Fréttablaðið - 01.10.2003, Qupperneq 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
STEINUNNAR
STEFÁNSDÓTTUR
Áfram veginn
þar sem tryggingar snúast um fólk
Allt of mörg heimili á landinu eru án fjölskyldutrygginga en þessi heimili eru þó jafn
líkleg og önnur til að verða fyrir tjóni, t.d. af völdum vatns. Með því að velja F plús
víðtæku fjölskyldutrygginguna getur þú tryggt fjölskylduna, innbúið og húsnæðið.
F plús er fyrir þá sem vilja vera með allt sitt á þurru. Við mælum með að þú kynnir
þér alla þá kosti sem F plús hefur að bera.
Er allt þitt á þurru?
F plús víðtæka fjölskyldutryggingin innifelur m.a.
• Tryggingu á innbúi
• Slysatryggingu í frítíma
• Ferðasjúkra- og ferðarofstryggingu á ferðalögum erlendis
• Farangurstryggingu á ferðalögum erlendis
• Málskostnaðartryggingu
• Umönnunartryggingu barna
• Ábyrgðartryggingu einstaklings
Sjá nánar í skilmálum F plús tryggingar.
F
í
t
o
n
F
I
0
0
7
9
2
4
Vátryggingafélag Íslands hf., Ármúla 3, 108 Reykjavík, sími 560 5000, www.vis.is
Tungumálið er sívinsælt umræðu-efni enda ekki skrýtið að margir
hafi áhuga á þessu fyrirbrigði sem
við notum viðstöðulítið allan guðs-
langan daginn og jafnvel á nóttunni
líka, í draumum okkar. Sumir hafa
áhggjur af framtíð okkar litla tungu-
máls, íslenskunnar, og telja að henni
sé ógnað úr öllum áttum. Meðan Dan-
ir réðu lögum og lofum á Íslandi ótt-
uðust menn áhrif dönskunnar á málið.
Svo tók enskan við og á allra síðustu
misserum er komið upp tölvu- og
sms-afbrigði málsins sem ungt fólk
notar í samskiptum sínum og sumir
óttast að muni skaða tunguna.
ALLIR ráða yfir ótrúlegum blæ-
brigðum máls ef að er gáð. Börn eru
til dæmis ótrúlega ung þegar þau
átta sig á því að það þýðir ekkert að
tala nákvæmlega eins við afa sinn og
ömmu og vinina því þá skilja afi og
amma einfaldlega ekki nema sumt.
Barn sem hefur áttað sig á þessu
kann að tala með mismunandi hraða
eftir aðstæðum og hefur að ein-
hverju leyti á valdi sínu tvenns kon-
ar orðfæri um suma hluti. Og þetta
er ekkert lítið.
TÍMAR líða, samfélagið breytist og
tungumálið með. Við lifum í allt öðru
samfélagi en forfeður okkur. Við töl-
um um aðra hluti hluti í dag en talað
var um fyrir 1.000 árum – eða bara
fyrir nokkrum áratugum, það þarf
ekki að fara lengra. Samfélagið er
annað, umhverfið hefur gerbreyst og
hugsunarhátturinn líka. Um þetta
þurfum við að geta talað. Þess vegna
hefur málið þróast hægt og rólega í
gegnum aldirnar. Kannski hægar á
fyrstu öldum Íslandsbyggðar en á
síðustu öld – í takt við hraða samfé-
lagsbreytinga.
SUMUM er meinilla við þessa þró-
un og mjög uppsigað við allar breyt-
ingar á málinu. Það er hins vegar dá-
lítið skondið að pirringurinn nær yf-
irleitt ekki nema til þeirra breytinga
sem menn muna sjálfir. Yfirleitt
æðrast menn ekki sérstaklega yfir
breytingum sem áttu sér stað áður
en þeir fóru sjálfir að muna, enda
kannski ekki von. Hins vegar getur
verið hollt að rifja þetta upp stöku
sinnum. Við getum nefnilega ekki
fryst tungumálið og ákveðið að frá
og með tilteknum degi eða ári tökum
við ekki við breytingum.
Skúlagata 40a Laugavegur 54
562-2433 562-2445
ÚTSALA
www.amor.is