Fréttablaðið - 26.11.2003, Síða 25

Fréttablaðið - 26.11.2003, Síða 25
25MIÐVIKUDAGUR 26. nóvember 2003 FABRIZIO RAVANELLI Kom til Dundee í september en var sagt upp störfum í gær. Skoska knattspyrnan: Dundee segir upp 25 manns FÓTBOLTI Skoska knattspyrnufélag- ið Dundee hefur sagt upp 25 manns, þar af nítján leikmönnum. Meðal þeirra sem sagt var upp eru Fabrizio Ravanelli, Craig Burley, Fabian Caballero og Giorgi Nemsadze. Dundee skuldar um tuttugu milljónir punda og fékk greiðslu- stöðvun í gær. Jimmy og Peter Marr, eigendur félagsins, eru sannfærðir um að greiðslustöðv- un sé eina leiðin til að bjarga fé- laginu frá gjaldþroti en Giovanni di Stefano, sem hefur reynt að eignast félagið, er ekki á sama máli. „Greiðslustöðvun er ekki svarið en við verðum að taka þetta skref að þessu sinni,“ sagði di Stefano, sem hefur boðist til að leggja 26 milljónir punda í félag- ið. „Auðvitað ætla ég að grípa inn í vegna þess að ég tel að þetta sé ekki rétta svarið. Ef enginn tekur í taumana og ég hætti mínum af- skiptum verða það sögulok fót- boltans á Dens Park.“ Motherwell fór í greiðslustöðv- un árið 2002 og sagði upp nítján leikmönnum í kjölfarið. Félagið hefur smátt og smátt unnið sig út úr erfiðleikunum og sér nú fyrir endann á greiðslustöðvuninni þar á bæ. ■ Stoke City: 1,3 milljóna punda tap FÓTBOLTI „Tekjur okkar jukust um 600.000 pund frá síðasta ári,“ sagði Gunnar Gíslason, stjórnarformaður Stoke City í skýrslu til hluthafa. „Hins vegar lækkuðu tekjur á leik- mannamarkaðnum um tvær millj- ónir og vaxtakostnaður óx, sem leiddi til þess að tapið nam 1,3 millj- ónum punda.“ Gunnar sagði einnig að tapið hafi verið fjármagnað með skammtímaláni auk þess sem helstu hluthafar hafi lagt til lánsfé. Gunnar sagði að þó að frammi- staða liðsins hafi verið mjög óstöðug finnist honum sem betri leikir liðsins hafi sýnt hvers megn- ugt Stoke City sé. ■ Enska knattspyrnusambandið: Alan Smith ákærður FÓTBOLTI Enska knattspyrnusam- bandið hefur ákært Alan Smith, leikmann Leeds United, fyrir ósæmilega framkomu í deildabikar- leik gegn Manchester United í lok október. Myndbandsupptökur sýndu að Smith kastaði flösku upp í áhorfendastúkuna. Atvikið var kært til lögreglunnar í Jórvíkurskíri en hún lét málið nið- ur falla vegna skorts á sönnunar- gögnum. Rannsókn lögreglunnar varð til þess að Smith var settur út úr enska landsliðshópnum sem lék gegn Danmörku fyrir tíu dögum. Alan Smith hefur frest til að svara ásökunum til 9. desember. ■ FÓTBOLTI Þýska úrvalsdeildarliðið Hertha Berlin má muna sinn fífil fegri í þýsku Bundesligunni en eins og kunnugt er lagði Eyjólfur Sverr- isson skóna á hilluna síðasta vor eft- ir að hafa leikið með liðinu í heil átta ár. Hertha er sem stendur í 15. sætinu, einu sæti frá fallsæti, og hefur liðið aðeins unnið tvo af síð- ustu fimmtán leikjum sínum. Síðast glutraði liðið niður 2-0 forskoti gegn Kaiserslautern um helgina og tap- aði leiknum 2-4 og útlitið er því ekki allt of bjart í Berlínarborg. Nú er svo komið að fram- kvæmdastjórinn Dieter Höness, hefur endurskoðað markmið vetrar- ins – í stað þess að stefna á að komst inn í Meistaradeildina er markmiðið komið niður í það að tryggja áfram- haldandi veru í efstu deild. Hertha komst í aðra umferð Meistaradeild- arinnar 1999 til 2000 og var með í UEFA-bikarnum síðustu fjögur ár. Liðið datt þar út í fyrstu umferð í ár og það eru breyttir tímar í Berlín eftir að Íslendingurinn Eyjólfur Sverrisson yfirgaf liðið. ■ Þýska Bundesligan: Breyttir tímar hjá Herthu HERTHA BERLÍN Hertha Berlín skoraði tvisvar hjá Tim Wiese, markverði Kaiserslautern, í fyrri hálfleik á sunnudag en Kaiserslautern svar- aði með fjórum mörkum í seinni hálfleik.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.