Fréttablaðið - 26.11.2003, Page 6
6 26. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR
■ Lögreglufréttir
■ Viðskipti
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 75.78 0.65%
Sterlingspund 128.52 0.62%
Dönsk króna 11.99 0.27%
Evra 89.18 0.27%
Gengisvísitala krónu 125,28 0,04%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 283
Velta 4.977 milljónir
ICEX-15 1.985 0,75%
Mestu viðskiptin
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 2.161.749.041
Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. 114.058.000
Pharmaco hf. 101.172.186
Mesta hækkun
Síldarvinnslan hf. 9,87%
Líftæknisjóðurinn hf. 5,36%
Kaldbakur hf. 2,41%
Mesta lækkun
Jarðboranir hf . -4,06%
Vátryggingafélag Íslands hf. -1,59%
Flugleiðir hf. -0,83%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 9.750,2 0,0%
Nasdaq* 1.946,9 0,0%
FTSE 4.388,7 0,1%
DAX 3.733,2 -0,1%
NK50 1.274,5 0,0%
S&P* 1.052,6 0,0%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Hvað heitir bráðabirgðaforseti Georg-íu?
2Hvaðan eru erlendu hjónin sem hafafengið dvalarleyfi á Íslandi?
3Hvaða frægi NBA-körfuknattleiks-maður er hættur vegna nýrnaveik-
inda?
Svörin eru á bls. 31
Breytingar á endurgreiðslu öl- og gosumbúða:
Allt talið úr pokunum
ENDURVINNSLA Starfsfólk Sorpu er
farið að telja allar skilagjalds-
skyldar umbúðir sem skilað er inn
á endurvinnslustöðvum Sorpu en
hingað til hefur því löngum verið
treyst að uppgefnar tölur við-
skiptavina standist. Stefán Örn
Einarsson, umsjónarmaður end-
urvinnslustöðva Sorpu, segir
ástæðuna fyrir þessu að komið
hafi í ljós mikið misræmi á upp-
gefnum tölum og því sem skilar
sér inn. Umbúðir hafi verið taldar
í samstarfi við Endurvinnsluna og
það leitt í ljós að mikill munur er
á því sem viðskiptavinir hafa skil-
að inn og því sem þeir hafa fengið
greitt fyrir.
„Tapið er þvílíkt að við verðum
að stoppa þetta,“ segir Stefán Örn.
Því þurfi að telja upp úr öllum
pokum þó það taki lengri tíma en
áður. „Það eru allir fúlir yfir
þessu, starfsmenn og viðskipta-
vinir,“ segir hann en kveður ekki
hjá því komist að telja upp úr pok-
um. Með því verði sannreynt að
uppgefnar tölur standist. Eitthvað
sé um að fólki finnist að verið sé
að þjófkenna það en það sé alls
ekki ætlunin. ■
Öllum var sagt
upp hjá Alpan
Stéttarfélagið Báran á Selfossi hefur áhyggjur af stöðu atvinnumála.
Miklir rekstrarerfiðleika steðja að fyrirtækinu. Eigið fé er uppurið.
ATVINNUMÁL „Við höfum miklar
áhyggjur af stöðu atvinnumála
hér á Suðurlandi, ekki síst í kjöl-
far uppsagna allra 30 starfs-
manna Alpan á Eyrarbakka, en 20
af þeim eru félagsmenn okkar.
Það er mikið atvinnuleysi á svæð-
inu og það virðist ekki bjart fram
undan en auðvitað reynum við að
tryggja fólkinu einhver störf,“
segir Ragna Larsen, formaður
stéttarfélagsins Bárunnar á Sel-
fossi. Miklir rekstrarerfiðleikar
hafa hrjáð Alpan
að undanförnu og
ákvað stjórn fé-
lagsins að segja
upp samningum
allra starfsmanna
frá og með næstu
m á n a ð a m ó t u m .
Flestir starfsmenn
eru Pólverjar og er uppsagnar-
tími þeirra 2-3 mánuðir en samráð
var haft við trúnaðarmenn og
stéttarfélög starfsmanna vegna
málsins. Versnandi samkeppnis-
staða og gengisþróun krónunnar
hafa leitt til þess að eigið fé er
uppurið og áframhaldandi tap fyr-
irsjáanlegt.
„Ákvörðun um að segja upp öll-
um starfsmönnum er tekin í var-
úðarskyni með von um að það tak-
ist að endurskipuleggja rekstur-
inn og skapa rekstrargrundvöll
fyrir félagið,“ segja forsvars-
menn Alpan hf. á Eyrarbakka.
Alpan var stofnað árið 1984 og
hefur framleitt og selt pönnur úr
íslensku áli en fyrirtækið hefur
selt vörur sínar í meira 25 löndum
og hefur ársvelta þess verið á bil-
inu 300-400 milljónir króna.
Stjórn félagsins vinnur að því að
fá nýja aðila til að koma að rekstr-
inum hér á landi eða jafnvel selja
fyrirtækið úr landi. Reynt verður
að semja við lánardrottna og
hugsanlega nýja hluthafa í tengsl-
um við endurfjármögnun fyrir-
tækisins.
bryndis@frettabladid.is
Gjaldþrot Ferskra afurða:
Kært til
Hæstaréttar
DÓMSMÁL Hæstiréttur Íslands
mun á næstu dögum kveða upp
dóm í gjaldþrotamáli Ferskra
afurða.
Í síðustu viku úrskurðaði
Héraðsdómur Norðurlands
vestra fyrirtækið gjaldþrota að
kröfu Kaupþings Búnaðar-
banka og hafnaði þar með fram-
lengingu á greiðslustöðvun.
Lögmaður Ferskra afurða
kærði þann úrskurð til Hæsta-
réttar og hafa lögmenn málsað-
ila frest til loka þessarar viku
til að skila réttinum greinar-
gerð um málið. ■
NÝSKRÁNING Í KAUPHÖLLINNI
Hlutabréf Medcare Flögu hf.
verða skráð á Aðallista Kauphall-
ar Íslands á morgun eftir vel
heppnað hlutafjárútboð. Útgefnir
hlutir í Medcare Flögu hf. eru
alls um 477 milljónir króna að
nafnverði. Auðkenni Medcare
Flögu í viðskiptakerfi Kauphall-
arinnar verður MED.
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
1
1
0
3
ENDURVINNSLUSTÖÐ SORPU VIÐ
SÆVARHÖFÐA
Mikið kemur inn af skilagjaldsskyldum um-
búðum. Þó ekki jafn mikið og sumir við-
skiptavinir hafa gefið upp.
EYRARBAKKI
Fyrirtækið á Eyrarbakka segir upp öllum starfsmönnum sínum en vonast er til að það
takist að endurskipuleggja reksturinn.
■
„Ákvörðun um
að segja upp
öllum starfs-
mönnum er
tekin í varúðar-
skyni.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Sprengjuárásir í Istanbul:
Níu manns
ákærðir
ISTANBUL, AP Yfirvöld í Tyrklandi
hafa ákært níu manns sem
handteknir voru í tengslum við
rannsókn á sprengjuárásnum í
Istanbul síðastliðinn fimmtu-
dag.
Átta voru ákærðir fyrir að
vera meðlimir í ólöglegum sam-
tökum en sá níundi var sakaður
um að hafa aðstoðað samtökin.
Þremur mönnum var sleppt úr
haldi. Ákærurnar voru gefnar
út eftir að fólkið hafði verið yf-
irheyrt hvert í sínu lagi í nokkr-
ar klukkustundir. Yfirvöld hafa
ekki viljað upplýsa hvaða sam-
tökum sakborningarnir eru
taldir tilheyra.
Sjálfsmorðsárásirnar á
bresku ræðismannsskrifstofuna
og höfuðstöðvar HSBC-bankans
í Istanbul kostuðu 28 manns líf-
ið. ■
Kolmunnaveiðar:
Hálf milljón
tonna á land
SJÁVARÚTVEGUR Huginn VE 55 landaði
1.330 tonnum af kolmunna hjá
Gautavík á Djúpavogi í gær og kom
þar með kolmunnaaflanum á fisk-
veiðiárinu yfir hálfa milljón tonna.
Þetta er meiri kolmunnaafli en hef-
ur áður verið landað hérlendis en
það helgast af því að ekki náðist
samkomulag þeirra ríkja sem
stunda kolmunnaveiðar suður af
landinu.
Heldur hefur dregið úr
kolmunnaveiði að undanförnu, síð-
ustu vikuna hafa um 3.500 tonn
borist á land og var Huginn með
mestan afla einstakra skipa. Íslensk
skip hafa veitt 427.000 tonn af
547.000 tonna afla en erlend skip
hafa landað 74.000 tonnum í íslensk-
um höfnum. ■
SKÓLAPILTUR HLJÓP Á STAUR Um
hálftólf í gærmorgun var lög-
reglu tilkynnt um að skólapiltur í
Menntaskólanum í Reykjavík
hefði slasast í snjókasti. Hafði
hann beygt sig niður á hlaupum
til að safna snjó í bolta, en ekki
gætt að sér og rekist á staur.