Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.10.2003, Qupperneq 27

Fréttablaðið - 01.10.2003, Qupperneq 27
MIÐVIKUDAGUR 1. október 2003 27 Spjallþáttastjórnandinn DavidLetterman er sagður hafa gifst sambýliskonu sinni til margra ára á laun. Letterman, sem er 56 ára, á að hafa gifst Regino Rasko á búgarði sínum fyrir nokkrum vikum síðan. Þau eiga von á sínu fyrsta barni. Enginn virðist geta fengið þetta staðfest frá Letterman sjálfum, sem er þögull sem gröfin. Ef satt reyn- ist hlýtur Letterman að fá prik fyrir lagni sína að halda brúðkaupinu frá hinu sívökula auga fjölmiðlanna. Svo virðist sem Ben Af-fleck og Jennifer Lopez hafi hrist af sér allt volæðið sem varð til í kjölfar þess að þau aflýstu brúðkaupi sínu. Til þeirra sást í Los Angeles, keyrandi um á mótorhjóli, og skartaði hún trú- lofunarhringnum glæsilega sem Ben gaf henni. Þau voru þó ekki mjög vinaleg í garð ljósmyndar- anna og Ben var duglegur við að rétta úr löngutönginni. Eins og vitað er ætlarPierce Brosnan að segja starfi sínu sem James Bond lausu eftir að tökum á næstu mynd lýkur. Nú velta menn vöngum yfir því hver verði ráðinn í starfið. Nýjustu fregnir herma að leikarinn Clive Owen þyki líklegur en Brosnan á sjálfur að hafa mælt með honum. Hann hefur m.a. leikið í Gos- ford Park og Croupier. Rokksveitin Kimono er ný afnálinni hér á landi og kemur nokkuð sterk fram á sjónarviðið með frumburði sínum Mineur- Aggressif. Tónlist sveitarinnar væri hægt að flokka sem síðrokk, þ.e. nokk- uð róleg, drungaleg lög með þung- lamalegum trommutakti þar sem keyrslan er aukin jafnt og þétt eftir því sem á líður. Þannig minn- ir sveitin oft á hljómsveitir eins og Mogwai og Sigur Rós. Kimono nær mestu flugi í þremur lögum: Japanese Policeman, Night of the Living Dead og lokalaginu The Apology. Þarna fær gítarinn að leika sér meira og betur en annars staðar á plötunni og eykur það vídd lag- anna svo um munar. Gítarinn gef- ur lögunum nauðsynlegt krydd því þar sem hans nýtur minna við er útkoman mun dauflegri. Vert er að minnast textanna, sem fjalla um myrkari hliðar mannlífsins og fara vel saman við drungalega tóna plötunnar. At- hyglisvert er að söngvarinn syng- ur aðeins brot af textunum, sem í staðinn eru látnir standa einir og sér sem smásögur. Skemmtileg úrlausn. Kimono hefur gefið út fína rokkplötu. Meira krydd hefði hins vegar gert hana ennþá bragð- meiri. Freyr Bjarnason Umfjölluntónlist KIMONO: Mineur-Aggressif Leikandi gítar Fréttiraf fólki Tölvuleikurinn Sims er á góðrileið með að slá öll met hér á landi. Þegar hafa selst 20.068 ein- tök af leiknum og viðbætum tengdum honum. Leikurinn virk- ar þannig að þú byggir hús og stýrir borg eða stofnar fjölskyldu og sendir þau í vinnuna og svo framvegis. Og alltaf fjölgar út- gáfunum á þessu stefi, að búa eitthvað til sem líkist raunveru- leikanum, og nýjunga er að vænta. Fyrir jól kemur galdraút- gáfa af leiknum, svona eins og í Harry Potter, og á næsta ári kem- ur genaútgáfan. Þá er hægt að breyta erfðavísi fjölskyldunnar sem þú stýrir og þróa heilu ætt- irnar, heilu þjóðfélagshópana. En það sem vekur mikla at- hygli við Sims er að ólíkt öðrum tölvuleikjum eru konur sjúkar í Sims. Helmingur þeirra sem skrá sig sem eiganda leiksins á Netinu (en flestir skrá leikinn sem viðkomandi var að kaupa hjá fyrirtækinu til að fá allar viðbætur) er konur. Þetta er al- gjört einsdæmi því hingað til hefur tölvuleikjanotkun fyrst og fremst verið tengd ungum drengjum. Tölvuleikir: Konur elska Sims SIMS Metsöluleikur á Íslandi og um heim allan, fyrst og fremst af því að konur eru líka sjúkar í hann en þær eru ekki hinn týpíski tölvuleikjaneytandi. Eineggja tvíburasystur fráNorthampton í Bretlandi gift- ust sama manninum með 23 ára millibili. Madelaine Jones giftist Roy Littlejohns árið 1980 og var syst- ir hennar Michelle efst á gesta- listanum. Seinna veiktist Madelaine og var lögð inn á spít- ala vegna gífurlegra flogaveikis- kasta. Vegna þessa fluttist Michelle í næsta nágrenni árið 1988 og gerðist húsfreyja þeirra hjóna. Hjónaband Roy og Madelaine brast árið 1995 og flutti hún út úr húsinu ásamt dóttur þeirra. „Eftir að ég fluttist út kom Roy í heimsókn og sagði mér að hann og Michelle væru orðin elskendur og að þau ætluðu að byrja að búa í húsinu okkar,“ sagði Madelaine um ástarsam- bandið í viðtali við The Sun. „Ég fékk áfall, varð reið og bitur. Mér fannst eins og Michelle hefði stolið einhverju frá mér. Að ímynda sér þau sofa saman braut hjarta mitt.“ Roy og Michelle ákváðu vegna reiði systurinnar að gifta sig í Las Vegas, án þess að hafa fjöl- skylduna viðstadda. Í fyrstu hrinti þetta af stað miklum rifr- ildum á milli systranna, en þær eru orðnar sáttar í dag. „Við Roy urðum góðir vinir þegar Madelaine var veik,“ sagði Michelle við The Sun. „Við urð- um hrifin af hvort öðru og sam- bandi þróaðist eðlilega upp frá því.“ „Tvíburarnir eru ekki svo frá- brugðnir en Michelle er verald- arvanari og vitur og við eigum fleiri hluti sameiginlega,“ sagði Roy við The Sun. „Samband mitt við Michelle er rómantískra, auð- veldara og hamingjuríkara.“ ■ Eineggja tvíburar giftust sama manninum TVÍBURAR Er hægt að segja við aðra eineggja tvíbura- systra að hún sé fallegasta konan í heim- inum? Skrýtnafréttin Colin Farrell greindi frá því íviðtali á dögunum að hann hefði átt í vandræð- um vegna áfengis- og eiturlyfjanotkun- ar sinnar. Hann seg- ist hafa tekið inn mikið af eiturlyfj- um á síðasta áratug, áður en frægðarsól hans reis. Þá á hann að hafa tekið inn spítt, kókaín, maríjuana og helsælu. Hann segir að neysla sín hafi leitt til þess að hann lagðist í þunglyndi. Í dag segist Farrell hafa slakað á partístandi sínu og að hann ætli að einbeita sér að því að verða nýfæddum syni sín- um góður faðir. Madonna segir það vera mjögfrelsandi tilfinningu að skrifa barnabækur vegna þess að þar sé engin pressa á henni. Eng- inn búist við neinu af henni og því komist hún upp með að vinna bækurnar í friði. Madonna gaf nýverið út bókina Ensku rósirnar, sem er fyrsta bókin í röð um stúlkuvinahóp. Madonna segist lesa börn sín í svefn á hverri nóttu og þar hafi hún fengið hug- myndina að sögu sem hana lang- aði að skrifa. Kylie Minogue gerði lögregl-unni viðvart um ofstækis- mann sem hefur elt hana á rönd- um í heilt ár. Hún segist hafa fengið yfir 700 bréf frá manninum og hefur nú áhyggjur þar sem henni er hótað í sumum þeirra. Þetta hefur víst setið þungt á henni um tíma og ætlar hún nú að flýja vandann og fara í frí á meðan lög- reglan sér um málið. Fréttiraf fólki

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.