Fréttablaðið - 01.10.2003, Side 26
26 1. október 2003 MIÐVIKUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
28 29 30 1 2 3 4
OKTÓBER
Miðvikudagur
Í kvöld verða haldnir svokallað-ir Risarokktónleikar á Gauki á
Stöng. Þar ætla valdar íslenskar
sveitir að leggja sitt af mörkum
til þess að Götusmiðjan á Árvöll-
um, sem aðstoðar ungt fólk að
sigrast á áfengis- og eitur-
lyfjafíkn, geti betrumbætt hljóð-
færaaðstöðu sína.
„Driffjaðrirnar á bak við þess-
a tónleika eru Jójó og hippavina-
félag Íslands,“ segir Guðmundur
Týr, eða Mummi eins og hann er
kallaður, forstöðumaður Götu-
smiðjunnar. „Þetta er haldið í
okkar nafni og útvarpsstöðvar-
innar Radió Reykjavík.“
Mummi segir mikinn sköpun-
arkraft búa í mörgum þeirra sem
eru að koma stoðum undir fætur
sína að nýju á Árvöllum. „Þegar
víman fer frá birtist ýmislegt.
Þarna leynast hljóðfærasnilling-
ar, grafíkerar og listamenn. Þess-
ir krakkar eru bara búnir að
tjóna sig á dópi mörg ár og vita
því kannski ekki hvaða hæfileik-
um þeir búa yfir. Tónlist er kjör-
ið verkfæri að vinna með. Tískan
er tengd tónlistinni og það er auð-
velt að nálgast þau í gegnum
hana.Við erum svo illa í stakk bú-
in að við höfum ekki geta keypt
almennileg hljóðfæri handa
krökkunum.“
Eins og er segir Mummi að
hljóðfæraeign Götusmiðjunnar
samanstandi af „gömlu þreyttu
trommusett,“ eins og hann orðar
það, gítar, bassa og „orgel-
druslu“. „Þetta er svona saman-
safn úr geymslum landsmanna.
Við þurfum að gera þetta að
meiri alvöru til þess að tónlistar-
kennarinn okkar geti sinnt þessu
vel en það hefur bara ekki verið
fjármagn til þess. Við erum þess
vegna að leita á náðir tónlistar-
manna landsins og viljum koma á
framfæri kærum þökkum til
þeirra sem ætla að gefa vinnu
sína á tónleikunum.“
Fram koma Kentár, Dark Har-
vest, Sóldögg og Dúndurfréttir.
Steindór Andersen kvæðamaður
verður kynnir og Jójó og Götu-
strákarnir ætla að fylla upp í eyð-
urnar á milli sveita með spila-
mennsku sinni.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur
og í kaupbæti fá gestir afhenda
verndarengla. Allur ágóði rennur
til Götusmiðjunnar. ■
■ TÓNLEIKAR
Risarokk fyrir
Götusmiðjuna
SELLÓFON Í IÐNÓ
sjá nánari upplýsingar á www.sellofon.is
Tenórinn
fim. 2. okt. kl. 21, UPPSELT
lau. 11. okt. kl. 21, UPPSELT
mið. 15. okt. kl. 21, örfá sæti
sun. 19. okt. kl. 21, nokkur sæti
fim. 23. okt. kl. 21, nokkur sæti
Miðasala í Iðnó í síma 562 9700
www.idno.is
2 sýning 9 október
3 sýning 10 október
4 sýning 18 október
Frumsýning á Ólafíu 8 október
■ ■ TÓNLEIKAR
21.00 Vegna fjölda áskorana ætla
þau Sigrún Hjálmtýsdóttir, Gunnar
Guðbjörnsson, Kristinn Sigmundsson
og Jónas Ingimundarson að endurtaka
öðru sinni tónleika sína í Salnum í
Kópavogi.
■ ■ SKEMMTANIR
20.30 Styrktartónleikar fyrir Götu-
smiðjuna verða á Gauki á Stöng. Þeir
sem fram koma eru Dark Harvest, Sól-
dögg, Centaur, Fræbbblarnir, Dúndur-
fréttir og leynigestur. Kynnir er Steindór
Andersen.
22.00 Dúettinn Súkkat heldur
söngskemmtun á Næsta bar.
23.00 Misery Loves Company
rokkar á Grand Rokk.
■ ■ FYRIRLESTRAR
12.30 Glerlistamaðurinn Mike Lees
flytur fyrirlestur um glerlist í LHÍ, Skip-
holti I, stofu 113. Mike Lees er búsettur
í Norður-Wales og starfar þar að list
sinni.
16.15 Stefán Bjarni Gunnlaugs-
son frá Háskólanum á Akureyri flytur er-
indi um svonefnd almanaksáhrif á ís-
lenska fjármálamarkaðnum á Málstofa
Hagfræðistofnunar HÍ að Aragötu 14.
16.30 Hermann Óskarsson félags-
fræðingur flytur fyrirlestur um samfélag
og heilbrigði frá sjónarhóli heilsufélags-
fræðinnar á Félagsvísindatorgi Háskól-
ans á Akureyri í stofu 13, Þingvalla-
stræti 23.
17.30 Michael Maloney heldur fyr-
irlestur við Kennaraháskóla Íslands um
hvernig nýta megi kennsluaðferðir í
anda atferlisstefnu í stærðfræðikennslu.
Michael Maloney er kennari, atferlis-
fræðingur, skólastjóri og metsöluhöf-
undur.
■ ■ SÝNINGAR
Í listahorninu í félagsheimilinu Gull-
smára 13 stendur yfir myndlistarsýning
Sigrúnar Sigurðardóttur frá Möðruvöll-
um í Hörgárdal. Sýningin er opin alla
virka daga 9-17 og stendur út október.
RÚNAR JÚLÍUSSON
Ég er ískaldur maður og mikillísmaður og fæ mér alveg ör-
uggleg ís fyrir eða eftir tónleik-
ana,“ segir rokkarinn Rúnar Júl-
íusson, sem spilar ásamt Hljóm-
um á Broadway á sunnudaginn
Hljómsveitin sívinsæla kemur
þá saman og fagnar fjörutíu ára
afmæli sínu með áhorfendum:
„Ég keypti alltaf vanilluís með
karamellusósu úti á Hagamel á
sínum tíma en núna kaupi ég oft-
ast ís í sjoppunni Nýjung í
Keflavík.“
Besti ísinní bænum
JÓJÓ
Spilaði með Bruce Springsteen á Strikinu í Kaupmannahöfn árið 1988. Hér er hann með
eiganda Grand Rokk en hjá honum fékk hann fyrstu eintök nýs geisladisks á dögunum.
Tvíeykið Súkkat kemur fram áNæsta bar í kvöld. Þeir Haf-
þór Ólafsson og Gunnar Örn Jóns-
son hafa stundað Megasukk reglu-
lega með Megasi undanfarin
misseri, en ætla að spreyta sig á
eigin spýtur í kvöld.
„Það er alltaf gaman að vinna
með Megasi, en hann verður ekki
með okkur að þessu sinni,“ segir
Haffi söngvari. Þó segir hann að
búast megi við einhverjum
leynigestum. „Þetta verður nokk-
uð klassískt prógram hjá okkur.“
Eitthvað fær fólk að heyra af
nýjum lögum í bland við gömlu
klassíkina þeirra. Fimm ár eru frá
því Súkkatpiltar sendu frá sér
plötuna Ull, sem var þriðja plata
þeirra, og væntanlega eru margir
farnir að bíða eftir að þeir sendi
frá sér fleiri lög. Þeir félagar hafa
verið að semja eitthvað af nýju
efni og segjast jafnan vera með
það á bak við eyrað að koma frá
sér plötu.
„Það verður þó ekki alveg á
næstunni. Við erum ekki komnir
með nógu mikið efni til þess að
fóðra plötu.“ ■
Spreyta sig án Megasar
SÚKKAT
Súkkat spilar á Næsta bar í kvöld. Búast má við leynigestum.
■ TÓNLIST
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
VI
LH
EL
M
Laugardagur 04.10. kl. 20 örfá sæti laus
Fimmtudagur 09.10. kl 20:30 uppselt
Föstudagur 10.10. kl. 20 uppselt
Fimmtudagur 16.10. kl. 20 örfá sæti laus
Föstudagur 24.10 kl. 20 laus sæti
Föstudagur 31.10. kl. 20 laus sæti
Ævintýraleg hellskoðunarferð
í Skaftáreldarhraun 3. til 5. okt.
Sjá heimasíðu www.efrivik.is s: 487 4694