Fréttablaðið - 01.10.2003, Side 18
nám o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur námi
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: nam@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Þjónustuauglýsingar: Gula línan, sími 580 8090 – netfang: auglysingar@gulalinan.is.
Stytting framhaldsskólanáms í þrjúár felur í sér mikinn niðurskurð á
kennslustundum og þá helst því sér-
námi sem boðið er upp á í dag ef fylgt
verður tillögum skýrslu sem kom út í
gær. Þetta segir Elna Katrín Jóns-
dóttir, formaður Félags framhalds-
skólakennara, en hún telur að út frá
faglegum sjónarmiðum væri betra að
lengja starfsár framhaldsskólanna
meira til að draga úr þessum niður-
skurði. Tíu kennsludagar til viðbótar
á ári breyti ekki miklu. „Geri stjórn-
völd alvöru úr því að stytta námið er
verið að taka mjög mikið í burtu og
bæta litlu við í staðinn. Hætt er við
því að þetta níu mánaða spretthlaup
sem veturinn getur verið muni enn
versna með þessari breytingu. Það
hefði þurft að víkka rammann.“
Elna Katrín segir að hafa beri í huga
að reiknað er með 12% fækkun stöðu-
gilda við framhaldsskóla, sem er mikið
inngrip inn í starfsemi þeirra. Ef skóla-
árið yrði lengt meira yrðu afleiðing-
arnar mildari fyrir kennarahópinn.
„Úr skýrslunni má lesa að stjórnvöld
geti sparað sér peninga með breyting-
unni. Meiri lenging skólaársins er fag-
lega traustari kostur en kostar hins
vegar fé, lagabreytingar og breytta
kjarasamninga.“
Elna Katrín segist ekki geta séð að
þótt dregið verði úr sérnámi feli það
endilega í sér eflingu kjarnagreina.
Hún telur einnig vafasamt að gefa
sér þá forsendu að stytting námstím-
ans dragi úr brottfalli. „Helsta
ástæða brottfalls er sú að nemendur
ráða illa við námið og námsframboð
er of einhæft í einstökum skólum.
Þótt námsefni verði skorið niður er
ekki víst að kröfur minnki í samræmi
við það.“
Elna Katrín setur líka spurningar-
merki við að það sé þjóðhagslega
hagkvæmt að fá fólk fyrr inn á vinnu-
markaðinn. „Menn verða að skoða
hvort vinnumarkaðurinn er í stakk
búinn til að taka við fleiru ósérhæfðu
og yngra fólki í vinnu, en margir
reyna fyrir sér á vinnumarkaðnum
áður en þeir fara í framhaldsnám.“
Elna Katrín tekur fram að Félag
framhaldsskólakennara hafi ekki tek-
ið afstöðu með eða á móti styttingu
námstímans og að skiptar skoðanir
séu meðal kennara. Hins vegar sé of-
arlega í hugum margra að það sé alls
ekki forgangsmál í skólakerfinu að
taka svo miðstýrða ákvörðun um að
skera niður námstímann. Það væri
frekar í samræmi við stefnu stjórn-
valda, þar sem áhersla er á einstak-
lingsmiðað nám, að gera skólum fjár-
hagslega kleift að bjóða upp á fleiri
mismunandi námsleiðir og náms-
hraða. „Áfangakerfið býður auðveld-
lega upp á að stytta námstímann. Það
kostar hins vegar meira að halda uppi
fleiri námsleiðum og þar stendur
hnífurinn í kúnni.“ ■
Stytting skólaársins:
Felur í sér mikinn niðurskurð
Helstu ástæður sem nefndareru fyrir því að stytting náms-
tímans sé æskileg eru eftirtaldar:
■ Litið er til þess að nám hefur
breyst og að stúdentspróf er oft
liður í lengra námi frekar en
takmark í sjálfu sér.
■ Æskilegt þykir að hafa sam-
bærilegt kerfi og í samanburð-
arlöndum þar sem þriggja ára
framhaldsskólanám er algeng-
ast.
■ Stytting náms er talin fela í sér
hagræðingu: minni kostnað við
skólagöngu og sparnað í hús-
næðismálum skólanna. Þá aukist
framleiðni við að ungt fólk komi
fyrr á vinnumarkaðinn.
■ Vonast er til þess að það dragi úr
brottfalli nemenda úr fram-
haldsskólum og háskólum með
minni námsleiða og kostnaði við
nám.
■ Endurskipulagning miðar að því
að námskröfur verði ekki minni
en í samanburðarlöndum og að
ekki dragi úr gæðum námsins.
Hvers vegna á
að stytta námið?
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR Í 96 ÞÚSUND EINTÖKUM – 515 7500
HÆGT AÐ SPREYTA SIG Á PRÓFUM
Dagana 16. og 17. október munu þús-
undir skólabarna þreyta samræmd próf í
íslensku og stærðfræði. Á Skólavefnum,
www.skolavefur.is, geta nemendur æft
sig í prófum síðustu ára í tölvunni, þar
sem farið er yfir svörin og gefin einkunn.
Segjast forsvarsmenn vefsins hafa orðið
varir við það að notkun Skólavefsins til
undirbúnings fyrir próf og almennt sem
stuðnings við nám hafi hjálpað nemend-
um og glætt áhuga þeirra á námi.
ELNA KATRÍN
JÓNSDÓTTIR
Setur spurningar-
merki við tillögur
skýrsluhöfunda.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Viltu læra um lífið ?
Námskeið í
Leikmannaskóla
Þjóðkirkjunnar
Lestur, íhugun,
iðkun
Skóli orðsins -
hvernig við stundum
aðferðina
Hefst miðvikudaginn
1.október kl. 18.00
Postulasagan-
Erindi hennar inn í
samtímann.
Hefst laugardaginn
4.október kl. 11.00
„Þótt ég fari um
dimman dal“ -
Sálmur 23 í sögu og
samtíð
Hefst miðvikudaginn
8.október kl. 18.00
Tilvist, trú og
tilgangur
Hefst fimmtudaginn
9. október kl. 20.00
Nánari upplýs ingar og skráning í s íma 535 1500 eða á www.kirk jan. is/ le ikmannaskol i