Fréttablaðið - 01.10.2003, Qupperneq 13
13MIÐVIKUDAGUR 1. október 2003
STJÓRNSÝSLA Sýslumaðurinn á Ísa-
firði hefur neitað fötluðum pilti
um að þreyta bóklegt bílpróf
nema gegn framvísun læknis-
vottorðs. Þetta kemur fram á
heimasíðu Bæjarins besta á Ísa-
firði.
Pilturinn, sem er fatlaður eft-
ir skíðaslys í mars í fyrra, hefur
lokið 30 tímum í ökuskóla. Móðir
piltsins segir hann hafa verið
mættan til prófs á miðvikudag.
Einn próftaka hafi sonur hennar
óvænt þurft frá að hverfa:
„Læknirinn hans á endurhæf-
ingardeild Landspítalans á
Grensási gaf okkur grænt ljós
um að hann væri hæfur til að
sækja ökunám ef ökukennari
væri tilbúinn að kenna honum.
Þannig væri ekkert læknisfræði-
legt sem benti til þess að hann
ætti að uppfylla frekari kröfur
en aðrir sem þreyta bílpróf. Auð-
vitað þarf að framvísa læknis-
vottorði til að fá útgefið ökuskír-
teini en það hefur hingað til ekki
þurft vottorð til að taka prófið,“
sagði móðirin við Bæjarins
besta.
Móðirin boðaði að sonurinn
myndi leggja fram umbeðið
læknisvottorð: „Ef yfirvöld vilja
ekki að hann læri á bíl, af hverju
var hann þá ekki stöðvaður
strax?“ spurði hún. ■
Miðlunarlón Lands-
virkjunar full:
Afsláttur á
orkugjaldi
IÐNAÐUR Vegna þess hve vatnabú-
skapur Landsvirkjunar hefur ver-
ið góður að undanförnu hefur ver-
ið ákveðið að lækka umframafl-
gjald til stórra orkukaupenda.
Lækkar aflgjaldið úr tæpum 40
kr. í 12 krónur á hverja kílóvatt-
stund og verður afslátturinn veitt-
ur fram til áramóta.
Er þessi ákvörðun tekin þar
sem öll miðlunarlón Landsvirkj-
unar eru full og er vonast til að
þetta leiði til aukinnar notkunar
innlendra umhverfisvænna orku-
gjafa í vetur. ■
þeirri aðgerð var beint gegn Hann-
esi Hólmsteini þótt það hafi ekki
verið staðfest opinberlega. „Þessi
vinna tekur tíma og er vand með
farin og því eðlilegt að við fáum
næði til þess að ljúka verkinu, en
að þurfa ekki að stjórnast af ævi-
sagnariturum,“ sagði í yfirlýsingu
frá fjölskyldunni vegna þessa.
Daginn eftir tilkynnti Halldór
Árnason skrifstofustjóri Guðnýju
að hún ætti ekki lengur að gæta
Gljúfrasteins. Þar vísaði hann til
þess að samningur við hana hefði
runnið út þann 1. september en
Guðný hafði eigi að síður haldið
áfram að gæta hússins þann rúma
hálfa mánuð sem liðinn var af
september. Þótt á yfirborðinu virð-
ist allt vera í lagi á milli fjölskyld-
unnar og forsætisráðuneytisins
liggur í loftinu að trúnaðarbrestur
ríki. Heimildir Fréttablaðsins
herma að fjölskylda Laxness tor-
tryggi ráðuneytið og telji að það
gangi erinda Hannesar Hólm-
steins og að í málinu glytti í sjálfan
Davíð Oddsson forsætisráðherra.
Landsbókavörður
og einkabréf
Nýjustu tíðindi af deilunni um
gögn Laxness eru þau að Sigrún
Klara Hannesdóttir landsbóka-
vörður lagði leið sína á Gljúfra-
stein ásamt Halldóri Árnasyni til
að sækja gögn sem hún taldi að
tilheyrðu safninu. Þar á meðal
voru einkabréf Auðar Laxness og
dætra hennar. Fjölskyldan mót-
mælti þessu og taldi að þarna
væri um einkaeign móður þeirra
að ræða. Landsbókavörður varð
að skila þeim gögnum.
Óljóst er hvaða sáttaflötur er í
málinu. Fjölskylda Laxness hefur
sagt alveg skýrt að hún muni
aldrei fallast á að Hannes Hólm-
steinn skrái sögu skáldsins. En
enginn bilbugur er á skrásetj-
aranum, sem er nýkominn frá
Kaliforníu þar sem hann þræddi
söguslóðir Halldórs Laxness.
Vandi Hannesar Hólmsteins er sá
að honum er óheimilt að nota þau
gögn sem hann hefur aflað sér úr
einkasafni skáldsins. Fyrsta bind-
ið af þremur er væntanlegt í haust
en það mun eiga að heita Halldór,
hið næsta Kiljan og það þriðja
Laxness. Víst er að fjölskylda
skáldsins mun leita aðstoðar lög-
fræðinga og hvert orð verður
grandskoðað þegar bókin lítur
dagsins ljós. Deilunni um líf Lax-
ness er því fjarri lokið. ■
HANNES HÓLMSTEINN
Heldur ótrauður áfram að skrá
ævisögu Hallórs Kiljans.
Fatlaður ísfirskur piltur sem lokið hafði ökuskóla:
Sýslumaður vill vottorð frá
lækni fyrir bóklegt bílpróf
ÍSAFJÖRÐUR
„Ef yfirvöld vilja ekki að hann læri á bíl, af
hverju var hann þá ekki stöðvaður strax?“
spurði móðir fatlaðs pilts sem vísað var frá
bóklegu bílprófi eftir 30 tíma í ökuskóla.