Fréttablaðið - 27.10.2003, Síða 16
16 27. október 2003 MÁNUDAGUR
15.00 Jóakim Arason frá Seljalandi,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju.
■ Afmæli
Flosi Ólafsson leikari, 74 ára.
Jens Hansson saxófónleikari, 40 ára.
Gullveig Sæmundsdóttir ritstjóri, 55
ára.
Gestur Jónsson hæstaréttarlögmaður,
53 ára.
Ídag eru liðin 135 ár frá þvíbandaríski herforinginn George
Armstrong Custer réðst ásamt
mönnum sínum í dögun á friðsælt
indjánaþorp við Washita-fljótið og
slátraði þar rúmlega hundrað
manns, þar á meðal fjölda kvenna
og barna.
Custer hafði fyrr um árið hlot-
ið dóm fyrir liðhlaup og illa með-
ferð á hermönnum sínum. Hann
var sviptur tign sinni í eitt ár, en
hlaut hana á ný eftir tíu mánuði
úti í kuldanum. Hann var fenginn
til að stjórna aðgerðum gegn
cheyenne-indjánum, sem höfðu
gert árásir á hvítingja um sumar-
ið.
Ekkert hafði gengið að hafa
uppi á þessum árásargjörnu frum-
byggjum. Custer þóttist heldur
betur hafa gripið í feitt þegar
hann sá þorp cheyenne-indjána og
fyrirskipaði strax árás án þess að
kynna sér aðstæður í þorpinu fyr-
irfram.
Þar bjó hópur indjána sem eng-
an áhuga hafði á að lenda í útistöð-
um við Bandaríkjamenn.
Hermennirnir voru fljótir að
ljúka sér af enda mættu þeir lítilli
mótspyrnu. Þessari árás var strax
fagnað sem fyrsta stórsigrinum í
baráttu Bandaríkjamanna gegn
frumbyggjum landsins. Orðstír
Custers óx mjög í kjölfarið. ■
■ Andlát
Karólína Björnsdóttir frá Mallandi á
Skaga, lést þriðjudaginn 14. október. Út-
förin fór fram í kyrrþey.
■ Jarðarfarir
13.30 Jóhann Sigurðsson, fyrrum skip-
stjóri frá Svanhóli Vestmannaeyjum,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju.
13.30 Laufey Stefánsdóttir frá Munka-
þverá, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju.
Þeir unglingar sem mæta eruflestir búnir að heyra mikið
um karate og um hvað það snýst,“
útskýrir Dong Quing Guan hjá
Heilsudrekanum á afbragðs ís-
lensku með sterkum kínverskum
hreim. „Karate er ein tegund af
Kung-Fu.“
Á vegum Heilsudrekans hafa
síðustu vikur verið stödd hér á
landi Kung-Fu-meistararnir Wen
Tai Feng og Zhang Su Hong.
Quing segir það stundum vera
erfitt að fá meistara hingað til
lands og því sé mikill fengur af
þeim.
Það Kung-Fu sem kennt er í
Heilsudrekanum á þó lítið skylt
við þau blóðugu slagsmál sem
sjást í kvikmyndinni Kill Bill sem
nú er í bíó: „Slíkt er vont bíó og ég
þoli ekki svona myndir,“ segir
Quing. „Það er engin list. Margar
Kung-Fu myndir eru þó flottar.
Eins og Hidden Dragon,
Crouching Tiger eða Hero. Í þeim
er að finna heimspeki.“ ■
Tímamót
KUNG-FU
■ Í Heilsudrekanum, Ármúla, hafa tveir
Kung-Fu-meistarar kennt sjálfsvarnar-
íþróttina.
Kung-Fu-meistarar á Íslandi
Ég ætla að njóta þess að geraekki neitt þennan dag. Það er
helst að ég komi með köku í vinn-
una og bjóði vinnufélögunum í til-
efni dagsins,“ segir Jóna Ingi-
björg Jónsdóttir, hjúkrunarfræð-
ingur og kynlífsráðgjafi, sem er
43 ára í dag.
Jóna Ingibjörg starfar á Land-
spítala geðsviði og vinnur þar að
meðferðarmálum. Auk þess rekur
hún eigin stofu úti í bæ og tekur
þar á móti fólki sem hún veitir
kynlífsráðgjöf. „Ég er farin að
hugsa ráðgjöfina öðruvísi en í
upphafi og lít á hana sem eðlilega
togstreitu sem kemur upp í mörg-
um samböndum. Fólk kemur til
mín til að fá sýn annarra á hvað
það er að fara í gegnum og hvern-
ig það getur sem best ráðið fram
úr því. Menn eru ekki alltaf með
það á hreinu hvað er eðlilegt kyn-
líf. Margir halda að þeir séu að
takast á við eitthvað einstakt,“
segir Jóna Ingibjörg og bætir við
að vandamálin komi oft upp þegar
mesta spennan sé farin úr sam-
bandinu.
Hún segir það eðlilegt að upp
komi togstreita í löngum sam-
böndum. „Nei, fólk er ekkert
feimið við að koma þegar það hef-
ur tekið ákvörðun um það. Þvert á
móti verður það hissa á því hve
auðvelt er að ræða um þessa
hluti,“ segir Jóna Ingibjörg.
Afmælisdagar Jónu Ingibjargar
í gegnum tíðina hafa verið með
ýmsum móti. Þegar hún var barn
var jafnan haldið upp á daginn og
hún segir ekki hafi verið laust við að
hún fylltist kvíða þann dag. „Ég var
alltaf svo hrædd um að krakkarnir
sem ég hafði boðið létu ekki sjá sig
þannig að minning mín er fremur
bundin ótta en gleði. Eftir að ég
varð fullorðin hef ég haldið upp á
stórafmæli og ætla mér örugglega
að halda upp á fimmtugsafmælið,“
segir Jóna Ingibjörg sem nýtur þess
að ganga á fjöll þegar hún á frí og
lesa góðar bækur. ■
Afmæli
JÓNA INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR
■ Hún ætlar kannski að bjóða vinnu-
félögum upp á köku í tilefni dagsins en
þegar hún verður fimmtug ætlar hún
örugglega að hafa meira við.
JIMI HENDRIX
Gítarhetjan hefði orðið 61 árs í dag.
27. október
■ Þetta gerðist
1537 Jane Seymour, þriðja eiginkona
Hinriks 8. Englandskonungs,
deyr tólf dögum eftir að hafa
alið Játvarð prins, sem síðar varð
Játvarður sjötti, konungur Eng-
lands.
1648 Þrjátíu ára stríðinu lýkur með
friðarsamkomulagi og hruni Hins
heilaga rómverska keisaraveldis.
1786 Skoska þjóðskáldið Robert Burns
hættir við að flytja til Jamaíka.
1945 Sameinuðu þjóðirnar verða form-
lega að veruleika þegar stofn-
samningur þeirra tekur gildi.
1954 Fyrrverandi embættismaður í
Bandaríkjunum, Alger Hiss,
gengur út úr fangelsi frjáls mað-
ur eftir að hafa afplánað 44
mánuði af dómi sem hann hlaut
fyrir njósnir.
GEORGE ARMSTRONG CUSTER
Þótti heldur betur hafa unnið frækinn sigur
þegar hann myrti hundrað manns í friðsælu
indjánaþorpi á fáeinum klukkustundum.
ÁRÁS Á INDJÁNA
■ Rúmlega hundrað manns, þar á meðal
konur og börn, voru myrt í indjánaþorpi
við bakka Washita-fljótsins
27. október
1868
Afmælisminning
bundin kvíða
ZHANG SU HONG OG WEN TAI FENG
Tveir Kung-Fu-meistarar hafa verið hér á landinu á vegum Heilsudrekans.
JÓNA INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR
Fólk er ekki feimið að leita til mín og verður reyndar hissa á því hve auðvelt er að tala um
vandamálin í kynlífinu þegar á reynir.
Fjöldamorð á frumbyggjum Ameríku
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M