Tíminn - 24.07.1971, Side 6
TÍMINN
íiAUGARDAGUR 24. júlí 1971
DjQÐQnD
LESA
Sú var tíðin að myndarleg-
asta hús höfuðstaðarins var
betrunarhús. Þótt hús þetta,
Stjórnarráðshúsið við Lækjár-
torg, gegndi nú öðru hlutverki,
heldur það enn fyrri þokka.
Sögu hússins hefur dr. Björn
Þórðarson gert skilmerkileg
skil í riti sínu, Refsivist. Þar
kemst hann að þeirri niður-
stöðu, að betrunarhúsið á Arn-
arhóli, eins og það var kallað,
hafi í flestu staðið framar sams
konar stofnunum í nágranna-
löndunum í þann tíð. Við ís-
lendingar megum því muna
fífil okkar fegri í fangelsismál-
um.
Þetta rifjast upp fyrir mér
er ég heimsótti The State Peni-
tentiary í Santa Fe í New
Mexico í Bandaríkjunum fyrir
skömmu. Langar mig til að
segja ykkur lítillega frá þeirri
stofnun, sem ég tel okkur geta
lært mikið af.
Alríkisstjórnin kostar rekst-
urinn. Stofnunin er enn eins
konar tilraun í mannúðlegri
refsiftamkvæmd. Þangað eru
sendir margir stórglæpamenn
víðs vegar að úr Bandaríkjun-
um. Ný húsakynni í fögru um-
hverfi eru vistleg og einstak-
lega hreinleg, fatnaður fang-
anna þokkalegúr og viðurværi
eins og á hóteli. (Þess má geta
til gamans, að mér var boðið
til fjórréttaðs hádegisverðar í
fangelsinu og þegar ég hafði
orð á, hve maturinn væri ljúf-
fengur sagði fangelsisstjórinn:
„Það finnst föngunum líka.
Þeir\ fá nefnilega sams konar
fæði og við.“
Allir æðstu menn stofiiunar-
innar eru doktorar í sinni fræði
grein (læknir, lögfræðinguv,
sálfræðingur og meira að segja
heimspekingur). Kjörorð stofn-
unarinnar mætti vera: Mann-
bót. Með þá einföldu staðreynd
í huga, að fangar eru lík'
menn, sem flestir eiga ein-
hvern tíma afturkvæmt til
hins frjálsa þjóðfélags, er kapp
kostað að meðhöndla þá
þannig, að þeir geti orðið nýtir
þegnar. í því skyni er þeim
veitt sálfræðiþjónusta, og gef-
inn kostur á margs konar námi
og starfi. Fjöldi hámenntaðra
kennara starfa í fangelsinu og
það sem meira er, margir
þeirra eru fangar, sem hafa
tekið próf innan fangelsis-
veggjanna. Gafst mér kostur á
að ræða við einn, sem 17 ára
gamall var dæmdur í 50 ára
fangelsi og hafði setið inni í
23 ár. Áttum við langat sam-
ræður og svo vel geðjaðist
mér að manninum, að ég
gleymdi að spyrja hann, hvað
hann hefði brotið af sér, og
var hann þó búinn að segja
mér, að hann hefði á sínum
tíma verið hundeltur maður í
USA. Hann hafði lokið prófi
sem kennari og vegna mennt-
unar sinnar og góðrar hegðun-
ar eygði hann nú möguleika
frelsisins. („Ég mun aldrei
fremja glæp framar. Ég þarf
ekki að hefna mín á þjóðfé-
laginu, en það á heldur ekki
að hefna sín á mér“). Og þá
datt mér í hug, hvort ekki
væri kominn tími til, á tuttug-
ustu öld, að hverfa frá hinni
gömlu kenningu um auga fyrir
auga og tönn fyrir tönn, sem
hefur sett alltof rík mörk á
refsiframkvæmd flestra ríkja.
Björn Þ. Guðmundsson.
KROSSGÁTA |
NR. 848
Lóðrétt: 1) Orðhvöt 2) Mán- f
uður 3) Hætta 4) Öskur 6) {
Kefli 8) Strákur 10) Fæða j
14) Sannfæring 15) Agnúi í
17) Lindi.
Láusn á krossgátu nr. 847:
Lárétt: 1) Hendur 5) Áir 7)
Næm 9) Ref 11) Dr 12) H
13) UUU 15) Uni 16) Mór
18) Blóðug.
Lóðrétt: 1) Hundur 2) Nám
3) DI 4) Urr 6) Efling 8)
Æru 10) Ein 14) Uml 15)
Urð 17) 00.
Lárétt: 1) Maður 5) Illæri 7) Fugl
9) Gin 11) Varma 12) Kusk 13)
Bók 15) Tog 16) Rugga 18) Stafl-
ar.
Herrasumarjakkar
5 gerðir — 5 stærðir. Kr. 2.700,00
LITLI-SKÓGUR
Snorrabraut 22. — Sími 25644.
\
— Sendum gegn póstkrSfu. —
Rauðblesóttur hestur, 5 vetra, óniarkaður, skeifu-
laus á öðrum afturfæti, tapaðist frá Geithálsi hinn
11. þ.m.
Þeir, sem geta gefið upplýsingar eru góðfúslega
beðnir að láta vita í síma 18851 eða 14388.
Björn Pétursson, Lindarbraut 4, Seltjamarnesi.
FERDAFÓLK
Verzlunin Brú, Hrútafirði býður yður góða þjón-
ustu á ferðum yðar. Fjölbreytt vöruval. Verið
velkomin.
Verzlunin Brú, Hrútafirði.
Laxveihi í Soginu
Nokkrar stangir lausar í ágúst og sept. Upplýsing-
ar í síma 24534 á morgun og næstu daga.
Veiðileyfi einnig seld í Veitingaskálanum að
Þrastarlundi.
VERÐLAUNAPENINGAR
VERÐLAUNACRIPIR
FÉLACSMERKI
Magnús E. Baldvlnsson
Laugavegl 12 - Slml 22804
Veljið yður í hag - Úrsmíði er okkar fag
OMEGA
Nivada
Jtlpina.
PIERPOm
Magnús E. Baldvinsson
Laugavegi 12 - Sfmi 22804
Sólun
SÓLUM HJÓLBARÐA Á FÓLKSBÍLA,
JEPPA- OG VÖRUBÍLA MEÐ
DJÚPUM SLITMIKLUM MUNSTRUM.
Ábyrgð tekin d sólningunni.
Kaupum notaða sólningarhæfa nylon-hjólbarða.
önnumst allar .viðgerðir hjólbarða með
fullkomnum tækjum.
GÓÐ ÞJÓNUSTA. — VANIR MENN.
BARÐINN HF.
Ármúla 7. — Sími 30501. —Reykjavík.
/
ÚTBOÐ
Bæjarsjóður Keflavíkur óskar eftir tilboðum í
gerð gangstétta við Hringbraut í Keflavík.
Útboðsgögn verða afhent í skrifstofu bæjartækni-
fræðings mánudaginn 26. og þriðjudaginn 27. júlí
1971, kl. 14.00—15.00.
Tilboðin verða opnuð 1 skrifstofu bæjarstjóra að
Hafnargötu 12, Keflavík, þriðjudaginn 3. ágúst
1971, kl' 14.00. \
Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem
er, eða hafna öllum.
Bæjarskrifstofur Keflavíkur.
I
f