Fréttablaðið - 01.10.2003, Síða 16
16 1. október 2003 MIÐVIKUDAGUR
■ Andlát
■ Nýjar bækur
■ Jarðarfarir
■ Happdrætti
Arabíu-Lawrence vann fræki-legan sigur þegar sameigin-
legt herlið Breta og araba undir
hans forystu náði borginni
Damaskus á sitt vald í stríði
gegn Tyrkjum. Þar með voru
arabar frelsaðir undan yfirráð-
um Tyrkja.
T.E. Lawrence var fæddur í
Wales. Hann lærði arabísk fræði
í Oxford og fór að vinna fyrir
breska herinn í Egyptalandi árið
1914, þar sem hann vann úr upp-
lýsingum sem bárust frá njósn-
urum.
Árið 1916 sannfærði hann yf-
irmenn sína um að koma
Hussein ibn Ali, emír í Mekka,
til aðstoðar, en hann hafði þá
hafið uppreisn gegn Tyrkjum.
Lawrence stjórnaði síðan
skæruhernaði araba gegn Tyrkj-
um og naut fyrir vikið mikillar
virðingar meðal bedúína.
Í júlí árið 1917 hertóku arabar
borgina Akaba og gengu til liðs
við hersveitir Breta, sem voru á
leið til Jerúsalem.
Arabíu-Lawrence barðist hart
fyrir því að Arabíuskagi yrði eitt
ríki, en varð ekki að ósk sinni.
Jafnframt barðist hann fyrir
sjálfstæði Arabaríkja. ■
10.30 Guðmundur Rafn Guðmunds-
son, Naustahlein 30, Garðabæ,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju.
13.30 Eydís Einarsdóttir, Víðilundi 2F,
Akureyri, verður jarðsungin frá Ak-
ureyrarkirkju.
15.00 Anna Árnadóttir frá Bakka, Kópa-
skeri, verður jarðsungin frá Breið-
holtskirkju.
■ Afmæli
Friðrik Friðriksson framkvæmdastjóri,
48 ára.
Sigríður Þórarinsdóttir, Hvassaleiti 37,
Reykjavík, lést laugardaginn 27. septem-
ber.
Guðmundur Sverrisson, Borgarbraut
65a, Borgarnesi, lést laugardaginn 27.
september.
Gunnar Albertsson, Thyrasgade 4,
Kaupmannahöfn, lést föstudaginn 19.
september. Útförin hefur farið fram.
Árni Kristjánsson, Holti, Þistilfirði, lést
mánudaginn 22. september.
Kristján Magnússon, Unnarbraut 28,
Seltjarnarnesi, lést laugardaginn 27,
september.
Jóhann Rósinkranz Björnsson, Uglu-
hólum 12, Reykjavík, lést fimmtudaginn
25. september.
Thora Þorláksson er látin.
Það eru svo sannarlega tímamótí lífi Maríu Hebu Þorkelsdótt-
ur leikkonu. Í dag hófst síðasta ár
hennar á þrítugsaldrinum auk
þess sem hún hefur ákveðið að
halda upp á daginn með því að
hætta að reykja.
„Ég ákvað það á sunnudaginn
var að hætta,“ útskýrir María
Heba. „Þar sem ég er núna búin
að segja frá þessu verð ég að
standa við þetta. Ég er að hætta að
reykja fyrir framan alþjóð. Hvað
eru eiginlega margir sem lesa
Fréttablaðið?“
Til þess að styðja hana í þraut
sinni ætla vinkonur hennar í
Kvenfélaginu Garpi að keppast
um athygli hennar í hádeginu þeg-
ar hópurinn fær sér snarl. Eftir
það tekur vinnan við.
„Ég verð á æfingu með kvenfé-
laginu í Listasafni Reykjavíkur.
Þar erum við að undirbúa sýningu
sem heitir Riddarar hringborðs-
ins, með verkið að vopni. Við
erum átta konur sem leikum. Eft-
ir að ég er búin þar þarf ég að fara
að vinna að innslögum ásamt eig-
inmanni mínum sem við erum að
gera fyrir Mósaík í Ríkissjón-
varpinu. Svo í kvöld verður farið
út úr líkamanum í hamingjukasti
með eiginmanni mínum, vinum og
fjölskyldu. Það verður tóm ham-
ingja.“ María neitar að gefa frek-
ari útskýringar á því hvað felst í
þeirri athöfn.
Þeir sem þekkja Maríu Hebu
eru vinsamlegast beðnir um að
hafa það á bak við eyrað að hún
býst við mörgum afmælispökk-
um.
„Því þeir sem þekkja mig vita
að ég er mjög mikil afmælis-
prinsessa og vil fá mikið af pökk-
um, alla daga ársins. Afmælið er
náttúrulega spes en ég vil helst fá
gjafir sem oftast,“ segir María
Heba og rýkur á æfingu. ■
Afmæli
MARÍA HEBA ÞORKELSDÓTTIR
■ Hún ætlar að sökkva sér í vinnu á af-
mælisdaginn en gerir þá ráð fyrir því að
fá mikinn fjölda af pökkum.
RICHARD HARRIS
Velski leikarinn Richard Harris, sem síðast
lék í tveimur fyrstu myndunum um galdra-
strákinn Harry Potter, hefði orðið 63 ára í
dag. Hann lést í október á síðasta ári.
1. október
■ Þetta gerðist
1946 Tólf hátt settir nasistar voru
dæmdir til dauða við stríðs-
glæparéttarhöldin í Nürnberg.
1965 Suharto hershöfðingi í Indónesíu
braut á bak aftur uppreisn
kommúnista gegn Sukarno for-
seta. Stuttu síðar settist Suharto
sjálfur í forsetastólinn.
1908 Bílasmiðurinn Henry Ford sendi
á markað T-módelið fræga, sem
var fyrsta bifreiðategundin sem
almúgafólk gat leyft sér að festa
kaup á.
1949 Maó formaður lýsti formlega yfir
stofnun Alþýðulýðveldisins Kína.
1988 Mikhaíl Gorbatsjev varð formað-
ur æðstaráðs Sovétríkjanna.
1944 Nasistar hófu grimmilegar til-
raunir sínar á samkynhneigðu
fólki í útrýmingarbúðunum í
Buchenwald.
ARABÍU-LAWRENCE
Stjórnaði síðan skæruhernaði araba gegn
Tyrkjum.
ARABÍU-LAWRENCE
■ Leiddi araba og Breta til sigurs á
Tyrkjum á þessum degi fyrir 85 árum og
þar með voru arabar frelsaðir undan
yfirráðum Tyrkja.
1. október
1918
Arabar sigrast á Tyrkjum
Nú er komin út Biobörn eftirYrsu Sigurðardóttir en hún
hreppti ein-
mitt barna-
bókaverð-
laun Íslands
í ár. Dóm-
nefndi
sagði bók-
ina
skemmti-
lega og
spennandi
en hún
fjallar um
það þegar
fyrirtækið
Biobörn
stofnar frumkvöðlasetur fyrir
afburðabörn. Fjölmörgum gáfna-
ljósum er boðið á námskeiðið en
fyrir mistök er trössunum Önnu
Lísu og Ragga boðið að taka þátt.
Biobörn er 5. bók Yrsu Sigurðar-
dóttur, sem áður hefur hlotið
viðurkenningu IBBY-samtak-
anna á Íslandi árið 2000 fyrir
bókina Við viljum jólin í júlí.
■ Tilkynningar
Fréttablaðið býður lesendum aðsenda inn tilkynningar um
dánarfregnir, jarðarfarir, afmæli
eða aðra stórviðburði. Tekið er á
móti tilkynningum á tölvupóst-
fangið:
tilkynningar@frettabladid.is.
Athugið að upplýsingar þurfa að
vera ítarlegar og helst tæmandi.
Hættir að reykja
á afmælisdaginn
MARÍA HEBA
Ætlar að hætta
að reykja í dag,
á 29 ára afmæl-
isdaginn sinn.
Blindrafélagið, samtök blindraog sjónskertra á Íslandi, er að
mjög litlu leyti rekið fyrir opin-
bert fé. Frá opinberum aðilum
koma einungis um 15% af fjár-
þörf félagsins og eru þá bæði talin
framlög frá ríki og sveitarfélög-
um. Þetta þýðir að félagið þarf að
langmestu leyti að treysta á vel-
vilja almennings og fyrirtækja í
landinu til að fjármagna starfsemi
sína. Þar kemur happdrættið
sterkt inn og í ár eru glæsilegir
vinningar í boði. Þeir heppnustu
geta unnið splunkunýjan Mitsu-
bishi Outlander 4x4 eða Mitsu-
bishi Lancer bíla frá Heklu,
draumasiglingar um eyjar Karíba-
hafsins, sólarlandaferðir fyrir
fjölskylduna eða borgarferðir til
Parísar, London eða Kaupmanna-
hafnar. Einnig eru í boði úrval
heimilistækja og kvöldverðir með
öllu í Humarhúsinu. Hægt er að
kaupa miða með því að hafa sam-
band við skrifstofu félagsins í
síma 525 0000. Dregið verður í
happdrættinu 14. nóvember og
kostar miðinn kr. 1.100.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Næsta námskeið hefst föstudaginn 3. okt. nk.
Aukin réttindi = Auknir atvinnumögulegar
Skráningar í símum: 581 1919, 898 3810 og 892 4124
MEIRAPRÓF
leigubifreið - vörubifreið - hópferðarbifreið - eftirvagn
Ótrúlegt meiraprófstilboð
Aðeins kr. 115 þús.