Fréttablaðið - 01.10.2003, Qupperneq 6
Taka frumkvæði
í stórum málum
Samfylkingin kynnir frumvörp um breytingar á stjórnarskrá og sam-
keppnislögum. Átak til að efla iðn-, verk-, og listnám og lækka skatt á
matvælum.
6 1. október 2003 MIÐVIKUDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 76,07 -1,83%
Sterlingspund 127,14 -0,45%
Dönsk króna 11,96 0,47%
Evra 88,81 0,46%
Gengisvísitala krónu 125,67 -0,12%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 592
Velta 14.641 milljónir
ICEX-15 1.816,8 0,230%
Mestu viðskiptin
Íslandsbanki hf. 2.487.258.441
Grandi hf. 774.779.500
Össur hf. 363.118.919
Kaupþing Búnaðarb. hf. 335.330.328
Eimskipafélag Íslands hf. 256.652.672
Mesta hækkun
Nýherji hf. 3,26%
Össur hf. 2,88%
Sölumiðstöð Hraðfrystih. hf. 1,89%
Tryggingamiðstöðin hf. 1,43%
Eskja hf. 1,32%
Mesta lækkun
Marel hf. -2,51%
Flugleiðir hf. -1,68%
Grandi hf. -1,52%
Pharmaco hf. -1,38%
Kaldbakur hf. -1,16%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 9.270,5 -1,2%
Nasdaq* 1.795,1 -1,6%
FTSE 4.091,3 -1,2%
DAX 3.239,5 -2,5%
NK50 1.311,9 -0,2%
S&P* 996,5 -1,0%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Rússar hafa ekki ákveðið hvort þeirætla að staðfesta Kyoto-bókunina.
Hvað heitir forseti Rússlands?
2Hvenær er ráðgert að búið verði aðstytta nám framhaldsskóla í þrjú ár?
3Sá sem leikur Joey í Friends hefur ver-ið skipað að fara í megrun. Hvað
heitir leikarinn?
Svörin eru á bls. 30
EINKANÚMER „Ég fæ ekki einka-
númerið LOGIC skráð á mig og að
það má ekki vera áfram á bílnum
sem það var á. Ástæðan er sú að
ég og fyrirtækið Naust Marine
erum ekki hjón eða sambýlisfólk,“
segir Jón Arnarson, en fyrirtækð
Logic sem Jón stofnaði keypti
einkanúmerið LOGIC og setti á
bílinn sem það er nú tekið af.
Logic var sameinað Naust Mar-
ine. Við sameininguna eignaðist
Naust Marine bæði bílinn og
einkanúmerið. Nú þegar Jón hef-
ur sjálfur keypt bílinn af Naust
Marine má ekki hafa einkanúmer-
ið áfram á bílnum þar sem verður
að setja fastanúmerið á bíllinn.
Einkanúmerið fer hins vegar í
geymslu þar sem Naust Marine
ætlar sér ekki að nota númerið.
„Aðeins er mögulegt að flytja
einkanúmer á milli fjölskyldu-
meðlima. Einkanúmer sem eru í
eigu fyrirtækja fást ekki skráð á
nýjan eiganda. Eftir að búið er að
skila einkanúmerinu inn þarf það
að liggja ónotað í eitt ár áður en
annar getur sótt um það,“ segir
Siggerður Þorvaldsdóttir, deildar-
stjóri ökutækjaskráninga Um-
ferðarstofu. ■
STJÓRNMÁL Samfylkingin kynnti í
gær áherslur sínar í þingstörfun-
um í vetur. Össur Skarphéðinsson,
formaður Samfylkingarinnar,
segir að flokkurinn, sem stór
flokkur í stjórnarandstöðu, geti
ekki hagað sér eins og smár flokk-
ur. Þannig megi ekki búast við
hefðbundnum upphlaupum.
„Við sjáum það sem okkar hlut-
verk að taka frumkvæði í stórum
málum og ná samstöðu um þau.
Þar má nefna Evrópumálin, sem
nauðsynlegt er að ræða, og skatta-
lækkanir.“
Bryndís Hlöðversdóttir, for-
maður þingflokksins, sagði að það
væri lykilmunur á að vera lítill eða
stór flokkur í stjórnarandstöðu.
„Markmiðið er að geta tekið við
stjórninni á morgun,“ sagði hún.
Samfylkingin kynnti fjögur
frumvörp sem verða lögð fram í
upphafi þingsins. Össur Skarp-
héðinsson mælir fyrir tillögu um
breytingar á stjórnarskránni þar
sem komið verði inn ákvæði um
þjóðaratkvæðagreiðslur, um að
landið verði eitt kjördæmi og um
aðskilnað ríkis og kirkju. Þá verði
þar ákvæði um sameign Íslend-
inga á náttúruauðlindum.
Össur mælir einnig fyrir til-
lögu um lækkun á matarskatti úr
fjórtán prósentum í sjö. Hann seg-
ir að þannig sé hægt að lækka
skatta þannig að það komi öllum
til góða, einkum hinum efnaminni.
Lúðvík Bergvinsson er fyrsti
flutningsmaður tillögu um breyt-
ingar á samkeppnislögum þar
sem lagt er til að samkeppnis-
stofnun rannsaki aðeins fyrirtæki
en ríkissaksóknara verði falið að
fjalla um mál sem varða brot ein-
staklinga. Þetta eigi þó aðeins við
um alvarleg brot. Þá verði heimil-
að í samkeppnislögum að Sam-
keppnisstofnun geri húsleit hjá
stjórnendum fyrirtækja sem sæta
rannsókn og að refsiheimildir
verði hækkaðar í sex ára fangelsi.
Björgvin Sigurðsson kynnti
frumvarp um átak til að efla iðn-,
verk-, og listnám. Hann segir
þetta forgangsmál til að bregðast
við döpru ástandi í starfsmennta-
greinum og brottfalli úr fram-
haldsskólum.
kgb@frettabladid.is
BÍLASTÆÐIÐ
Landbankinn falast eftir þessari lóð undir
nýjar höfuðstöðvar.
Landsbankinn í mið-
borginni:
Nýjar
höfuðstöðvar
SKIPULAGSMÁL Landsbanki Íslands
vill byggja nýjar höfuðstöðvar á
lóð austan Pósthússtrætis og
sunnan Geirsgötu. Á lóðinni er
bílastæði í dag.
Landsbankinn vill reisa tíu
þúsund fermetra skrifstofuhús á
fjórum hæðum. „Er það vilji
Landsbankans að vera áfram með
aðalstarfsemi sína í miðborginni,
ef góðar aðstæður eru fyrir hendi.
Rétt er að geta þess að Lands-
bankinn hyggst nýta áfram sína
einstæðu og sögulegu byggingu
að Austurstræti 11 fyrir rekstur
útibús og til fundahalds og gesta-
móttöku,“ segir í erindi Lands-
bankans.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins var hugmynd Lands-
bankans tekið fagnandi í borgar-
ráði. Alfreð Þorsteinssyni, for-
manni borgarráðs, og Steinunni
Valdísi Óskarsdóttur, formanni
skipulags- og byggingarnefndar,
var falið að ganga til viðræðna við
fulltrúa Landsbankans. ■
SENDA EKKI HERMENN Egypsk
stjórnvöld munu ekki senda her-
lið til Íraks, segir helsti ráðgjafi
Hosnis Mubaraks forseta. Þess í
stað hvetja stjórnvöld til þess að
Bandaríkjamenn og Bretar kalli
hluta hermanna sinna aftur frá
Írak.
AÐALÚTIBÚ BANKANS
Mesta vaxtalækkunin er á óverðtryggðum
skuldabréfum, 0,4%.
Landsbankinn:
Vextir
lækkaðir
VIÐSKIPTI Landsbankinn hefur
ákveðið að lækka vexti óverð-
tryggðra inn- og útlána frá og með
deginum í dag.
Mest er lækkunin á óverð-
tryggðum skuldabréfum, en vext-
ir þeirra lækka um 0,4%. Vextir
víxla lækka um 0,2%. Hvað við-
kemur innlánum er helsta breyt-
ingin sú að vextir Vaxtareiknings
og Kjörbóka lækka um 0,15%.
Vextir á lífeyrisbók verða hins
vegar óbreyttir.
Í tilkynningu frá bankanum
segir að við vaxtaákvörðunina
hafi verið tekið tillit til batnandi
lausafjárstöðu bankans auk þess
sem horft hafi verið til vaxtaþró-
unar á markaði. ■
AFKOMUTILKYNNING Íslands-
banki hefur sent frá sér af-
komutilkynningu. Bráðabirgða-
tölur fyrir þriðja ársfjórðung
benda til þess að hagnaður verði
talsvert meiri eftir fyrstu níu
mánuði ársins en yfir allt árið í
fyrra. Horfur eru því á mun
betri afkomu af rekstri Íslands-
banka fyrir árið 2003 en fyrir
árið 2002.
Afkoma ríkissjóðs
á þessu ári:
Svipuð eða
lakari
RÍKISFJÁRMÁL Útlit er fyrir að af-
koma ríkissjóðs á þessu ári verði
svipuð eða lakari en hún var í
fyrra, að því er fram kemur í
nýjasta hefti Hagvísa Seðlabank-
ans.
Halli á rekstri ríkissjóðs á síð-
asta ári nam átta milljörðum
króna en reksturinn var jákvæður
um 6,5 milljarða þegar óregluleg-
ir liðir, eignasala, lífeyrisskuld-
bindingar og afskriftir skatt-
krafna eru dregin frá.
Stefnt hafði verið að því að af-
gangurinn yrði tæpir 19 milljarð-
ar að öllu meðtöldu en rúmir þrír
milljarðar að frádregnum sölu-
hagnaði af eignum.
Í fjárlögum þessa árs var gert
ráð fyrir eins milljarðs afgangi af
reglulegum rekstri og tíu millj-
örðum að auki frá eignasölu. ■
■ Viðskipti
■ Afríka
BJÖRGVIN SIGURÐSSON OG ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
„Við sjáum það sem okkar hlutverk að taka frumkvæði í stórum málum og ná samstöðu um þau. Þar má nefna Evrópumálin,
sem nauðsynlegt er að ræða, og í sambandi við skattalækkanir.“
Væntingavísitala Gallups:
Væntingar
aukast
VÍSITÖLUR Væntingavísitala Gallups
hækkaði um eitt og hálft stig í
september og mældist 116,8 stig.
Fólk virðist hafa auknar vænting-
ar til efnahagslífsins eftir 6 mán-
uði. Einnig kemur fram aukin
bjartsýni varðandi mat á atvinnu-
ástandinu en þó eru þeir sem nei-
kvæðir eru á atvinnuástandið fleiri
en þeir sem eru jákvæðir. Minni
bjartsýni er hins vegar á núver-
andi ástandi miðað við í ágúst og
sömuleiðis eru heldur færri sem
líta jákvætt á stöðu efnahagsmála
en í ágúst. Væntingavístalan hefur
nú hækkað tvo mánuði í röð eftir
nokkra lækkun í sumar. ■
JÓN ARNARSON
Hér skiptir hann um númeraplötu á bílnum sínum og einkanúmerið LOGIC fer í geymslu.
Ósáttur við reglur:
Einkanúm-
er í árshaldi
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T