Fréttablaðið - 26.11.2003, Side 1

Fréttablaðið - 26.11.2003, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 26 Leikhús 26 Myndlist 26 Íþróttir 23 Sjónvarp 28 MIÐVIKUDAGUR ● jólagjafir ● jólasiðir ▲ Fylgir Fréttablaðinu í dag Heldur fast í hefðirnar Guðbjörg Snorradóttir: HAUKAR Í SMÁRANN Haukar, sem nýverið náðu jafntefli við Barcelona á úti- velli, mæta Breiðabliki á útivelli í Remax- deild karla klukkan 19.15. Einn leikur fer fram í 1. deild kvenna í körfubolta. ÍR tekur á móti Njarðvík á heimavelli klukk- an 20. DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG BESTA VEÐRIÐ Í HAFNARFIRÐI Þar gæti orðið tiltölulega bjart. Fallegt, ekki síst þar sem snjór er yfir öllu. Það er kalt og föðurlandið klikkar ekki, ekki frekar en hálkan. Sjá síðu 6 26. nóvember 2003 – 294. tölublað – 3. árgangur ● leikur í evrópukeppni í kvöld Keflvíkingar: ▲ SÍÐA 24 Stefna á sigur ● rúmlega þrjátíu skráðir til leiks Píanóleikarar: ▲ SÍÐA 26 Keppa í Salnum ● enginn karl er þingfréttaritari í ár Alþingi: ▲ SÍÐA 30 Allt konur BISKUPINN BLESSI DEILENDUR Bóndinn á Garpsstöðum lýsir ógnarástandi í Dalabyggð í kjölfar þess að oddviti var settur af í sveitarstjórn og vísað af vinnu- stað. Vill að biskupinn komi í Búðardal og blessi deiluaðila. Síða 2 GAGNRÝNA VANÁÆTLUN Meirihluti fjárlaganefndar kynnti í gær helstu breyt- ingartillögur á fjárlögum, þar sem meðal annars var gert ráð fyrir 2,6 milljaða króna tekjuhækkun. Minnihluti fjárlaganefndar sakar stjórnvöld um blekkingar. Síða 4 KRÖFUR LAGÐAR FRAM Starfsgreinasambandið vill tryggingu fyrir því að greiðslur fyrir dagvinnu verði ekki lægri en 110.000 krónur á mánuði frá og með næstu áramótum og að tekin verði upp ný launatafla. Síða 2 TEKIÐ Á VINSTRI SLAGSÍÐU Tillaga sjálfstæðismanna og framsóknarmanna í Útvarpsráði sem miðar að því að koma í veg fyrir meinta vinstrislagsíðu var sam- þykkt á fundi Útvarpsráðs í gær. Síða 4 OLÍUFÉLÖGIN Samkeppnisstofnun gerði ekkert formlegt samkomu- lag við Olíufélagið hf. um að ein- staklingar yrðu ekki sakfelldir í tengslum við olíusamráðsmálið, að sögn Guðmundar Sigurðssonar, forstöðumanns samkeppnissviðs Samkeppnisstofnunar. Heimildir Fréttablaðsins stað- festu í gær að á óformlegum fundi fulltrúa Samkeppnisstofnunar og Olíufélagsins í febrúar hefði verið gert samkomulag um það meðal annars að einstaklingar yrðu ekki sakfelldir. „Eðli málsins samkvæmt gat Samkeppnisstofnun ekki gert neitt formlegt samkomulag við Olíufélagið um til að mynda rann- sókn lögreglunnar eða neitt í þeim dúr,“ segir Guðmundur. „Það er ekki Samkeppnisstofnun sem fer með rannsókn á hugsanlegu broti einstaklinga. Samkvæmt sam- keppnislögunum rannsakar Sam- keppnisstofnun einungis hugsan- legt brot fyrirtækis.“ Guðmundur vill ekki tjá sig efnislega um þá fundi sem haldnir hafi verið með Olíufélaginu. Hann segir hins vegar algengt að Sam- keppnisstofnun haldi óformlega fundi með forsvarsmönnum fyrir- tækja sem stofnunin sé með til skoðunar vegna samkeppnismála. Hann segir að varðandi Olíufé- lagið hafi ekkert formlegt sam- komulag verið gert um neitt annað en 30-50 prósenta afslátt af sekt- um. Skilyrðin fyrir þeim afslætti hafi verið að félagið ynni með sam- keppnisyfirvöldum að því að upp- lýsa málið. Hann segir þetta koma skýrt fram í bréfaskriftum milli stofnunarinnar og Olíufélagsins. ■ FANNFERGI Í HÖFUÐBORGINNI Snjó kyngdi niður í höfuðborginni í gærmorgun. Ökumenn gátu hlýjað sér við miðstöðvarkyndinguna á meðan veðrið buldi á þeim sem fóru ferða sinna gangandi eða hjólandi. Meðallestur fólks á miðvikudögum NOKKRAR STAÐREYNDIR UM Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í okt. ‘03 FR ÉT TA B LA Ð IÐ M O R G U N B LA Ð IÐ 66% 49% FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Samkeppnisstofnun um samkomulag við Olíufélagið: Aðeins samið um lækkun sektar Telja vernd óþarfa eftir fall talibana Í úrskurði Útlendingastofnunar segir að Ramin Sana ætti ekki að verða fyrir ofsóknum eða áreiti stjórnvalda snúi hann aftur Afganistans, þar sem talibanastjórnin sé fallin. Lögfræðingur hjá Alþjóðahúsi segir dvalarleyfi aðeins símanúmer hjá Félagsþjónustunni. HÖFNUN Í úrskurði Útlendinga- stofnunar segir að aðstæður Ram- in Sana frá Afganistan, nú eftir fall talibanastjórnarinnar, séu ekki slíkar að hann hafi rétt á eða þörf fyrir vernd í skilningi útlendinga- laga og flóttamannasamningsins. Ramin og Jana Sana sóttu um hæli hér á landi í mars síðastliðinn en fengu dvalarleyfi í eitt ár. Í úrskurðinum segir meðal ann- ars að svo hátti til að talibanar séu farnir frá völdum og mikil upp- bygging hafi átt sér stað þó hún gangi misjafnlega vel. Því sé ekki um það að ræða að umsækjandinn megi eiga von á ofsóknum eða áreiti stjórnvalda, snúi hann aftur til Afganistans. Katla Þorsteinsdóttir, lögfræð- ingur hjá Alþjóðahúsi, segir að dvalarleyfi sé aðeins símanúmer hjá Félagsþjónustunni. Nú sé fjöl- skyldan algjörlega á eigin vegum, atvinnulaus, húsnæðislaus, pen- ingalaus og án sjúkratryggingar. „Mestu máli skiptir að þau sóttust eftir rétti sem þau hafa samkvæmt alþjóðasáttmála og Ísland hefur undirritað. Þau fengu höfnun og í staðinn fá þau útgefið leyfi sem ákveðið er með íslenskum lögum og raunverulega er hægt að binda hvaða skilyrðum sem er.“ Hún seg- ir að spurning sé hvað verði um barnið næstu árin. „Til að barnið fái vegabréf þurfa þau að tilkynna fæðinguna til Afganistans eða Ús- bekistans og erfitt er að ímynda sér hvernig það myndi ganga eftir að hafa sótt um pólitískt hæli frá þessum löndum.“ Katla segir að ekki ætti að vera erfitt fyrir þau að fá áframhald- andi dvalarleyfi að einu ári liðnu, ef þau hafa vinnu. Vinnan yrði þá líka að tryggja þeim tekjur á milli 130 og 140 þúsund krónur á mán- uði. Lágmarkstekjur séu hins vegar rétt rúmlega 70 þúsund krónur og þau með nýfætt barn. Ramin og Jana geta sótt um bú- setuleyfi eftir að hafa verið með dvalarleyfi í þrjú ár og íslenskan ríkisborgararétt eftir sjö ára dvöl hér á landi. Aðeins einn hefur fengið hæli hér á landi síðustu ár. Í fyrra fengu 330 pólitískt hæli í Noregi og 260 í Svíþjóð flestir þeirra voru frá fyrrverandi Sovétríkjunum, Írak og Afganistan. hrs@frettabladid.is FJÖLSKYLDAN FÉKK EKKI HÆLI Aðeins einn hefur fengið hæli hér á landi síðustu ár. Í Noregi hafa 330 fengið hæli og 260 í Svíþjóð, flestir frá fyrrverandi Sov- étríkjunum, Írak og Afganistan. 3.990 10 lítrar Uppboð í Berlín: Múrinn til sölu BERLÍN, AP Hluti af Berlínarmúrn- um verður settur á uppboð 1. des- ember. Um er að ræða 29 metra langan vegg sem fékk að standa óhreyfður þegar múrinn var rif- inn niður 1989 og 1990. Lágmarks- boð verður sem nemur tæpum 6,7 milljónum íslenskra króna. Þetta er í fyrsta sinn sem haldið er uppboð á hluta úr Berlínarmúr- num sem enn er á sínum uppruna- leg stað. Eigendurnir mega ekki rífa hann niður, mála hann eða gera nokkuð annað við hann. Þeir verða að láta sér duga að horfa á bútinn af Berlínarmúrnum. ■ Jólablaðið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.