Fréttablaðið - 01.10.2003, Page 23
23MIÐVIKUDAGUR 1. október 2003
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
F
LU
2
22
29
0
9/
20
03
flugfelag.is
Helgarslaufur
fyrir hópa, klúbba og félög af öllum stærðum.
Við bjóðum litríkar og eftirminnilegar helgarslaufur fyrir hópa til
allra áfangastaða okkar, Akureyrar, Egilsstaða, Ísafjarðar,
Reykjavíkur og Færeyja. Við höfum úrval frábærra gististaða í boði
og gerum tilboð í flug, gistingu og hátíðarkvöldverð.
Tryggið ykkur sæti í tíma!
Hafðu samband við
Bergþóru eða Kristjönu
í síma 570 30 75
hopadeild@flugfelag.is
Enska knattspyrnan:
Barthez til
Parísar?
FÓTBOLTI „Við höfðum samband við
Manchester United vegna Fabien
Barthez,“ sagði Francis Graille,
forseti Paris Saint Germain, við
enska dagblaðið Daily Express.
„Það væri frábært að fá heims-
meistara aftur í félagið en það
þarf að ganga frá ýmsum málum
áður en af því verður,“ sagði
Graille. Barthez verður að sætta
sig við launalækkun fari hann til
PSG.
Markvörðurinn snjalli hefur
ekkert leikið með Manchester
United á þessari leiktíð en hefur
verið í byrjunarliði í öllum lands-
leikjum Frakka í haust. ■
FÓTBOLTI Ólafur Þórðarson, þjálf-
ari U-21 landsliðs karla, tilkynnti í
gær hópinn sem leikur gegn Þjóð-
verjum í undankeppni Evrópu-
keppninnar. Leikurinn verður í
Lübeck 10. október næstkomandi.
Ólafur gerði þjár breytingar á
hópnum frá fyrri leiknum gegn
Þjóðverjum. Hannes Þ. Sigurðs-
son, Hjálmur Dór Hjálmsson og
Atli Jóhannsson koma í stað Jó-
hanns Helgasonar, Helga Péturs
Magnússonar og Andra Fannars
Ottóssonar.
Íslendingar hafa tapað öllum
fimm leikjum sínum í keppninni
en Þjóðverjar eru næstefstir og
keppa við Skota og Litháa um sæti
í sextán liða úrslitum. ■
80 LEIKIR Raúl (Real Madrid) og
Gary Neville (Manchester
United) eru leikjahæstir allra í
Meistaradeildinni. Þeir leika
báðir sinn 80. leik í keppninni í
kvöld.
FYRST ÁRIÐ 1984 Stuttgart tekur
þátt í keppni meistaraliða í þriðja
sinn. Haustið 1984 féll Stuttgart
úr keppni eftir tvö jafntefli við
Levskí frá Sófíu. Ásgeir Sigur-
vinsson lék með Stuttgart gegn
Levskí.
SVO ÁRIÐ 1992 Tímabilið 1992-93
tapaði Stuttgart fyrir Leeds eftir
sögulega viðureign. Stuttgart
vann sinn heimaleik 3-0 en tapaði
1-4 í Leeds. Það hefði nægt Þjóð-
verjunum til að komast áfram en
þar sem Stuttgart tefldi fram of
mörgum erlendum leikmönnum
var Leeds dæmdur 3-0 sigur. Lið-
in voru þá jöfn og léku aukaleik í
Barcelona sem Leeds vann 2-1.
Eyjólfur Sverrisson lék með
Stuttgart gegn Leeds.
100 EVRÓPULEIKIR Portúgalinn
Luis Filipe Madeira Figo leikur í
kvöld sinn 100. leik í Evrópu-
keppni þegar Real Madrid mætir
Porto. Luis Figo lék með Sporting
frá Lissabon og Barcelona áður
en hann gekk til liðs við Real Ma-
drid árið 2000.
300 MÖRK Sjálfsmark spánska
varnarmannsins Juanfran Garcia
hjá Celta Vigo var 300. mark
Club Brugge í Evrópukeppni.
Juanfran jafnaði leikinn með
sjálfsmarkinu sex mínútum fyrir
leikslok en hann færði Celta for-
ystuna á 50. mínútu með fyrsta
marki sínu í Evrópukeppni.
FYRSTI LEIKUR Panaþinaikos leik-
ur í kvöld gegn skosku meistur-
unum Rangers. Gríska félagið
hefur aldrei áður leikið gegn
skosku félagi í Evrópukeppni.
CHELSEA GEGN TYRKJUM Chelsea
hefur einu sinni áður leikið gegn
tyrknesku félagi í Evrópukeppni.
Chelsea vann Galatasaray 1-0 og
5-0 árið 1999. Dan Petrescu skor-
aði í leiknum í London en Tore
André Flo (2), Gianfranco Zola,
Dennis Wise og Gabriele
Ambrosetti í leiknum í Istanbúl.
LEIKJAHÆSTIR Paolo Maldini (AC
Milan) og Paulo Sergio Conceicao
(Lazio) eru leikjahæstir þeirra
sem keppa í kvöld. Maldini hefur
leikið 126 leiki með AC Milan en
Conceicao hefur leikið 132 leiki
með Porto, Parma, Internazionale
og Lazio.
■ Fótbolti
U-21 LANDSLIÐIÐ
Skagamaðurinn Hjálmur Dór Hjálmsson
kemur inn í landsliðshópinn að nýju.
ÍSLENSKI HÓPURINN
Félag U21 landsleikir Mörk
Ómar Jóhannsson Keflavík 18 -
Bjarni Þórður Halldórsson Fylkir - -
Helgi Valur Daníelsson Fylkir 17 1
Guðmundur Viðar Mete Norrköping 10 -
Haraldur Guðmundsson Keflavík 7 -
Gunnar Heiðar Þorvaldsson ÍBV 6 -
Hannes Þ. Sigurðsson Viking FK 6 1
Sigmundur Kristjánsson Utrecht 6 1
Viktor Bjarki Arnarsson TOP OSS 4 -
Hjálmur Dór Hjálmsson ÍA 3 -
Jökull Elísabetarson KR 3 -
Ólafur Ingi Skúlason Arsenal 3 -
Atli Jóhannsson ÍBV 1 -
Tryggvi Bjarnason ÍBV 1 -
Örn Kató Hauksson KA 1 -
Jón Skaftason Víkingur - -
U-21 landsliðið:
Þrjár breytingar