Fréttablaðið - 08.12.2003, Qupperneq 4
4 8. desember 2003 MÁNUDAGUR
Á að lækka veggjald í Hvalfjarðar-
göngum?
Spurning dagsins í dag:
Á ríkið að styrkja stjórnmálaflokkana
með fé?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
9,3%
90,7%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
Samtök gegn ófrjósemi um fyrirhugaðan niðurskurð á Landspítalanum:
Glasafrjóvgun verði ekki hætt
HEILBRIGÐISMÁL Stjórn Tilveru, sam-
tök gegn ófrjósemi, hefur gefið frá
sér yfirlýsingu þar sem harðlega er
mótmælt þeim hugmyndum sem
uppi eru um að loka glasafrjóvgun-
ardeild Landspítala - háskólasjúkra-
húss.
„Við erum að spá í hvort þetta sé
leið spítalans til að ýta við stjórn-
völdum, að benda á þennan hóp sem
á oft mjög erfitt með að verja sig.
Þetta eru viðkvæm mál og við erum
jaðarhópur, þar sem við teljumst
ekki til sjúklinga heldur þurfum að
greiða mikið sjálf og eigum engan
endurkröfurétt á Tryggingastofnun
ríkisins,“ segir Þórdís G. Magnús-
dóttir í stjórn Tilveru.
„Þau rök að hægt sé að sinna
þeim störfum, sem deildin sinnir í
dag, á einkastofum standast ekki
því til þess þarf meðal annars
lagabreytingu. Í lögum um tækni-
frjóvgun kemur fram að tækni-
frjóvgun má aðeins framkvæma á
stofnun sem hefur til þess tilskilið
leyfi og eina stofnunin sem með
slíkt leyfi í dag er glasafrjóvgun-
ardeild Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss.“
Í yfirlýsingunni kemur fram að
breytingar á þessu fyrirkomulagi
taki dýrmætan tíma frá sjúkling-
um sem eru þegar, margir hverjir,
í kapphlaupi við tímann í sínum
glasafrjóvgunarmeðferðum. ■
Níu börn
fórust í árás
Bandaríkjamenn viðurkenna mistök og segjast ekki hafa vitað um börn
að leik nálægt árásarstaðnum í fjallaþorpinu Hutala. Árásinni hefði verið
beint gegn Mullah Wazir, fyrrum leiðtoga íslamskra harðlínusamtaka.
GRAFIR NÍU BARNA
Útför barnanna níu, sem fórust í loftárás Bandaríkjamanna á íbúðarhús í fjallaþorpinu Hutala í Afganistan á laugardaginn,
fór fram strax í gær.
AFGANISTAN Hamid Karzai, forseti
Afganistan, hefur lýst harmi sín-
um vegna dauða níu barna sem á
laugardaginn fórust í sprengju-
árás bandarískrar sprengjuflug-
vélar á íbúðarhús í fjallaþorpinu
Hutala í Ghazni-héraði, um 150
kílómetra suðvestur af höfuð-
borginni Kabul.
Hann sagði að ríkisstjórnin
hefði sent lið rannsóknar- og
embættismanna til þorpsins til
þess að tryggja öryggi á svæðinu
og veita fjölskyldum barnanna
alla nauðsynlega aðstoð. Áður
hafði Lakhdar Brahimi, sendifull-
trúi Sameinuðu þjóðanna í
Afganistan, fordæmt árásina og
lýst henni sem dæmalausu klúðri
sem kallaði á skjóta rannsókn.
Yfirmenn bandaríka herliðsins
í Afganistan hafa viðurkennt að
um mistök hafi verið að ræða og
sögðu að árásinni hefði verið
beint gegn Mullah Wazir, fyrrum
leiðtoga íslamskra harðlínusam-
taka í héraðinu.
Zalmay Khalilzad, sendiherra
Bandaríkjanna í Afganistan, sagði
að Wazir hefði farist í árásinni, en
þorpsbúar og opinberir embættis-
menn sögðu aftur á móti að hann
hefði sloppið lifandi eða hefði alls
ekki verið í þorpinu þegar árásin
var gerð.
Aðrir þorpsbúar sögðu að einn
fullorðinn maður hefði farist í
árásinni og hugsanlega hefði það
verið Wazir.
Að sögn sjónarvotta lágu sund-
urtætt lík barnanna og fatnaður
eins og hráviði í sprengjurústun-
um innan um sprengjubrotin.
„Þau voru að leika sér í boltaleik
þegar árásin var skyndilega
gerð,“ sagði faðir átta ára gamals
drengs sem fórst í árásinni. Mað-
urinn fullyrti að það hefði ekki
verið Wazir sem lést í árásinni
heldur frændi hans. Sjálfur hefði
Wazir farið í burtu fyrir hálfum
mánuði.
Christopher West, talsmaður
bandaríska hersins í Kabul, sagði
að bandarísk hersveit hefði strax
verið send á vettvang og kennsl
verið borin á lík Wazirs. „Það var
þá sem við uppgötvuðum að börn-
in höfðu látist í árásinni. Við viss-
um ekki að þau hefðu verið að
leika sér í nágrenninu,“ sagði
West.
Umræddur Wazir er grunaður
um að hafa staðið á bak við morð
á tveimur starfsmönnum verk-
takafyrirtækis, sem vinnur að
vegalagningu í Ghazni-héraði, en
fimm öðrum starfsmönnum fyrir-
tækisins hefur verið rænt á síð-
ustu dögum. ■
Kona staðin að verki:
Brotist inn
í bíla
LÖGREGLA Kona í annarlegu ástandi
var staðin að verki aðfaranótt
sunnudags þegar hún var að brjót-
ast inn í bíl í Reykjavík. Konan
var handtekin af lögreglunni og
vistuð á lögreglustöðinni yfir
nóttina. Málið telst upplýst.
Samtals voru þrjú bílainnbrot
tilkynnt til lögreglunnar í Reykja-
vík í gær. Brotist var inn í bíla í
Grafarvogi, Breiðholti og í Túna-
hverfinu í Reykjavík. Engar
skemmdir voru unnar á bifreiðun-
um og þjófarnir tóku aðeins lausa
hluti eins og geisladiska og sól-
gleraugu með sér á brott úr bif-
reiðunum. ■
Miðborgin um helgina:
Þrjár
líkamsárásir
LÖGREGLA Nokkuð var um líkams-
árásir í miðbæ Reykjavíkur að-
faranótt sunnudags. Um tvöleytið
var tilkynnt til lögreglu að þrír
menn hefðu gengið í skrokk á ein-
um í Hafnarstræti. Fórnarlambið
lá eftir í götunni og var flutt á
sjúkrahús af lögreglu en árásarað-
ilarnir sluppu. Ráðist var einnig á
mann í Austurstræti og hann flutt-
ur á sjúkrahús af lögreglu. Fórnar-
lambið kærði árásarmanninn í kjöl-
farið.
Á sunnudagsmorguninn lá mað-
ur við Hlemm fótbrotinn eftir lík-
amsárás. Hann var fluttur á
sjúkrahús með sjúkrabíl. Árásar-
aðilinn var handtekinn og vistaður
hjá lögreglu. Málið er í rannsókn. ■
Lyfjamál:
Einkaleyfi
ósannað
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur hefur úrskurðað í máli sem
Thorarensen Lyf ehf. höfðaði gegn
Lyfjaveri efh. varðandi innflutn-
ing á lyfinu Xeloda til landsins.
Thorarensen Lyf taldi sig hafa
einkaleyfi til að flytja lyfið til
landsins en samkvæmt úrskurði
héraðsdóms lágu engar sannanir
fyrir þess efnis. Héraðsdómur
staðfesti þar með ákvörðun sýslu-
mannsins í Reykjavík um að synja
beiðni Thorarensen varðandi það
að setja lögbann á innflutning
Lyfjavers. Var Thorarensen dæmt
til að greiða Lyfjaveri 180 þúsund
krónur í málskostnað. ■
Bandaríkjamenn eru
óttaslegnir:
Sprengioddar
horfnir
RÚSSLAND Geislavirkra sprengi-
odda, sem kallast Alazan og voru
upphaflega smíðaðir fyrir veður-
athuganir, er nú saknað. Oddarnir
voru upphaflega í eigu aðila frá
Sovétríkjunum fyrrverandi sem
áttu í innbyrðis deilum eftir að
veldið liðaðist í sundur.
Talið er að oddarnir, sem eru
afar hættulegir, séu 38 talsins.
Ekki er vitað til þess að þeir hafi
nokkru sinni verið notaðir. Síðasti
geymslustaður þeirra sem vitað
er um, var í ríkinu Transdniester
sem öðlaðist sjálfstæði frá
Moldavíu fyrir 12 árum. Banda-
rísk yfirvöld eru óttaslegin vegna
þessa en talið er að oddarnir séu
nú til sölu á svörtum markaði.
Talið er að her Sovétríkjanna
sálugu hafi skilið eftir sig allt að
50.000 tonn af vopnum þegar
herinn hörfaði. Þar er um að ræða
fallbyssuskot, jarðsprengjur og
eldflaugar. Magnið er slíkt að það
myndi fylla 2.500 flutningabíla.
Óttast er að vopnin lendi öll á
svartamarkaði, líkt og geislavirku
sprengioddarnir. ■
ROBERT MUGABE
Mugabe, forseti Simbabve, líkir ársþingi
Breska samveldisins við Animal Farm
Orwells.
Breska samveldið:
Simbabve
verði óbreytt
NÍGERÍA Ársþing Breska samveld-
isins samþykkti í gær að Sim-
babve yrði áfram úti í kuldanum
eins og umræðuhópur sex lykil-
ríkja samveldisisns lagði til, en
ársþing þess fer nú fram í Abuja í
Nígeríu. Umræðuhópnum, sem
skipaður var fulltrúum Jamaíku,
Ástralíu, Kanada, Indlands, Mó-
sambík og Suður-Afríku, var sér-
staklega ætlað að leggja mat á
stöðu Simbabve innan Samveldis-
ins og voru fimm þeirra, að Suður-
Afríku undanskildri, sammála um
að leggja til við þingið að staða
Simbabve yrði óbreytt. Á móti hef-
ur Mugabe, forseti Simbabve, sem
ekki var boðið til þingsins, hótað að
yfirgefa samtökin fyrir fullt og allt
og líkir samkomunni við sögusvið
„Animal Farm“ eftir George
Orwell. ■
LANDSPÍTALI
TIlvera skorar á stjórn Landspítala
- háskólasjúkrahúss og stjórnvöld að
sjá til þess að glasafrjóvgunardeild spíta-
lans fái það fjármagn sem til þarf.
Brotist inn í
tvö fyrirtæki:
Erótískur
þjófur
LÖGREGLA Brotist var inn í tvö fyr-
irtæki á höfuðborgarsvæðinu um
helgina. Spenntur var upp gluggi í
fyrirtæki í Holtahverfinu og far-
tölvu að verðmæti 200.000 krónur
stolið. Um eittleytið í gær var svo
brotist inn á erótíska nuddstofu í
Höfðahverfinu í Reykjavík. Rúð-
ur voru brotnar og 5000 krónur
teknar úr sjóðskassa en ekki er
vitað til þess að innbrotsþjófurinn
hafi haft með sér erótískan varn-
ing af vettvangi. ■