Tíminn - 03.11.1971, Síða 3

Tíminn - 03.11.1971, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 3. nóvember 19:1 TIMINN 3 NÝTT SKÓLAHÚS VÍGT Á KIRKJUBÆJARKLAUSTRI Perusala á Sauðárkróki Næstkomandi laugardag 6. nóv. efnir Lions-klúbbur Sauðárkróks til perusölu á Sauðárkróki og Hofs ósi, sem hefur verið nánast fastur liður á liðnum árum. Félagarnir munu heimsækja heimilin á tímanum kl. 12,30 til 15,00. Ágóðinn af perusölunni, sem og aðrar fjáraflanir klúbbsins, rennur óskiptur til líknar- og menningar- mála í Skagafirði og hefur Sjúkra hús Skagfirðinga verið sérstakt áhugaefni klúbbsins, og svo er enn. Meðal þess sem Lionsklúbbur Sauðárkróks hefur fært Sjúkra húsinu á undanförnum árum má nefna efnaskiptatæki, sjónprófun artæki, sjónvörp og fleira. í vet ur eru væntanleg endurþjálfunar tæki og sjúkrabörur er kosta um 120 "þús. kr. Væntir klúbburinn þess að Sauð árkróksbúar og Hofsósbúar taki vel á móti perusölumönnum á laugardaginn og jafnframt þakk- ar klúbburinn alla vinsemd og móttökur á undanförnum árum. I framtíðinni hyggst Lionsklúbb ur Sauðárkróks hefja perusölu fyrr að haustinu, það er fyrst í október. Ráðstefna um heilbrigði og ör- yggi á vinnustöðum var haldin á vegum Menningar- og fræðslusam bands alþýðu dagana 29. og 30. okt. s.l. Ráðstefnuna sóttu 28 þátt takendur frá 26 verkalýðsfélögum. Stefán Ögmundsson, formaður MFA, setti ráðstefnuna, en Baldur Óskarsson, miðstjórnarmaður ASÍ, stjórnaði henni. Fyrri dag ráð- stefnunnar fluttu eftirtaldir menn erindi: Friðgeir Grímsson, öryggis málastjóri, Baldur Johnsen, for- stöðumaður Heilbrigðiseftirlits ríkisins og Kormákur Sigurðsson, heilbrigðisfulltrúi hjá Reykjavíkur borg. Að loknum erindum þeirra urðu fyrirspurnir og umræður. Síðari daginn flutti Hannibal Valdimarsson, félagsmálaráðherra ræðu, en þeir Stefán Ögmunds- son, prentari og Guðjón Jónsson, járnsmiður, erindi um kröfur verkafólks til vinnustaðarins og ástand íslenzkra vinnustaða. Að loknum erindum þeirra störfuðu umræðuhópar og í lok ráðstefn- unnar var samþykkt ályktun sem fylsir hér á eftir: Ráðstefna, haldin að tilhlutan Menningar- og fræðslusambands alþýðu 29. og 30. október 1971, skipuð 28 meðlimum frá 26 verka lýðsfélögum, samþykkir eftirfar- andi ályktun: 1. Á vinnustaðnum dvelur hver vinnandi maður a.m.k. helminginn af vökutímá sínum. Vinnustaður- inn er því sá staður utan heimilis, sem mest áhrif hefur á andlega og líkamlega líðan fólks. Þess vegna hljótum við að gera þær kröfur til vinnustaðarins, að hann upp- fylli skilyrði, sem hver maður meú fulla virðingu fyrir sjálfum sér og starfi sínu, hlýtur að setja, varðandi öryggi, hollustuhætti ,g aðbúnað á vinnustað. Vinnustaðirnir eru margir og mismunandi, úti og inni, og kröf- urnar sem gera verður þar af leið ÞÓ—Reykjavík, þriðjudag. Um helgina var vígður nýr andi margvíslegar. En í höfuðat- riðum eru þær þessar: Öryggi gegn sly?um, hreint loft, birta, hóflegur hiti eftir eðli vinnu, g'ð ræsting, fullkomin aðstaða til hreinlætis, góð aðstaða til neyzlu matar, hvíldar, fataskipta, auðveld vinnuaðstaða og fullkomið eftirlit með atvinnuájúkdómum. Ráðstefnan lítur svo á að ör- yggis- og heilbrigðismál vinnustað anna í landinu séu veikasti hlekk urinn í heilsugæzlu hérlendis og víða sé um miklar hættur og bein- línis heilsuspillandi aðbúnað að ræða. 2. Lög og reglugerðir um öryggi og hollustuhætti eru ófullnægj- andi og skortur á skýrum fyrir- mælum í fjölmörgum efnum. Stofnanir þær, sem eiga að fram- kvæma lögin ,eru líka alltof veik- ar og skortir myndugleik til ráð- stafana sem gera þarf til þess að fullnægja ákvæðum laga og reglugerða sem í gildi eru. Þær eru nánast ráðgefandi stofnanir. Þess vegna lítum við svo á að nauðsynlegt sé að öll lagaákvæði og reglugerðir um öryggi og heilsugæzlu á vinnustað hljóti gagngera endurskoðun og' vérði' samræmd lögum um almenna vinnuvernd. Ráðstefnan gerir kröfu til þess að við samningu og endurskoðun slíkra laga fái verkalýðsfélögin tækifæri til þess að fjalla um frumvörp til laga og reglugerða ug gera tillögnr til breytinga. 3. Þá vill ráðstefnan taka það fram, að hún álítur það grundvall aratriði til árangurs á framkvæmd laga og reglugerða að verkalýðs- félög og/eða sérgreinasamb, ..d eigi beina aðild að framkvæmd og eftirliti með öryggi og hollustu- háttum vinnustaðanna. Þannig verði það bundið í lögum að verkalýðsfélögum og -érgreinasam böndum beri að tilnefna eftirlits- menn og heilbrigðisfulltrúa, sem barna- og unglingaskóli á Kirkju bæjarklaustri. Er Þetta fyrrihluti skólabyggingar, sem tekin er í notkun. Byrjað var á byggingu skólans árið 1966, og í sumar var þessi hluti tekinn í notkun með að þessum málum staxfa á vegum ríkis og bæjarfélaga. Ráðstefnan beinir þeim tilmæl- um til heilbrigðismálaráðherra, að reglugerð skv. lögum um Heil- brigðiseftirlit ríkisins, sem nú bíð ur' staðfestingar, verði send verka- lýðsfélögum í landinu til umsagn- ar, áður en hún hlýtur staðfest- ingu ráðherra. Ráðstefnan lítur svo á, að taka beri inn á námsskrár skóla á mið- skólastigi fræðslu um íslenzka fé- lagsmálalöggjöf varðandi rétt vinn andi fólks til heilsuverndar og öryggis í atvinnulífinu. 4. Ráðstefnunni er Ijóst, að hið slæma ástand í öryggis- og heil- brigðismálum, sem nú ríkir al- mennt á íslenzkum vinnustöðum, verður ekki leyst með löggjöf eða af stofnunum einum saman. Þar verður verkafólkið sjálft og sam- tök þess að koma til skjalanna. Með, þróttmiklu upplýsinga- og fraeðslustarfi verða verkalýðsfé- lögin að gerbreyta skilningi og við horfum meðlima sinna til þess- ara mála. Þau verða að gera fólki sínu ljóst, að því ber ekki a'ður að sýna fulla einbeitni og sam- stöðu i baráttunni fyrir öryggi og aðbúð á vinnustaðnum en öðrum þéttúm 'baráttunnar fyrir bættum kjörum. Verkafólki ber að leggja ríka áherzlu á, að góðar umgengnis- venjur, þrifnaður og háttvísi ríki á vinnustaðnum. Sú viðurkenning á misrétti verður að hverfa, að gerðar séu allt aðrar og lægri kröf ur um aðbúnað verkafólks í fram leiðslugreinunum en þeirra, sern vinna stjórnunar- og skrifstofu- störf. Hinir kjörnu fulltrúar fólksms í verkalýðsfélögunum verða að ganga fram fyrir skjöldu í þessum málum og beita áhrifum sinum til þess að efla sjálfsvirðingu og metnað verkafólks gagnvart þeirri vinnuaðstöðu og aðbúnaði sem því er boðið upp á. Ef þáttaskil eiga að verða og gagngerar umbætur að fást, má ekki skorta kröfuþunga samstöðn og einbeitni. sem verkafólki með óbirgaða sjálfsvirðingu ber að sýna, þegar um er að ræða ör- yggi bess og velferð. því að Hótel Edda rak þar hótel. í áfanganum, sem vígður var um helgina, er heimavist fyrir 42 nemendur, matsalur og tvær kennaraíbúðir. Alls er þessi áfangi á 4. þús. rúmmetrar. í næsta áfanga verða fjórar kennslu stofur, kennarastofa og skrifstofa skólastjóra. Skólastjóri skólans, Jón Hjart arson, sagði blaðinu í dag, að fjölmenni hefði verið við vígslu athöfnina, meðal gesta var Hall dór E. Sigurðsson, fjármálaráð- herra, og þíngmenn kj'ördæmisins voru allir viðstaddir, að einum undanskildum. Mjög margir fluttu ræður og ávörp við vígsluathöfn ina og fluttu skólanum árnaðar óskir og má þar nefna Jón Helga son í Seglbúðum, en hann var formaður^ bygginganefndar, séra Sigurjón Einarsson, formann skólanefndar og Halldór E. Sig- urðsson fjármálaráðherra. Jón kvað alla kennslu fara fram í algjörlega óviðunandi húsnæði, en það væri í kjallara heimavist arinnar og í félagsheimilinu. Þá sagði Jón, að bæði vantaði íþrótta hús og sundlaug á' staðinn, en sjálfsagt væri' langt í það, að sú aðstaða fengist. Staöarfells- skólinn fullsetinn Húsmæðraskólinn á Staðarfelli var settur við hátíðlega athöfn í kirkjunni á staðnum 30. sept. s.l. Sr. Jón ísfeld predikaði, en for- stöðukona, frú Ingigerður Guð- jónsdóttir, flutti setningarræðu. Forstöðukona gat þess m.a., að í haust yrði lokið við skólas'ióra- bústað og væri þá vel séð fyrir húsnæði kennaraliðs skólans. Skólinn er ekki alveg 'ullskip- aður, enda húsrými aukizt vegna framkvæmda undanfarin ár, og geta nokkrir nemendur í viðbút komizt að. Forstöðukonan þakkaði þmg- mönnum og forráðamönnum skól- ans mikinn stuðning við málefni hans. Binda menn vestra miklar vonir við starfsemi skólans í fram tíðinni. AVIÐA mm Oráðna gátan og reynslan Er Ólafur Jóhannesson, for- sætisráðherra, mælti fyrir frumvarpi ríkisstjórnarinnar til staðfestingar á bráðabirgða- lögum um framlengingu verð- stöðvunar, kom til nokkurra orðaskipta milli hans og Magn- úsar Jónssonar, fyrrverandi fjármálaráðlierra, um verð- lagsmál, vísitölu og verðbólgu. Magnús spurði að því, hvað fælist í þeirri yfirlýsingu í greinargerð með fjárlagafrum- varpinu, að niðurgreiðslukerf- ið yrði tekið til endurskoðun- ar. Gerði hann því skóna, að í því gæti falizt að gerðar yrðu breytingar á vásitölukerfinu. Ennfremur sagði Magnús, að þessi bráðabirgðalög um fram- lengingu verðstöðvunarinnar væru í samræmi við það, sem stjórnarflokkarnir hefðu sagt fyrir kosningarnar, að þeir teldu að efnahagsástandið leyfði að verðstöðvunin yrði framlengd og minnti á að nú- verandi stjórnarflokkar hefðu talað heldur illa um verðstöðv- un fyrrverandi stjórnar og sagt að við tæki hrollvekja, þegar verðstöðvun lyki I. sept. Ekki væri þessi framlenging verð- stöðvunar í samræmi vjð þann málflutning. Olafur Jóhannesson, forsæt- isráðherra, sagði, að í sam- bandi við þessa síðustu verð- stöðvun fyrrverandi ríkisstjórn | ar hefði verið minnt á verð- | stöðvunina næstu á undan, eða | fyrir kosningarnar 1967. Sú | verðstóðvun reyndíst hreinn W kosningavíxill. Þrátt fyrir fyrir |1 heit fyrir kosningarnar 1967 S| um að verðstöðvunin gæti stað | ið áfram, hefði víxill fallið f eftir kosningarnar og gengis- ;i lækkun framkvæmd haustið 1967. Ekki hefðu það verið þá verandi stjórnarandstöðuflokk- ar, sem hefðu þó orðið fyrstir til að nefna „hrollvekjuna" á síðastliðnu þingi og ættu þeir ekki heiðurinn af þeirri nafn- gift. Sú nafngift væri komin úr herbúðum Magnúsar Jóns- sonar sjálfs, og vissulega væri niðurgreiðslukerfið orðið svo geigvænlega þung byrði í út- gjöldum ríkissjóðs, að hroll- vekju mætti kalla. f sambandi við áform fyrrverandi stjórnar og hvað hún hefði gert að kosn ingum Ioknum, ef hún hefði haldið velli, sagði forsætisráð herra, að það hlyti úr þessu að verða alveg óleysanleg gáta, en hins vegar hefðu menn til- hneigingu til að líta til baka og styðjast við fyrri reynslu í slíkum spádómum. Niðurgreiðslukerfið Núverandi stjórnarflokkar hefðu ætíð liaHið því fram, að verðstöðvun gæti aldrei orðið nein lausn á vanda, heldur væri hún aðeins til þess fallin að t skjóta vanda á frest. Ef verðstöðvun væri slíkt þióft' : '5, sem fyrrverandi rikfsstjorn vildi stundum vera láta, þá var það þjóðráð, sem aðeins þótti rétt að grípa til misserin fyrir kosningar. En þótt verð- Framhald á bls. 14 Fulltrúar 26 verkalýösfélaga á ráðstefnu um heilbrigði og öryggi á vinnustöðum

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.