Fréttablaðið - 26.11.2003, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 26.11.2003, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 26. nóvember 2003 27 Til að fá hið eina sanna jólabragð í baksturinn dugar ekkert annað en ekta íslenskt smjör. Smjörið laðar fram það besta í bakstrinum og gerir kökurnar að ómótstæðilegri freistingu. Bakaðu þér vinsældir! N O N N I O G M A N N I I Y D D A • 1 0 7 9 9 / s ia .is Nú er jólasmjör á tilboði í næstu verslun afsláttur 20% Eiginlega eru öll þessi verkmjög erfið, en jafnframt mjög aðgengileg og skemmtileg áheyrnar. Þau reyna mikið á mismunandi þætti í flutn- ingnum, stundum er það ryt- mískt, stundum eru það erfiðir hljómar og stundum þensla bæði yfir í efstu og dýpstu tón- svið,“ segir Jón Stefánsson, org- anisti í Langholtskirkju og stjórnandi stúlknakórsins Graduale nobili. Nú í hádeginu gefst tækifæri til að hlýða á kórinn syngja í Norræna húsinu verk, meðal annars eftir Báru Grímsdóttur, Hildigunni Rúnarsdóttur, Hjálmar H. Ragnarsson, Jón Ás- geirsson og Giuseppe Verdi. „Á fyrri hluta tónleikanna flytjum við keppnisverkin sem við sungum á stórri kórakeppni í Finnlandi í sumar. Hátt í sjötíu kórar tóku þátt í henni og kórinn lenti þar í öðru sæti. Þessi verk eru hugsuð til þess að sýna sem ólíkastar hliðar á kórnum.“ Síðasta verkið í þessum hluta er Ave Maria eftir Gustav Holst, sem er samið fyrir tvo fjórradd- aða kvennakóra. „Á seinni hluta tónleikanna syngja þær síðan tvær Ave Mar- íur og svo Maríukvæði eftir Hildigunni Rúnarsdóttur við mjög fallegan texta eftir Vil- borgu Dagbjartsdóttur. ■ GRADUALE NOBILI Á tónleikum í Norræna húsinu flytur kórinn meðal annars dagskrá frá kórakeppni í Finn- landi, þar sem þær hrepptu annað sætið. Stúlknakór sýnir listir sínar ■ TÓNLEIKAR ■ ■ LEIKLIST  20.00 Allir á svið á stóra sviði Þjóðleikhússins.  20.30 Steinn Steinarr, einleikur Kómedíuleikhússins, verður sýndur að Hömrum, Ísafirði. ■ ■ FUNDIR  16.15 Þóra Helgadóttir hjá Hag- fræðistofnun fjallar um eftirlitsiðnaðinn á Íslandi á málstofu Hagfræðistofnunar að Aragötu 14. ■ ■ SKEMMTANIR  14.30 Síðdegisdans Félags eldri borgara í Reykjavík verður í Ásgarði, Glæsibæ. Gestur verður Þráinn Bertels- son. Kaffi og rjómaterta. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð- ar en sólarhring fyrir birtingu. Foreldrar Stöndum saman Styðjum börnin okkar í að afþakka áfengi og önnur vímuefni

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.