Fréttablaðið - 26.11.2003, Blaðsíða 19
19MIÐVIKUDAGUR 26. nóvember 2003
Útgáfufyrirtækið Sonet hélt ígær blaðamannafund þar sem
farið var yfir útgáfuna fyrir jólin.
Þar kom fram að Sonet hefur gert
samstarfssamning, svokallaðan
rammasamning, við Ríkisútvarpið
um útgáfu tónlistarefnis úr safni
þess á mynddiskum. Samningur-
inn er til reynslu í 12 mánuði með
endurnýjunarákvæðum ef báðir
aðilar óska þess.
Fyrstu útgáfurnar í þessum lið
líta nú dagsins ljós en það eru
Jólastundin okkar, Kóróna lands-
ins og Ómar lands og þjóðar sem
inniheldur safn hljóðritana og
myndefnis frá Ómari Ragnars-
syni.
Auk þess að kynna framtíðar-
útgáfur var félagið að fagna því að
tæp 8.000 eintök hafa nú selst af
nýrri plötu Hljóma. Óttar Felix
Hauksson, eigandi útgáfunnar,
segir móttökurnar hafa farið fram
úr björtustu vonum. Liðsmenn
Hljóma fengu afhenta gullplötu í
Austurbæ í gær, en slíkt er gert
þegar 5.000 eintök teljast löglega
seld.
Einnig var tilkynnt að verið
væri að leggja lokahönd á vandað-
an mynddisk með Hljómum en þar
gefur að líta gamlar og nýjar upp-
tökur auk þess sem 40 ára saga
sveitarinnar er rakin. Myndin
verður sýnd í Ríkissjónvarpinu 7.
desember og kemur mynddiskur-
inn út þremur dögum síðar. ■
Hljómar fá gull
JOHN MCVIE
McVie, til vinstri, úr Fleetwood Mac
er 58 ára í dag.
Innan samgönguráðuneytisinsvar nýrri skrifstofu ferðamála
komið á fót fyrir skömmu og var
Helga Haraldsdóttir ráðin skrif-
stofustjóri. Áður var Helga deild-
arstjóri í sama ráðuneyti en hún
hefur starfað við ferðamál með
hléum frá 1982. „Ég hef lengi haft
áhuga á ferðamálum og þegar ég
byrjaði að vinna sem landvörður í
Landmannalaugum á sumrin má
segja að stefnan hafi verið tekin,“
segir hún
Í samgönguráðuneytinu hefur
Helga verið frá 1998. „Margir
halda að ráðuneyti sé mjög
óspennandi vettvangur en því er
ég algjörlega ósammála. Þar er
mjög spennandi vinna fyrir þá
sem vilja koma að því að fleyta
þjóðfélaginu áfram,“ segir hún og
er fúlasta alvara með að ráðuneyti
sé skemmtilegur vinnustaður.
Helga segir að ráðuneytið stýri
stefnumótum í ferðamálum í sam-
starfi við fjölmarga hagsmuna-
aðila. Það geti verið hver sem er,
eins og hagsmunasamtök, fólk
sem rekur ferðaþjónustufyrir-
tæki, sveitarstjórnir, mennta-
stofnanir svo eitthvað sé nefnt.
„Ferðamálin liggja mjög víða og
það hefur orðið gríðarlega hröð
þróun síðustu árin enda er greinin
að skila miklum tekjum til þjóðar-
búsins og skapa fjölmörgum
atvinnu,“ segir hún.
Þegar Helga er innt eftir
áhugamálum fyrir utan ferðamál
verður fátt um svör. Hún segist
vera með Ísland á heilanum og
hafa ákaflega gaman af að ferðast
og lesa bækur um landið. „En það
eru ekki eingöngu ferðabækur
sem ég hef gaman af því ég les
hvað sem er þegar tími gefst til.
Kann því vel að koma mér vel
fyrir og lesa. Ég hef gaman af öll-
um tegundum bókmennta þrátt
fyrir að ferðabækurnar eigi
kannski vinninginn,“ segir hún
hlæjandi, meira en sátt við að
geta tengt áhugamálin og vinn-
una. Helga er gift Hróðmari Sig-
urbjörnssyni tónskáldi og eiga
þau tvo syni. ■
HELGA HARALDSDÓTTIR
■ deildarstjóri nýrrar skrifstofu í sam-
gönguráðuneytinu, hefur starfað að
ferðamálum síðastliðin 20 ár. Hún viður-
kennir að ferðalög séu hennar helsta
áhugamál.
Tímamót
Með Ísland á heilanum
HELGA HARALDSDÓTTIR
Hennar afskipti af ferðamálum hófust þegar hún var landvörður í Landmannalaugum á
sumrin. Síðan hefur hennar líf meira eða minna snúist um ferðamál.
HLJÓMAR
Menn eru stoltir af árangrinum, en endurkoma Hljóma hefur farið fram úr björtustu vonum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA