Fréttablaðið - 01.10.2003, Page 31
31MIÐVIKUDAGUR 1. október 2003
Full af húmor og frásagnargleði
Í umsögn dómnefndar um BIOBÖRN segir:
„BIOBÖRN er skemmtileg og spennandi saga, full af húmor og
frásagnargleði. Höfundur teflir fram fjölmörgum eftirminnilegum
persónum í margslunginni sögufléttu um leið og hann dregur
fram spaugilegar hliðar á nútímanum.“
BIOBÖRN, eftir Yrsu
Sigurðardóttur, hlaut Íslensku
barnabókaverðlaunin 2003.
Sagan fjallar um fjóra hressa
krakka sem kynnast á
námskeiði fyrir afburðagreind
börn. Fjölmörgum gáfnaljósum
er boðið á námskeiðið en fyrir
mistök er tveimur trössum
boðið líka! Biobörn er fimmta
bók Yrsu sem notið hefur
mikilla vinsælda lesenda á
liðnum árum.
Yrsa Sigurðardóttir
Til hamingju Yrsa!
Séra Pálmi Matthíasson, sóknar-prestur í Bústaðakirkju, man
fyrsta kossinn vel. Eins og gerst
hefði í gær:
„Það var mamma sem kyssti
mig fyrst. Hún kyssti mig oft og
þótti vænt um mig,“ segir séra
Pálmi.
THOR ÓLAFSSON
Tekur hér við viðurkenningu sem einn
af þeim bestu.
Thor á
toppnum
DALE CARNEGIE Thor Ólafsson.
þjálfari hjá Dale Carnegie, hefur
verið valinn í hóp tuttugu bestu
Dale Carnegie-þjálfara í heimin-
um. Þykir að því mikill heiður en
alls kepptu 2.400 einstaklingar um
sæti í hópnum.
„Þetta er frábær árangur hjá
Thor og um leið erum við að slá
heimsmet í fjölda þátttakenda á
Dale Carnegie-námskeiðum ef
miðað er við höfðatölu,“ segir
Helgi Rúnar Óskarsson, eigandi
Dale Carnegie hér á landi. Helgi
Rúnar keypti fyrirtækið af Kon-
ráð Adolphssyni fyrir þremur
árum og er mikil gróska í starf-
seminni nú sem endranær.
„Ástæðan fyrir þessu öllu er sú
að Konráð Adolphsson var búinn
að plægja jarðveginn svo vel. Alls
hafa um tíu þúsund manns sótt
námskeiðin hér á landi frá upp-
hafi en nú fara að meðaltali um
fimm hundruð manns í gegn ár-
lega,“ segir Helgi Rúnar, sem
áður hafði einkaleyfi á Subway-
samlokukeðjunni í Danmörku.
Rak hann, í félagi við Sigurð Jak-
obsson útsendingarstjóra hjá Stöð
2, sjö Subway-staði í Danmörku,
þar á meðal einn á aðaljárnbraut-
arstöðinni í Kaupmannahöfn og
annan við brúarsporðinn við
Stóra-belti. ■
Sigurjón Magnússon rithöfund-ur vinnur nú að gerð skáldsögu
um Kristmann Guðmundsson,
einn umdeildasta rithöfund þjóð-
arinnar á síðari árum. Sögusvið
skáldsögunnar er réttarhöld sem
fram fóru í meiðyrðamáli sem
Kristmann höfðaði gegn Thor Vil-
hjálmssyni 1964 en Thor hafði
áður skvett yfir Kristmann mörg-
um af ljótustu orðum tungunnar:
„Borgarlífið snerist allt meira
og minna um þessi réttarhöld á
meðan þau stóðu. Og þó Krist-
mann hafi unnið málið lagðist það
þungt á hann og eins og hann bæri
aldrei sitt barr eftir þetta,“ segir
Sigurjón, sem var tryggingasölu-
maður áður en hann gerðis rithöf-
undur. Hann kom fyrst fram fyrir
nokkrum árum með bókina Góða
nótt Silja sem var „...spútnikk í ís-
lenskum bókmenntum,“ eins og
útgefandi hans orðar það. Síðar
sendi Sigurjón frá sér Hér hlustar
aldrei neinn. Og nú er það skáld-
saga um Kristmann sem heitir
Borgir og eyðimerkur:
„Ég er hrifinn af mörgu sem
Kristmann skrifaði þó hann hafi
verið mistækur. Hrifnastur er ég
af ævisögu hans og svo því sem
hann skrifaði í Noregi. Kristmann
var engum líkur og þó nýróm-
antískir höfundar eins og hann
hafi ekki átt upp á pallborðið á
síðustu árum á tími þeirra eftir að
koma á ný,“ segir Sigurjón Magn-
ússon. ■
HLJÓMAR
En helsta rokksveit Íslandssögunnar, Hljóm-
ar, fagnar 40 ára afmæli sínu um þessar
mundir og er við það að gefa út nýja breið-
skífu. Hljómar héldu blaðamannafund í
Listasafni Reykjavíkur á mánudag við góðar
undirtektir. Afmælistónleikarnir verða
haldnir í Austurbæ á sunnudag, sama dag
og nýja platan kemur út.
■ Fyrsti kossinn
KRISTMANN OG SIGURJÓN
Tími nýrómantískra höfunda mun koma aftur.
Útivist
SIGURJÓN MAGNÚSSON
■ vinnur að gerð skáldsögu sem byggir á
málaferlum sem Kristmann Guðmunds-
son átti í gegn Thor Vilhjálmssyni.
Skáldsaga
um Kristmann