Fréttablaðið - 01.10.2003, Síða 10
10 1. október 2003 MIÐVIKUDAGUR
UMFERÐARTEPPA
Hver ökumaður í Los Angeles eyddi rúm-
lega 26 klukkustundum í umferðarteppu á
leið í og úr vinnu árið 2001 samkvæmt
nýrri rannsókn.
SKÁK Eitt sterkasta mót íslenskrar
skáksögu hefst á Hótel Selfossi í
lok október. Friðrik Ólafsson
verður verndari mótsins og dans-
ki stórmeistarinn Bent Larsen
skákskýrandi.
Hátíðin er tileinkuð sunnlensk-
um börnum og efnt verður til risa-
fjölteflis og barnaskákmóts. Al-
þjóðlega mótið á Hótel Selfossi
verður eitt sterkasta skákmót
sem haldið hefur verið á Íslandi.
Keppt er í Meistaraflokki og
Áskorendaflokki og eru tíu skák-
menn í hvoru móti. Sigurvegar-
arnir á Mjólkurskákmótinu á Hót-
el Selfossi 2002, Ivan Sokolov og
Predrag Nikolic, verða báðir með
en stigahæstur er rússneski stór-
meistarinn Vladimir Malakhov
sem er aðeins 21 árs, en kominn
með tæplega 2700 Elo-stig. Þá
sætir tíðindum að Victor Bologan,
sigurvegarinn á sterkasta skák-
móti heims á árinu, verður með.
Íslensku stórmeistararnir Hannes
Hlífar Stefánsson og Þröstur Þór-
hallsson verða í eldlínunni í
Meistaraflokki.
Í Áskorendaflokki verða líka
tíu keppendur og þar mun ís-
lensku skákmönnunum gefast
kostur á að keppa að stórmeist-
araáfanga. ■
Írar sögðu ósatt
um kalkþörunga
LANDSBYGGÐIN „Ástandið á Bíldudal
er hrikalegt og ég sé enga patent-
lausn í atvinnumálum þar,“ segir
Jón B.G. Jónsson, forseti bæjar-
stjórnar Vesturbyggðar, um þá
úlfakreppu sem atvinnumál Bíld-
dælinga eru í um þessar mundir.
Stærsta fyrirtækið á Bíldudal,
Þórður Jónsson ehf., er í greiðslu-
stöðvun og óvissa ríkir um það
hvort það siglir í þrot eða samning-
ar takast. Þar starfa um 30 manns.
Rækjuver, þar sem um 15 manns
hafa vinnu, er stopp að minnsta
kosti fram í nóvem-
ber. Vonir voru
bundnar við að
írska fyrirtækið
Celtic í samstarfi
við Björgun ætlaði að hefja stór-
fellda vinnslu á kalkþörungum en
nú hefur þeim áformum verið
frestað um óákveðinn tíma.
Jón B.G. segir að miklar vonir
hafi verið bundnar við kalkþör-
ungaverksmiðjuna og þess vegna
hafi verið farið í byggingu nýs
íþróttahúss og að styrkja innviði
þorpsins.
„Írarnir komu hingað fyrir
hálfu öðru ári. Þá átti ég viðræður
við þá og þeir sögðust vera að hefj-
ast handa við að byggja upp verk-
smiðjuna á Bíldudal. Þarna voru
engir tungumálaerfiðleikar heldur
sögðu þeir bara ósatt,“ segir Jón B.
G.
Hann segir að Atvinnuþróunar-
félag Vestfjarða hafi viljað ræða
eingöngu við írska fyrirtækið í
stað þess að leyfa öðrum að koma
að kalkþörungamálinu.
„Ég var talsmaður þess að fleiri
fengju að koma að þessu máli en
það er auðvelt að vera vitur eftir
á,“ segir Jón B. G.
Hann segir stöðu Bílddælinga
við óbreyttar aðstæður vera
óbærilega.
„Það er ekki hægt að skilja fólk-
ið þarna eftir eignalaust og segja
bara „sorry“. Ef stjórnvöld treysta
sér ekki til að byggja upp atvinnulíf
á þessum stað verður að aðstoða
fólk við að fara á aðra staði þar sem
vinnu er að hafa,“ segir Jón B.G.,
sem reyndar á von á alþingismönn-
um kjördæmisins um helgina sem
ætla að vera viðstaddir vígslu nýja
íþróttahússins á Bíldudal.
„Þar munu atvinnumálin á
Bíldudal verða rædd. Stjórnvöld
bera sína ábyrgð á því hvernig
komið er,“ segir hann.
rt@frettabladid.is
Fjórir myrtir:
Lögga myrti
félaga sína
SERBÍA, AP Serbneskur lögreglumað-
ur gekk berserksgang og skaut á fé-
laga sína með hríðskotariffli.
Fjórir lögreglumenn létust í
skotárás mannsins og þrír til við-
bótar særðust alvarlega áður en
yfir lauk.
„Hann vissi augljóslega hverja
hann ætlaði að skjóta og ráðlagði
öðrum að hafa sig á brott,“ sagði
Goran Barun, aðstoðarlögreglu-
stjóri í bænum Nis þar sem
skotárásin átti sér stað. Lögreglu-
maðurinn sem skaut á félaga sína
var handtekinn eftir árásina en
ekki er vitað hvað honum gekk til
með árásinni. ■
Moammar Gadhafi:
Á leið til
Moskvu
MOSKVA Útlit er fyrir að Moammar
Gadhafi, leiðtogi Líbíu, fari í sjald-
séða ferð út fyrir landamæri og
haldi í opinbera heimsókn til
Moskvu og fundi með Vladimír
Pútín. Utanríkisráðherrar Rúss-
lands og Líbíu, Igor Ivanov og
Abdel-Rahman Shalqam, ræddu
fyrirhugaða heimsókn á fundi í höf-
uðstöðvum Sameinuðu þjóðanna.
Rússar börðust lengi fyrir afnámi
viðskiptahindrana gagnvart Líbíu
sem komið var á eftir að Pan Am
farþegaþota var sprengd í loft upp
yfir Lockerbie í Skotlandi.
Tvö ár eru síðan Ivanov greindi
frá því að til stæði að Pútín og Gad-
hafi funduðu. ■
■
„Ástandið á
Bíldudal er
hrikalegt.“
STJÓRNARSTEFNU MÓTMÆLT
Hafnarverkamenn hafa bæst í
hóp 50.000 opinberra starfs-
manna sem mótmæla aðgerðum
ísraelskra stjórnvalda. Hafnar-
verkamenn mótmæla hugmynd-
um um aukna samkeppni í hafn-
arvinnu. Opinberir starfsmenn
hafa mótmælt niðurskurði ríkis-
útgjalda, sem leiðir til uppsagna
ríkisstarfsmanna.
OPNA FYRIR BAATH-FÉLAGA
Framkvæmdaráð Íraks hefur
ákveðið að ráðuneyti landsins
setji upp nefndir til að athuga
hvort veita eigi fyrrum félögum
í Baath-flokki Saddams Husseins
möguleika á störfum í stjórn-
sýslunni. Paul Bremer, æðsti
borgaralegi stjórnandi Banda-
ríkjastjórnar í Írak, rak alla
Baath-félaga úr störfum í maí.
KONUR VILJA BREYTINGAR Alls
skrifaði 51 kona undir beiðni
sem send var ráðamönnum í
Sádi-Arabíu fyrir skömmu. Í
beiðninni er krafist umbóta í
jafnréttis- og lýðræðismálum, en
þetta mun vera í fyrsta skiptið
sem konur skrifa undir beiðni af
þessu tagi.
Helmut Kohl:
Heiðraður
af Bush eldri
BERLÍN, AP Helmut Kohl, fyrrum
kanslari Þýskalands, hélt í gær í
vikulanga ferð til Bandaríkjanna
þar sem hann mun meðal annars
taka við viðurkenningu úr hendi
George Bush, fyrrum Banda-
ríkjaforseta.
Viðurkenningin er nefnd eftir
Bandaríkjaforsetanum fyrrver-
andi og er veitt fyrir framúr-
skarandi frammistöðu í þjónustu
við almenning. Áður hefur Mik-
hail Gorbachev hlotnast viður-
kenningin.
Þremenningarnir voru meðal
valdamestu manna heims undir
lok kalda stríðsins. Á morgun
sitja þeir allir ráðstefnu um
efnahagsleg og félagsleg sam-
skipti Bandaríkjanna og Evrópu.
Tólf ár verða þá liðin frá sam-
einingu Þýskalands. ■
■ Mið-Austurlönd
Vonleysi ríkir á Bíldudal eftir að kalkþörungaverksmiðju var frestað.
Burðarás byggðarlagsins í greiðslustöðvun. Forseti bæjarstjórnar
Vesturbyggðar segir ástandið hrikalegt.
BÍLDUDALUR
Fátt virðist vera til ráða í atvinnumálum.
Ísraelski herinn:
Svín leita að
sprengjum
JERÚSALEM, AP Ísraelski herinn gerir
nú tilraunir með villisvín sem þjálf-
uð hafa verið til að þefa uppi jarð-
sprengjur. Svínin eru látin leita að
gömlum jarðsprengjum í Jórdand-
alnum, að sögn þjálfara þeirra,
Geva Tzim. Áður hefur tíðkast að
nota sérþjálfaða hunda til að leita
að sprengjum en Tzim segir að
svínin séu betur til þess fallin að
finna sprengjur sem grafnar eru í
jörðu. Svín eru óhrein dýr sam-
kvæmt trúarsetningu gyðinga og er
svínakjöt því aldrei á boðstólnum á
heimilum strangtrúaðra. ■
ÁKVEÐA MÓTMÆLI Þrjú stærstu
launþegasamtök Ítalíu hafa boðað
verkfall 24. október til að mót-
mæla fyrirhuguðum breytingum
stjórnvalda á eftirlaunakerfinu.
Áratugur er liðinn síðan milljón
manns mótmæltu fyrri tilraun
stjórnvalda til að breyta eftir-
launakerfinu.
KAUPSÝSLUMAÐUR SEKTAÐUR 38
ára kaupsýslumaður hefur verið
sektaður um andvirði 130.000
króna fyrir að reyna að klippa í
sundur vatnsslöngu sem liggur í
skýli Davids Blaines í London.
Blaine er lokaður inni í gegnsæju
skýli í nokkurra metra hæð yfir
einu torga borgarinnar.
■ Evrópa
Skákfélagið Hrókurinn:
Risaskákmót á Suðurlandi
HRÓKURINN
Liðsmenn Hróksins halda ótrauðir áfram
„trúboði“ sínu til framgangs skáklistarinnar.
Suðurland er nú í kastljósinu.