Fréttablaðið - 27.10.2003, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 27.10.2003, Blaðsíða 12
12 27. október 2003 MÁNUDAGUR FYLGST MEÐ MATARGJÖFUM Lítill drengur og hundurinn hans fylgjast með útdeilingu matargjafa í Zimbabve. Mannréttindasamtök segja ríkisstjórn Zimbabve neita pólitískum andstæðingum sínum um matargjafir, en um helmingur íbúa Zimbabve sveltur. Ný byggð á Hrólfsskálamel og Suðurströnd á Seltjarnarnesi: Uppdráttur tilbúinn upp úr áramótum SKIPULAG Undirbúningur að upp- byggingu á Hrólfsskálamel og Suðurströnd á Seltjarnarnesi er sagður ganga vel. Á Hrólfsskálamel verður íþróttavöllur og íbúabyggð ásamt takmörkuðu atvinnuhús- næði. Á Suðurströnd verður ein- göngu íbúabyggð. Samtals verða nýju íbúðirnar 180 talsins. Seltjarnarnesbær hefur samið við VSÓ Ráðgjöf ehf. og Hornsteina Arkitekta ehf. um ráðgjöf og þróun lausna vegna uppbyggingarinnar. VSÓ sér um verkfræðiráðgjöf en Hornstein- ar í samvinnu við Schmidt, Hammer og Lassen um ráðgjöf varðandi arkitektúr. Fyrstu hug- myndir að skipulagi eiga að lig- gja fyrir til skoðunar í byrjun næsta árs. „Markmiðið með þessum hluta verkefnisins er að tryggja skilyrði fyrir heppilegum vexti bæjarins í takt við þarfir íbú- anna auk þess að tryggja bæjar- félaginu og þar með íbúum þess, eðlilegar tekjur vegna sölu á byggingarlandi,“ segir í tilkynn- ingu Seltjarnarnesbæjar. Framundan er ýmis konar áætlanagerð; gerð viðskipta- áætlunar fyrir verkefnið, tíma- áætlanir, kostnaðaráætlanir og mat á hagkvæmni: „Hugað verð- ur að heppilegustu samsetningu íbúðastærða og íbúðagerða ásamt því að þróuð verða bygg- ingarform og -gerðir.“ ■ Halldór Kolbeinsson, yfirlæknir á Kleppsspítala, um tilhögun nauðungarvistana: Leyfi dómsmálaráðuneytis þarf til nauðungarvistunar NAUÐUNGARVISTUN Dómsmálaráðu- neytið þarf að gefa út leyfi fyrir nauðungarvistun, sem má aldrei vera lengur en 21 dagur og styt- tri ef yfirlæknir telur einstakling ekki þurfa á svo löngum tíma að halda,“ segir Halldór Kolbeins- son, yfirlæknir á Kleppsspítala, um tilhögun nauðungarvistana. Halldór segir að í langflestum tilvikum eftir nauðungarvistun nái sjúklingurinn þokkalegum bata og haldi sjálfviljugur áfram í meðferð. Fyrst og fremst sé gripið til nauðungarvistunar vegna geðsjúkdóms sem hefur mjög svæsin geðrofseinkenni með svo alvarlegum einkennum að sjúklingurinn áttar sig ekki á því að hann sé með sjúkdóm. Í slíkum tilvikum þarf að taka til ferlisskerðingar í einhvern tíma. Það sama á við um ástand sem jafngildir mjög alvarlegum geð- sjúkdómi þá er um að ræða mikil geðrofseinkenni, skert raunveru- leikaskyn og ekkert raunsæi. „Fólk getur verið haldið svo al- varlegum eitrunaráhrifum af völdum áfengis eða lyfja að það tapar öllum tengslum en það er yfirleitt í mjög stuttan tíma.“ Halldór segir að dómsmála- ráðuneytið verði að gefa leyfi til nauðungarvistunar. Hins vegar geti verið að sjúklingur sé lagður inn í einn til tvo sólarhringa á meðan eitrunaráhrif ganga yfir. Hann segir að á þeim tíma sé gerð ákveðin frelsissvipting svo hægt sé að rannsaka einstakling- inn hvort um er að ræða blæð- ingu í heila, flog eða annað sem gæti hafa leitt til sturlunar. Halldór segir sjálfræðissvip- ingu þýða að viðkomandi ráði ekki sínum samastað. Samkvæmt lögum er einstaklingurinn nánast orðin 15 ára. Í þeim tilvikum fer vistun fer ekki fram nema með fullu samþykki forráðamanns sem er svo látinn vita þegar vist- uninni lýkur. Halldór segir að á nokkrum dögum eða vikum sé hægt að af- eitra líkamann sem dugir skammt ef hugurinn fylgir ekki með. hrs@frettabladid.is REIKNHILDUR Reiknilíkanið Reiknhildur slær í gegn hjá viðskiptavinum Tryggingastofnunar. Tryggingastofnun: Ný reiknivél á Netinu TRYGGINGAMÁL Ný reiknivél sem sett hefur verið upp fyrir lífeyris- þega á heimasíðu Tryggingastofn- unar hefur vakið ánægju hjá við- skiptavinum stofnunarinnar. Ásdís Eggertsdóttir hjá Trygg- ingastofnun segir að hægt sé að setja mismunandi forsendur um árstekjur, eignir, hjúskaparstöðu, heimilisaðstæður og fleira inn í Reiknhildi sem skilar síðan niður- stöðu um upphæð lífeyris- greiðslna. Ásdís segir að fjölmargir hafi nú þegar notað sér kosti Reikn- hildar. „Fólk sem er til dæmis að hætta á vinna og er að fara á eft- irlaun getur slegið inn sínar upp- lýsingar og kannað stöðu sína,“ segir hún. ■ SJÖ DREPNIR Í ÁTAKI GEGN FÍKNIEFNUM Venesúelskar her- sveitir drápu sjö vopnaða menn í átaki gegn eiturlyfjum sem nú stendur yfir, en talið var að mennirnir hefðu undir höndum marijúana og kókaín í litlum fiskibáti. Mikið magn fíkniefna fer ár hvert gegnum Venesúela á leið frá Kólumbíu til Bandaríkj- anna og Evrópu. HRÓLFSSKÁLAMELUR Seltjarnarnesbær segist með uppbyggingu á Hrólfsskálamel og Suðurströnd meðal annars vilja tryggja bæjarfélaginu „eðlilegar tekjur vegna sölu á byggingarlandi.“ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M HALLDÓR KOLBEINSSON Halldór segir afeitrun duga skammt eina og sér, hugurinn verði að fylgja með. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T ■ Suður-Ameríka Flogið frá Akureyri og Egilsstöðum: Innanlands- flug til Keflavíkur SAMGÖNGUR Flugfélag Íslands hefur bætt við nýjum ákvörðun- arstað innanlands en félagið býð- ur nú upp á reglubundið áætlun- arflug frá Akureyri og Egilsstöð- um til Keflavíkur. „Tímasetning- ar flugsins eru miðaðar við mögulegt tengiflug við útlönd“, segir Jón Karl Ólafsson fram- kvæmdastjóri Flugfélags Ís- lands. „Flogið verður alla sunnu- daga og fimmtudaga til að byrja með, en gert er ráð fyrir að ferð- um verði fjölgað ef viðbrögð við þessari nýju þjónustu verða góð. Ástæða þess að þetta nýja flug er nú sett upp eru óskir viðskipta- vina um að komast beint út á land án þess að þurfa að hafa við- komu í Reykjavík og nú þegar hafa fyrstu viðbrögð fyrirtækja við þessari nýbreytni verið mjög góð.“ ■ Óvopnaðir borgarar drepnir handahófskennt Bandarísk hersveit drap hundruð óvopnaðra borgara á hásléttu Víetnams árið 1967. Upplýsing- um um málið hefur verið haldið leyndum fyrir almenningi til þessa. Bandaríski herinn segir ekki hægt að sækja neinn til saka þar sem sönnunargögn skorti. VÍETNAM, AP Bandarísk hersveit sem starfaði stjórnlaust í fjall- lendi Víetnams, í nágrenni þorpsins Hanh Thien, meðan Víetnamstríðið var í algleym- ingi drap hundruð Víetnama, að- allega konur, börn og eldri borg- ara. Atburðirnir áttu sér stað á sjö mánaða tímabili árið 1967, að því er fram kom í litlu banda- rísku dagblaði, The Blade, sem gefið er út í borginni Toledo í Ohio. Grein blaðsins hefur vakið gríðarlega athygli í Bandaríkj- unum, Að því er segir í blaðinu ferðuðust fallhlífahermenn um svæðið og drápu óvopnaða bændur, konur þeirra og börn, auk þess að pynta og limlesta fórnarlömbin. Fórnarlömb voru hálshöggvin af minnsta tilefni, meðal annars ungbarn vegna hálsmens sem það bar og unglingur vegna strigaskóna. Skotið var handahófskennt á óvopnaða borgara í sveitum landsins. „Ef þeir hlupu í burtu skutum við þá, og ef þeir hlupu ekki í burtu skutum við þá samt,“ segir Rion Causey, einn liðsmanna hersveitarinnar. Ástæða þess að starfsemi sveit- arinnar fór úr böndunum er rak- ið til yfirmanns hersveitarinnar, James Hawkins. „Hann naut þess að drepa,“ er haft eftir ein- um undirmanna hans. Hawkins ver enn atburðina sem gerðust í stríðinu. „Ég sé ekki eftir neinu,“ segir hann. Háttsettir yfirmenn innan bandaríska hersins létu drápin annaðhvort afskiptalaus eða hvöttu til þess að þeim yrði haldið áfram. Einn yfirmanna herdeildarinnar, Gerald Bruner, beindi þó þeim fyrirmælum til manna sinna að hætta að skjóta á almenna borgara. Í kjölfar þess var hann ávítaður af yfir- manni sínum og þeim tilmælum beint til hans að fara á fund sál- fræðings. Rannsókn málsins stóð yfir í fjögur ár án þess að nokkur væri ákærður. Almenningur var aldrei upplýstur um atburðina, og eru skjöl tengd rannsókninni enn leynileg. Fyrr í vikunni lýsti bandaríski herinn því yfir að hann skorti sönnunargögn til að sækja þá sem flæktir eru í mál- ið til saka. Að sögn The Blade var þó talið að hundruð óvopn- aðra borgara hefðu verið drep- in. Ekki er þó vitað nákvæmlega hversu margir týndu lífi í blóð- baðinu. helgat@frettabladid.is BLÓÐBAÐ Í VÍETNAM Huynh Thi Gioi, 67 ára gömul bóndakona frá Hanh Thien þorpinu í Víetnam, á akri sínum þar sem bandarískir hermenn drápu sex ára gamlan son hennar árið 1967.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.