Tíminn - 24.07.1971, Síða 12

Tíminn - 24.07.1971, Síða 12
ÍÞRÓTTIR TÍMINN MH'MIIIia LAUGARDAGUR 24. júlí 1971 í sunnudagsblaðmu MYNDARLEG TiLRAUN, EN ÁRANGURINN EKKi EFTIR ÞVÍ í þættinum „Á vítateigi", sem birtist í blaðinu á morgun, svarar Alfreð Þorsteins* son grein Morgunblaðsins í gær. Mikið verSur um aS vera í íþróttum um þessa helgi. Stærsti viðburðurinn er Sundmeistaramót íslands, sem hefst í Laugardalslauginni í dag. í knattspyrnunni verður leikið í ölium deildum, en þar vekur leikur ÍBK og Fram í 1. deild mesta athygli. í frjSlsum íþróttum verður keppt á Akur- eyri, en þar fer fram B-mót FRÍ, og um helgina lýkur meistaramótum golfklúbbanna um allt land. Nánar um þetta svo og tímasetningu er að finna hér á síðunni undir „ÍÞRÓTTIR UM HELGINA" íslenzkt dómara- tríó á Highbury Klp—Reykjavík. — Knatt- spyrnusamband Evrópu hefur óskað eftir því að tvö íslenzk dómaratríó verði útnefnd á tvo leiki í fyrri umferð í Evrópu- keppninni í knattspyrnu. Leik- irnir eru Lyn, Noregi—Sport- ing Lisboa, Portúgal, sem er síðari lcikur liðanna í Evrópu- keppni bikarmcistara, og leik- ur Arsenal og Strömgodset frá Noregi, í Evrópukeppni deild- armeistara, sem fram fer á Highbury lcikvanginum í Lond. í gær var ekki búið að' ákveða hverjir yrðu valdir til að dæma þessa leiki, en ísland liefur 7 milliríkjadómara á sínum snær um, og verða 6 þeirra útnefnd- ir í þessa leiki. Þessir 7 menn eru: Guðmundur Haraldsson, Hanncs Þ. Sigurðsson, Magnxis Pétm-sson, Guðjón Finnboga- son, Rafn Hjaltalín, Valur Benediktsson og Einar Hjart- arson. Víkingur sigraði í mitiningaieiknum Klp-Reykjavík. Fyrir skömmu gaf Halldór Árha son, skósmiður, veglegan bikar til minningar urn tvo félaga úr knatt- spyrnufélaginu Þór á Akureyri, þá Kristján Kristjánsson og Þór- arin Jóusson. cn þeir fórust í bílslysi á leið til Bolungarvíkur í keppnisferð með Þór fyrir nokkr um árum. Um bikarinn skal keppt einu sinni á ári og skai Þúr þá b.jóða einhverju liði til Akureyrar og leika við það. Sigurvegarinn í leiknum fær bikarinn til geymslu í eitt ár. Á miðvikudaginn lék 2. deildar lið Víkings við Þór á Akureyri um þennan bikar, og lauk leiknum með sigri Víkings 2:1. Var fyrri hálfleikurinn góður en sá síðari öllu lakari. Með Þór leika um helmingur af 1. deildarleikmönn- um ÍBA, m.a. bræðurnir Magnús og Sævar Jónatanssynir, Gunnar Austfjörð og nokkrir af hinum nýju mönnum liðsins. Aðalhluti Sundmeistara- mótsins hefst i dag Aðalhluti Sundmeistaramóts Is- lands hefst í Laugardalslauginni kl. 18.00 í dag. Verður þá keppt í 11 greinum karla og kvenna. Á morgun (sunnudag) hefst keppn- in kl. 15.00, og þá einnig keppt í 11 greinum. í blaðinu í gær spáðum við um lirslit í þcim greinum, sem keppt verður í dag, en hér á eft- ir kemur spá um úrslit í síðari degi keppninnar: 100 m. flugsund karla. Hér ætti Guðmundur Gíslason að höggva nærri metinu sínu, Gunnar Kristinsson nær sennilega ,,SKRAPIГ SIGRAÐI SKOTANA! Skozka knattspyrnuliðið frá Glasgow, sem liér er í boði FH, lék í fyrrakvöld við svonefnt Faxa flóaúrval (21 ára og yngri). í því liði var safnað saman leikmönnum lir 2. deildarliðunum Víking og Þrótti, og ásamt 2 leikmönnum úr Breiðabliki, svo og leikmönn- um úr 2. og 3. aldursflokki. Þessu „skrapi“ tókst að sigra Skotana 2:0. Heldur lítið fór fyr- ir knattspyrnu í þessum leik, öllu minna hjá Skotunum, en þeir þóttu ekki sérlega prúðir né kurt- eisir á vellinum, en fyrir utan völlinn hefur verið til þeirra tek- ið fyrir prúðmannlega framkomu. Þeir leika tvo leiki í Vestmanna eyjum um helgina, en halda síð- an til Akureyrar, þar sem þeir mæta ÍBA á fimmtudag. öðru sætinu eftir harða keppni við Hafþór Guðmund'sson, KR. 200 m. bringusund kvenna. Helga Gunnarsdóttir vinnur þessa grein jafn örugglega og 100 m. Ingibjörg Haraldsdóttir verður önnur, en þriðja sætið fellur senni lega til Guðrúnar Erlendsdóttur, en hún verður ekki 'nema nokkr- um sekúndubrotum á undan nöfnu sinni, Magnúsdóttur, KR. 400 m. skriðsund karla. Hérna munu þeir Friðrik Guð- inundsson, KR og Gunnar Krist- jánsson berjast um titilinn. Við spáum Friðriki sigri, og ætti hann að höggva nærri metinu. Þriðji verður að líkindum Finnur Garð- arsson, með naumum sigri yfir Sigurði Ólafssyni. 200 m. baksund kvenna. Salóme Þórisdóttir sigrar og bætir sennilega metið og ætti einnig að ná lágmarkinu á Evrópu- mót unglinga, sem er 2:42,0. Halla Baldursdóttir, Æ, verður önnur og Helga Tómasdóttir, ÍBS þriðja. 200 m. fjórsund karla. Vonandi tekst Guðmundi Gísla- syni að bæta met.sitt í greininni. Hafþór verður annar og Ólafur Gunnlaugsson, KR þriðji. 100 m. skriðsund kvenna. Lísa R. Pétursdóttir sigrar og bætir sennilega met Hrafnhildar Guðmundsdóttur 1:05,2. Vilborg Júlíusdóttir verður önnur og Guð- munda Guðmundsdóttir þriðja. 100 m. bringusund karla. Leiknir Jónsson vinnur, en eft- ir harða keppni við Guðjón Guð- mundsson, ÍA, sem er mun sterk- ari á 100 m. en 200 m. Gestur Jónsson þriðji. ÁGÚST ÁSGEIRSSON, ÍR Ágúst Ásgeirsson, ÍR 18 ára gamall menntaskólanemi, fædd ur 15. júlí 1952. Ágúst hóf æfingar grið 1969 í millivegalengdum 800 og 1500 m. hlaupum og vakti ekki neina sérstaka athygli í upphafi. En áhugi hans og dugnaður komu fljótlega í ljós og hann sýndi miklar framfarir í fyrra og hljóp þá m.a. 800 m. á 2:02,6 mín. og 1500 m. á 4:12,2 mín. Hann tók þátt í Únglingalands keppni við Dani og N.-Þjóð- verja í Danmörku í fyrrasumar og stóð sig vel. f sumar hefur Ágúst bætt árangur sinn'verulega og bezti tími hans til þessa er 2:00,7 mín. í 800 m. hlaupi, 4:09,4 mín. í 1500 m. hlaupi og 53,7 sek. í 400 m. hlaupi. Aðspurður segist hann æfa 5 til 6 sinnum í viku í eina og hálfa til tvær klukkustund- um beztu greinum á yfirstand- ir í senn, cn keppir yfirleitt andi keppnistímabili, 800 m. einu sinn í viku. Ilann segist 1:57,5 mín., 1500 m. 3:59,0 mín. hafa sett sér takmörk í sín- og í 3000 m. hlaupi 8:55,0 mín. 200 m. flugsund kvcnna. Guðmunda Guðmundsdóttir vinn ur og bætir metið sennilega, Ingi- björg Haraldsdóttir önnur og Hild ur Kristjánsdóttir þriðja. 100 m. baksund karla. Guðmundur Gíslason sigrar Haf- þór annar og Páll Ársælsson þriðji. 4x100 m. fjórsund kvenna. Sveit Ægis sigrar og ætti að takast að bæta metið sem þær settu á meistaramótinu í fyrra. HSK-sveitin önnur og B-sveit Æg- is rétt á eftir.. 4x200 m. skriösund karla. Æsispennandi grein og verða sennilega 2—3 sveitir undir gamla metinu. Við spáum: 1. Ægir, 2. Ármann, 3. KR. KASTKEPPNI Frjálsíþróttadeild ÍR gengst fyr ir kastkeppni næstkomandi þriðju- dag (27. júlí), á Melavellinum og hefst hún klukkan 18.00. Keppt verður í eftirtöldum kastgreinum: Kringlukasti, karla og sveina Sleggjukasti, Lóðkasti. Keppt verður í 800 metra blauiú karla sem aukagrein strax að loknu kringlukastinu. Frjálsíþróttadeild ÍR. IÞROTTIR um helgin LAUGARDAGUR: Knattspyrna: Akureyrarvöllur kl. 16.00. 1. deild, ÍBA—ÍA. Vestmannaeyjavöllur kl. 16.00. 1. deild, ÍBV—KR. Melavöllur kl. 15.00. 2. deild Víkingur—Þróttur, Nesk.st. Hafnarfjarðarvöllur kl. 16.30. 2. deild, FH—Selfoss. ísafjarðarvöllur kl. 16.00. 2. deild ÍBÍ—Þróttur Rvík. Sund: Laugardalslaug kl. 18.00. Sundmeistaramót íslands. Frjálsar íþróttir: Akureyrarvöllur kl. 14.00. B-mót FRÍ. Golf: Nessvöllur. Meistarakeppni GN. Grafarholtsvöllur. Meistara- keppni GR. Hvaleyrarvöllur. Meistara- keppni GK. Vestmannaeyjavöllur. Meist- arakeppni GV. Akureyrarvöllur. Meistara keppni GA. Hólsvöllur, Leiru. Meistara- keppni GS. SUNNUDAGUR: Knattspyrna: Keflavíkurvöllur kl. 15.00. 1. deild, ÍBK—Fram. Vestmannaeyjavöllur kl. 16.00 Týr—GAUYC. Sund: Laugardalslaug kl. 15.00. Sundmeistaramót íslanfc. Frjálsar íþróttir: Akurevrarvöllur kl. 14.00. B-mót FRÍ. MÁNUDAGUR: Knattspyrna; Laugardalsvöllur kl. 20,30. 1. deild, Valur - Breiðv blik. — Vestmannaeyjavöllur kl. 20,00. ÍBV—GAUYC.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.