Tíminn - 24.07.1971, Side 7

Tíminn - 24.07.1971, Side 7
EAUGARDAGUR 24. júlí 1971 TÍMihJN 7 Leiötogar byltingarinnar í Súdan teknir af lífi NTB-Kairó, föstudag. Leiðtogar hinnar skammlífu byltingar, sem gerð var í Súdan á mánudaginn, týna nú lífinu hver af öðrum. Aðalleiðtoginn, Hashem El Atta, majór og þrír herforingjar aðrir, sem stóðu með honum að byltingunni, voru í dag teknir opinberlega af lífi rétt eftir að sérstakur herdómstóll hafði dæmt þá til dauða. Ástandið í landinu virðist rólegt í dag, og hefur Numeiry hershöfðingi öll völd í hendi sér. Tveir aðrir herforingjar, sern voru í byltingarráði E1 Atta — þeir Bakakr E1 Nour, sem gerður var að formanni byltingarráðsins, og Faruk Osman Hamadallah héldu í dag áleiðis frá Libyu til Súdan. Sem kunnugt er af frétt- um, voru þeir teknir úr flugvél sem neydd 'var til að lenda á fimmtudag, þegar hún flaug yfir líbyskt land, og hafðir í haldi hjá Fréttir frá Kartoum, höfuðborg Súdans í dag herma, að yfirleitt hafi allt verið rólegt í landinu. Hins vegar kom til átaka í morg- un rnilli hermanna ríkisstjórnar- innar og leyniskytta, og lentu nokkur skot þá í brezka sendiráð inu í borginni. Síðdegis í dag hóf- ust bardagar að nýju í borginni, og var brynvörðum bifreiðum beitt gegn leyniskyttum. í kvöld hélt ríkisstjórn Súdans fund til að ræða ástandið í land- inu. Þeir, sem teknir voru af lifi, voru auk E1 Atta, yfirmaður líf- varðar Nimeii-ys, forseta, Osman Hussein majór, yfirmaður þriðju skriðdrekasveitar hersins, Abdel Monin Ahmed að nafni, og Mouai Abdel Hai, majór. Numeiry hershöfðingi átti í dag símviðtal við útvarpsstöðina „Rödd Súdans“ í Karró. Þwr sagðí hann, að E1 Atta og stuðnings- menn hans hefðu tekið af lifi 16 herforingja og 14 undirmenn þeirra, eftir að þessir 30 menn höfðu verið handteknir í bylting- unni á mánudaginn. Nimeiry tók við völdum í Súdan 1969. Hann hefur bælt niður a.m. k. þrjár byltingartilraunir síðan. í febrúar réðist hann gegn komm- únistum, og gerði m.a. þrjá helztu leiðtoga byltingarinnar á mánudag inn — E1 Atta, E1 Nour og Os- man Hamadallah — valdalausa. Hann hefur nú hafið enn ákafari baráttu gegn kommúnistum í land inu. BabakrEI Nour, fomia'ður byltingarrá'ðsins sem var. nú á lei'ð frá Líbýu til Súdan. Rabaul, Nýja Bretlandi. — myndinni sézt presturinn Marvel Loisello (efst til hægri), sem er Kanadamaður af frönskum ættum, ásamt sex Filippseyjamönnum — þar af fimm börnum. Myndin er tekin þegar þau komu til Raboul á Nýja-Bretlandi 20. júlí síðast liðinn, eftir að liafa rekið á litlum báti um Kyrrahafið í 37 daga. Þeim tókst að halda lífi með því að nota brúðarslör sem net til að veiða fisk, að sögn prestsins. 11. júní síðastliðinn frá Davao í suður hluta Filippseyja og ætlaði til Sarangani-eyjar, þar sem hátíð stóð yfir — en milli eyjanna er aðeins tveggja klukkustunda sigl ing. Vél bátsins bilaði á miðli leið, og það var fyrst eftir 1200 sjómílna ferð um Kyrrahafið að flutningaskip kom að þeim og þar með var þeim borgið. — (UPI) Lögreglan á Ítalíu í sókn gegn Mafíunni: Hefur handtekið 59 glæpamenn á 9 dögum NTB—Palermo, Sikiley, föstudag. Lögreglan handtók í dag 23 mcnn, sem grunaðir eru um að vera í þjónustu Mafíunnar, í mikilli ,,razzíu“ víðs vegar um Ítalíu. Þetta er í annað sinn, sem lögreglan handtekur mikinn fjölda manna úr glæpa- samtökunum síðustu níu dagana, og hafa alls 56 menn verið teknir. 35 Mafíuleiðtogar dvelja nú sem stendur í gæzluvarðhaldi á ýmsum eyjum í Miðjarðarhafi. Ýmsir aðr- ir Mafíuleiðtogar, þar á meðal Joe Adonis, sem eitt sinn var alræmd- ur glæpamaður á austurströnd Bandaríkjanna, er í gæzluvarðhaidi í afskekktu þorpi á Ítalíu. Ein þeirra, sem handtekin var í dag, var 37 ára gömul kona, Elisa- betta Indelicato de Calogero. Þetta er í annað sinn, sem glæpakvendi innan Mafíunnar er handtekið í þeirri herferð gegn Mafíunni, sem nú stendur yfir á ítalíu. Þann 13. júlí fóru yfirvöldin fram á, að önnur kona, Antonietta Bagar- ella, yrði send í útlegð. 13 Mafíumenn nafa verið hand- teknir í þessum mánuði fyrir morð á kaupsýslumanni, sem þeir ósk- uðu eftir að „fjarlægja". Tveir menn úr Mafíufjölskyldunni, sem lögreglan telur að stjórni glæpa- samtökunum í Palermo — þar sem ríkissaksóknarinn var myrt- ur 5. maí síðastliðinn — voru einnig handteknir. Margir þeirra, sem handtekuir voru í dag, hafa tekið þátt í glæpa- starfsemi Mafíunnar, sem tröllrið- ið hefur Palermo um árabil. Níu mannanna eru grunaðir um að hafa tekið þátt í eiturlyfja- verzlun Mafíunnar. VAN HEFLIN ER LÁTINN NTB—Hollywood, föstudag. Bandaríska kvikmynda- og sjón varpsstjarnan Van Heflin andaðist í dag úr hjartaslagi. Hann hafði Icgið meðvitundarlaus á sjúkra- húsi síðan 6. júlí s.I. er hann fékk slag. Hcflin fékk Oscarsverðlaun fyrir beztan leik í karlhlutverki árið 1942 fyrir leik sinn í kvik- myndinni Johnny Eager. Hann lék síðast í kvikmyndinni Airport eða Flugstöðin, sem nýtur mikilla vin- sælda. Brezki herinn gerir húsleit í 10 borgum og bæjum Norður-írlands: Reyna að útrýma lýðveldkhemum NTB-Belfast, föstudag. Um það bil 30 manns voru handteknir, og þúsundir hluta og skjala tekin tnaustataki, þegar rúmlega 1000 lögreglumenn og hermenn gerðu húsleit í hverfum kaþólikka í 10 borgum og bæjum á Norður-írlandi i dag. Húsleitin var gerð í þeim hverfum, þar sem talið er, að hinn ólöglegi írski lýðveldisher (IRA) eigi stuðningsmenn, og er |jetta liður í tilraun brezka hersins til þess að útrýma IRA- Það var skömmu fyrir sólarupp- rás í morgun, að brezkir hermenn og lögreglumenn í 10 borgum og bæjum — þar á meðal Belfast — sóttu inn í mörg hverfi ka- þólskra. Auk hermanna og norður írskra lögreglumanna, tóku rann- sóknarlögreglumenn frá Scotland Yard, sem sendir voru til Norður- írlands, til þess að rannsaka mörg pólitísk morð í landinu, einnig þátt í aðgerðunum i morgun. Þetta er stærsta slík aðgerð í land inu, í sögu Norður-írlands. Þessar aðgerðir í morgun hafa leitt til þess að nú ganga um það sögur, að norður-írska ríkisstjórn- in muni handtaka alla þá. sem grunaðir eru um virkan stuðning við írska lýðveldisherinn, og setja i fangelsi án dóms og laga. Aðrir telja hins vegar, að þessár aðgerð ir hafi einkum verið gerðar í því skyni, að reyna að afla nægilegra sönnunargagna til þess að geta handtekið leiðtoga írska lýðveldis hersins og dæmt þá samkvæmt migildandi lögum. Brezka inanríkisráðuneytið sendi í dag út yfirlýsingu um að- gerðirnar í Norður-írlandi, og sagði, að þær sýndu, að brezki herinn i Norður-írlandi myndi ekki aðcins beita sér gegn óeirð- um og valdbcitingu, heldur einnig reyna að handtaka þá menn, sem beri ábyrgðina á átökunum. af stað s~ ÞORHF ,-J Ármúla 11 Skótavórðust, 25 EVINRUDE Ú FÆST STÓRI< NÚ NÆST SÁSTÓBI NÚ MÁ >SÁ STÓRS< FARA AÐ VARA SIG Litill mótor.hraöskreiður, hljóölátur.laus viö titring léttbær og gangviss, 4 sparneytin hestöfl FREMSTiR i flokki FYRSTIR

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.