Fréttablaðið - 01.10.2003, Page 25
25MIÐVIKUDAGUR 1. október 2003
FÓTBOLTI Átta leikir verða háðir í
Meistaradeild Evrópu í kvöld. Í
Stuttgart leikur efsta lið
Bundesligunnar gegn Englands-
meisturum Manchester United.
Uppselt er á leikinn og Þjóð-
verjarnir eru auk þess fyrir löngu
búnir að selja sína miða á seinni
leikinn í Manchester. Í leiknum
eigast þeir við Timo Hildebrand,
markvörður Stuttgart, sem hefur
ekki fengið á sig mark í átta leikj-
um í röð í Bundesligunni, og Ruud
van Nistelrooy, sem hefur skorað
sjö mörk í sjö leikjum fyrir
United í ensku úrvalsdeildinni.
Leikir fyrstu umferðarinnar voru
ekki í samræmi við gengi þeirra í
deildunum heima fyrir því
Hildebrand fékk á sig tvö mörk
gegn Rangers í Glasgow og van
Nistelrooy náði ekki að skora í 5-0
sigri United á Panaþinaikos.
Rangers verður án sóknar-
mannsins Stevens Thompsons
þegar skosku meistararnir leika
gegn Panaþinaikos. Thompson er
meiddur á hné og kemur í ljós á
föstudag hvort hann þarf að fara í
uppskurð. Pólski sóknarmaðurinn
Emmanuel Olisadebe leikur ekki
með Grikkjunum næstu tólf vik-
urnar vegna aðgerðar á hné.
Porto og Real Madrid mætast í
ellefta sinn í keppni meistaraliða.
Real hefur unnið átta leiki en
Porto aðeins tvo. Raúl verður með
Real Madrid þegar Spánarmeist-
ararnir mæta Porto í kvöld. Real
hefur einnig endurheimt Ivan
Helguera en hann var ekki með í
tapleiknum gegn Valencia á laug-
ardag frekar en Raúl. David
Beckham leikur ekki í kvöld en
batahorfur hans eru betri en áður
var talið.
Chelsea leikur gegn Besiktas á
Stamford Bridge í kvöld. Chelsea
hefur einu sinni áður leikið gegn
tyrknesku félagi í Evrópukeppni
en fyrir fjórum árum unnu þeir
Galatasaray 1-0 í London og 5-0 í
Istanbúl.
Spánska félagið Celta de Vigo
leikur sinn fyrsta heimaleik í
kvöld þegar Evrópumeistarar AC
Milan koma í heimsókn. José
Ignacio Sáenz, sóknarmaður
Celta, fékk þriggja leikja bann
fyrir að sparka í Andrés
Mendoza, leikmann Club Brugge,
í fyrstu umferðinni. Gennaro
Gattuso, varnarmaður Milan,
slapp með tveggja leikja bann en
hann var rekinn af velli í sigur-
leiknum gegn Ajax fyrir tveimur
vikum. ■
FÓTBOLTI Enska dagblaðið The Sun
heldur því fram að Manchester
United muni gera tólf milljóna
punda tilboð í Jermaine Defoe,
leikmann West Ham. United til-
kynnti í gær að félagið hefði
hagnast um 40 milljónir punda á
síðasta ári og er talið að hluta
hagnaðarins verði varið til leik-
mannakaupa.
Áhugi Alex Ferguson fyrir að
fá Defoe til United komst í há-
mæli í haust en ekkert varð af
kaupum. Félagaskiptaglugginn
verður opnaður aftur á nýju ári
og er talið að Ferguson geri þá
tilboð í Defoe. ■
Manchester United:
12 milljónir
fyrir Defoe?
ALEX FERGUSON
Manchester United hagnaðist um 40 millj-
ónir punda á síðast ári. Talið er að Ferguson
fái hluta hagnaðarins til leikmannakaupa.
Skorar van
Nistelrooy hjá
Hildebrand?
LEIKIR KVÖLDSINS
E-riðill
Panathinaikos - Rangers
Stuttgart - Manchester United
F-riðill
Marseille - Partizan Belgrad
Porto - Real Madrid
G-riðill
Chelsea - Besiktas
Lazio - Sparta Prag
H-riðill
Ajax - Club Brugge
Celta Vigo - AC Milan
RUUD VAN NISTELROOY
Markheppnasti leikmaður
Manchester United mætir í
kvöld markverðinum sem hefur
ekki fengið á sig mark í þýsku
Bundesligunni á þessari leiktíð.
Timo Hildebrand hefur haldið hreinu til þessa í
Bundesligunni en Ruud van Nistelrooy hefur
skorað sjö mörk í sjö leikjum í ensku deildinni.