Fréttablaðið - 01.10.2003, Qupperneq 8
8 1. október 2003 MIÐVIKUDAGUR
Skuldinni skellt á aðra
„... embættismenn eru oft fljótir
að fela mistök sín og skella
skuldinni á aðra.“
Árni Johnsen í Morgunblaðinu 30. september.
Sameinumst um miðborgina
„Borgarfulltrúar eiga nú að
sameinast um öflugt átak í þeim
tilgangi að efla miðborgina í
góðri samvinnu við hagsmuna-
aðila og íbúa.“
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson í Fréttablaðinu 30.
september.
Kapítalisti eða ...
„Þrátt fyrir langa veru í Sjálf-
stæðisflokknum virðist Árni [M.
Mathiesen] ekkert sérstaklega
upptekinn af frelsi í viðskipt-
um.“
Eiríkur Bergmann í DV 30. september.
Orðrétt
IÐNAÐUR Áformað er að reisa á
Katanesi í Hvalfirði verksmiðju
sem framleitt getur 340 þúsund
tonn af rafskautum árlega.
Rafskautaverksmiðjan er
sögð munu veita um 140 manns
atvinnu og kosta um 17 milljarða
króna í byggingu. Undirbúnings-
félag hefur þegar verið stofnað.
Það heitir Kapla hf., Þróunarfé-
lag rafskautaverksmiðju Kata-
nesi.
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyt-
ið segir í tilkynningu að Markaðs-
skrifstofa iðnaðarráðuneytisins
og Landsvirkjunar hafi frá því í
maí átt í viðræðum um samstarf
um verkefnið við fulltrúa fyrir-
tækisins R&D Carbon Ltd. Geng-
ið hafi verið frá sameiginlegri að-
gerðaáætlun í ágúst. Gert sé ráð
fyrir að í árslok 2004 liggi fyrir
umhverfismat og starfsleyfi. Þá
muni einnig verða tekin endanleg
ákvörðun um hvort af byggingu
verksmiðjunnar verður.
Í stjórn Kapla hf. sitja þrír er-
lendir menn sem búsettir eru í
Sviss. Framkvæmdastjórinn er
Hollendingurinn Age Jan de
Vries. Þessir menn eru allir sagð-
ir hafa reynslu úr áliðnaði. ■
Fjármálastjóri Guðs:
Skoða andlát
sem morð
LONDON, AP Breska lögreglan hefur
hafist handa við morðrannsókn á
láti Robertos Calvis sem fannst
látinn, hangandi úr brú í London,
fyrir 21 ári síðan. Calvi var löng-
um kallaður „fjármálastjóri
Guðs“ þar sem hann hafði mikil
tengsl við banka Vatíkansins og
fyrrverandi yfirmann hans.
Réttarlæknar gátu á sínum
tíma ekki kveðið upp úr um hvort
Calvi hefði framið sjálfsmorð eða
verið myrtur. Lík hans fannst
fjórum dögum eftir að banki sem
hann stýrði, og var að stórum
hluta í eigu banka Vatíkansins,
varð gjaldþrota. ■
Tveggja ára stúlka:
Ein heima í
þrjár vikur
FLÓRÍDA, AP Tveggja ára stúlka
nærðist á sinnepi, tómatsósu og
ósoðnu pasta í þrjár vikur meðan
móðir hennar var á bak við lás og
slá. Faðir stúlkunnar fann hana
vannærða og illa til hafða heima
við eftir að barnsmóðir hans, sem
hann býr ekki með, hafði sagt hon-
um að dóttir þeirra væri hjá ná-
grönnum.
„Það er kraftaverk í hversu
góðu ástandi dóttir mín er. Ég
veit ekki hvernig hún fór að,“
sagði faðir stúlkunnar. Móðir
stúlkunnar lét engan vita af hög-
um stúlkunnar þegar hún hóf
fangavist sína. Hún hefur verið
kærð fyrir brot á barnaverndar-
lögum. ■
Hirðfífl Tongaeyja:
Kært fyrir
fjárdrátt
SAN FRANCISCO, AP Fjármálaeftirlit-
ið í Bandaríkjunum hefur kært
fyrrverandi fjármálaráðgjafa og
hirðfífl konungsins í Tonga fyrir
fjárdrátt. Jesse D. Bogdonoff er
ásakaður um að hafa sólundað
sjóðum konungdæmisins. Fjár-
festingasjóður konungdæmisins
rýrnaði úr tveimur milljörðum
króna í hundrað milljónir meðan
hann sá um fjárfestingar.
Konungi Tonga líkaði ráðgjöf
Bogdonoffs svo vel í fyrstu að
hann útnefndi hann hirðfífl að
auki, með vísan til þess að
Bogdonoff er fæddur 1. apríl. ■
■ Eyjaálfa
Nýtt undirbúningsfélag Svisslendinga og Íslendinga:
Áform um 340 þúsund
tonna rafskautaverksmiðju
HVALFJÖRÐUR
Taka á ákvörðun í lok árs 2004 um það
hvort reist verði á Katanesi í Hvalfirði 17
milljarða króna verksmiðja sem framleiðir
rafskaut í lokaðri hringrás. Katanes er rétt
innan við álverkmiðjuna og járnblendiverk-
smiðjuna á Grundartanga.
Ný nefnd skipuð:
Fjallar um
geðraskanir
unglinga
HEILBRIGÐISMÁL Jón Kristjánsson,
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra, hefur skipað nefnd sem
gera á tillögur til ráðherra um
skipulag heilbrigðisþjónustu við
börn og unglinga með geðraskanir.
Í tilkynningu frá ráðuneytinu
segir að nefndinni sé m.a. ætlað að
skila tillögum um hvernig haga
skuli þessari þjónustu á höfuð-
borgarsvæðinu og á landsbyggð-
inni. Hvernig best megi tryggja
samspil þjónustuþáttanna, hvaða
þjónustuform og rekstarform séu
heppilegust og fleira er varði
heildarskipulag heilbrigðisþjón-
ustu við þennan hóp skjólstæðinga.
Formaður nefndarinnar er
Ragnheiður Haraldsdóttir, skrif-
stofustjóri í heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu. ■
SorpaDalvegur
LagersalaSmárator
g
Allt a
ð
90%
afslá
ttur
RÝMINGARSALAN!
Dalvegi 10 er opin
í dag frá kl. 12 – 19
FÉ Á FARALDSFÆTI Eftir að hvert
ríkið á fætur öðru í Mið-Austur-
löndum hefur neitað að veita
áströlsku skipi með meira en
50.000 kindur innanborðs löndun-
arleyfi þykir líklegast að því verði
snúið aftur til Ástralíu. Ríkis-
stjórnir landanna óttast að sauð-
féð beri með sér sjúkdóma.
UMFRAM VÆNTINGAR Mun meiri
afgangur varð af rekstri ástralska
ríkisins en ráð hafði verið gert
fyrir. Gert hafði verið ráð fyrir
rúmlega 200 milljarða afgangi en
hann varð nær 400 milljarðar.
Stjórnvöld þakka þetta miklum
hagnaði fyrirtækja.
STJÓRNMÁL Kosningar eru í kvöld
til formennsku í einni stærstu
stjórnmálahreyfingu landsins;
Heimdalli, félagi ungra sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík. Tveir listar
eru í framboði und-
ir forystu Atla
Rafns Björnssonar
hagfræðings og
Bolla Thoroddsen
verkfræðinema.
Hreyfingarnar
tengjast annars
vegar Birni Bjarnasyni og hins
vegar Geir H. Haarde og því eiga
margir eftir að rýna í úrslitin til
að meta hversu mikinn stuðning
þeir hafa hjá unga fólkinu í
Reykjavík. Heimdallur tilnefnir
70-80 fulltrúa á landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins og ræður stjórn
félagsins alfarið hverjir þeir
verða.
Í stuðningsliði Atla Rafns er
fólk sem hefur starfað náið með
Birni, þrír síðustu formenn Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna og
fráfarandi formaður og varafor-
maður Heimdallar. Framboðið
hefur aðstöðu hjá sjálfstæðisfé-
laginu í Garðabæ. Í stuðningsliði
Bolla er fólk sem hefur verið
virkt í félagsstarfi í framhalds-
skólum og í Vöku, félagi hægri-
manna í Háskóla Íslands. Þetta
fólk tengist vefritinu Deigl-
unni.com sem er stýrt af stjúp-
syni Geirs og fyrrum aðstoðar-
manni hans.
Þessar fylkingar takast nú á í
kosningum í Heimdalli þriðja árið
í röð en Björnsmenn hafa unnið
síðustu tvö ár. Bæði árin hafa ver-
ið hatrammar kosningar þar sem
um 700 manns hafa greitt at-
kvæði, sem er meira en gerist í
flestum öðrum stjórnmálafélög-
um.
Keppni fylkinganna fyrir kosn-
ingarnar snýst um að skrá nýja fé-
laga í félagið. Þar telja stuðnings-
menn Bolla að framboð Atla
Rafns njóti forskots þar sem nú-
verandi stjórn Heimdallar styður
hann. Kvarta stuðningsmenn
Bolla undan því að fá ekki að sjá
lista yfir félaga.
Magnús Þór Gylfason, formað-
ur Heimdallar, segist búast við
fjölmenni á fundinn í kvöld en
ómögulegt sé að meta hversu
margir mæti.
kgb@frettabladid.is
Hatrömm átök
hjá Heimdalli
Tvær fylkingar takast á. Önnur tengist Birni Bjarnasyni,
hin Geir H. Haarde. Kosningar í Valhöll í kvöld.
■
Hreyfingarnar
tengjast annars
vegar Birni
Bjarnasyni og
hins vegar Geir
H. Haarde.
BOLLI THORODDSEN OG
ATLI RAFN BJÖRNSSON
Takast á um formennsku í
Heimdalli í kvöld.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M DeCode og offita:
Hækkun í
kjölfar til-
kynningar
VIÐSKIPTI Gengi hlutabréfa í
DeCode, móðurfélagi Íslenskrar
erfðagreiningar, hækkaði í gær í
kjölfar frétta um að náðst hafi
rannsóknaráfangi í samstarfi fé-
lagsins við lyfjafyrirtækið
Merck. Fyrirtækin vinna saman
að þróun lyfjaúrræða gegn offitu.
Í tilkynningu frá Íslenskri
erfðagreiningu kemur fram að
fundist hafi erfðavísir sem geti
haft áhrif á holdafar fólks. Eitt af-
brigði erfðavísisins veldur offitu,
en annað afbrigði veldur grönnum
vexti.
Mjög mikil viðskipti voru með
bréf DeCode í gær. ■
MINNI RÉTTAR-
TÍMI Málflutn-
ingur í máli
Slobodans
Milosevics,
fyrrum forseta
Júgóslavíu,
takmarkast
hér eftir við
þrjá daga vik-
unnar og þá
aðeins hálfan
daginn. Ákvörðun um þetta var
tekin vegna áhyggja af því að
heilsufar forsetans fyrrverandi
leyfði ekki meira.
■ Evrópa