Fréttablaðið - 26.11.2003, Síða 12
12 26. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR
RÓLAÐ VIÐ BÆNATURN
Egypsk unglingsstúlka rólar sér fyrir fram-
an Sultan Hassan moskuna í Kaíró.
Múslimar fagna nú Eid al-Fitr, þriggja daga
trúarhátíð, sem markar endalok Ramadan-
mánaðarins.
Kaupmáttur launa hækkar um 3,3% að meðaltali:
Konur hækka meira í launum
LAUNAMÁL Konur hækkuðu hlut-
fallslega fjórðungi meira í laun-
um en karlar samkvæmt launa-
könnun Kjararannsóknanefndar.
Laun kvenna hækkuðu um 6,4%
að meðaltali frá þriðja ársfjórð-
ungi síðasta árs til sama tímabils í
ár. Á sama tíma hækkuðu laun
karla um 4,9%.
Karlar eru eftir sem áður með
mun hærri laun en konur að með-
altali, 216.700 krónur fyrir fullt
starf á móti 164.00 króna launum
kvenna. Sé yfirvinna tekin með í
reikninginn námu heildarlaun
karla 268.500 krónum að meðaltali
en heildarlaun kvenna 198.400
krónum.
Fólk í þjónustu-, sölu- og af-
greiðslustörfum hækkaði meira í
launum en fólk í öðrum starfsstétt-
um. Launahækkun þeirra nam 7,4%
á sama tíma og hækkun reglulegra
launa nam að meðaltali 5,4%. Verð-
bólga nam tveimur prósentum á
tímabilinu og jókst kaupmáttur
launa því um 3,3%. Iðnaðarmenn
hækkuðu minnst í launum, um
3,9%. Laun hækkuðu litlu meira á
höfuðborgarsvæðinu, um 5,5%, en á
landsbyggðinni þar sem laun hækk-
uðu um 5,2%.
Enn ein tilraun til
varanlegs friðar
Norður-Írar kjósa í dag nýtt þing. Því er spáð að róttækustu flokkar kaþólikka og mótmælenda
auki fylgi sitt. Gangi það eftir getur stjórnarmyndun orðið erfiðari en hún hefur þó reynst til þessa.
Rúmt ár er síðan heimastjórnin var svipt völdum sínum vegna njósna Írska lýðveldishersins.
NORÐUR-ÍRLAND Rúmu ári eftir að
bresk stjórnvöld sviptu Norður-
írsku heimastjórnina völdum sín-
um eftir að lögregla fann sannan-
ir fyrir því að Írski lýðveldisher-
inn stundaði njósnir innan heima-
stjórnarinnar ganga kjósendur á
Norður-Írlandi að kjörborðinu í
dag til að kjósa nýtt þing. Niður-
staðan á eftir að hafa mikil áhrif á
það hver verður framtíð friðar-
samkomulagsins sem átti að binda
enda á átökin á Norður-Írlandi en
hefur enn ekki staðið undir vænt-
ingum.
Stjórnmálafræðingar og
fréttaskýrendur hafa spáð því að
flokkunum á sitt hvorum kanti
norður-írskra stjórnvalda takist
að auka fylgi sitt á kostnað ann-
arra og hófsamari flokka. For-
ystumenn og stuðningsmenn Sinn
Fein horfa til þess að flokkur
þeirra bæti við sig fylgi. Sömu
sögu er að segja um flokk Ians
Paisleys, Lýðræðislega sam-
bandssinna, þess flokks mótmæl-
enda sem hefur verið andvígastur
friðarsamkomulaginu sem Norð-
ur-Írar samþykktu í þjóðarat-
kvæðagreiðslu 1998 og er grunn-
urinn að því stjórnmálaumhverfi
sem þjóðin býr við í dag.
Flokkarnir tveir ráða þegar
yfir 40 af 108 sætum á norður-
írska þinginu. Auki þeir hlutdeild
sína enn frekar telja stjórnmála-
skýrendur að það geti dregið úr
líkum á því að takast megi að
mynda starfhæfa heimastjórn.
Hófsamir kaþólikkar
í vanda
Hófsamir kaþólikkar í Jafnað-
ar- og verkamannaflokknum hafa
tapað stöðu sinni frá því þeir nutu
mests fylgis kjósenda í kosning-
unum 1998. Eftir það hafa aðrir
flokkar sótt í sig veðrið, þeirra á
meðal Sinn Fein, sem þykir nú lík-
legur til að verða stærsti flokkur
stjórnenda, sem er mikil breyting
frá því sem áður var. Það er ekki
eina breytingin á stöðu flokkanna
tveggja. Fyrir skömmu mættu
Vandaður kulda-
fatnaður úr ProTec
öndunarefni
Alvöru
gallar
Í VERSLUN
Fólk í sölu-, þjónustu- og afgreiðslustörf-
um hækkaði mest í launum síðasta árið.
DAGVINNULAUN EFTIR
STARFSSTÉTTUM
Verkafólk 145.100 krónur
Iðnaðarmenn 223.900 krónur
Þjónustu-, sölu-
og afgreiðslufólk 161.400 krónur
Skrifstofufólk 184.800 krónur
Tæknar og sérmenntað
starfsfólk 295.000 krónur
Sérfræðingar 351.400 krónur
Stjórnendur 395.600 krónur
Meðaldagvinnulaun
Karlar 216.700 krónur
Konur 164.900 krónur
Höfuðborgarsvæði 206.000 krónur
Landsbyggð 176.400 krónur
Ríkisendurskoðun:
Hluti til
Akureyrar
ALÞINGI Fram kom á Alþingi í gær
að áformað er að setja á fót starfs-
aðstöðu Ríkisendurskoðunar á
Akureyri og færa þannig hluta af
starfsemi embættisins norður. Í
nefndaráliti meirihluta fjárlaga-
nefndar þingsins er meðal annars
gerð tillaga um tæplega fimm
milljóna króna fjárveitingu vegna
kostnaðar við rekstur á starfsað-
stöðunni á Akureyri. Einnig er
gerð tillaga um tveggja og hálfrar
milljónar króna tímabundið fram-
lag til kaupa á tækjum og búnaði á
skrifstofu Ríkisendurskoðunar á
Akureyri. ■
Grafarholt:
Kviknaði
í strætó
BRUNI Eldur kviknaði í vélarsal
strætisvagns þar sem hann var
staddur efst í Jónsgeisla í Grafar-
holti.
Engum varð meint af vegna
þessa en bílstjórinn var að mestu
búinn að ráða niðurlögum eldsins
með aðstoð annars vagnstjóra
þegar slökkviliðið kom á staðinn.
Vélin og svæðið í kringum hana
skemmdust nokkuð vegna brun-
ans. Vagninn var dreginn á verk-
stæði Strætó og fyllti annar vagn
hans stað. ■
VEL FAGNAÐ
Þó kjósendur kunni því sumir illa að stjórnmálamenn banki upp á hjá þeim var þessi kona í vesturhluta Belfast ekkert að fela ánægju sína með Gerry Adams, leiðtoga Sinn Fein.
Flokknum er spáð góðu gengi í kosningunum í dag.
Fréttaskýring
BRYNJÓLFUR ÞÓR
GUÐMUNDSSON
■ fjallar um þingkosningarnar á
Norður-Írlandi í dag.
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
NORÐUR-ÍRLAND
Íbúar 1,7 milljónir
Mótmælendur 54%
Kaþólikkar 42%
Þingsæti 108
Kjördæmi 18
Flokkar 16
SKIPTING ÞINGSÆTA Í DAG
Sambandssinnar í Ulster 28
Jafnaðarmenn 24
Lýðræðislegir sambandssinnar 22
Sinn Fein 18
Aðrir 16
HÁTT Í HELMINGUR VEIDDUR
Síldarskip hafa landað 7.000
tonna afla síðustu vikuna og nem-
ur veiði á fiskveiðiárinu nú
60.000 tonnum. Mestur afli hefur
borist á land hjá Skinney-Þinga-
nesi á Höfn en næstmest hjá Síld-
arvinnslunni á Neskaupstað. Rúm
70.000 tonn af heildarkvóta eru
enn óveidd.
■ Sjávarútvegur