Tíminn - 16.10.1971, Page 16
Laugardagur 16. október 1971.
Krefst
61 millj.
skaðabóta
OÓ—Reykjavík, föstudag.
Ferðaskrifstofan Sunna krefst
61 millj. kr. skaðabóta af rík-
inu og hefur nú stefnt sam-
göngumálaráðherra og f jármála
ráðherra til að standa skil á
þeirri upphæð. Er þetta skaða-
bótakrafa sem byggist á því,
að árið 1969 afturkallaði sam-
göngumálaráðuneytið leyfi ti.l
flugrekstrar, sem ferðaskrifstof
unni hafði verið veitt.
Leyfi þetta var að vísu gefið
aftur síðar, en ferðaskrifstof-
an telur sig hafa orðið fyrir
miklu tjóni vegna afturköllun-
arinnar, þar sem samningar
við erlendar ferðaskrifstofur
gengu úr gildi, og varð Sunna
að hætta öllum flugrekstri.
Vonast til að síldin ■
bæri á sér J
ÞÓ—Reykjavík, föstudag.
Jú, við fundum eina sæmi- *
lega torfu í nótt, sagði Hjálm- ■
ar Vilhjálmsson, fiskifræðing ■
ur þegar við ræddum við hann _
í dag. En Hjálmar er staddur ,
um þessar mundir í leitarskip ■
inu Hafþóri. Hjálmar sagði, að ■
þeir á Hafþóri hefðu undan- ■
farna daga verið við síldarlcit _
á svæðinu kriiigum Snæfells-
nes og suður undir Reykja-
nes. ®
NV af Hraunhorninu fundu ■
þeir eina fallega torfu, en það ■
var um kl. 6 í morgun, og a
sagði Hjálmar, að ekki hefði _
verið hægt að eiga við hana,
þar sem hún var yfir hraun- ■
kraga. Eftir að birti hefur lít- ■
ils, sem einskis orðið vart, en ■
þó hefur fundizt smáryk nið- B
ur við botn, sem ómögulegt er
að segja um hvað er. Hjálmar
sagði, að þeir vonuðust til að ■
síldin myndi eitthvað bæra á 1
sér þegar myrkur væri komið ■
á, enda veður orðið sæmilegt ■
og bátarnir eitthvað að tínast B
it. ■
fyrstu rjúpurnar?
SB—Reykjavík, föstudag.
Fyrsti rjúpnaveiðidagurinn
er í dag, og þegar þetta er
r.krifað hefur enn ekki frétzt
af einni einustu veiddri rjúpu.
Frá rjúpnaskyttum á Húsavík
er það að segja, að þær fóru
margar á stúfana í morgun upp
í brekkumar í nágrenninu. Eng
inn þeirra hafi veitt rjúpu
seinni partinn í dag, svo vitað
væri, en þeir sem komnir voru
aeim aftur „sögðust þó hafa
séð rjúpur á flugi.
Itarleg könnun á
útleigu FB-íbúða
EB-Reykjavík, föstudag.
Húsnæðismálastofnun ríkis
ins vinnur nú af kappi að því,
aS kanna leigumál, hvað við-
kemur íbúðum í fjölbýlishús-
um Framkvæmdanefndar
byggingaáætlunar, og á fund-
um Húsnæðismálastjórnar
hefur að undanförnu verið
fjallað um þetta efni. Mun
nú verið að undirbúa hvaða
ráðstafanir eig: að gera til að
spyrna á móti þeirri óheilla-
þróun, sem er í þessum leigu-
málum.
Hjá Húsnæðismálastofnuninni
hefur að undanförnu verið farið
yfir lög stofnunarinnar um leigu
íbúða í fjölbýlishúsum Fram-
kvæmdanefndar byggingaáætlun-
ar. Eins og Tíminn hefur greint
frá síðustu daga, er hér um mjög
alvarlegt mál að ræða, þar sem
tilgreindar íbúðir eru leigðar á
okurverði.
Eftir helgi mun Húsnæðismála
stjórn koma saman til fundar, þar
sem itarlega mun verða fjallað
um leigumál og er tíðinda að
vænta frá þeim fundi.
Slátrun
langt
komin
Hluti af íbúðum, sem Framkvæmdanefnd byggingaráætl unar hefur byggt í Breiðholti
(Tímamynd G.E.)
ÞÓ—Reykjavík, föstudag.
Nú er farið að líða á slátur.
tíðina og hefur slátrun víðast
hvar gengið vel. Samt hefur slát-
urtíðin tafizt á einstaka stöðuni
vegna manneklu, og þá aðallega
í fláningunni. Þegar við ræddum
við nokkra forráðamenn slátur.
húsanna í dag, kom í Ijós að við.
ast hvar er þungi dilka heldur
betri en í fyrra, en hann rar
ei.nnig með betra móti þá.
Ólafur Sverrisson, kaupfélags-
stjóri í Borgarnesi, sagði að dilka-
þunginn hjá þeim væri reiknað-
ur út í tölvu, þegar slátrun væii
lokið, en vitað væriað dilkaþung-
inn væri heldur betri, en í fyrra.
Slátrun hjá kaupfélaginu á Borg-
arnesi hefur verið heldur á eftir
áætlun vegna imanneklu, en að
öðru leyti hefur slátrunin gengið
mjög vel. >á hafa imerm komið
frá heilbrigðiseftirlitinu í Bret-
landi og Bandaríkjunum og fundu
þeir ekkert að búnaði sláturhúss-
ins.
Haukur P. Ólafsson hjá slátur
húsi KEA á Akureyri, sagði að
þar hefði slátrun gengið þolan-
lega. Alls yrði slátrað 35 þús.
fjár í þrem sláturhúsum KÉA, á
Akureyri, Grenivík og á Dalvík.
Dilkar eru þyngri en áður og
var meðaldilkaþungi í síðustu
viku 15,3 kg.
Haukur sagði, að búizt væri við
að slátrun hjá KEA myndi ljúka
á miðvikudag.
ÓK Halldórsson, á Þórshöfn,
sagði að slátrun hefði lokið þar í
dag, en slátrun hefur gengið ágæt
lega þar. Alls var slátrað kring-
um 10 þús. fjá á Þórshöfn á þeseu
hausti, er það heldur færra en
búizt var við, en bændur í nánd
við Þórshöfn misstu margt fé, í
hretinu í ágúst.
Margskonar afsláttur í innan-
landsflugi Flugfélags Islands
KJ—Reykjavík, föstudag.
Forráðamenn Flugfélags ís-
iands, telja að aukningin í innan-
landsfluginu í ár, verði um þriðj
ungur frá því á fyrra ári. E.t.v.
eiga hin margskonar afsláttarfar-
gjöld sinn þátt í aukningunni, en
veittur er unglingaafsláttur, náms
mannafsláttur, afsiáttur fyrir aldr
að fólk, hópafsláttur og einnig
eru í gildi sérstök fjölskyldufar-
gjöld.
Unglingar á aldrinum 12—18
ára fá 25% afslátt á fargjaldi
gegn framvísun nafnskírteinis.
Fólk sem er 67 ára og eldra fær
sömuleiðis 25% afslátt gegn fram
vísun nafnskírteinis, og sömu sögu
er að segja um námsfólk sem flýg
ur frá heimili sínu og og til skóla-
dvalar og til baka.
Ferðist fólk saman í hópum
10—15 eða fleiri saman er veittur
afsláttur upp í 20%.
Fjölskyldufargjöld eru þannig,
að t.d. greiðir fjölskyldufaðir
fullt fargjald, en aðrir í fjölskyld-
unni hálf fargjald.
10 með berkla á Siglufirði — 6 á sjúkrahúsi
Smitberinn hefur
enn ekki fundizt
SB—Reykjavík, föstudag.
Tíu manns á Siglufirði hafa
reynzt jákvæðir við berklaprófun
undafarið, sem ekki hafa verið
það áður. Sex tilfelli hafa verið
lögð inn á sjúkrahúsið til rann-
sóknar. Smitbcrinn hefur ekki
fundizt.
Héraðslæknirinn á Siglufirði,
Sigurður Sigurðsson vildi lítið
um málið segja, annað en þetta,
en fréttaritari Tímans þar, sagði
í dag, að hann vissi ekki til þess,
að smitberinn hefði fundizt, en
rannsóknin beindist nú einkum
að skipverjum á Dagnýju, en þeir
hefðu allir reynzt jákvæðir við
prófun, en að vísu munu sumir
þeirra hafa verið það einnig áð-
ur. Dagný hefur vorið á veiðum
í alit sumar, en - vor var skipið
í viðgerð erlendis, en síðan hafa
rnargir menn komið um borð og
farið og er nú verið að leita þá
uppi til berklprófunar.
Var neitað um
úttekt úr stofnmi
bankabók
OÓ—Reykjavík, föstudag.
f dag var gerð tilraun til
að ná út peningum úr banka
úr einni af þeim bankabók-
um, sem stolið var frá Krabba-
meinsfélaginu í fyrradag. Eins
og sagt var frá í Tímanum var
stolið möppu af afgreiðslu-
borði í Björnsbakaríi, er í vora
tékkhefti og bankabækur, sem
starfsstúlka Krabbamcinsfé-
lagsins gleymdi, en ungur mað
ur tók traustataki og hvarf
út með.
í dag gerði svo ungur mað-
ur tilraun til að taka út ttor
einni bókinni i banka. Ætlað!
hann að fá 29 þtss. kr.
Ekki tókst manninum að ná
upphæðinni úr þankanum því
afgreiðslufólkið sá á bókar-
númeri að bókin var stolin og
af hverjum. Var honum afhent
bankabókin aftur og sagt að
ekkert þýddi fyrir hann að ná
út peningum úr þessari bók
Framrald á bls. 14.
AÐALFUNDUR FUF
Aðalfundur FUF i Reykjavík vcrður, eins og áður hefur verið
auglýst, linldinn í dag, laugardag, 16. október, í Glaumbæ, niðri,
og hefst kl. 14. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. — Stjórnin.