Tíminn - 01.10.1971, Blaðsíða 4

Tíminn - 01.10.1971, Blaðsíða 4
£etií Cií Ájéwúatp Þar sem sjónvarpið hafði aug- íýst það mjög rækilega, að sýndur yrði sl. sunnudag sérstakur þátt- ur um fólksflóttann úr nyrztu byggðum Strandasýslu, var al- mennt við því búizt, að um merki gan þátt væri að ræða. Þáttur- n Suður olli því miklum.von- brigðum. Efni það, sem um var fjallað, gefur að sjálfsögðu mikil tæki- færi til útfærslu í sjónvarpi. Fólk liefur eðlilega mikinn áhuga á að vita, hvernig fólk býr á þeim stöðum, sem nú leggjast í eyði, hvaða fólk býr þar, hvers vegna það flytur nú á brott, hvað það skilur eftir sig og hvaða hræring ar bærast í hug og hjarta þess, er það hverfur úr stórbrotnu og erfiðu umhverfi og heldur á mal- bikið í Reykjavík. Lítið sem ekkert af þessu komst til skila í þessum þætti, þar sem aðeins var talað við tvo eldri menn, og þeir að verulegu leyti spurðir um hluti sem málinu komu lítt við. Þarna búa væntan- lega einnig konur, ungt fól'k og börn — hvers vegna var ekki tal að við það? Ef sá skilnin^ur er réttur, að það sé einkum vegna unga fólksins, sem nyrztu héruð Strandasýslu leggjast að meira eða minna leyti í eyði, hví þá ekki að fá fram hjá unga fólkinu hvers vegna? Ein megin uppistaðan í þættin um Suður var svo að sýna ryðg uð tannhjól í síldarverksmiðju, sem reist var fyrir um 25 árum og komst eiginlega aldrei i gagn ið. Samhliða þessu var svo leik in tónlist eftir Bach. Hvaða tengsl sjónvarpsmenn hafa ímyndað sér að væru á milli síldarverksmiðju sem verið hefur ónotuð síðan á stríðsárum, og fólksflótta úr sama héraði í dag, 25 árum síðar, fæ ég eikjki skilið og víst fæstir aðrir. En þessi vitleysa hefur sennilega átt að vera eins konar list. Það ber vissulega að harma það, að ekki tókst betur til með gei-é þessarar myndar en raun ber vitni um — ekki sizt af þvi, að ýmsar innlendar myndir sjónvarps ins hafa sýnt, að þar eru til menn sem geta gert góða þætti. VIÐ HÆFI BARNA? Á sunnudaginn var mynd Ás- geirs Long og Valgarðs Runólfs sonar um Gilitrutt sýnd í sjónvarp inu og ætluð börnum, enda nefnd barnamynd í dagskránni. Þessi mynd er forvitnileg fyrir margra hluta sakir, en sú spurn ing hlýtur að vakna við að horfa á hana, hvort hún sé virkilega barnamynd. Ýms atriði myndar- innar virðast mér einmitt þess Úr leikritinu „Kommúnistinn", sem sýnt verSwr i mánudagskvöid.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.