Fréttablaðið - 26.11.2003, Qupperneq 18
18 26. nóvember 2003 MIÐVIKUDAGUR
■ Nýjar bækur
■ Nýjar plötur
■ Afmæli
■ Andlát
■ Jarðarfarir
Kvikmyndin Casablanca varfrumsýnd í Hollywood Theat-
er í New York þennan dag árið
1942. Hún skartaði erkitöffaran-
um Humphrey Bogart og hinni
töfrandi sænsku leikkonu Ingrid
Bergman í aðalhlutverkum.
Casablanca er fyrir löngu orðin
sígild og er ein rómaðasta ástar-
mynd allra tíma og er það ekki síst
þakkað frábærum samleik þeirra
Bogart og Bergman en ástin, sökn-
uðurinn og þráin, krauma á milli
þeirra á svarthvítri filmunni.
Upphaflega stóð til að ráða
Ronald Reagan, fyrrverandi for-
seta Bandaríkjanna, í hlutverk
Bogarts og harðir aðdáendur
myndarinnar fullyrða hiklaust að
hún væri öllum gleymd í dag ef
þau áform hefðu orðið að veru-
leika. Bógí og Bergman voru
dyggilega studd frábærum leik-
urum á borð við Paul Henreid,
Claude Rains, Conrad Veidt,
Sydney Greenstreet og Peter
Lorre þannig að það klikkaði ekk-
ert þó Casablanca væri unnin á
handahlaupum í miklu stressi.
Tökur hófust áður en handritið
var tilbúið og myndin var filmuð
jafnóðum og síðurnar runnu upp
úr ritvélum höfundanna. Þetta
kom þó ekki að sök þar sem
myndin er ein sú best heppnaða í
sögunni, hlaðin ást, spennu og
ógleymanlegum setningum sem
eiga jafn vel við í dag og fyrir 61
ári. ■
Jóhann Ísfjörð Jóhannsson, fyrrverandi
skipstjóri, er 75 ára.
Hann var búsettur í Bretlandi í fjörutíu
ár.
Guðbjörg Fanney Guðlaugsdóttir, Fells-
múla 19, er sextug.
Trausti Þór Guðmundsson, hrossa-
bóndi og framkvæmdastjóri Dekkja-
lagersins, er 50 ára.
Halldóra Friðjónsdóttir, dagskrárgerðar-
maður hjá RÚV, er 44 ára.
TINA TURNER
Rokkamman, sem heitir réttu nafni Anna
Mae Bullock, er 65 ára í dag.
26. nóvember
■ Þetta gerðist
1825 Fyrsta háskólabræðralagið,
Kappa Alpha, er stofnað þennan
dag í Schenectady-skólanum í
New York.
1832 Almenn bílaþjónusta hefst í New
York.
1940 Nasistar neyða hálfa milljón gyð-
inga til að lifa innan múrveggja í
Varsjá, höfuðborg Póllands.
1942 Kvikmyndin Casablanca er frum-
sýnd þennan dag í Hollywood-
leikhúsinu í New York.
1965 Frakkland verður þriðja landið til
að taka þátt í geimkapphlaupinu
þegar gervihnettinum Diamant-A
er skotið út fyrir gufuhvolf jarðar.
1979 Alþjóða ólympíunefndin, IOC,
samþykkir að leyfa Kína að taka
aftur þátt í Ólympíuleikunum eft-
ir 21 árs fjarveru.
BÓGÍ OG BERGMAN
Elskendur á stríðstímum fórna ástinni fyrir
hagsmuni fjöldans og framtíð hins frjálsa
heims. Rómantískara verður það ekki.
Kvikmyndin Casablanca frumsýnd
■ Hin sígilda kvikmynd Casablanca var
frumsýnd í New York 26. nóvember 1942
og hefur ekki misst brot af sjarma sínum.
26. nóvember
1942
Bókið hópa núna! Keramik fyrir alla,
Laugavegi 48b, sími 552 2882,
www.keramik.is
Opið alla virka daga kl. 11-18,
laugardaga 13-17,
opið hús miðvikudagskvöld kl. 20-23.
Hvernig fannst þér í
Keramik fyrir alla?
Hópurinn okkar kemur einu sinni í mánuði
allan ársins hring, við eigum frábært kvöld
og framfarirnar eru glæsilegar eins og sjá
má heima hjá okkur!
Stella 40 ára,
ein af stórum hópi.
Guðrún Þóra Hjaltadóttir nær-ingaráðgjafi er 49 ára í dag og
á því eitt ár í fimmtugt. „Ég stend
hér við að baka fyrir dóttur mína
sem á afmæli sama dag. Hún er
besta afmælisgjöfin sem ég hef
fengið,“ segir hún og bætir við að
í dag séu 23 ár síðan afmælisgjöf-
in góða hafi litið dagsins ljós.
Þrátt fyrir afmælisdag dóttur-
innar ætlar Guðrún Þóra að gera
sér glaðan dag með því að bjóða
til sín gestum í kvöld. Hún segir
að fátt veiti sér meiri ánægju en
hafa hjá sér fólk. „Það er bara
alltof sjaldan sem maður gefur
sér tíma til þess. Þess vegna
finnst mér afmælisdagurinn minn
kjörinn til þess að safna að mér
mínum nánustu vinum og ættingj-
um. Ég er líka nýlega flutt í nýtt
húsnæði og því er enn frekar
ástæða til að bjóða fólki heim,“
segir hún og talar um að líklega
verði 12-14 manns hjá henni.
Guðrún Þóra segir að eini
vandinn sé að húsgögnin hennar
séu meira eða minna í viðgerð því
hún hafi drifið sig á námskeið til
að gera við gömul húsgögn. „Það
var full ástæða til þess því allt var
að liðast í sundur. Það er ógurlega
gaman á þessu námskeiði og það
er sannarlega alvöru maður sem
kennir okkur handtökin eins og
þau voru í gamla daga. Ekkert
fúsk,“ segir hún brosandi.
Guðrún Þóra er næringarráð-
gjafi og vinnur sjálfstætt. Hún
segist finna fyrir því þau 20 ár
sem hún hefur starfað við að leið-
beina fólki um mataræði, að ýmis-
legt hafi breyst. „Verst finnst mér
hve feitu fólki hefur fjölgað og
enn verra að því finnst það allt í
lagi að vera feitt. Áður lagði fólk
mikið á sig til að léttast en nú er
eins og þeim sé alveg sama.
Þrátt fyrir alla hollustu á kak-
an sem Guðrún Þóra er að baka
lítið skylt við hollustu. „Þetta er
algjör sælgætismoli en það er
misskilningur að halda að ekki sé
í lagi að borða eitthvað gott og
óhollt annað veifið. Ég tala nú
ekki um á afmælum,“ segir hún og
hamast við að hræra súkkulaði og
marsipan. ■
GUÐRÚN ÞÓRA HJALTADÓTTIR
■ næringarráðgjafi er 49 ára í dag. Fyrir
23 árum fékk hún sína bestu afmælisgjöf
þegar dóttir hennar fæddist sama dag.
Afmæli
Í lagi að borða óhollustu
á afmælum
GUÐRÚN ÞÓRA HJALTADÓTTIR
NÆRINGARRÁÐGJAFI
Hún ætlar að bjóða til sín fólki í
kvöld og hafa úrbeinaða kjúklinga.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
N
G
Ó
LF
U
R
13.30 Halldór Axel Halldórsson, Króka-
byggð 11, Mosfellsbæ, verður
jarðsunginn frá Fríkirkjunni í
Reykjavík.
Guðný Hreiðarsdóttir, Þrastanesi 3, lést
á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
þann 22. nóvember.
Svava Guðnadóttir frá Melstað, lést á
hjúkrunarheimilinu Víðinesi þann
23. nóvember.
Geir Pálsson málari, Heiðmörk 8,
Stöðvarfirði, andaðist á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu í Neskaupstað þann
29. nóvember.
Ólafur Þórðarson húsgagnabólstrari,
Stórholti 19, lést á Landspítala,
Fossvogi, þann 21. nóvember.
Kristín Pálsdóttir fóstra, Ránargötu 42,
lést á Landspítala, Fossvogi, þann
23. nóvember.
Út er komin ný breiðskífa frá
Stuðmönnum. Platan heitir Á
Hlíðarenda og inniheldur 12 ný
lög. Eitthvert þeirra kom þó út á
safnplötum í sumar. Þetta mun
vera ellefta hljóðversplata sveit-
arinnar og var hún að mestu hljóð-
rituð á Hótel Búðum á Snæfells-
nesi. Skífan gefur út.
Út er komin hjá Máli og menningu
skáldsagan Náðarkraftur eftir
Guðmund Andra Thorsson. Náð-
arkraftur er fjölskyldusaga. Son-
urinn á heimilinu þarf að segja
foreldrum sínum frá því að lag
eftir hann hafi komist í und-
ankeppni Eurovision-keppninnar
og dóttirin þarf að gera upp hug
sinn um það hvort hún eigi að yf-
irgefa mannsefnið sitt, ungan og
efnilegan Evrópusinna, fyrir
sænskan blúsara. Móðirin er
prestur sem glímir við það að
skyggnigáfan úr bernsku tekur
sig upp, en faðirinn er fyrrver-
andi þingmaður sósíalista sem nú
ræktar garðinn sinn, skrifar saka-
málasögur - og málar. Álengdar
standa tveir jaxlar, einhleypur út-
varpsþulur sem orðinn er hluti af
fjölskyldunni og afinn sem er ætt-
göfugur kommúnisti. Þau eru síð-
ustu sósíalistarnir, hugsjónir þeir-
ra eru almennt aðhlátursefni og
yfir þeim hvílir skuggi brostinna
drauma. Samt safnast þau saman
við píanóið á kvöldin ... Náðar-
kraftur er hrífandi skáldsaga og
skrifuð af fágætri stílgáfu. Fyrri
skáldsögur hans hafa notið mikill-
ar velgengni, sú síðasta, Íslands-
förin, var tilnefnd til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna og hlaut
afar góðar viðtökur, jafnt hér
heima sem erlendis.
Út er komin hjá bókaútgáfunni
Þjóðsögu bókin Einræður
Steinólfs í Fagradal skráðar af
Finnboga Hermannssyni. Stein-
ólfur Lárusson, bóndi í Ytri-
Fagradal á Skarðsströnd í Dölum,
er stór í sniðum og sérstæður
maður á flesta lund. Jafnframt
önnum búskaparins hefur hann
sinnt eigin rannsóknum á ýmsum
fyrirbærum mannlífsins. Tungu-
tak hans er einkar meitlað og fjöl-
skrúðugt og endurspeglar frum-
lega hugsun og kímnigáfu. Oft
hefur Steinólfur sagt yfirvöldum
til syndanna og ekki legið á skoð-
unum sínum um ýmis framfara-
mál, svo sem mörgum er kunnugt.
Hér segir hann af sjálfum sér,
hugðarefnum sínum og hugsjón-
um, og af mannlífi á Skarðsströnd
fyrr og síðar. Kápu hannaði Jón
Óskar Hafsteinsson en ljósmynd á
kápu tók Finnbogi Hermannsson.
VEISLUÞJÓNUSTA - HLAÐBORÐ
Í HÁDEGINU - SÉRRÉTTIR
Laugavegi 28b
Sími 517 3131 • Fax 517 3130
sjanghae@sjanghae.is
www.sjanghae.is
Opið alla daga frá kl. 11.30
Dagskrá:
1. Unnur Guðjónsdóttir sýnir myndir úr ferðum
klúbbsins til Kína, jafnframt því að kynna
vorferðina, en þá verður m.a. farið um gljúfrin
þrjú í Jangtze.
2. Framreitt verður sniðugt kínverskt jólahlaðborð.
Verð kr. 2.490,- pr. mann.
3. Skyndihappdrætti með kínverskum vinningum.
4. Sala á kínverskum munum,
tilvöldum til jólagjafa.
Sætapantanir hjá Sjanghæ
KÍNAKLÚBBUR UNNAR
verður með Kínakvöld þriðjudaginn
2. desember kl. 19.00