Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.10.2003, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 01.10.2003, Qupperneq 14
Ég átti fjölskylduferð um Suð-ur-Frakkland síðsumars. Það væri ekki í frásögur færandi nema vegna þess að í för var ná- frændi sem unnið hefur uppi á Kárahnjúkum síðan í vor. Í dagsferð til Ítalíu varð hann okkur til vandræða. Stórfjölskyld- an á ferð í þriggja bíla lest á hrað- brautinni þegar símtal berst í þann fremsta úr þeim aftasta: „Verðum að stoppa hér. Taka mynd af skógareldunum.“ Það er ekki slysahættulaust að stanza á hraðbrautum Suður-Evrópu fyrir- varalítið, ekki fyrir einn bíl, hvað þá þrjá. Og það var ekki eins og skorti tækifæri til myndatöku af skógareldum annars staðar. En þegar þessi frændi segist þurfa að gera eitthvað, þá tekur maður mark á því. Það getur ekki verið léttvægt eða ástæðulaust. Hann er þannig. Maður stoppar. Hann tók sínar myndir af skóg- areldunum á Ítalíu, en var auðvit- að spurður hvurs konar bráðlæti þetta væri, að stofna okkur í stór- hættu. „Ég ætla að prenta þetta út á plakatformi og hengja upp í vinnuskálanum undir fyrirsögn- inni „ÍTALÍA BRENNUR“.“ Lýsingarnar Síðan um sauðburð hef ég hlustað á lýsingar þessa frænda míns um aðstæðurnar þarna upp frá. Hann var í tveggja manna „herbergi“: „Við getum ekki farið fram úr á morgnana báðir í einu. Það er of stutt bil á milli rúm- anna.“ Og svo framvegis. Ég geymdi þetta, en gleymdi ekki, en hef svo ekki haft undan að trúa fréttum sumarsins af Ítölunum hjá Impregilo og meðferð þeirra á frændum okkar af öllum þjóðern- um. Af handahófskenndu minni: Matarskálar þar sem hvorki er hægt að fara úr vinnugöllum né þrífa sig fyrir hádegismatinn. Opin holræsi skammt frá vatns- bólum – áveðurs algengustu vind- áttum. Menn eru reknir fyrir „óhlýðni“, sendir úr landi og þurfa að finna annan í sinn stað – á eigin kostnað. Íslendingar kaupa sér hlífðarföt í Kaupfélaginu á Egils- stöðum. Hinir hafa ekki efni á því. Vinnumálastofnun þarf að vera viðstödd útborgun launa til að staðfesta hvernig hún fer fram. Til þess að afla gagna þurfti ASÍ nánast að fara í felur með brottrekinn Rúmena á leið úr landi. Undirlægjan Vonbrigðin – nei, skömmin – vegna þessara og annarra frétta eru þeim mun meiri sem sum okk- ar lögðu nokkuð af mörkum í þeim átökum sem stóðu í aðdraganda framkvæmdanna fyrir austan. Þau voru stundum töluverð, en alltaf þess virði af því að málstað- urinn var góður. En þá kemur þetta ítalska fyrirtæki sem virðist ekki alveg komið inn í 20. öldina í mannréttindum og mannasiðum. Með einhverju glæsilegasta PR- klúðri síðustu ára hafa þeir á fá- einum mánuðum komið óorði á framkvæmdina alla. Og fáir virðist vera til að benda þeim á að kannske sé ekki allt með felldu. Ekki lögmaður þeirra, Þórarinn V. Þórarinsson, sem með fullri virðingu er ekki mesti diplómatinn sem þeir hefðu getað ráðið í vinnu. Ekki Samtök at- vinnulífsins, sem virðast ætla að stefna vinnumarkaði í uppnám með stuðningi sínum við þessa kóna. Og ekki formaður Fram- sóknarflokksins – verðandi for- sætisráðherra – sem tilkynnti um daginn að án Impregilo hefði Kárahnjúkavirkjun aldrei orðið að veruleika. Er hægt að leggjast flatari? Já. Eitt ömurlegasta dæmið er appa- rat sem heitir Þróunarstofa Aust- urlands, sem á að „stuðla að ný- sköpun og framþróun í atvinnu- lífi“ eins og segir á vefsíðu þess. Þar er líka þessi „frétt“ frá því sl. föstudag (www.austur.is): „Starfsmenn frá Þróunarstof- unni fóru í vikunni í kynnisferð um vinnusvæði Kárahnjúkavirkj- unar. Ferðin var í boði Lands- virkjunar og undir leiðsögn starfsmanna sem gjörþekkja til á svæðinu. [...] Óhætt er að segja að það sé mikil upplifun að fara um vinnusvæðin [...] Það vakti sér- staka athygli starfsmanna Þróun- arstofunnar hve vel umgengin og snyrtileg vinnusvæðin voru [...] Vinnubúðir Impregilo [...] hljóta að teljast með því besta sem boðið er uppá í þeim efnum hér á landi. Margt annað vakti athygli og kom skemmtilega á óvart. Meðal ann- ars það að sjá þrjár kornungar og glaðbeittar konur vinna við sprengihleðslu niðri í gljúfrum Jökulsár á Dal.“ Þögnin Jamm. Það vekur sérstaka at- hygli hversu mikil upplifun það er að fara um virkjanasvæðið í boði Landsvirkjunar og annarra sem eiga engra hagsmuna að gæta, og sjá hversu vel umgengin og snyrtileg vinnusvæði eru og raun- ar með því besta sem boðið er upp á hér á landi. Og svo eru þarna líka þrjár konur. Væntanlega snyrtilegar og vel umgengnar. Þetta er, vel að merkja, frétt frá opinberri stofnun sem ætlað er að „stuðla að nýsköpun og framþró- un í atvinnulífi“ á Austurlandi. Þvílík undur og stórmerki. Liggur ekki beint við að Impregilo fái nýsköpunarverðlaun forseta Íslands á næsta ári? Endurspeglar þessi málflutn- ingur skoðanir forystumanna fyr- ir austan? Hvar eru gagnrýnis- raddir þeirra? Hvar er Samband sveitarfélaga á Austurlandi? Sveitarstjórnir á Héraði? Vonandi rjúfa þeir þögnina. Áður en plakatið góða verður sett í fjöldaframleiðslu. ■ Ég get ekki verið sammálaákvörðun erfingja Halldórs Lax- ness um að takmarka aðgang að bréfasafni hans í Þjóðarbókhlöðunni við tvo fræðimenn – en ég skil hana vel. Hvernig myndi þér líða ef Hannes Hólmsteinn Gissurarson væri að skrifa ævisögu föður þíns? Það má sjálfsagt margt gott um Hannes segja en hann er ekki allra. Ef marka má hvernig hann birtist í opinberri umræðu er hann ör og uppivöðslusamur, sjálfupptekinn milli þess sem hann er blindaður af aðdáun á vinum sínum. Ekki beint sú manngerð sem fólk treystir fyrir dýrmætri minningu sinna nánustu. Það er því skiljanlegt að erfingjar Laxness kvíði uppgjöri hans við skáldið. Halldór Laxness var hins vegar ákaflega fyrirferðarmikill maður í íslensku samfélagi alla síðustu öld. Það er vart hægt að velta fyrir sér menningu eða pólitík á tuttugustu öldinni án þess að taka afstöðu til Laxness. Saga hans er því að stóru leyti sameign þjóðarinnar. Í þeim anda hafa ættingjar falið Þjóðarbók- hlöðunni bréfa- og handritasafn hans og selt ríkisvaldinu Gljúfra- stein til varðveislu. Það er því hálf undarlegt að erfingjar Laxness skuli hafa skipt um skoðun í tilefni af löngun Hannesar til að nugga sér upp við minningu skáldsins. Þannig hefur þetta mál tvær hlið- ar. Við skiljum að sumu tilfinningar erfingjanna og virðum þá skoðun Hannesar að hann eigi nokkurn rétt á að sækja sér efnivið í uppgjör sitt við Laxness. Hins vegar er erfiðara að meta hvað ríkisvaldinu gengur til að blanda sér í þessa deilu. Forsæt- isráðuneytið hafði falið dóttur skáldsins að líta til með Gljúfra- steini en kaus í miðri þessari deilu að ráða annan til starfsins. Ef hinn nýi tilsjónarmaður hefði haft eitt- hvað til að bera sem gerði hann bet- ur til starfsins fallinn mætti ekki gagnrýna þessa ráðstöfun. En því er ekki að heilsa. Hinn nýi starfsmaður er í vinahópi Hannesar – eiginkona borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, einnar af vonarstjörnum hans. Fjöl- miðill ríkisins, Ríkisútvarpið, hefur á sama tíma keypt af Hannesi heim- ildarþátt um Laxness og sett hann á dagskrá í byrjun desember – á besta tíma út frá sjónarhóli bókaútgef- enda. Það er því engu líkara en rík- isvaldið hafi blandað sér í þessa deilu og tekið afstöðu með öðrum aðilanum, Hannesi. Eins og það er viðkvæmt mál að halda á lofti minningu sinna nánustu er það vandasamt hlutverk sem for- sætisráðuneytið tók að sér þegar Gljúfrasteinn var keyptur. Í því þarf að gæta að tilfinningum nánustu ættmenna Laxness en tryggja jafn- framt að þjóðin öll fái hlutdeild í minningu skáldsins. Hversu óhönduglega ráðuneytið fer með hlutverk sitt vekur upp spurningar um hver hafi keypt Gljúfrastein. Var það þjóðin eða þröngur vinahóp- ur þess sem fer með mest völd inn- an ríkisvaldsins hverju sinni? ■ Hannes Hólmsteinn Gissurar-son hefur verið áberandi í fréttum allt frá því fréttist að hann hygðist skrifa þriggja binda ævisögu Halldórs Laxness, en verkið er orðið umdeilt löngu fyr- ir útgáfu. Fyrir nokkrum dögum tilkynnti fjöl- skylda Nóbels- skáldsins að hún hefði ákveðið að loka aðgangi að bréfasafni skálds- ins, nema með sérstöku leyfi, og almennt er álitið að þeirri ákvörð- un sé beint gegn Hannesi Hólm- steini, enda hefur fjölskyldan lýst sig andsnúna rit- un hans á ævisögu skáldsins. Þetta virðist í engu hafa breytt áformum Hannesar, sem er að ljúka við fyrsta bindi verksins sem væntanlega mun koma út fyr- ir þessi jól. Fyrsta bindið ber nafnið Halldór, annað bindið heit- ir Kiljan og það þriðja Laxness. Það hefur oft staðið styr um Hannes Hólmstein, enda hefur hann ákveðnar skoðanir í pólitík sem hann er ófeiminn við að tjá og ítreka. Hann var áberandi í stúd- entapólitíkinni á sínum tíma og árið 1979 stofnaði hann ásamt fé- lögum sínum Félag frjálshyggju- manna. Æ síðan hefur hann verið ákafur talsmaður frjálshyggjunn- ar og andstæðingar hans hafa iðu- lega gagnrýnt hann harkalega fyrir öfgafullar hægri skoðanir. Hann hefur oftar en einu sinni farið hörðum orðum um pólitík Halldórs Laxness og þegar hann hélt erindi í Háskólabíói á mál- þingi, sem haldið var á hundrað ára afmæli skáldsins, voru gerð hróp að honum þegar hann fór hörðum orðum um aðdáun Lax- ness á Stalín, og fundarstjóri þurfti ítrekað að biðja menn um að hafa hljóð. Hannes Hólmsteinn varð fimmtugur fyrr á þessu ári og fékk þá meðal annars heillaóska- skeyti frá Mergréti Thatcher en þau eru sögð miklir mátar. Hann- es Hólmsteinn stundaði á sínum tíma framhaldsnám í Oxford og varð doktor í stjórnmálafræði. Hann hefur skrifað nokkrar bæk- ur, þar á meðal ævisögu Jóns Þor- lákssonar forsætisráðherra og Benjamíns H.J. Eiríkssonar. Foreldrar Hannesar Hólm- steins voru Ásta Hannesdóttir, kennari og formaður Framsókn- arkvennafélagsins Freyju í Kópa- vogi um árabil, og Gissur Jörund- ur Kristinsson, trésmiður og framkvæmdastjóri verkamanna- bústaðanna í Kópavogi. Hannes Hólmsteinn á þrjú systkini. Vinir Hannesar lýsa honum sem vinnuþjarki og ákafamanni sem taki gagnrýni ekki nærri sér og sé mikill vinur vina sinna. Hann er sagður mikill fagurkeri, hefur yndi af bóklestri, tónlist og myndlist, nýtur þess að borða góð- an mat og er annálaður smekk- maður á vín. ■ Mín skoðun GUNNAR SMÁRI EGILSSON ■ skrifar um átök um minningu Halldórs Laxness. Maðurinn ■ Ævisaga Hannesar Hólmsteins um Laxness er orðin umdeild löngu fyrir útgáfu, 14 1. október 2003 MIÐVIKUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason og Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Suðurgötu 10, 101 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Rafpóstur auglýsingadeildar: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands- byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Um daginnog veginn KARL TH. BIRGISSON ■ skrifar um orð- sporið sem fer af framkvæmdum á Kárahnjúkum. Ítalía brennur■ Af Netinu Vinnuþjarkur og ákafamaður Hver keypti Gljúfrastein? HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON Harður frjáls- hyggjumaður, fag- urkeri og mikill vinur vina sinna. Menntun skorin við nögl Nú er það orðið ljóst að nám til stúdentsprófs verður stytt úr fjór- um árum í þrjú og hefur verkefna- stjórn á vegum menntamálaráðu- neytisins gefið út tillögu þess efn- is. Skólaárið verður lengt um 10 daga en eigi að síður fækkar kennslustundum um 20%. Á móti kemur að námið á að verða „inni- haldsríkara“ en óneitanlega vakna grunsemdir um að verið að sé að spara, eina ferðina enn, undir því yfirskini að sparnaður- inn sé á faglegum forsendum. KATRÍN JAKOBSDÓTTIR Á MÚRNUM. Andóf gegn heimsku Helsta skylda samfélagsins er að eyða bjánaskap. Samt má ekki beinlínis gera heimska höfðinu styttri. Slíkt varðar við lög nema stórþjóð hinna menntuðu ofur- menna ákveði að útrýma ekki að- eins fyrrum hliðhollum sem síðan óhliðhollum einræðisherrum hin- um megin á hnettinum heldur líka afleiðingunni af vitleysunni í grimmd þeirra. Til þess er oft ekki um annað að ræða en það að beita vísindum og hátækni með vopnavaldi eða eyða með bensín- sprengjum á meðan silkitungun- um heimafyrir er lyft á valda- stóla. GUÐBERGUR BERGSSON Á JPV.IS. Heilagur sannleikur Fáfræði er þekking: Þeir sem frelsaðir eru í kristni telja sig varla þurfa að líta í aðrar bækur en Biblíuna, þar sé allan þann sannleik að finna sem veröldin býður upp á. Þeir harðsvíruðustu afneita jafnvel þeirri þekkingu sem mannfélagið býr yfir í kjölfar rannsóknar á heiminum, því hún fer ekki saman við sumt af því sem stendur í Biblíunni. Semsagt: Ef eitthvað fer á skjön við Biblí- una þá er það alltaf Biblían sem hefur rétt fyrir sér. Slík er þekk- ing sannkristinna á veröldinni. BIRGIR BALDURSSON Á VANTRÚ.NET. AÐ GLJÚFRASTEINI Deilur standa um ritun ævisagna Halldórs Laxness.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.