Fréttablaðið - 01.10.2003, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 1. október 2003
Orkuveita Reykjavíkur styrkirárlega konur til náms í verk-
og tæknifræðigreinum. Þetta er
liður í jafnréttisáætlun VR og er
markmiðið að draga úr hefðbund-
inni skiptingu í kvenna- og karla-
störf. Í ár hlutu Guðrún Hulda
Jónsdóttir, Sonja Schaffelhofer-
ová og Þórunn Ágústa Þórsdóttir
styrkina.
Ákveðið var að efna til nýs
flokks styrkja fyrir konur sem
stunda nám í iðnnámi á hefð-
bundnum starfsvettvangi karla,
vélfræði, rafvirkjun, vélvirkjun,
múraraiðn og pípulögnum á fram-
haldsskólastigi. Þá styrki hlutu
Dóra Elísabet Sigurjónsdóttir og
Ólöf Maggý Örnólfsdóttir. ■
Áherslubreytingar verða ánámi í framhaldsskólum ef
námstími verður styttur, að sögn
Tómasar Inga Olrich mennta-
málaráðherra. Þannig verði sér-
hæfing í framhaldsskólum minni
og meiri áhersla lögð á grunn-
greinar eins og stærðfræði, móð-
urmál og ensku. Menntamálaráð-
herra segir að samt sem áður sé
stefnt að sömu gæðum námsins.
Undanfarin ár hefur stytting
náms til stúdentsprófs verið með-
al stefnumiða stjórnvalda. Í nýrri
skýrslu um málið er lagt til að
námstími til stúdentsprófs verði
styttur um eitt ár. Til að mæta
auknu kennsluálagi innan skóla-
ársins verði kennsludögum fjölg-
að um tíu. Prófdögum yrði aftur á
móti fækkað um fimm. Klukku-
stundum sem varið er til kennslu
fækkar þá um 537 klukkustundir
eða 20%.
Ef ákvörðun er tekin um stytt-
ingu getur þriggja ára stúdents-
nám hafist haustið 2006. Þá
myndu nýnemar hefja nám á
þriggja ára stúdentsbraut en aðr-
ir nemendur ljúka námi sam-
kvæmt eldri námskrá. Talið er að
heildarfjöldi nemenda í stúdents-
námi hverju sinni minnki um tæp
18%. ■
NETIÐ VERÐUR NÝTT VIÐ
ÁKVARÐANATÖKUNA
Þar verður hægt að eiga tjáskipti við þá
sem að vinnuferlinu koma.
Umræðuþing á Netinu:
Tækifæri til
að hafa áhrif
Allir hafa tækifæri til að takaþátt í ákvarðanatöku um stytt-
ingu framhaldsskólanáms. Er
þetta gert með umræðuþingi á
Netinu, á vefsíðunni
www.menntagatt.is/spjall. Þar er
hægt að láta álit sitt í ljós eða
senda inn fyrirspurnir. Ætlunin er
að á þennan hátt verði almenn um-
ræða í nánum tengslum við vinnu-
ferlið og ákvarðanatöku. Ef vel
tekst til er stefnt að því að efna til
umræðuþings um fleiri mál.
Þrír starfshópar sem skila eiga
menntamálaráðherra niðurstöð-
um fyrir lok ársins taka tillit til
þess sem fram fer á þinginu og
verður hver færsla tekin til at-
hugunar. Menntamálaráðherra
tekur svo endalega ákvörðun um
hvort og hvernig staðið verði að
styttingu námsins.
Skráningin í umræðuna er
svipuð þeirri og notuð var í Ís-
lendingabók. Notandi gefur upp
kennitölu og netfang og fær bréf
með aðgangsorði á lögheimili
tveimur til þremur dögum síðar.
Þannig er reynt að tryggja að
enginn villi á sér heimildir og að
umræðan verði ábyrg og mál-
efnaleg. ■
Ný viðbygging
við Árbæjarskóla:
Bætt aðstaða
í skólanum
Ný viðbygging við Árbæjar-skóla var opnuð formlega
síðasta föstudag. Fyrsti áfangi í
umfangsmiklu viðbyggingarferli
við skólann var tekinn í notkun í
janúar 2000, annar áfangi árið
2002 og lokaáfanginn var tekinn í
notkun í ágúst síðastliðnum.
Með hinni nýju viðbyggingu
hefur öll aðstaða í skólanum ver-
ið bætt til mikilla muna. Almenn-
um skólastofum hefur fjölgað og
auk þess hafa verið teknar í notk-
un nýjar sérgreinastofur. Bóka-
safn og tölvuver eru nú miðsvæð-
is auk almenns opins rýmis.
Árbæjarskóli er einn stærsti
grunnskóli borgarinnar með
rúmlega 800 nemendur og þar
starfa um 100 manns. Hann var
einsettur árið 1997. ■
FIMM KONUR FENGU STYRKI TIL NÁMS
Markmiðið er að draga úr skiptingu í kvenna- og karlastörf.
Orkuveitan með nýjan flokk styrkja:
Iðnnám á hefðbundnum vettvangi karla
Áherslubreytingar í framhaldsskólum:
Minni áhersla
á sérhæfingu
MENNTAMÁLA-
RÁÐHERRA
Segir stefnt að sömu
gæðum námsins.
Foreldrar
Verjum tíma með börnunum okkar
Hver stund er dýrmæt
Grænmetisnámskeið
Verð kr. 4.900
Við kennum að versla inn hollt hráefni & elda gómsæta
& næringaríka rétti úr grænmeti, baunum & tofu, að
ógleymdum sykurlausum eftirréttum.
Kennari er Sólveig á Grænum kosti
Námskeiðsdagar í október:
miðvikud. 8. okt. kl.19-23
sunnud. 12.okt. kl.8-12
miðvikud. 15.okt.kl.19-23
sunnud. 26.okt.kl.8-12
Skráning á námskeiðin & upplýsingar
eru á vefsíðunni: www.hagkaup.is
eða á Grænum Kosti í síma 5522607
Þurrburstunarnámskeiðin byrjuð
Opið mánudaga 10-22
Þriðjud.-föstud. 10-18
Laugardaga 10-16
Nýjar vörur
Mikið úrval af nýjum vörum
Spiladósir, olíulampar, perur á
jólatré, stjörnur á jólatré, glugga-
kirkjuplast, diskastatíf, steinalitir,
glerungar á keramik og leir og
margt fleira. Keramikgallery ehf.,
Dalvegur 16b,
200 Kópavogur, sími 544-5504 Sendum í póstkröfu um allt land
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, s. 588 5711 og 694 6103
Y O G A Y O G A Y O G A
Líkamsæfingar, öndunaræfingar, slökun og hugleiðsla.
Morgun-, hádegis-, síðdegis- og kvöldtímar.
Sértímar fyrir byrjendur og barnshafandi konur.
Því ekki prófa