Tíminn - 08.10.1971, Blaðsíða 5
^6sTUI>A<?UR 8. oHSber 1371
TÍMINN
17
LANDFARI
Wm
Stott áréfting
VÆ. hefur beði'ð Landfara
fyrir eförfarandi:
„Landfari góður. — Fyrir
sfeömmu birtir þú fyrir mig
fyrirspum til forráðamanna
Dvalarheimilis aldraðra sjó-
manna, Hrafnistu, um þær
reglur, sem farið væri eftir,
þegar valið væri úr umsóknum
um heimilisvist. Finnst mér
eins og fleiri, að þar séu
gamlir sjómenn stórlega af-
skiptir og vil fá á þessu skýr-
ingar. Þar sem all langt er
orðið síðan þessar fyrirspurn-
ir mínar bárust, tel ég vist, að
þær hafi farið fram hjá for-
ráðamönnum Hrafnistu, þvi að
ekki dettur mér í hug að halda,
ENSKIR
RAFGEYMAR
LONDON BATTERY
í allar gerðir bíla
og dráttarvéla
FYRIRLIGGJANDI
H. JÓNSSON & CO.
Brautarholti 22
Sími 2-22-55
að þeir telji sig of góða til að
svara slíkum fyrirspumum
opinberlega, þar sem almenn-
ingur og ekki sízt sjómenn og
sjómannskonur, eiga rétt á að
fá að vita gjörla um þessar
reglur. — Með þökk fyrir birt
inguna og von um að forráða-
menn dvalarheimilisins sjái sér
fært að svara þessu bráðlega,
kveð ég þig að sinni. — V.G.“
Vegaframkvæmdirnar
voru auglýstar
„í blaði yðar þriðjudaginn
5. okt. s.l. er grein í þættinum
Landfari, með undirfyrirsögn-
inni „Óafsakanleg framkoma'*,
kvartar höfundur hennar und-
an því að hann hafi þann 25.
september s.l. orðið fyrir töf-
um á Austurlandsvegi við
Djúpavog, þar sem yörubifreið
hafi verið að starfi og tafið
för sína í rúmlega tiu mxnútur,
og segir svo: \,Tafir á umferð
um þennan kafla þjóðvegarins
vegna vegaframkvæmda voru
ekki auglýstar".
f sambandi við þetta vill
Vegagerð ríkisins taka fram,
að í tilkynningatíma rikisút-
varpsins þ. 17. september s.l.
var lesin svohljóðandi tilkynn-
ing frá vegamálastjóra. „Vegna
vegagerðar má búast við um-
ferðatöfum næstu daga á Aust
urlandsvegi við Djúpavog."
Samkvæmt þessari tilkynn-
ingu máttu vegfarendur búast
við að talsverðar tafir gætu
orðið þar af völdum þess að
unnið væri á veginum með alls
konar tæki og aðrar aðgerðir,
vegna þeirra verklegu fram-
kvæmda sem þama áttu sér
stað.
Einnig segir grcinarhöfund-
ur. „Framkoma vörubifreiða-
stjórans er að mínu áliti óaf-
sakanleg". Það skal tekið fram,
að vörubifreiðastjóri þessi eða
hver starfsmaður vegagerðar-
innar fer eftir gefnum fyrir-
mælum frá fulltrúum vcgagcrð
arinnar, hvar sem starfsmenn
hennar eni staddir, eða að
hvaða störfum þeir vinna. Ef
þeir gerðu það ckki, þá væri
framkoma þeirra óafsakanleg.
Ennfremur segir greinarhöf-
undur: „Skyldi umræddur bif-
reiðastjóri þora að koma þann
ig fram, sem um hefur verið
rætt, á þjóðvegum hér á þétt-
býlissvæðinu".
Á þéttbýlissvæðum sem ann-
ars staðar þarf að vinna að
margs konar viðhaldi og endur
bótum á þjóðvegunum, við þær
framkvæmdir þarf oft og iðu-
lega að tefja umferð og það
lengur en í tíu mínútur, svo
að á það má benda, að umrædd
ur bifreiðastjóri eða hver ann-
ar sem er, er í fullum rétti
við sín störf, enda væri annað
ekki hægt.
Það væri æskilegt herra rit-
stjóri, að blaðamenn yðar
kynntu sér hvernig málum sem
þessum er háttað, áður en farið
er með skrif eins og umrædda
grein í lesdáika blaðsins.
Vegagerð ríkisins,
Adolf J.E. Petcrsen,
verkstjóri."
BRIDGESTONE
Japönsku
NYLON SNJÓHJÓLBARÐARNIR
fást hjá okkur.
Allar stærðir með eða án snjónagla.
/ V > JpPp, - Sendum gegn póstkröfu um land allt
■■ flGHHSl Verkstæðið opið alla daga kl. 7.30 til kl. 22,
MM B K
■■■■■■■ ■ ■ ■ ■ ■ w ■ ■■■■■ ■■■■ SKIPHOLTI 35 REYKJAViK SÍMI 31055
HLIÓÐVARP
Föstudagur 8. október
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.30
og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8,30, 9.00 og
10.00.
Morgunbæn kl. 7.45.
Spjallað við bændur
kl. 8.25.
Morgunstund bamanna kl.
8.45: Sigríður Schiöth les
framhald sögunnar „Sumar
í sveit" eftir Jennu og
Hreiðar Stefánsson (8). Út-
dráttur úr forustugreinum
dagblaðanna kl. 9.05.
Tilkynningar kl. 9.30.
' Létt lög leikin milli ofan-
greindra talmálsliða, en kl.
10.25 Norræn tónlist:
Margot Röding syngur tvö
lög eftir Hugo Alfvén.
Mircea Savlesco og Janos
. Solyom leika Sónötu í e-
moll fyrir fiðlu og píanó op.
1 eftir Alfvén. (11.00 Frétt-
ir). Nilla Pierrou og Sin-
fóníuhljómsveit sænska út-
varpsins leika Rómönsu og
Konsert fyrir fiðlu og hljóm
sveit eftir Wilhelm Peter-
son Berger; Stig Wester-
berg stjórnar. Kirsten Flag-
stad syngur lög eftir Ey-
vind Alnæs.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
12.50 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Síðdegissagan: „Hrói höttur
f London laust fyrir seinna
stríð".
Séra Bjöm O. Björnsson les
síðari hluta þýðingar sinn-
ar á sögu eftir Michael
Arlen.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Lesin dagskrá næstu viku.
15.30 Dönsk og kínversk nútima-
tónlist.
Paul Birkeland, Ame
Karecki, Herman Holm
Andersen og Alf Petersen
leika Divertimento fyrir
flaptu, fiðlu, lágfiðlu og
knéfiðlu eftir Fleming
Weis.
Kínverskir hljóðfæraleikar-
ar flytja Strengjakvartett í
G-dúr eftir Chu Wei.
16.15 Veðurfregnlr. Létt lög.
17.00 Fréttir. Tónleikar.
18.00 Fréttir á ensku.
18.10 Tónleikar. 'Jilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Mál til meðferðar.
Árni Gunnarsson fréttamað-
ur sér um þáttinn.
Auglýsið í Tímanum
20.15 Konsert í amoll fyrir
flautu, fiðlu, sembal og
strengjasveit eftir Johan
Sebastian Bach.
Einleikarasveitin í Zagreb
leikur.
20.40 Armenska kirkjan, — ann-
að erindi.
Séra Árelíus Nielsson talar
um upphaf hennar.
21.05 Kórsöngur,- Karlakórinn í
Pontaraddulais f Wales
syngur.
Söngstjóri: Noel G. Davies.
Organleikari: Hugh Jones.
21.30 Útvarpssagan: Prestur og
morðingi" eftir Erkki Kario.
Baldvin Halldórsson les
(8).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Frá Ceylon.
Magnús Á. Ámason listmál-
- ari lýkur að segja frá kynn-
um sfnum af landi og þjðð
(12).
22.40 Frá fyrstu liausthljómleik-
um Sinfóníuhljómsveitar
fslands f Háskólabíói
kvöldið áður.
Stjómandi: George Cleve.
Sinfónía nr. 4 í e-moll op.
98 eftir Jahannes Brahms.
23.20 Fréttir í stuttu máli.
Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR 6. október.
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Frá hátíðatónleikum f
Björgyin
Norska söngkonan Birgitte
Grimstad syngur við eigin
gítarundirleik.
(Nordvision — Norska sjón-
varpið)
Þýð.: Ingibjörg Jónsdóttir.
21.00 Málarinn Ingres
Mynd um franska málarann
Jean Auguste Ingres (1780—
1867), sem á sinni tíð var
einn helzti forvígismaður
natúralismans í máiaralist, og
var einkum frægur fyrir
andlitsmyndir sínar og sögu
leg málverk.
Þýðandi og þulur Silja Aðal-
steinsdóttir.
21.25 Gullræningjarnir
Brezkur sakamálamynda-
flokkur um eltingaleik lög-
reglumanna við harðsvíraða
ræningja.
7. þáttur:
Grunaður um græsku.
Aðalhlutverk Ian Hendry,
Wanda Ventham og Peter
Vaughan.
Þýð.= Ellert Sigurbjörnsson.
Efni 6. þáttar:
Peter Conroy, ökumaður gull-
flutningabílsins leitar hælis i
Austurríki. Blaðamaður nokk
ur þvingar konu Conroys til
að segja frá dvalarstað hans
og á síðan fréttaviðtal við
hann. Conroy ætlar að flýja
til Mexíkó, en við svissnesku
landamærin tekur Cradock á
móti honum.
22.15 Erlend málefni
Umsjónarmaður Asgeir Ing-
ólfsson.
22.45 Dagskrárlok
Suðurnesjamenn
Leitið
tilboða hjá
okkur
Látið okkur
preuta
fyrirykkur
Þú getur ekki farið í land, Ó Dreki! haldið nú heim aftur. — Það eru hákarl- skulið sjá um liákarlana og ég sé um
Djöflaeyja. — Þakka ykkur Móramcnn, ar í rjónum og Djöflar í landi. — Þið Djöflana.
nHiHiiniiitiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuniiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiuiiiuiHiiiiiiuiinmiiiifiiiiHNNiNMiuiiim
UMUnutlUininiUIIIIUIIIIUUIIIUIIUHIHIIHIIIIIUUUIIIIIIHIUIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIUIIIIIHUM
Fljót ufgreiðsla - góð pjónusta
Prentsmiðja
Baldurs Hólmgeirssonar
HrannargStq 7—Kcflnvfk