Tíminn - 16.10.1971, Blaðsíða 6
6
TÍMINN
LAUGARDAGUR 16. október 1971
Merkjasala
Blindravinaf álags íslands
verSur sunnudaginn 17. okt. og hefst ki. 10 f.h.
Sölubörn komið og seljið merki til hjálpar blind-
um. — Góð sölulaun.
Merkin verða afhent í anddyrum allra barna-
skólanna í Reykjavík, Kópavogi og Hafnar-
firði, Barnaskóla Garðahrepps og Mýrarhúsa-
skóla.
Hjálpið blindum og kaupið merki dagsins.
Merkið gildir sem happdrættismiði.
Blindravinafélag íslands.
Frá Lífeyrissjóði Dags-
brúnar og Framsðknar
Stjórn lífeyrissjóðsins hefur ákveðið að veita lán
úr sjóðnum til sjóðsfélaga.
Eyðublðð fyrir umsóknir verða afhent á skrifstof-
um Framsóknar og Dagsbrúnar, og skrifstofu líf-
ejrissjóðsins að Laugavegi 77.
Umsóknir þurfa að hafa borizt fyrir 1. desember,
1971 til skrifstofu lífeyrissjóðsins, sem jafnframt
veitir aðstoð við útfyllingu umsókna ef þess er
óskað.
Stjórn lífeyrissjóðs Dagsbrúnar og
Framsóknar.
Verknámsfulltrúi
HSnfræðsluráð vill ráða fulltrúa til eftirlitsstarfa
með iðnnámi í verknámsskólum og á vinnustöð-
um. Æskilegt er að hlutaðeigandi hafi verk- eða
tæknilega menntun og starfsreynslu í iðnaði eða
við kennslu.
Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun og
fjrrri störf skal skila fyrir 31. þessa mánaðar í
pósthólf 5113.
Iðnfræðsluráð.
Vanir flakarar
Óskum að ráða vana flakara. Mikil vinna. Fæði
og húsnæði á staðnum.
[FISDDWIHBOSD/a
SAFNARiNN
Islandssöfn undir
hamarinn
Að undanförnu hefur verið
nokkuð um að stór söfn ís-
lenzkra frímerkja hafi \jerið
boðin upp erlendis.
Hvers konar söfn eru þetta?
Er traustið á að safna íslenzk-
um frímerkjum að veikjast?
Eru menn að selja úr landi
vegna erfiðleika á sölu hér?
Þessara og margra fleiri spurn
inga hef ég verið spurður
vegna þess að tvö stór söfn
hafa verið á uppboðum undan-
farið.
Hjá Stanley Gibbons var selt
safn fyrir 2.850,00 pund og nú
um mánaðamótin var selt safn
hjá Mercury Stamp, Inc., í
New York, sem var að verð-
listaverði um 15.000,00 doll-
arar eða 1.320.000,00 kr.
í fyrsta lagi er hér ekki um
stór söfn að ræða. Til sönnun-
ar því má geta þess, að á síð-
asta ári seldi Frimarkhuset í
Stokkhólmi. íslandssafn á 1
milljón sænskra króna eða
rúmar 17 milljónir íslenzkra
króna. Það var stórt safn. Var
þetta safn byggt upp úr fleiri
góðum söfnum sænskra ís-
landssafnara. Ekki hafa borizt
niðurstöður af sölunni i New
York er þetta er skrifað, en
ætla má að það safn seljist fyr-
ir um 650.000,00 miðað við
verðlistaverðið, eða minna ef
nokkuð verður. Um það safn
er það að segja, að það virðist
vera úr dánarbúi, þar sem söfn
un lýkur um 1930, því að sama
og engin merki eru eftir þann
tíma. Ómögulegt er að segja
um eiganda þess, þar sem slíkt
er ekki gefið upp, né heldur
hver kaupir, en ætla má að
þarna sé um bandarískt safn
að ræða. Það eru nefnilega tæp
ast til þau söfn hér á landi,
sem mundu ná þessu verði á
uppboðum, því miður.
Við höfum allt fram undir
þennan dag orðið að horfa upp
á það, að þurfa að sækja mesta
vitneskju okkar um íslenzk
frímerki til útlendinga. Öll
beztu rannsóknarsöfnin um ís-
lenzk frímerki eru erlend, öll
stærstu og beztu íslandssöfn-
in eru erlendis. Því dettur
manni ekki íslendingur í hug,
þegar svona söfn koma á mark-
aðinn, og því miður eru þau
ekki keypt inn í landið. Við
eigum enga svo efnaða menn,
að þeir fari að kaupa inn í
landið söfn yfir hálfa milljón
að verðmæti, þ.e. fjárfesta
slíka upphæð í frímerkjum.
Að traustið á íslenzkum frí-
merkjum sé að veikjast álít ég 1
út í hött, a.m.k. að því er við-
kemur klassískum frímerkj-
um. Hitt er svo hrein tilviljun,
að tvö söfn. skuli seld með svo
stuttu millibili, enda annað í
vesturálfu en hitt í austurálfu
og alls ólík að efni.
Þar til hér rísa upp frí-
merkjasafnarar sem hafa þau
fjárráð og þekkingu, að geta '1
keypt hvað sem er, verður erf-
itt að vinna að rannsóknum á
frímerkjum hér á landi.
Sigðurður H. Þorsteinsson.
BRIDGESTONE
Japönsku
NYLON SNJÓHJÓLBARÐARNIR
fdst hjá okkur.
Allar stærðir með eða án snjónagla.
Sendum gegn póstkröfu um land allt
Verkstæðið opið alla daga kl. 7.30 til kl. 22,
GÚMMIVNNUSTOFAN HF.
SKIPHOLTI 35 REYKJAVÍK SÍMI 31055
LÖGFRÆÐISKRIFS70FA
Tómas Árnason, hrl, og
Vilhjálmur Arnason, hrl.
Lækjargötu 12
(Iðnaðarbankahúsinu 3. h.)
Símar 24635 — 16307
PÍPULAGNIR
STTLLl HITAKERFl
Lagfæri gömul hitakerfi.
Set upp hreinlætistæki.
Skipti hita.
BILALEIGA
HVJDRFTSGÖTU 103
V.WSendiferðabifreið-VW 5 manna-VWsvefnvagfr
VW9manna-Landrover 7manna
Upplýsingar í síma 41412 og í Keflavík í síma
92-6044.
Set á kerfic Danross
ofnvenfla.
Sími 17041