Fréttablaðið - 01.10.2003, Page 24
24 1. október 2003 MIÐVIKUDAGUR
KATIA
Katia Cilene Teixeira da Silva hefur skor-
að fjögur mörk fyrir Brasilíu í Heims-
meistarakeppni kvenna. Hún var marka-
hæst ásamt Þjóðverjanum Birgit Prinz eft-
ir riðlakeppnina.
Fótbolti
FÓTBOLTI „Newcastle United vísar
til vangaveltna um Sir Bobby Rob-
son í fjölmiðlum að undanförnu og
lýsir því yfir að hann hefur ekki
sagt upp störfum. Allar fréttir um
hið gagnstæða eru algjörlega til-
efnislausar.“ Þannig hljóðar yfir-
lýsing sem Newcastle United
sendi kauphöllinni í London í gær.
Í gær var á kreiki orðrómur um
að Robson væri hættur hjá
Newcastle eftir rúmlega fjögurra
ára starf. Félaginu hefur gengið
illa í haust, bæði innan vallar og
utan. Hlutabréf í félaginu hafa
fallið um tíu prósent að undan-
förnu, Newcastle komst ekki í
riðlakeppni Meistaradeildarinnar
og er næstneðst í ensku úrvals-
deildinni.
Að undanförnu hefur
Newcastle þó sýnt augljós bata-
merki. Í síðustu viku burstaði liðið
hollenska félagið NAC Breda 5-0 í
UEFA-bikarkeppninni. Tveimur
sólarhringum síðar átti Newcastle
góðan leik gegn Arsenal í London
en varð að sætta sig við 3-2 tap. ■
Reykjanesmót karla
í körfubolta:
Keflavík
og Haukar
í úrslit
KÖRFUBOLTI Keflavík og Haukar
leika til úrslita á Reykjanesmótinu
í körfubolta á morgun og Grinda-
vík og Njarðvík keppa um þriðja
sætið. Leikið verður í Njarðvík.
Undankeppninni lauk á mánudag
þegar Keflavík vann Njarðvík
98-89 og Grindavík vann Breiða-
blik 99-77.
Haukar urðu efstir í und-
ankeppninni, Keflavík varð í öðru
sæti, Grindavík í þriðja, Njarðvík
í fjórða og Breiðablik í fimmta. ■
FÓTBOLTI Aðalsteini Víglundssyni
hefur verið sagt upp störfum sem
þjálfara Fylkis. Meistaraflokks-
ráð knattspyrnudeildar Fylkis tók
ákvörðun um þetta í gær. Ráðið
telur farsælast fyrir meistara-
flokk að fá nýjan þjálfara til
starfa næsta tímabil.
Margeir Þórir Sigfússon, sem
hefur aðstoðað Aðalstein við
þjálfunina, lætur einnig af störf-
um.
Lið Fylkis hafði fengið til sín
sterka leikmenn fyrir sumarið en
gekk ekki sem skyldi á nýafstöðnu
Íslandsmóti og endaði í fjórða sæti
eftir að hafa leitt mótið um tíma.
Meistaraflokksráð Fylkis mun
nýta októbermánuð í að leita að
eftirmanni Aðalsteins. ■
18.30 Meistaradeild Evrópu á Sýn.
Bein útsending frá leik Stuttgart og
Manchester United.
19.15 Stjarnan mætir Víkingi í Ás-
garði í SS-bikar karla í handbolta.
19.15 Grótta/KR leikur gegn FH á
Seltjarnarnesi í SS-bikar karla í hand-
bolta.
19.15 Selfoss og KA keppa á Sel-
fossi í SS-bikar karla í handbolta.
19.15 Fylkir og Strumparnir í Fylk-
ishúsi í SS-bikar karla í handbolta.
20.00 Haukar og HK keppa að Ás-
völlum í suðurriðli RE/MAX-deildar karla
í handbolta.
20.40 Meistaradeild Evrópu á Sýn.
Útsending frá leik Chelsea og Besiktas.
22.20 Handboltakvöld á RÚV.
Newcastle United:
Robson er
ekki að hætta
SIR BOBBY ROBSON
Sir Bobby Robson og Newcastle hafa fengið
mótbyr í upphafi leiktíðar en liðið hefur
sýnt batamerki í undanförnum leikjum.
hvað?hvar?hvenær?
28 29 30 1 2 3 4
OKTÓBER
Miðvikudagur
Fylkir:
Aðalsteini sagt upp
HANDBOLTI Í kvöld fara fram fjórir
leikir í 32 liða úrslitum SS-bikar-
keppninnar í handbolta. Leikur
ÍBV og Þórs var einnig á dagskrá í
Eyjum í kvöld en Þórsarar ákváðu
að draga lið sitt út úr keppninni.
„Fyrir utan hinn mikla kostnað við
að ferðast til Vestmannaeyja þá er
erfitt að fara fram á að meðlimir
hópsins taki sér frí frá vinnu og
skóla þriðju vikuna í röð til að
sinna áhugamáli sínu,“ segir í til-
kynningu á heimasíðu Þórs. Þar
segir einnig að leikmenn hafi þurft
að ferðast akandi til Reykjavíkur
síðastliðna tvo þriðjudaga. „Slíkt
ferðalag krefst þess að menn taki
sér frí frá vinnu að morgni og eru
að koma heim um hánótt í miðri
vinnuviku.“
Stjarnan mætir Víkingi í Garða-
bæ. Stjarnan er í fimmta sæti suð-
urriðils RE/MAX-deildarinnar og
Víkingar í fimmta sæti norðurrið-
ilsins. Á Seltjarnarnesi leikur
Grótta/KR við FH. Félögin börðust
um sæti í úrslitakeppninni í vor og
höfðu FH-ingar betur í hreinum
úrslitaleik á Nesinu í lokaumferð-
inni. FH-ingar eru í öðru sæti suð-
urriðils en heimaliðið í fjórða sæti
norðurriðils.
KA heimsækir Selfoss í kvöld.
KA hefur unnið tvo leiki og tapað
tveimur í norðurriðili RE/MAX-
deildarinnar en heimaliðið hefur
tapað öllum fjórum leikjum sínum
í suðurriðilinum.
Fylkir og Strumparnir leika í
Fylkishúsinu í kvöld. Fylkismenn
komust í átta liða úrslit í fyrra með
sigrum á Ármenningum og ÍR 2 en
féllu úr leik eftir 23-15 tap fyrir
Val.
Haukar og HK sitja hjá í 32 liða
úrslitum SS-bikarkeppninnar og
keppa að Ásvöllum í suðurriðli
RE/MAX-deildar karla. Leikurinn
var færður til þessa dags vegna
þátttöku Hauka í Meistarakeppn-
inni og þátttöku HK í Evrópu-
keppni bikarhafa. Liðin mættust í
Digranesi í síðustu viku og vann
HK 27-25. ■
ÞÓR
Frá leik ÍR og Þórs á Íslandsmótinu í fyrra.
SS-bikarkeppnin í handbolta:
Þór hætti
við þátttöku
AÐALSTEINN VÍGLUNDSSON
Þjálfaði Fyliki í tvö ár.
ÚRSLIT LEIKJA
Í MEISTARADEILDINNI Í GÆR:
Lokomotiv Moskva - Arsenal 0-0
Internazionale - Dínamó Kíev 2-1
Anderlecht - Bayern München 1-1
Deportivo - PSV Eindhoven 2-0
Celtic - Lyon 2-0
Monaco - AEK Aþena 4-0
Galatasaray - Real Sociedad 1-2
Olympiakos - Juventus 1-2