldórs Laxness, þekkjast vel. Vala er fyrrverandi leigjandi Hannesar og hefur aðstoðað Hannes við fyrra ritverk. Halldór Árnason vildi ekkert um það segja hvern- ig ráðningu Völu bar að höndum. Hann segir að stjórn Minningar- sjóðs um Halldór Laxness hafi verið með í ráðum. „Ráðning hennar var með fullri vitund og samþykki stjórn- arinnar,“ segir hann. Halldór Þorgeirsson, tengda- sonur skáldsins og stjórnarmað- ur í Minningarsjóðnum, segir að ráðning Völu hafi aldrei verið borin undir stjórnina til sam- þykktar, heldur eingöngu kynnt. „Ég vinn að því að skrá bækur og tengja þær Gegni,“ sagði Vala Káradóttir, þegar Fréttablaðið ræddi við hana þar sem hún var við störf sín á Gljúfrasteini í fyrradag. Vala sagðist vera í hlutastarfi og kvaðst ekki vilja tjá sig frekar um störf sín. rt@frettabladid.is Ákærðir fyrir að falsa skjöl til að sleppa við að greiða 60 milljónir í tolla: EFTA-dómstóll fjallar um meint brot Íslendinga FISKÚTFLUTNINGUR EFTA-dómstóll- inn í Brussel hefur nú til meðferð- ar mál sem varðar meint fjársvik þriggja Íslendinga sem fluttu út fisk til landa Evrópusambandsins. Héraðsdómur Reykjaness bað dómstólinn um ráðgefandi álit á því hvaða reglur giltu um upp- runavottorð afurða sem fluttar eru inn á markaði ESB. Um er að ræða 80 tonn af rússafiski sem Valeik ehf. í Hafnarfirði hafði flutt inn, Sæunn Axels á Ólafsfirði unnið og Valeik svo flutt út undir þeim merkjum að um íslenska af- urð væri að ræða. Ríkislögreglu- stjórinn ákærði tvo fyrrum fram- kvæmdastjóra Sæunnar Axels og framkvæmdastjóra Valeikur fyrir að hafa sammælst um að falsa út- flutningsskjöl til að sleppa við að greiða tæpar 60 milljónir króna í tolla á mörkuðum Evrópusam- bandsins. Málið þykir flókið þar sem túlkun á upprunareglum og viðskiptakjörum getur skipt miklu við niðurstöðu íslenskra dómstóla. ■ 200.000 MANNS TEKNIR AF LÍFI Nasistar tóku af lífi um 200.000 fatlaða, þroskahefta og geðsjúka einstaklinga í síðari heimstyrj- öldinni, að sögn sérfræðinga sem árum saman hafa rannsakað gögn tengd helförinni. Stór hluti fórnarlambanna var sjúklingar á sjúkrahúsum og heilsuhælum í Þýskalandi og nágrannaríkjum. MEINTIR HRYÐJUVERKAMENN HANDTEKNIR Breska lögreglan handtók ellefu Alsíringa sem grunaðir eru um aðild að hryðju- verkasamtökum í samstilltum að- gerðum í Lundúnum og Man- chester. Mönnunum er haldið á grundvelli breskra laga gegn hryðjuverkum sem tóku gildi árið 2000. ENGLAND, AP Tony Blair, for- sætisráðherra Bretlands, sagðist ekki sjá eftir því að hafa gripið til hernaðar- aðgerða gegn Írak þegar hann ávarpaði flokksþing Verkamannaflokksins í Bournemouth. Blair viðurkenndi að and- staðan við stefnu ríkisstjórn- arinnar hefði vaxið mikið að undanförnu en ítrekaði að ekki kæmi til greina að gefa eftir. „Hvað gerum við nú; gefumst upp eða höldum áfram?“ sagði forsætisráð- herrann og var ákaft fagnað af flokksbræðrum sínum. Blair sagðist myndu taka sömu ákvörðunina aftur í tengslum við Íraksstríðið. „Íraksdeilan hefur klofið al- þjóðasamfélagið, flokkinn, landið, fjölskyldur og vina- hópa. Ég veit að margir eru vonsviknir, særðir og reiðir en ég bið aðeins um eitt: Gagnrýnið ákvörðun mína en reynið að minnsta kosti að skilja hvers vegna ég tók hana og hvers vegna ég myndi taka sömu ákvörðun aftur,“ sagði Blair. Í skoðanakönnun sem birt var síðustu helgi sögðust 64% aðspurðra ekki treysta Blair og 48% voru á þeirri skoðun að honum bæri að segja af sér. ■ HÉRAÐSDÓMUR REYKJANESS Bað um álit EFTA-dómstólsins. Forsætisráðuneytið réð starfsmann án sérþekkingar til bókasafnsvinnu á Gljúfrasteini. Starfsmaðurinn fær leiðsögn bókasafnsfræðinga úr forsætisráðuneytinu, segir skrifstofustjóri. GLJÚFRASTEINN Forsætisráðuneytið réð starfsmann til að flokka bækur og tengja gagnagrunni. ■ „Hún hefur leiðsögn héðan, frá bókasafns- fræðingum í ráðuneytinu.“ Tony Blair ávarpaði flokksþing Verkamannaflokksins: Rétt ákvörðun að hefja stríð gegn Írak TONY BLAIR Breski forsætisráðherrann bað um traust stuðningsmanna sinna þegar hann ávarp- aði flokksþing Verkamannaflokksins. Frjálslyndir og VG: Vilja rann- sókn á kosn- ingum KOSNINGAR Vinstrihreyfingin – grænt framboð og Frjálslyndi flokkurinn ætla að biðja sameig- inlega um að Alþingi láti rannsaka undirbúning og framkvæmd Al- þingiskosninganna í vor. Kolbrún Halldórsdóttir, þing- maður VG, segir að flokkurinn hafi ástæðu til að ætla að fram- kvæmd kosninganna hafi verið ábótavant og það eigi bæði við um kynningu gagnvart kjósendum og talningu atkvæða. „Við viljum að það verði farið yfir alla þætti í tengslum við kosningarnar til að við getum lært og að atvik sem komu fram gerist ekki aftur,“ segir Kolbrún. Hún segir ótækt að atkvæði séu að finnast í september í kosningum frá í maí. ■ Áfrýjunarnefnd sam- keppnismála: Ógildir fyrri úrskurð ÚRSKURÐUR Áfrýjunarnefnd sam- keppnismála hefur úrskurðað að Icelandair hafi brotið gegn sam- keppnislögum með kynningu og sölu á svonefndum Vorsmellum flugfélagsins. Hins vegar féllst nefndin ekki á að lækkun flugfar- gjalda Icelandair á flugleiðunum frá Keflavík til Kaupmannahafn- ar og Lundúna og svokallaðir Netsmellir félagsins hefðu brotið í bága við samkeppnislög. Því er tveimur af þremur úrskurðum Samkeppnisráðs hafnað en kærur flugfélagsins Iceland Express voru upphafið að þeim. Í fréttatilkynningu frá Flug- leiðum segir að það sé ánægjuefni að mati félagsins að áfrýjunar- nefndin hafni öllum kröfum Iceland Express. ■ Greint var frá innihaldi stefnuræðu í gærkvöldi: Boða skatta- lækkanir ALÞINGI Stjórnarflokkarnir stefna að verulegum skattalækkunum á kjörtímabil inu, s a m k v æ m t stefnuræðu Dav- íðs Oddssonar for- s æ t i s r á ð h e r r a sem Stöð 2 greindi frá í kvöldfréttum sínum í gær- kvöldi. Forsætisráð- herra mun flytja ræðuna á morgun, en henni var dreift til þingmanna sem trúnað- armáli í gær. Sigurður Líndal lagaprófessor segir það hafa kom- ið sér á óvart að greint hafi verið frá ræðunni í gær, þar sem um trúnaðarskjal til þingmanna sé að ræða. Hann segist ekki telja að nein bein formleg viðurlög séu til gegn broti af þessu tagi, þ.e. ef þingmaður hefur látið ræðuna af hendi. Um siðferðislegt mál virð- ist því vera að ræða. Öðru máli gegni hins vegar um það ef emb- ættismaður hafi látið einhvern fá ræðuna. Slíkt sé skýrt brot á lög- um um réttindi og skyldur starfs- manna ríkisins. ■ Útborgun við Kárahnjúka: Fulltrúi VMS viðstaddur ATVINNUMÁL Ítalska verktakafyrir- tækið Impregilo hefur gefið Vinnumálastofnun heimild til að hafa fulltrúa viðstaddan þegar laun starfsmanna Technoservice verða greidd út í dag. Techno- service er undirverktaki. Vinnumálastofnun hefur um hríð kannað launakjör erlendra starfsmanna Impregilo og vil stofnunin með þessu fá staðfest- ingu á því að útborgun fari fram eftir lögum og reglum. ■ SIGURÐUR LÍNDAL Frétt um stefnu- ræðu kom á óvart.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.