Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.10.2003, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 01.10.2003, Qupperneq 4
4 1. október 2003 MIÐVIKUDAGUR Hefurðu farið á leik í Remax-deild karla eða kvenna í handbolta? Spurning dagsins í dag: Hvað finnst þér um Laxness-deiluna? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 86% 4% Nei 6%Á eftir að fara Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is ■ Akureyri ■ Akureyri Tveir vetnisvagnar komnir til landsins: Hver vagn kostar 100 milljónir króna VETNISVAGNAR „Vetnisvagnarnir koma hingað sem tilraun,“ segir Jón Björn Skúlason, fram- kvæmdastjóri Íslenskrar nýorku. Í gær komu tveir vetnisvagnar af þremur sem verða teknir í notkun á leiðakerfi Strætó bs. Hann segir vagna ekki menga neitt þar sem aðeins komi vatn frá þeim. Jón Björn segir vagnana vera rannsókna- og tilraunaverkefni. Samhliða því að prufukeyra vagn- ana og vetnisstöðina er unnið að samfélags-, efnahags- og um- hverfisrannsóknum. „Niðurstöður úr rannsóknunum segja til um hvort þetta er hægt, hvort það er tæknilega auðvelt og hvort samfé- lagið er tilbúið til að taka við slíkri tækni.“ Íslensk nýorka er eigandi vagnanna og kostar hver vagn ríf- lega eitt hundrað milljónir króna. Evrópusambandið styrkti verk- efnið með því að niðurgreiða allan verkefniskostnað um 40 prósent. Jón Björn segir vagnana vera þrjá af 33 vögnum sem voru fram- leiddir á þennan hátt. Þeir verði keyrðir í tíu borgum í Evrópu og einni borg í Ástralíu. „Þetta er víðtækasta vetnisverkefni sem farið hefur af stað í heiminum. Við væntum þess að ef jákvæðar niðurstöður fást úr tilraununum verði hægt í framtíðinni að skipta hefðbundnum vögnum út fyrir vetnisvagna.“ ■ Boðum harða stjórnarandstöðu STJÓRNMÁL Vinstrihreyfingin – grænt framboð kynnti í gær 20 mál sem þingflokkurinn hyggst leggja fram á Alþingi í upphafi þingsins. Ögmundur Jónasson, formaður þingflokksins, segir að þingmálin muni taka mið af grunnþáttum í stefnu flokksins, velferðarmálum, kvenfrelsi, um- hverfismálum og náttúruvernd, byggðamálum og sjálfstæðri ut- anríkisstefnu. Fyrsta málið sem VG leggur fram er þingsályktunartillaga um samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga um gjaldfrjálsan leikskóla. Ögmundur segir að það sé táknrænt að þetta sé fyrsta málið. Flokkurinn lagði mikla áherslu á málið í kosninga- baráttunni í vor og segist sýna vilja sinn í verki með því að leggja sérstaka áherslu á það í upphafi þingsins. Kolbrún Halldórsdóttir, þing- maður VG, ætlar að leggja fram að nýju frumvarp um bann við kaupum á kynlífsþjónustu. Hún hefur áður lagt þetta mál fram en segir nú að hún hafi stuðning kvenna úr öllum flokkum, nema hugsanlega Sjálfstæðisflokki, auk þess sem margir karlar styðji frumvarpið. Það tekur nú á því að kaup á vændi verði gerð refsiverð. Hún segir ekki mögu- legt að greina á milli kláms, vændis og mansals þar sem allt þrennt sé iðulega á ferðinni í einu. Vinstri grænir boða líka frum- varp um breytingar á lögum um banka og verðbréfafyrirtæki þar sem takmarkaðar verði heimild- ir banka og sparisjóða til að fjár- festa og eiga í atvinnufyrirtækj- um og að skilið verði milli við- skiptabanka og fjárfestingar- banka með skýrum hætti. Ög- mundur kynnti mál þar sem bannað verður að hækka vexti á verðtryggðum lánum. Þuríður Bachmann kynnti enn fremur þingsályktunartillögu um að tannvernd verði hluti af ungbarnavernd og skólaheilsu- gæslu. Ástæða sé til þess þar sem tannheilsu barna og ung- menna sé að hraka. Þá ætlar VG að flytja mál um sjúkrahótel, fé- lagslegt forvarnarstarf og um úrræði fyrir þá sem verða fyrir heimilisofbeldi. kgb@frettabladid.is HREFNUVEIÐARNAR Samkvæmt áætlunum átti þeim að vera lokið en enn á eftir að veiða þrjár hrefnur. Vísindaveiðum á hrefnu að ljúka: Þrjár hrefn- ur eftir HVALVEIÐAR Samkvæmt síðustu upplýsingum frá Hafrannsókna- stofnun á aðeins eftir að veiða þrjár hrefnur til að uppfylla vís- indaveiðikvótann á þessu ári. Samkvæmt áætlunum átti veið- unum að ljúka í september en all- ir þrír bátarnir verða úti í dag og eru líkurnar góðar á að það náist að veiða síðustu hrefnurnar. Um leið og sýni hafa verið tek- in úr síðustu skepnunum hefjast vísindamenn Hafrannsókna- stofnunar handa við að vinna úr þeim upplýsingum sem safnast hafa síðan veiðarnar hófust í sumar. ■ FISKAFLINN Fyrstu sex mánuði ársins hefur veiðst tals- vert minna en á sama tíma í fyrra. Sjávaraflinn fyrstu sex mánuðina: Minni en í fyrra SJÁVARÚTVEGUR Hagstofa Íslands hefur birt bráðabirgðatölur yfir verðmæti sjávarafla fyrstu sex mánuði þessa árs. Þar kemur fram að heildaraflaverðmæti ís- lenskra skipa var 36,8 milljarðar króna og heildaraflinn var 1.130 þúsund tonn. Á sama tíma í fyrra höfðu veiðst 1.407 þúsund tonn. Verðmæti botnfiskaflans var 25 milljarðar króna sem fengust fyrir 249 þúsund tonn. Verðmæti uppsjávartegunda var 6,5 millj- arðar fyrir 838 þúsund tonn. Stærstur hluti heildaraflans var unninn á Austurlandi, 446 þús- und tonn, en unnið var úr mestum verðmætum, 6,2 milljörðum króna, á Suðurnesjum. ■ Fráskilinn, fjörugur og kraftmikill ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 22 40 4 0 9/ 20 03 Áhyggjulaus og örugg bílaviðskipti - Strangt skoðunarferli, 14 daga skiptiréttur, ókeypis skoðun eftir 1000 km, allt að 1 árs ábyrgð. Skoðaðu úrvalið á Nýbýlavegi 4, á www.toyota.is eða hringdu í 570 5070. BMW 320 Coupe Fyrst skráður: 10.2001 Ekinn: 6.000 km á vél Vél: 2000cc, 5 gíra Litur: Svartur Verð: 2.990.000 kr. Búnaður: Álfelgur, AC, sportsæti ofl. Tilboðsverð: 2.690.000 kr. SJÁVARÚTVEGUR Sigurður Valur Ás- bjarnarson, bæjarstjóri í Sand- gerði, tekur undir áhyggjur Gísla Gíslasonar, starfsbróður síns á Akranesi. Gísli hefur lýst mikl- um áhyggjum af afleiðingum breytts eignarhalds Eimskipafé- lagsins á útgerðarfyrirtækið Harald Böðvarsson. „En það sem manni þykir kald- hæðnislegt í þessu er að ekki man ég eftir því að Gísli hafi haft mörg orð um það þegar kvótinn fluttist allur héðan upp á Akra- nes á sínum tíma. Þá var um að ræða 7,5% af íbúatölunni sem missti vinnuna hérna hjá okkur en það er ekki nema 5,5% hjá honum,“ segir Sigurður Valur en þegar Haraldur Böðvarsson hf. keypti útgerðarfélagið Miðnes fyrir nokkrum árum var allur kvóti þess félags fluttur á Akra- nes. „Ég tek hins vegar heilshugar undir áhyggjur hans og tel að þetta hafi mjög alvarlegar afleið- ingar í för með sér fyrir íbúa Akranes og ég ætla bara að von- ast til þess að hann haldi áfram með málið og skili kvótanum í þetta byggðarlag [Sandgerði],“ segir hann. ■ SS BYGGIR REISIR BREKKUSKÓLA Ákveðið hefur verið að ganga að 562 milljóna króna tilboði SS Byggis ehf. í byggingu 2. áfanga við Brekkuskóla á Akureyri. Önnur tilboð voru 660 milljónir og 810 milljónir króna. Kostnað- aráætlun var 556 milljónir. VETNISVAGNARNIR Þetta er víðtækasta vetnisverkefni sem farið hefur af stað í heiminum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Vinstri grænir leggja fram 20 mál í upphafi þings. Vilja gjaldfrjálsa leik- skóla og lög um banka. Konur sameinast um bann við kaupum á vændi. STJÓRN ÞINGFLOKKS VG KYNNIR STEFNUMÁLIN „Erum glöð en stjórnarmeirihlutinn gefur okkur ekki tilefni til bjartsýni.“ Bæjarstjórinn í Sandgerði um áhyggjur kollega síns á Akranesi: Sagði fátt þegar HB tók kvótann SIGURÐUR VALUR Vonast til að kollegi sinn haldi málflutningi sínum áfram. HEILDARAFLI OG VERÐMÆTI Magn* Milljarðar 2001 1.986 70,8 2002 2.133 77,0 2003** 1.130 36,8 *Í ÞÚSUNDUM TONNA **FRÁ JANÚAR TIL JÚNÍ. RAFRÆNAR SKÍÐABREKKUR Íþrótta- og tómstundaráð Akureyrar telur að rafrænt miðasölukerfi og aðgangsstýri- kerfi geti aukið hagkvæmni í rekstri Hlíðarfjalls og óskar eft- ir því við stjórn Vetraríþrótta- miðstöðvar Íslands að hún fjár- magni kaupin. FJÖLDI HREFNA: Halldór Sigurðsson ÍS 12 hrefnur Sigurbjörg BA 12 hrefnur Njörður KÓ 11 hrefnurFR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.