Tíminn - 03.11.1971, Page 2

Tíminn - 03.11.1971, Page 2
 2 TIMINN MWVIKUDAGUR 3. nóvembér í i Þessa mynd tók Ijósmyndari Tímans í gær, nærri Sundahöfn. Þar var níu kössum, fullum af dynamiti staflað npp við vinnuskúr. Þegar myndin var tekin var enginn maður þarna nærri fyrir utan ljós- myndarann. Nokkuð frá skúrnum báru verkfæri og umrót þess merki, að þar væri unnið að spreng- ingum, en þar var hvergi maður sjáanlegur. — Hvort dynamitbirgðirnar hafa verið þarna gæzluv lausir í lengri eða skemmri tíma, er blaðinu ókunnugt um, en auðvitað á ekki að skilja varning scm þennan eftir þar sem hvcr og einn getur gengið að honum, hvorki í langan né skamman tíma. Á kössunum stendur „Sprengihætt gúmmídynamit — Hættulegt sprengiefni". (Tímamynd — Gunnar) ÞOTUR NOTAÐAR í ÖLL UM FERÐUM LOFTLEIÐA Nýtt sprengju- gabb hjá Fl ÞÓ—Reykjavík, þriðjudag. Um kl. 11,30 í gærmorgun, þeg ar þota Flugfélags íslands, Gull- faxi, var búin að að fljúga um það bil í tuttugu mínútur frá Glasgow á leið sinni til Kaup mannahafnar, var hringt til af- greiðslu BEA og tilkynnt að sprengja væri um borð í vélinni. Þotunni var þegar snúið við, og varð af því tveggja tíma töf á Glasgowflugvelli. Þar leituðu lögreglumenn í vélinni, en urðu einskis varir þrátt fyrir ýtarlega leit. Hélt þotan síðan áfram til Kaupmannahafnar, og bar ekkert til tíðinda í þeirri ferð. Þetta er í annað skipti á skömm um tíma, sem hringt á flugaf- greiðsluna í Glasgow, og sagt að sprengja sé í þotu FÍ. í bæði skiptin hafa vélarnar verið komn- ar góðan spöl frá flugvellinum, í fyrra skiptið var þotan þó komin aðeins lengra, og lenti hún þá á Turnhouseflugvelli utan við Edinborg. Með þotunni í þær voru 53 farþegar, en flugstjóri í ferðinni var Viktor Aðalsteinsson. Sveinn Sæmundsson, blaðafull trúi FÍ, sagði blaðinu í dag, að það virtist vera svo, að einhver óþekkt persóna vildi trufla rekst ur félagsins. Þetta væri mjög bagalegt, bæði hefði þetta mikinn kostnað í för með sér fyrir félag ið og skapaði farþegum mikið ó- næði. Um kostnaðinn vegna þess ara tveggja sprengjugabba, sagð ist Sveinn ekki vita nákvæmlega, en hann 'Væri varla undir þrjú hundruð þúsundum. Þá bar það til fyrir skömmu, að hringt var á afgreiðsluna á Akureyri, og sagt í símann að sprengja væri í Fokkervél, sem var á leið frá Akureyri til Reykja víkur. Reyndist sú tilkynning til- hæfulaus með öllu, og starfsmenn Framhald á bls. 14 Árekstur Hörkuárekstur varð í gærkvöldi á mótum Sogavegar og Réttar- holtsvegar. Bílstjórinn, sem ók eftir Sogavegi var ékki búinn að átta sig á að búið var afl gera Réttarholtsvcginn að aðalbraut, og ók viðstöðulaust yfir gatnamótin, en lenti þá í árckstri. Skyggni var mjög slæmt, hellirigning svo að varla sást á götuna. Báðir bílarn- ir skemmdust mikið. — Ökumað- ur annars þeirra skrámað- ist í andliti. (Tímam.: — Gunnar) Breytingar hafa verið gerðar á vetraráætlun Loftleiða að því er várðar flug til Norðurlanda og Bretlands. Nýja Douglas 8 þotan varð síðbúnari en búizt var við og kemur ekki til íslands fyrr en 5. þ.m., en frá og með þeim degi verða aðeins notaðar þotur á öll- um flugleiðum Loftleiða. Flugstjóri í fyrstu ferð nýju. þotunnar verður Ásgeir Péturs- son, sem nú er yfirflugstjóri Loft- leiða. Vélin kemur hingað á föstu dagsmorgun og eftir skamma við- dvöl heldur hún áfram til Kaup- mannahafnar og þaðan til Stokk- hólms. Komið verður við aftur í Kaupmannahöfn í bakaleiðinni. Fyrsta Þotuflugið til Bretlands verður farið til Glasgow og Lond- on 13. nóv. n.k. Síðasta áætlunarferð Rolls Royce flugvélar Loftléiða verður farin til London 4. þ.m. Kemur vélin til Keflavikurflugvaílar daginn eftir og verður byriað þar á að breyta hénni i vö: uflutningavél. Því verki verður svo haldið áfram í Skotlandi og er reiknað með að því verði lokið fyrir 1. febrúar n.k. Þá verður flugvélin leigð Oargolux. Flugvélin sem fer í síðustu áætlunarferð Rolls Royce flugvéla Loftleiða, er fyrsta flug- vélin af þeirri gerð, sem félagið eignaðist. Kom hún til landsins 29. maí 1964. Vetraráætlun til Luxemborgar hófst 1. þ.m. og verða farnar átta ferðir í viku hverri til og frá Menntamálaráðuneytið hefur hinn 26. f.m. skipað nefnd til Lúxemborg. Til Norðuflhnda vei'ða farnar fimm. Jeri^r,, J ^viku. Verða þær allar til Kaupmannahafnar, en komið til Stokkhólms í tveim ferðum, á mánudögum og föstu- dögum. En til Oslóar verður kom ið í þrem ferðum í vikú, sunnu- daga, þriðjudaga og fimmtudaga. Verður nýja DC-8-55 notuð til ferðanna, en sú vél tekur far- þega. Til Glasgow og London verður farið einu sinni í viku, eða á laugardögum. þess að gera tillögur um, hvernig skipuleggja skuli fræðslustarf- setni fyfir fuílorðna, er hafi m.a. að markmiði að veita kost á endur menntun og gera kleift að ljúka prófum ýmissa skólastiga. Er ætl- azt til að nefndin. skili tillögum sínum til ráðuneytisins j frum- varpsformi. Sr. Guðmundur Sveinsson skóla stjóri Samvinnuskólans 'hefur ver- ið skípaður fórmaður nefndarinn- ar, en aðrir nefndarmenn eru Andrés Björnsson útvarpsstjóri, til nefndur af Ríkisútvarpinu, Gunn- ar Grímsson, starfsmannastjóri, tilnefndur af Sambandi ísl. sam- vinnufélaga, Jónas B. Jónsson, fræðslústjóri, tilnefndur af Reykja víkurborg, dr. Matthías Jónasson, prófessor, tilnefndur af háskóla- ráði og frú Sigríður Thorlacíus, formaður Kvenfélagasambands ís- lands, tilnefnd af kvenfélagasam- bándinú. Þá hefur ráðuneytið í dag skip- að nefnd til þess að semja frum- varp til laga um aðstoð við skóla- nemendur til að jafna aðstöðu þeirra til skólagöngu. Runólfur Þórarinsson stjórnir- ráðsfulltt'úi hefur verið skipaður Framhald á bls. 14 Kristínar L. Sigurð > dóttur fyrrv. alþmfj- ismanns minnzí á Alþingi EB—Reykjavík, þriðjudag. Á fundi í Sameinuðu þingi í gær, mánudag, var Kristínar L. Sigurðardóttur minnzt af Eysteini Jónssyni, forseta Sameinaðs þings, og fara minningarorð hans hér á eftir; „Kristín L. Sigurðardóttir, fyrr- verandi alþingismaður, andaðist í gær, 31. október, í sjúkrahúsi hér í borg eftir langvarandi vanhéilsu, 73 ára að aldri. Vil ég leyfa mér að minnast hennar með nokkrum orðum, áður en gengið verður til dagskrár. Kristín L. Sigurðardóttir var fædd í Reykjavík 23. márz 1898. Foreldrár hennar voru Sigurður, síðar stofnandi og skólastióri iýð- háskólans að Hvítárbakka i Ro-á- arfirði, Þórólfsson bónda i H" t og síðar Skriðnaf'lli á ^ ' ”• Éinarssonar og fyrH kn- - Anna Guðmundsdcttir -k • > ’í Hafnarfirði Ólafsroht- stundaði barp*»ckó^>-í,ri vík og frarnha'dcn^m ' bakkaskóla tvo vetú> an við verzlunar- > v ->■ ■ störf í Reykjavík á árunvm i "í 1918. Frá 1919 og svo ' heilsa entist, gegndi '>>’> 1 :>■ urstörfum hér í Reykiavik Kristín L. Sigurðardóttir ■>>•■ um langt skeið mikið starf . vt ýmiss konar félagsmálum. Htih var í ,framkvæmdanefnd kvenna- heimilisins Hallveigarstaða 1945 —1966, formaður hennar 1950— 1966, í áfengisvarnanefnd kvenna 1946—1966, formaður hennar 1946-—1948, í orlofsnefnd hús- mæðra 1961—1966, í barnavernd- arnefnd 1962—1966, og í mæðra- styrksnefnd allmörg ár. Hún var í stjórn Húsmæðrafélags Reykja- víkur um skeið og átti sæti í stjórn Kvenréttindafélags íslands 1952—1968, var kjörin heiðurs- félagi þess, er hún lét af stjórn- arstörfum. Ennfremur starfaði hún mikið í góðtemplararegiunni á árunum 1937—1954. Hún var í stj órn S jálfstæðiskvennafélagsins Hvatar 1937—1967, formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna 1956—1965 og vann ýmis önnur trúnaðarstörf í þágu Sjálfstæðis- flokksins. Hún átti sæti á Alþingi kjörtímabilið 1949—1953 og tók auk þess nokkrum sinnum sæti á Alþingi sem varaþingmaður á ár- tifiúm 1953—1956. Sat hún á 7 þingum alls. Af starfsferli þeim, sem hér hef ur vferið rakinn, má glöggt sjá áð Kristín L. Sigurðardóttir befur jafnframt húsmóðurstörfum á rausnar heimili látið sig margt varða í félagsmálum samborgara sinna og valizt þar til forustu. Hún var fremur hlédræg, en lá ekki á liði sínú, ef til hennar var leitað til stuðnihgs þeim málefn- um, sem hún bar fyrir brjósti, og hún vildi í engu bregðast þeim skyldum, sem hún tók sér á herð- ar. Ég vil biðja háttvirta alþingís- menn að minnast Kristínar L. Sigúrðardóttur með því að rísa úr sætum.“ Nefnd skipuð til að skipu- leggja fræðslu fullorðinna

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.