Tíminn - 24.07.1971, Side 8

Tíminn - 24.07.1971, Side 8
6 TIMINN LAUGARDAGUR 24. júlí 1971 Það verður vafalaust flest um fyrir, sem leita eftir mikil- vægri fyrirgreiðslu í vorri há- turnuðu höfuðborg, ReykjavDc, að leggja leið sína þangað, sem glerhallir rísa hæst frá grunni, því að þar eru til húsa flestar þær stofnanir, sem gefa fólkinu í landinu vísbendingu um veginn til mannsæmandi lífs. Os hver trúir því, að sú leið sé ekki fremur auðveld í þjóðfélagi, sem byggir slíkar hallir sem vistarverur fyrir skrifstofuvélar, skjalamöppur og vinnustað handa þeim hluta þjóðarinnar, sem sjaldan er með sára lófa að lokinni dags- önn. — Mitt mikilvæga erindi í dag verður þó ekki leyst með neinni glerhallargöngu. — Ónei. Leið mín liggur inn Hverfisgötu og þar staðnæm- ist ég fyrir utan ósköp venju- legt hús frá dögum þeirrar kynslóðar, sem senn tilheyrir liðinni sögu. Þar sting ég mér niður í kjallara sem hvorki er hár til lofts né víður til veggja, enda þótt starfsemin, sem þar er rekin eigi sér meira en hálfr- ar aldar sögu. Nokkur þung högg innan dyra gefa til kynna að ein- hver er hér að verjki, Við vinnuborðið situr mikil- leitur maður og fitlar við ljósa frúarskó. Ef til vill verður honum hugsað til þess að gam- an gæti verið að strjúka fót- inn, sem passar í þennan skó. Það er líka hægt að hugsa ástúðlega í sambandi við skó. Páll Ólafsson kvað: „Ég vildi écr mætti vera strá og visna í skónum þínum. Léttast gengirðu eflaust á yfirsjónum mínum“. Er húsbóndinn viðlát- inn? Nei, hann er ekki kom- inn úr mat. Óli ætlfi” s'nt að liðsinna mér. Eg ei með 'Uu óhre'm- H1 að láta sjá mig í bævri .um fái ég ekki fyrirgrtiðszu nei í kjallaranum. Hann leggur mjúklega frá sér frúarskóinn, hristir höfuð- ið yfir útganginum á mér og tekur svo til óspilltra mál- anna. Við röbbum saman á meðan. Ég heiti Óli Kristinn Frí- mannsson, fæddur að Deplum í Stíflu 22. apríl 1904. Foreldr- ar mínir voru Frímann Steins- son og Sigurbjörg Friðriks- dóttir. Stífian var fögur sveit. Það voru náttúruspjöll þegar henni var sökkt. Foreldrar mínir fluttu út í Ólafsfjörð þegar ég var barn að aldri og þar ólst ég upp. Þau voru fátæk, áttu ekkert jarðnæði og bjuggu því sem leiguliðar á pam ýmissa jarða í firðinum — / Þverá, Vatns- enda og Burstarbrekku. Ólafsfjörður resku minnar Óli Frímannsson við leistann. var allur annar en sá, sem menn þekkja núna, enda þótt svipmynd láðs og lagar sé hin sama. Fyrstu ár vélbátaútgerð- arinnar voru enginn sældar- tími fyrir fólkið í firðinum. Þá var þar engin höfn oa allir bátar, sem ekki voru uppi á landi í voða, ef ''"rulega brim- aði. Það fékk margur útgerð- armaðurinn ónotaskell á þeim árum. r"i’):gur foreldra rninna laguðist þegar við fluttum út í Hornið, því að þá fóru elztu drengirnir að stunda sjó. — Ég ég reri aldrei. Ég missti vinstri fótinn þegar ég var tíu ára gamall. Fyrst fékk ég einhver óþægindi og varð stinghaltur og hafði þrautir. Engin tök voru á að ná í lækni þar sem þetta var að vetri til og ófært út úr firð- inum bæði á sjó og landi. Krankleiki minn ágerðist stöð- ugt. Að síðustu lægði veðrið og þá var farið inn til Akureyrar að na í matbjörg handa fólk- inu. Ég var þá tekinn með og komið til læknis, sem þá var Steingrímur Matthíasson. En líklega var ég heldur seint á ferðinni, því að það var komin áta í beinið. svo taka varð af fótinn. Ekki aðeins einu sinni heldur tvisvar. Fyrst fyrir neð- an hné en þá varð blóðrásin ekki stöðvuð, svo að hafizt var „Eina vertíð reri ég á Siglufirði, en það var svo erfitt að staulast við hækju á sjónum, að ég gafst upp við þá tilraun“ og lét ekki mikið yfir sér. Ef strákarnir buðu honum í krók rétti hann kannski fram litla fingurinn, en engum tókst að rétta hann upp. Eina vorvertíð reri ég á Siglufirði, en það var svo erfitt að staulast við hækju á sjón- um, að ég gafst upp við þá tilraun. Lent í illhleypu? Ég veit ekki hvað segja skal. Jú, lík- lega. Við fórum einu sinni fimm saman á árabát frá Ólafs firði. Allt gekk vel inn að Hjalteyri og þar gistum við um nóttina. Árla næsta morg un fórum við af stað. Þá var logndrífa og ætluðum við grunnleið inn með landi. En þá var svo grunnt á Hörgár grunninu að báturinn stóð. Við snerum þá frá og rerum sem við gátum fram fyrir grunnið. En þá kom kvellurinn á okk ur, norðan stórhríð með hörku frosti. Það sást ekki út úr aug handa á nýjan leik og þá að- eins skilinn eftir sex þuml- unga stubbur af lærinu. Tókst þeim þá í félagi, Steingrími og Valdimar Stefensen, að hindra það að úr mér rynni allt blóð- ið. Á sjúkrahúsinu lá ég svo í 9 vikur en fór því næst heim til foreldra minna í Ólafsfirði, einfættur með hækju. Þetta var nú svo sem ekkert auðveld æska, sízt á stað eins og Ólafsfirði, þar sem öll sæmi- ieg lxfsafkoma krafðist mann- taksmanna. Strax eftir ferm- ingu fór ég því inn tii Akur- eyrar og lærði söðlasmíði hjá Halldóri Halldórssyni. Við þetta var é á vetrinum, en á sumrin fór ég til Siglufjarðar og stundaði skósmíðanám hjá Guðlaugi Sigurðssyni skósmið. Hann hafði danshús og bar spilaði ég á harmonikkuna mína. Það var fjörugt líf á Siglufirði í þá daga, hanmo- nikkan og „púrtarinn" sáu fyr- ir því. Þá var nóg síld og þar af leiðandi margt aðkomufólk. Norðmennirnir voru stundum fyrirferðarmiklir. Þegar þeir héldu böll, þorðu stelpurnar helzt ekki að fara nema -ein- liverjir íslenzkir strákar væru með. Þær töldu sig meira að segja öruggari þótt það væri bara ég, á einum fæti. Já, faðir minn var sterkur, en hann var hæglætismaður unum og við vorum orðnir rennblautir af sjórokinu. Að síðustu náðum við þá upp und ir verksmiðjuna á Dagverðar eyri, komumst á land, brýnd um bátnum og hvolfdum hon um yfir dótið. En þá var eft ir að finna bæjarhúsin. Við stóðum þarna skjálfandi af kulda og verður ekki sagt, að það væri björguleg líðan. Tveir fóru að leita bæjarins og sögðu þeir okkur að brjótast inn í verksmiðjuna fremur en hel kala þarna úti, ef þeir kæmu ekki fljótlega aftur. Þeir fundu öskuhaug og gaf hann vísbendingu um það hvar bæjarhúsa mundi að leita. Þegar þeir komu aftur hímd um við þarna á sama stað og höfðum enga tilraun gert til innbrots, enda veit ég ekki hvort við hv/fðum verið menn fyrir þvílíkum stórræðum. En nú gat ég ekki gengið við hækjuna og varð einn að taka mig á bakið og bera til bæjar. Þarna sátum við svo hrfðar tepptir í tvo daga, nema hvað maður var sendur inn til Ak ureyrar til þess að láta vita út í Ólafsfjörð, að við værum lif andi. Á þriðja degi stytti upp og var þá ferðinni haldið áfram. Ég varð svo eftir á Akureyri hjá Halldóri söðlasmið, en hin ir héldu heitnleiðis til Ólafs fjarðar, var þá bezta veður. Þegar út undir múlann kom, var svo mikill hafsjór í fjarð armynninu, þótt lygnt væri, að þeir urðu að snúa við og lensa inn á Dalvík, og þar upp í fjöru. En þá brimaði svo við Böggversstaðasand að yfir gekk bátinn og öll varan eyðilagðist. Eftir að hafa verið ýmist á Akureyri eða Siglufirði í nokk ur ár, fór ég til Reykjavíkur og fór að skóa hjá Þórami Magnússyni á Laugaveginum. Á þeim árum var skósmíði sæmileg atvinna og alltaf nóg að gera. Fólk hirti vel um skó tau sitt og henti því ekki fyrr en það var orðið svo slitið, að viðgerð hvorki borgaði sig- né var fratnkvæmanleg. Á þessu hefur orðið talsverð breyting. c Hins vegar er skóvinna mun léttari nú en áður var. Þetta er orðið mest limingar og véla vinna. Og svo liggur leiðin út í Vest mannaeyjar, til þess að skóa og jafnframt til að halda uppi gleðinni. Ekki skorti ölið & könnuna. Það var alltaf verið að lífga mann upp, svo að harmonikkan yrði f jörugri. í Vestmannaeyjum likaði mér vel og þar kvæntist ég Sólveigu Eysteinsdóttur, ætt aðri úr Landeyjunum. yið átt- um satnan tvo drengi, sem nú eru búsettir á Hvolsvelli. Við hjónin bárum ekki gæfu til samþykkis og slitum því samvistum. Hjónaband sem endar með skilnaði er aldrei nema hálfsögð saga. Á Týsgötunni skóaði ég í 12 ár og nú hef ég verið héma í kjallaranum hjá honum Ferdinant í 6 eða 7 ár. Þetta er ágætt. Ég hef alltaf verið hraustur að öðru en því sem snertir þessa fötlun. Ég er ekki með neinar vangavelt- ur út af ungu fólki eða spillt- um heimi. Það hafa alltaf ver- ið báruskvettur hjá mannkind- inni öðru hvoru síðan hún fór að ganga upprétt. En nú er ég hættur að vera með, nikkan er þögnuð Oa ég er farinn að taka öllu rólega. „Þegar fjörið fer að dofna færist kyrrðin nær.“ Jæja, þá er þetta búið og Óli réttir mér gljáfægða skóna með nýjum hælum. Þá er mér víst ekkert að vanbúnaði og get gengiö á vit þeirra .sem hærra tróna. Svo er honum Óla í kjallar- anum fyrir að þakka. Þ.M.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.