Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.10.2003, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 01.10.2003, Qupperneq 30
Hrósið 30 1. október 2003 MIÐVIKUDAGUR Við erum að leggja okkar afmörkum til að Íslendingar ferðist um eigið land og hafi gam- an af,“ segir Þorsteinn Erlingsson hjá ferðaskrifstofunni Travel 2, sem bryddað hefur upp á þeirri nýbreytni að bjóða fólki til veislu í hellum. Notar hann hraunhella á suðvesturhorninu til þessa. Vin- sælastur er Raufarhólshellir við Þorlákshöfn en hann er 4 kíló- metra langur. Þá eru Surtshellir og Glámur í Borgarfirði einnig í dæminu og svo Leiðarendi í Blá- fjöllum: „Við getum verið með 200 manna partí í þessum hellum og höfum gert. Þá erum við einnig að brydda upp á þeirri nýbreytni að vera með svitatjöld í hellunum þar sem fólk getur ornað sér og svitnað,“ segir Þorsteinn, sem er barnabarn og alnafni þjóðskálds- ins góða sem orti meðal annars: Fyrr var oft í koti kátt / krakkar léku saman. Í hellaveislunum er gjarnan boðið upp á mat og drykk og hefur humarinn frá Fjöruborðinu á Stokkseyri verið hvað vinsælast- ur. Og svo er dansað og sungið: „Það fá allir hlífðargalla við hæfi, hjálma og höfuðljós og leið- sögumenn eru með allan tímann,“ segir Þorsteinn en verð fyrir svona hellapartí fer eftir fjöldan- um og umfangi veislunnar sem skipulögð er. ■ Útivist ÞORSTEINN ERLINGSSON ■ hefur bætt nýrri vídd við ferða- þjónustuna innanlands. Hann slær upp veislum í hellum. Imbakassinn ...fær róttæklingurinn Sverrir Jakobsson fyrir að taka afstöðu með Hannesi Hólmsteini í Gljúfrasteinsdeilunni. Svitnað í hellum með humri ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. Vladimír Pútín. Eftir þrjú ár. Matt LeBlanc. RAFLAGNA ÞJÓNUSTA RAFSÓL Skipholti 33 • 105 Reykjavík Sími: 553 5600 E i n n t v e i r o g þ r í r 2 6 6 .0 0 2 ÓDÝRT HÖFÐABAKKI 9 112 REYKJAVÍK SÍMI: 544 5330 FAX: 544 5335 en gott Við bjóðum 14 34 / T A K T ÍK n r. 4 0 C Stærð: D: 50 cm B: 30/40 cm H: 180 cm Stál- skápar fyrir vinnustaði kr. 7.719,- Verð frá Stálskápar (Fyrsti skápur kr. 8.840,-) Ja, þetta er meira ástandið! Ég veit varla mitt rjúkandi ráð! En ætli það sé ekki far- sælast að þið takið langa pásu... hættið að hitta hvert annað... ha..? Og kannski að þú Jenný sláir til og reynir að koma þér í eró- tískt en uppbyggjandi samband við hálf- sköllóttan, jafnvel eldri mann... hjónabandsráðgjafa! HJÓNA- BANDS RÁÐGJÖF Lárétt:1óhemja,6jór, 7fljót,8il,9rak, 11tug,13ræ,14ask,15ata,17valtur. Lóðrétt:2hollusta,3mjór, 4jótar, 5ar, 7fita,10kærar, 12gk,15at,16tu. Lárétt: 1 öfgafull, 6 hestur, 7 skjót, 8 á fæti, 9 sagði upp, 11 tíu 13 fer til fiskjar, 14 nóa, 15 káma, 17 óstöðugur. Lóðrétt: 2 tryggð, 3 rýr, 4 danir, 5 ryk- korn, 7 spik, 10 nánar, 12 einkennisstafir, 15 bardagi, 16 í röð. Lausn: 1 6 7 8 9 10 14 15 17 16 2 3 4 131211 5 Skjár 2 hefur útsendingarklukkan 16 í dag en sá böggull fylgir skammrifi að stöðin sendir eingöngu út á Breiðbandinu og næst stöðin því aðeins á þeim heimilum sem hafa aðgang að því: „Fyrst um sinn verður þetta að vera svona vegna þess að ríkisvaldið hefur ekki úthlut- að fleiri rásum. Tíðnirnar liggja ekki á lausu,“ seg- ir Helgi Her- mannsson, dag- skrárstjóri á Skjá Tveimur. Þeir sem hafa ekki aðgang að Breiðbandinu ættu því ekki að eyða tíma í að ná merki stöðvar- innar. „Þetta er vandamál sem við stöndum frammi fyrir en munum leita allra leiða til að færa þessa nýju stöð inn á heimili sem flestra,“ segir Helgi. Skjár Tveir verður áskriftar- stöð og kostar 2.995 krónur á mán- uði. Í október verður stöðin hins vegar ókeypis. Væntanlegir áskrifendur verða að nálgast af- ruglara hjá Landssímanum og breiðbandsdeild fyrirtækisins mun svo rukka inn gjaldið. Enn einn afruglari bætist því við í sjónvarpsholið á meðan núver- andi kerfi er við lýði: „Það hlýtur að sjálfsögðu að koma að því að landið allt verði með eitt dreifikerfi og þar með einn afruglara og fólk velji svo við hvern það vill skipta. Við lít- um á okur sem konunga sjón- varpsefnisins og vonandi rís Landssíminn undir því að vera konungur dreifingarinnar,“ segir dagskrárstjórinn hjá Skjá Tveim- ur í tilefni dagsins. ■ Skjár 2 bara á Breiðbandinu EVERYBODY LOVES RAYMOND Einn af dagskrárliðunum á Skjá Tveimur. CHARMED Líka á Skjá Tveimur. JOHN DOE Bíður á Breið- bandinu. Sjónvarp SKJÁR TVEIR ■ Skjár Tveir hefur útsendingar í dag. Dagskrárstjórinn vill gera landið allt að einu dreifikerfi því sjónvarpstíðnirnar liggja ekki á lausu og því verður nýja sjónvarpsstöðin aðeins fyrir þá sem hafa aðgang að Breiðbandinu. ÞORSTEINN ERLINGSSON Hellagleði það nýjasta. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M JÚLÍA Sveiflar sér í London í kvöld. Flug og leikhúsmiði RÓMEÓ OG JÚLÍA Íslenska leikgerðin af Rómeó og Júlíu, sem sló í gegn í Borgarleikhúsinu í fyrra, verður frumsýnd í Old Vic-leikhúsinu í London í kvöld. Af því tilefni bjóða Flugleiðir upp á flug og leik- húsmiða á sýninguna í London á aðeins 22.900 krónur. Ráðgerðar eru tvær ferðir á fyrrnefndum kjörum. Leikarar og starfsmenn sýn- ingarinnar hafa verið í London undanfarnar vikur við undirbún- ing en ráðgert er að sýna verkið í Old Vic allt fram til 25. október. Leikgerð verksins er eftir Gísla Örn Garðarsson og Hallgrím Helgason en Gísli fer einnig með aðalhlutverkið ásamt Nínu Dögg Filippusdóttur. Er leikið á ensku. Vinsældir verksins hér á landi er ekki síst að þakka leikmynd Bark- ar Jónssonar en hún er notuð í nær því óbreyttri mynd í Old Vic, sem er staðsett á 66 The Cut SE1/ 8LZ í London. Næsta brautarstöð við leikhúsið er Waterloo/- Southwark. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.